Morgunblaðið - 20.02.1991, Page 45
M
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Góður út-
varpsþáttur
Til hamingju Hermann! Ég er ein
af þeim mörgu .sem hafa unun af
að hlusta á þáttinn þinn, „Ég man
þá tíð“. Útsendingartímarnir voru
alveg ómögulegir áður en nú eftir
að þátturinn var.fluttur á föstudaga
frá kl. 9 til 10 er það allt annað
mál. Ég samgleðst þér og vona að
þátturinn lifi sem lengst.
Guðrún Guðbjartsdóttir
Leiðrétting
Burt með smáaletrið
Til Velvakanda.
Það er ekki fyrir alla að átta sig
á tryggingaskilmálum og margur
hefur farið illa á því að halda sig
tryggðan fyrir ýmsum tjónavöldum
en svo kemur í ljós að tryggingin
er takmörkuð og tryggingafélag-
inu ber ekki að greiða neitt. Þá
er það gjarnan svokallað smáaletur
sem viðkomandi hefur ekki hirt
um að lesa nógu vel. Þetta kom
víða í Ijós eftir óveðrið á dögunum.
Margir töldu sig tryggða fyrir fok-
tjóni en þegar til kastana kom
reyndist smáaletrið losa trygginga-
fyrirtækin undan allri ábyrgð.
Þetta er ófremdarástand að mínu
áliti.
Löggjafinn ætti að hlutast til
um að tryggingasölum sé skilt að
orða skilmála sínum með skil-
merkilegum hætti, í sem fæstum
orðum, og smáaletrið ætti með öllu
að verða úr sögunni. Það er ekki
ástæða til að vera að pukrast neitt
í þessum málum heldur eiga trygg-
ingarnar að koma því skýrt á fram-
færi hvað er tryggt og gegn hverju.
Þetta myndi koma í veg fyrir eilíf-
an misskilning og leiðindi.
Jóhann
Til Velvakanda.
Ég var að fá Morgunblaðið frá
13.2. með grein minni um ljósanotk-
un bifreiða á Norðurlöndum (Ljósa-
notkun borgar sig).
Leiðinleg prentvilla er í greininni
þar sem tugir milljóna hafa fallið
brott í upplýsingum mínum um
hvað dauðaslys í umferðinni eru
talin kosta í nokkrum nágranna-
löndum.
Réttar tölur
Þýskaland
Bretland
Frakkland
írland
Danmörk
eftirfarandi:
34.5 millj. kr.
19.4 millj. kr.
14,1 millj. kr.
12.4 millj.kr.
10.6 millj. kr.
eru
Tómas H. Sveinsson
Ég þakka elskulegum börnum mínum, tengda-
börnum og œttingum öllum, svo og vinum og
sveitungum, fyrir sýndan hlýhug í minn garð
á áttrœðisafmœli mínu þann 9. febrúar síðast-
liðinn.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Þórarinsdóttir,
Minna-Knarrarnesi,
Vatnsleysuströnd.
Töflureiknirinn Excel
Við bjóðum 20 stunda vandað námskeið í
töflureikninum Excel. Kennd verður upp-
setning reiknilíkana og gerð línurita.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er
Rafn Sigurðsson, höfundur bók-
anna um Excel.
Tölvuskóli íslands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22
kæliskápar * frystiskápar • frystildstur
Seljum í dag og næstu daga nokkur
lítillega útlitsgölluð GRAM tæki
með góðum afslætti.
GÓÐIR SKILMÁLAR
TRAUST ÞJÓNUSTA
iFOnix
HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SÍMI (91)-24420
Hillur
fyrir vörubretti
Traust og gott billukerfi á góðu verði.
Hentar nánast allsstaðar og er fljótlegt í uppsetningu.
Ávallt fyrirliggjandi.
zriL á
0 0
c 0
9 0
O c
O 0
A G
—... ■ .1 n
HILLUKERFI OG LYFTARAR - PAÐ EROKKAR FAG
Leitið
upplýsinga
UMBOÐS- OG HElLDVEfíSL UNIN
BlLDSHÖFÐA 16SIMI672444 TELEFAX672580