Morgunblaðið - 03.02.1991, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1991
19.
staða undanfarnar vikur. Engu að
síður virðist einhver hreyfing vera
að koma á markaðinn, aðallega í
formi fyrirspuma. Helgi Jóhanns-
son, forstjóri Samvinnuferða-Land-
sýnar, segir nokkuð hafa verið um
að hópar þaðan hafí spurst fyrir
um ferðir hingað. Hann telur allt
útlit fyrir að ferðamenn til landsins
yrðu jafn margir, ef ekki fleiri, og
á síðasta ári.
„Miðað við þau viðbrögð sem, við
verðum vör við á hvetjuin degi,
bendir allt til að áhuginn á íslandi
sé mikill. Við höfum fengið fyrir-
spumir og pantanir á ferðum hing-
að frá ferðaskrifstofum í Evrópu
sem við höfum aldrei séð áður. Það
virðist nokkuð um að hópar, sem
hafa greinilega ætlað annað, hafa
hætt við og ákveðið að koma hing-
að í staðinn. í þessum mánuði er
til dæmis að koma 300 manna hóp-
ur frá fyrirtæki í Þýskalandi. Þessi
hópur ætlaði upphaflega til Kæró,
en skipti hressilega um stefnu. Við
erum meira að segja að fá hóp frá
Kípur á næstunni," sagði Helgi.
Halldór Sigurðsson hjá Atlands-
flugi ætlar að vera með vikulegt
flug frá þremur borgum í Þýska-
landi í sumar. Hann sagði greinilegt
að allir haldi að sér höndum um
stundarsakir' og bíði eftir þróun-
innni fyrir botni Persafóla. „Ef
Evrópubúar hreyfa sig eitthvað í
sumar þá held ég að þeir muni frek-
ar hreyfa sig í norðurátt. Við erum
svo hlutlausir og litlir og flugfélög-
in hér eru ekki þjóðartákn á sama
hátt og stóra flugfélögin í Evrópu.
Þess vegna tel ég að fólk muni frek-
ar þora að ferðast norður á bóg-
inn,“ sagði Halldór.
Lönd fyrir botni Miðjarðarhafs
ekki vænlegur kostur fyrir
ferðamenn
Atlandsflug selur aðeins ferðir
til ferðaheildsala, mest á þýsku-
mælandi svæðum Evrópu, og sagði
Halldór að viðbrögð hefðu verið
mjög jákvæð og mikið um pantanir
— þar til Persaflóastríðið hófst.
Tyrkland var til dæmis mjög ofar-
lega á vinsældarlista ferðamanna í
Þýskalandi í fyrra og töldu menn
það vera aðal vaxtarbroddinn. Nú
era pantanir þangað hins vegar í
algjöru lágmarki enda er Tyrkland
mjög nærri átakasvæðinu. Sömu
sögu er reyndar að segja um fleiri
lönd fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Menn telja þó að Spánn og Portúg-
al ættu að geta haldið svipuðum
fjölda ferðamanna og undanfarin
ár. Svo virðist sem ferðamenn
forðist stórborgir af ótta við hryðju-
verk og það ætti að ýta enn frekar
FERÐAMENN Í BANDA-
RÍKJUNUM OG EVRÓPU
HALDA AD SÉR HÖNDUM
VEGNA STRÍÐSINS
FYRIR BOTNI PERSAFLÓA
undir þá skoðun að stór hluti ferða-
manna hugsi til Norðursins.
Halldór sagðist hafa orðið
áþreyfanlega var við mikinn áhuga
á Norðurlöndunum skömmu áður
en stríðið við Persaflóa hófst. „Ég
var á ferðamarkaði í Mið-Evrópu
þar sem opið var fyrir almenning í
einn dag. Það var áberandi hversu
miklu meiri aðsókn var í bása Norð-
urlandanna en flesta aðra bása.
Þetta þarf að vísu ekki endilega að
segja manni að straumurinn liggi
til Norðrulandanna.“
Helsinkidagar í Reykjavík
4. -9. febrúar 1991
í tengslum við sýninguna „Helsinki-Mannlíf og saga" að Kjarvalsstöðum 5.-24. febrúar.
DAGSKRA
1 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR:
Kl. 17.00 Formleg opnun sýningarinnar Helsinki - Mannlíf og saga- að Kjarvalsstöðum
I ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR:
Kl. 11.00 -18.00 Sýning að Kjarvalsstöðum
Kl. 12.00 -14.30 Helsinki dagar á Hótel Loftleiðum
Finnskur matur
1 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR:
Kl. 11.00-18.00 Sýning að Kjarvalsstöðum
Kl. 12.00 -14.30 Helsinki dagar á Hótel Loftleiðum
Finnskur matur
Kl. 20.00 Tónleikar í Háskólabíói Jazzhljómsveitin UMO Big Band
1 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR:
Kl. 11.00-18.00 Sýning að Kjarvalsstöðum
Kl. 12.00-14.30 Helsinki dagar á Hótel Loftleiðum
Finnskur matur
Kl. 20.00 HELSINKI DAGAR
Sælkerakvöld á Hótel Loftleiðum
Tríó Saludo leikur
Finnskur matur
Eero Manninen, klippilistamaður
Tískusýning
Kl. 20.00 Handbolti í Seljaskóla:
Helsinki - Víkingur
Kl. 21.15 ÍR-KR
Kl. 22.00 Tónleikar í Púlsinum:
Jazzhljómsveitin UMO Big Band
FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR:
Kl. 11.00 - 18.00 Sýning að Kjarvalsstöðum
Kl. 12.00 - 14.30 Helsinki dagar
á Hótel Loftleiðum
Finnskur matur
Kl. 20.00 HELSINKI DAGAR
Sælkerakvöld á Hótel Loftleiðum
Tríó Saiudo leikur
Finnskur matur
Eero Manninen, klippilistamaður
Tískusýning
Kl. 20.00 Tónleikar í FIH salnum:
Jazzhljómsveitin UMO Big Band
Kl. 20.00 Handbolti í Seljaskóla:
Helsinki - KR
Kl. 21.15 ÍR - Víkingur
Kl. 22.00 Tónleikar á Púlsinum:
Tríó Saludo
LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR:
Kl. 09.45
Kl. 11.00
Kl. 11.00-18.00
Kl. 12.00 -14.30
KI. 17.30-18.00
Kl. 20.00
Handbolti í Seljaskóla:
KR - Víkingur
Helsinki - IR
Sýning að Kjarvalsstöðum
Helsinki dagar
á Hótel Loftleiðum
Finnskur matur
Tríó Saludo leikur að Kjarvalsstöðum
HELSINKI DAGAR
Sælkerakvöld á Hótel Loftleiðum
Tríó Saludo leikur
Finnskur matur
Eero Manninen, klippilistamaður
Tískusýning
HELSINKISYNING AÐ
KJARVALSSTÖÐUM.
Sýningin „Helsinki - mannlíf og saga"
að Kjarvalsstöðum stendur frá 5.-24. febrúar.
OPIÐ FRÁ KL. 11.00 -18.00 ALLA DAGA
MíMM'm'éMmWm t.ai.-* h