Morgunblaðið - 20.02.1991, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991
15
Lífsbarátta björg-
unarsveitanna
eftir Gyðu
Svavarsdóttur
Síminn hringir, það er útkall.
Tilgreint er hvort um innan- eða
utanbæjarútkall er að ræða.
Einskis er spurt, allir vita ná-
kvæmlega hvað á að gera. Eftir
5-10 mínútur er farið út úr dyrun-
um heima. Engum dettur í hug
að neita útkalli, nema sá hinn sami
sé fárveikur. Þó er oft um vinn-
utap að ræða. Hefur þjóðin efni á
að missa þessa fórnfúsu sjálfboða-
liða? Þessi spurning er borin fram
vegna þess að nú liggur á borði
ríkisskattstjóra kæra frá hjálpar-
sveitum skáta vegna kröfu um
greiðslu á virðisaukaskatti af flug-
eldasölu um áramótin. Flugelda-
salan er ein aðal tekjuöflunarleið
björgunarsveitanna og tekur ær-
inn tíma um hver áramót.
I sjónvarpsþætti eftir óveðrið
3ja þ.m. heyrði ég Guðjón Petersen
forstjóra Almannavarna segja að
Almannavarnir gætu ekki verið
án björgunarsveitanna, og að þeir
reyndu að styðja við bakið á þeim
eftir megni. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra var
fullur þakklætis sem er vel, en
létt í vasa.
Guðjón og Steingrímur, væri
nú ekki rétt að sýna þennan stuðn-
ing og þetta þakklæti í verki og
finna örlítið gat á þessum virðis-
aukaskattslögum?
Stutt er síðan svallsamkoma á
Húnavöllum var undanþegin þess-
um skatti og sukkið flokkað undir
menningu.
Benda má á, að á bls. 9 í leið-
beiningabæklingi um virðisauka-
skatt stendur m.a.: „Góðgerðafé-
lög geta fengið undanþágu frá
vsk. vegna tímabundinnar basar-
sölu, merkjasölu o.fi. Skilyrði er
að ágóði renni að öllu leyti til
líknarmála."
Undir þetta, — og fleira — ætti
að vera auðvelt að flokka flugelda-
sölu björgunarsveitanna.
„Ef bj örgunars veitirn-
ar vinna ekki að líknar-
málum að mati stjórn-
valda, hvað þá? Er ef
til vill litið á þær sem
handhægt, ókeypis
vinnuafl?“
Ef björgunarsveitirnar vinna
ekki að líknarmálum að mati
stjórnvalda, hvað þá? Er ef til vill
litið á þær sem handhægt, ókeyp-
is vinnuafl?
Þetta ber óneitanlega keim af
máltækinu: „í þörf er þræli þekkur
milli þess sem hann étur og drekk-
ur.“
Það er fyllilega tímabært að
koma þessu máli og öðrum er
varða skattlagningu björgunars-
veitanna í viðunandi horf. Það er
a.m.k. réttlátt að þessir menn fái
að vita í eitt skipti fyrir öll hver
staða björgunarsveitanna er í
skattamálum. Það fer of mikill tími
í að ganga milli Heródesar og
Pílatusar og verða síðan að lúta
geðjþóttaákvörðunum.
A að gera þessum sveitum
mögulegt að starfa eða ekki?
Enginn má skilja mál mitt svo
að ég sé að gera björgunarsveita-
menn að píslarvottum, það mundu
þeir síst vilja sjálfir.
Ef þjóðin er orðin svo fátæk að
skattpína þurfí sjálfboðaliða þá er
hún illa stödd.
Við eigum að vera þakklát fyr-
ir, að til skulu vera ungir vaskir
menn sem nýta krafta sína til
góðs í þágu allrar þjóðarinnar án
þess að fá greitt fyrir.
Björgunarmenn, þið eruð þjóð-
arsómi og fallegt fordæmi ungu
fólki.
Höfundur er mntráðskona.
MENNINGARÞING
ÍSLENSK MENNING - ALÞJÓÐLEG ÞRÓUN
Svavar
Gestsson
Guðbergur
Bergsson
Hjálmar H.
Ragnarsson
Sigurður
Pálsson
Stefán Jón
Hafstein
Helga
Hjörvar
Hjörleifur
Stefánsson
Steinunn
Sigurðardóttir
Halldór
Guðmundsson
Laugardaginn 23. febrúar efnir menntamála-
ráðuneytið til menningarþings í Borgartúni 6.
Þingið stendur frá kl. 10-17.
Dagskrá:
Ávarp forseta íslands.
Ræða menntamálaráðherra.
Ræða framkvæmdastjóra Evrópuráðsins.
Aðrir fyrirlesarar verða:
Gísli Sigurðsson bókmenntafræðingur
Guðbergur Bergsson rithöfundur
Helga Hjörvar skólastjóri
Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld
Hjörleifur Stefánsson arkitekt
Sigurður Pálsson rithöfundur
Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur.
Að fyrirlestrum loknum hefjast pallborðsumræður.
Umræðustjóri verður Stefán Jón Hafstein
dagskrárstjóri.
Ráðstefnunni stjórnar
Halldór Guðmundsson útgáfustjóri.
Þeir aðilar sem fengið hafa boð um þátttöku eru hvattir
til að skrá sig. Aðrir sem áhuga kunna að hafa geta látið
skrá sig í síma 609592 nú þegar en þátttaka verður
takmörkuð við 150 manns.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
BlLÁTORG
BÍLATORC
BMW 730i '88
Ljósblásans., topplúga, rafm.rúðurog
-læsingar ABS læst drif o.m.fl. Ekinn
40 þús. km. Verð kr. 3.900.000,-
Skipti - skuldabréf.
Mercedes Benz 380 SEL '85
Gullsans. Mjög vel útbúinn bíll. Einn
eigandi frá upphafi. Ekinn aðeins 51
þús. km. Verð kr. 2.550.000,-
bílatorg
Renault 21 Nevada, 4x4, '90
Hvítur. Rafm.rúður og -læsingar,
vökvastýri, dráttarkúla. Ekinn 13 þús.
>km. Verð kr. 1.450.000,-
Skipti á ódýrari.
Volvo 740 GL Station '90
Hvítur. Nýr bíll frá Brimborg. Láns-
verð kr. 1.965.000,-, staðgreitt kr.
1.887.000,-
GMC Jimmy S 15 '87
Rauður. BÍII með öllu. Ekinn 60 þús.
km. Verð kr. 1.780.000,-
MMC Pajero iangur '87
Hvítur. Brettakantar, breið dekk. Ek-
inn 65 þús. km. Verð kr. 1.670.000,-
Skipti - skuldabréf.
Ford Econoline 350 XLT '89
Fullbúinn bill frá „Quigley" með öllu
því besta í innréttingu. Ekinn 10 þús.
km. Skipti á jeppa.
Mercedes Benz 200 diesel '86
Drapp. Mjög gott eintak. Ekinn 148
þús. km. Verð kr. 1.550.000,-
Skipti á ódýrari.
A TT
BBTRIBÍLASALA
NÓATÚN2- SÍMI621033
Honda Civic '87
Hvítur. Vel með farinn. Ekinn 49 þús.
km. Verð kr. 595.000,-
BILATUhíU
BÍLATORG
Volvo 440 GLT '89
Grásans. Fallegur bíll, sportfelgur,
rafm.rúður og -læsingar. Ekinn 22
þús. km. Verð kr. 1.250.000,-
Toyota Tercel 4x4 '88
Silfurblár. Special series. Ekinn
þús. km. Verð kr. 800.000,-
64
"*• ATORG
Lada Sport '90
Hvítur. Sportfelgur, brettakantar,
gíra, léttstýri. Ekinn 8 þús. km.
Verð kr.-750.000,-
Toyota Landcruiser Turbo '88
Gullsans. Upphækkaður. læst drif
rafm.rúður. Ekinn 62 þús. km.
Verð kr. 3.100.000,-
Skipti - skuldabréf.
B/LAIUKU
' '’Vm "r“"
BÍLATORG
E
Ford Bronco XL '85
Blásans. Sjálfskiptur, ný dekk, króm-
felgur. Ekinn 95 þús. km.
Verð kr. 1.250.000,- 25% útb.
BILATORG
BETRIBÍLASALA
NÓATÚN 2 -SfMI 621033
Citroen BX 19 GTi '87
Vínrauður. Sportfelgur, rafm.rúður og
-læsingar. Ekinn 72 þús. km.
Verð kr. 1.050.000,-
Skipti - skuldabréf.
Toyota Corolla GTi '88
Hvítur. Topplúga, sportfelgur. Ekinn
70 þús. km. Verð kr. 980.000,-
bílatorg
Man CR 160 '80
35 manna. Uppt.
stöð, bílasimi.
vél. Sjónvarp, tal-
BMW 520i '89
Dökkgrásans. Topplúga, sportfelgur.
Ekinn 32 þús. km.
Verð kr. 2.300.000,-
Skipti - skuldabréf.