Morgunblaðið - 03.02.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.02.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1991 19. staða undanfarnar vikur. Engu að síður virðist einhver hreyfing vera að koma á markaðinn, aðallega í formi fyrirspuma. Helgi Jóhanns- son, forstjóri Samvinnuferða-Land- sýnar, segir nokkuð hafa verið um að hópar þaðan hafí spurst fyrir um ferðir hingað. Hann telur allt útlit fyrir að ferðamenn til landsins yrðu jafn margir, ef ekki fleiri, og á síðasta ári. „Miðað við þau viðbrögð sem, við verðum vör við á hvetjuin degi, bendir allt til að áhuginn á íslandi sé mikill. Við höfum fengið fyrir- spumir og pantanir á ferðum hing- að frá ferðaskrifstofum í Evrópu sem við höfum aldrei séð áður. Það virðist nokkuð um að hópar, sem hafa greinilega ætlað annað, hafa hætt við og ákveðið að koma hing- að í staðinn. í þessum mánuði er til dæmis að koma 300 manna hóp- ur frá fyrirtæki í Þýskalandi. Þessi hópur ætlaði upphaflega til Kæró, en skipti hressilega um stefnu. Við erum meira að segja að fá hóp frá Kípur á næstunni," sagði Helgi. Halldór Sigurðsson hjá Atlands- flugi ætlar að vera með vikulegt flug frá þremur borgum í Þýska- landi í sumar. Hann sagði greinilegt að allir haldi að sér höndum um stundarsakir' og bíði eftir þróun- innni fyrir botni Persafóla. „Ef Evrópubúar hreyfa sig eitthvað í sumar þá held ég að þeir muni frek- ar hreyfa sig í norðurátt. Við erum svo hlutlausir og litlir og flugfélög- in hér eru ekki þjóðartákn á sama hátt og stóra flugfélögin í Evrópu. Þess vegna tel ég að fólk muni frek- ar þora að ferðast norður á bóg- inn,“ sagði Halldór. Lönd fyrir botni Miðjarðarhafs ekki vænlegur kostur fyrir ferðamenn Atlandsflug selur aðeins ferðir til ferðaheildsala, mest á þýsku- mælandi svæðum Evrópu, og sagði Halldór að viðbrögð hefðu verið mjög jákvæð og mikið um pantanir — þar til Persaflóastríðið hófst. Tyrkland var til dæmis mjög ofar- lega á vinsældarlista ferðamanna í Þýskalandi í fyrra og töldu menn það vera aðal vaxtarbroddinn. Nú era pantanir þangað hins vegar í algjöru lágmarki enda er Tyrkland mjög nærri átakasvæðinu. Sömu sögu er reyndar að segja um fleiri lönd fyrir botni Miðjarðarhafsins. Menn telja þó að Spánn og Portúg- al ættu að geta haldið svipuðum fjölda ferðamanna og undanfarin ár. Svo virðist sem ferðamenn forðist stórborgir af ótta við hryðju- verk og það ætti að ýta enn frekar FERÐAMENN Í BANDA- RÍKJUNUM OG EVRÓPU HALDA AD SÉR HÖNDUM VEGNA STRÍÐSINS FYRIR BOTNI PERSAFLÓA undir þá skoðun að stór hluti ferða- manna hugsi til Norðursins. Halldór sagðist hafa orðið áþreyfanlega var við mikinn áhuga á Norðurlöndunum skömmu áður en stríðið við Persaflóa hófst. „Ég var á ferðamarkaði í Mið-Evrópu þar sem opið var fyrir almenning í einn dag. Það var áberandi hversu miklu meiri aðsókn var í bása Norð- urlandanna en flesta aðra bása. Þetta þarf að vísu ekki endilega að segja manni að straumurinn liggi til Norðrulandanna.“ Helsinkidagar í Reykjavík 4. -9. febrúar 1991 í tengslum við sýninguna „Helsinki-Mannlíf og saga" að Kjarvalsstöðum 5.-24. febrúar. DAGSKRA 1 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR: Kl. 17.00 Formleg opnun sýningarinnar Helsinki - Mannlíf og saga- að Kjarvalsstöðum I ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR: Kl. 11.00 -18.00 Sýning að Kjarvalsstöðum Kl. 12.00 -14.30 Helsinki dagar á Hótel Loftleiðum Finnskur matur 1 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR: Kl. 11.00-18.00 Sýning að Kjarvalsstöðum Kl. 12.00 -14.30 Helsinki dagar á Hótel Loftleiðum Finnskur matur Kl. 20.00 Tónleikar í Háskólabíói Jazzhljómsveitin UMO Big Band 1 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR: Kl. 11.00-18.00 Sýning að Kjarvalsstöðum Kl. 12.00-14.30 Helsinki dagar á Hótel Loftleiðum Finnskur matur Kl. 20.00 HELSINKI DAGAR Sælkerakvöld á Hótel Loftleiðum Tríó Saludo leikur Finnskur matur Eero Manninen, klippilistamaður Tískusýning Kl. 20.00 Handbolti í Seljaskóla: Helsinki - Víkingur Kl. 21.15 ÍR-KR Kl. 22.00 Tónleikar í Púlsinum: Jazzhljómsveitin UMO Big Band FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR: Kl. 11.00 - 18.00 Sýning að Kjarvalsstöðum Kl. 12.00 - 14.30 Helsinki dagar á Hótel Loftleiðum Finnskur matur Kl. 20.00 HELSINKI DAGAR Sælkerakvöld á Hótel Loftleiðum Tríó Saiudo leikur Finnskur matur Eero Manninen, klippilistamaður Tískusýning Kl. 20.00 Tónleikar í FIH salnum: Jazzhljómsveitin UMO Big Band Kl. 20.00 Handbolti í Seljaskóla: Helsinki - KR Kl. 21.15 ÍR - Víkingur Kl. 22.00 Tónleikar á Púlsinum: Tríó Saludo LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR: Kl. 09.45 Kl. 11.00 Kl. 11.00-18.00 Kl. 12.00 -14.30 KI. 17.30-18.00 Kl. 20.00 Handbolti í Seljaskóla: KR - Víkingur Helsinki - IR Sýning að Kjarvalsstöðum Helsinki dagar á Hótel Loftleiðum Finnskur matur Tríó Saludo leikur að Kjarvalsstöðum HELSINKI DAGAR Sælkerakvöld á Hótel Loftleiðum Tríó Saludo leikur Finnskur matur Eero Manninen, klippilistamaður Tískusýning HELSINKISYNING AÐ KJARVALSSTÖÐUM. Sýningin „Helsinki - mannlíf og saga" að Kjarvalsstöðum stendur frá 5.-24. febrúar. OPIÐ FRÁ KL. 11.00 -18.00 ALLA DAGA MíMM'm'éMmWm t.ai.-* h

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.