Morgunblaðið - 26.02.1991, Síða 33
{pf
u HAUiiaa^ ,9S flUPAquiqiHq aigAJSwuoaoM________ ________________________________________
MÖRGUNBLAÐÍÐ ÞRlÐJUDÁGUR”26r FÉBRÚÁR 1991 " 33
*
Eyvindur Asmunds-
son — Kveðjuorð
Fæddur 17. október 1927
Dáinn 18. febrúar 1991
Það er skarð fyrir skildi þegar
drengur góður og söngvurum best-
ur fellur frá í blóma lífsins.
Við jafnaldrarnir og fermingar-
bræðurnir áttum margar glaðar
stundir saman sem litlir pollar,
Brids
Arnór Ragnarsson
Frá Skagfirðingum
Eftir 6 umferðir í aðalsveita-
keppni deildarinnar er staða efstu sveita þessi:
Sveit Sigmars Jónssonar 114
Sveit Lárusar Hermannss. 113
Sveit Fram 110
Sveit Hjálmars S. Pálssonar 99
Sveit Arnar Steingrímssonar 92
Sveit Sigrúnar Jónsdóttur 92
unglingar og ógiftir menn, í
Barnakór Borgarness undir stjórn
þess ágæta kennara, Björgvins
Jörgensonar, eða á samkomum í
„nesinu“. Og nú skömmu fyrir
slysið, sem leiddi hann á fund feðra
sinna, skiptumst við á nokkrum
sendibréfum sem áttu að verða
fleiri.
Söngur var Eyvindi Ásmunds-
syni allt og fórnaði hann dtjúgum
tíma í æfingar enda hafði maður-
inn þá tærustu, jafnframt fegurstu
tenórrödd sem heyrst hefur hér-
lendis og hefði sómt sér vel víða
úti í hinum stóra heimi. Hann
varð ekki þeirrar gæfu aðnjótandi
að mennta sig á söngsviðinu eins
og okkar efnilegustu söngnemar
gera í dag, en þrátt fyrir það gaf
hann „lærðum“ lítið eftir í tækni.
Náttúrubarn í fögrum faðmi fjalla
þar sem dýrleg hljómkviðan ómar
úr sálarfylgsnum lífsins.
Söngvarinn er allur og fagrir
tónar hljóðnaðir.
Eg lýk þessum fáu orðum með
því að votta eiginkonu Eyvindar,
börnum og aðstandendum hans,
djúpa samúð.
Hassi
MAZDA
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Nú er aðeins einni umferð ólokið í
aðalsveitakeppninni og hefir sveit
Kára Siguijónssonar mjög vænlega
stöðu en staða efstu sveita er nú þessi:
Kári Sigurjónsson 283
Ingi Agnarsson 253
Þröstur Sveinsson 246
Gunnar Birgisson 231
Valdimar Jóhannsson 228
+ frestaðan leik
Tryggvi Tryggvason 224
Síðasti leikurinn verður spilaður nk.
miðvikudagskvöld og hefst spila-
mennskan kl. 19.30. Spilað er í Húna-
búð, Skeifunni 17, þriðju hæð.
Næsta keppni deildarinnar verður
barometer og er skráning hafin hjá
Valdimar í síma 37757.
Reykjanesmótið í tvímenningi
Reykjanesmótið í tvímenningi 1991
verður spilað helgina 2.-3. mars. Spil-
að verður í Þinghóli í Kópvogi og hefst
spilamennskan kl.l á laugardeginum.
Auk þess að vera keppni um Reykja-
nestitilinn fara sigurvegararnir sjálf-
krafa í úrslit íslandsmótsins í tvímenn-
ingi. Þátttöku verður að tilkynna fyrir
25. febrúar til félaganna eða til:
Helga Viborg s. 91-46533
Dröfn Guðmundsdóttir s. 91-46329
EIGENDUR!
Látið þá sem reynsluna hafa annast
viðhald bílsins ykkar. Auk allra almennra
viðgerða önnumst við:
• Vélastillingar.
• Hjólastillingar.
• Framrúðuviðgerðir.
• Rennsli á hemladiskum.
• Ljósastillingar.
• Sandblástur á minni stykkjum.
FÓLKSBÍLALAND H.F.
Fosshálsi 1, (Bílaborgarhúsinu)
Sími 67 39 90
Góðan daginn!
3 ÓDÝRASTIR
Vertu ekki of seinn
allt að verða upppantað
sjálfa fermingardagana.
Ljósmyndastofurnar:
Barna og
fj ölskyldulj ósmyndir
sími 1 26 44
Ljósmyndastofan Mynd
sími 5 42 07
Lj ósmyndastofa
Kópavogs
sími 4 30 20
Verð frá kr. 7.500.—
»
FÉLAGSLÍF
□ EDDA 59912627 = 2
I.O.O.F. 8 = 1722278 = 8’/2 O
I.O.O.F. Rb. 1 =1402268-9.0.
D FJÖLNIR 599126027 - 1
ATKV. FRL.
O HELGAFELL 59912267 VI 2
AD-KFUK
Fundur í kvöld kr. 20.30 í Langa-
gerði 1. Að vera kristinn á ný-
öld. Fundur í umsjá Höllu Jóns-
dóttur. Allar konur velkomnar.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund mið-
vikudaginn 27. febrúar í Skút-
unni, Dalshrauni 15, Hafnarfirði,
kl. 20.30. Húsið opnað kl. 19.30.
Húsinu lokað kl. 20.30.
Forsala verður í dag.þriðjudag-
inn 26. febrúar, milli kl. 17.00
og 18.00 á sama stað.
Lífsvon
Lífsvon gengst fyrir opnum
stjórnmálafundi um lífsrétt, á
Hótel Borg kl. 17 í dag. Fulltrúar
stjórnmálaflokkanna mæta og
gera grein fyrir stefnu flokka
sinna. Jóhann Pétur Sveinsson
verður fundarstjóri.
Stjórnin.
ZrjfTí rrV/ fcrfi
UTIVIST
GRÓFINNI1 • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Helgarferðir 1 .-3. mars
Básar að vetri
Básar og Goðalandið eru ekki
síður heillandi i vetrarbúningi en
að sumarlagi og ekki spillir það
fyrir að þessa helgi er fullt tungl.
Þægilegt gönguskíðaland (ef
snjóar leyfa). Fararstjóri: Ásta
Þorleifsdóttir.
Tindafjöll á fullu tungli
Gist í skála. Gengið á Tindfjalla-
jökul. Tilvalið að vera á göngu-
skiðum, þó ekki skilyrði.
Ath.: Tindafjöll böðuð í tunglskini
er upplifun sem enginn gleymir.
Pantið tímanlega því þátttakenda-
fjöldi er takmarkaður og þetta er
eina ferðin í Tindafjöll í ár. Farar-
stjóri: Reynir Sigurðsson.
Árshátíð Útivistar
Það stendur mikið til hjá Útivist
um þessar mundir, því nú nálg-
ast árshátíðin óðum. Skemmti-
nefndin hefur lagt nótt við dag
við undirbúning og æfingu
skemmtiatriða og mun þetta
verða besta árshátíð sem sög-
ur fara af. En sjón er sögu ríkari.
Mætum öll á þessa bestu
skemmtun ársins sem verður
haldin i Básnum i Efstalandi 9.
mars nk. Miðar og pantanir á
skrifstofu.
Sjáumst öll!
Útivist.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Fundur ífulltrúaráði
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík
Fundur verður í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík i Val-
höll, Háaleitisbraut 1, í dag, þriðjudaginn 26. febrúar, kl. 17.15
stundvíslega.
Dagskrá:
1. Kjör landsfundarfulltrúa.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfólk, Siglufirði
Sameiginlegur fundur sjálfstæðisfélaganna verður haldinn í dag,
þriðjudaginn 26. febrúar, í Sjálfstæðishúsinu kl. "20.30.
Fundarefni:
1. Fjárhagsáætlun Siglufjarðarkauþstaðar.
2. Landsfundur 7.-10. mars.
3. Kosning i blaðstjórn Siglfirðings.
4. Önnur mál.
Nýir félagar velkomnir.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna.
Húsavík
Bæjarmálaráð Sjálfstæðisfélags Húsavikur heldur fund á Hótel
Húsavík, miðvikudaginn 27. febrúar kl. 20.30.
Dagskrá fundarins:
1. Fjárhagsáætlun Húsavíkurbæjar.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Stefnisfélagar
Kosningar
framundan
Stefnir, FUS, heldur opinn félagsfund i dag, þriðjudaginn 26. febrú-
ar, kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu, Hafnarfirði. Gestir fund-
arins verða: Árni Mathiesen, Viktor B. Kjartansson, Guðrún Stella
Gissurardóttir og Ragnheiður Clausén, frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi. Rætt verður um kosningarnar fram-
undan og landsfund. Aðal- og varalandsfundarfulltrúar Stefnis eru
eindregiö hvattir til þess að mæta.
Stjórnin.
Selfoss - spilakvöld
verður í kvöld, þriðjudaginn 26. febrúar, kl. 20.30 á Austurvegi 38,
efst í islandsbankahúsinu. Verðlaun fyrir hæsta og lægsta spila-
mann. Ekkert þátttökugjald. Veitingar í boði. Allir velkomnir.
Stjórnin.
Mosfellsbær, Kjalarnes og Kjós
Viljinn
Opinn félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 27. febrúar kl.
20.30 i félagsheimili Sjálfstæðisflokksins, Urðarholti 4. Gestir fundar-
ins verða Árni Mathiesen, Guðrún Stella Gissurardóttir, Viktor B.
Kjartansson og Ragnheiður Clausen, frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi. Rætt verður um kosningarnar fram-
undan. Allir velkomnir.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélag
Önundarfjarðar
Aðalfundur Sjálfstæðisfélag Önundarfjarð-
ar verður haldinn í dag; þriðjudaginn
26. febrúar, í matsal Hjálms hf. og hefst
kl. 21.00.
Gestur fundarinns verður Einar K. Guð-
finnsson.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf.
2. Kjör landsfundarfulltrúa.
3. Almennar umræður.
Stjórnin.