Morgunblaðið - 26.02.1991, Blaðsíða 47
reei AAuaaa^ .as auoAQUiQiM qiQAja/iJUHui/i
MORGUNBLAÐÍÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR*i99i
Morgunbladið/Þorkell
Frá hægri: Kjartan Magnússon, læknir, Sveinn Skúlason, sölumaður
GLAXO, Þórunn Sævarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, dr. Dominic
Paes, dr. Steen Kaasa, læknir, Kristján Sverrisson, sölumaður
GLAXO, Birgir Thorlacius, forstöðumaður GLAXO á íslandi.
Meðferð við krabbameini:
Nýtt lyf sem dreg-
ur úr ógleði kynnt
Rannsóknarkostn-
aður nemur 10
milljörðum króna
FYRIRTÆKIÐ GLAXO-útibú á
Islandi gekkst nýlega fyrir
blaðamannafundi til kynningar
á nýju lyfi sem fyrirtækið fram-
leiðir og hefur verið skráð til
notkunar á íslandi frá og með
1. janúar sl.
Hið nýja lyf Ondansetron bætir
verulega líðan krabbameinssjúkl-
inga sem þurfa að gangast undir
lyfjameðferð með því að minnka
mikið ógleði og uppköst sem oft
fylgja slíkri meðferð. Á fundinum
voru auk starfsmanna GLAXO á
íslandi dr. Steen Kaasa frá Nor-
vegian Radium hospital í Ósló, dr.
Dominic Paes yfirmaður klínískra
rannsókna hjá GLAXO og Kjartan
Magnússon sérfræðingur í krabba-
meinslækningum á Landspítalan-
um og Þórunn Sævarsdóttir hjúk-
runarfræðingur á krabbameins-
lækningadeild Landspítala. Þau
Kjartan og Þórunn sáu um fram-
kvæmd rannsóknar á hinu nýja
lyfi hér á landi en sú rannsókn
var hluti af íjölþjóðarannsókn sem
gerð var á lyfinu.
í máli Kjartans Magnússonar
kom fram að með tilkomu nýja
. lyfsins er um verulega framför að
ræða frá því sem áður var. Hið
nýja lyf dregur mun betur úr
ógleði og uppköstum en eldri lyf
og eykur þvi á vellíðan þeirra
sjúklinga sem fá þessar aukaverk-
anir sem að mati Þórunnar eru
þær erfiðustu sem krabbameins-
lyfjameðferð veldur og hjúkruna-
rfræðingar þurfa að fást við. Ekki
mun þó verða hætt við notkun
eldri lyfja sem oft skila mjög góð-
um árangri.
Hið nýja lyf hefur áhrif með því
að hamla virkni serotóníns sem
er taugaboðefni víða í líkamanum.
Fram kom á fundinum að heildar-
rannsóknarkostnaður vegna Ond-
ansetron nemur nú um 10 milljörð-
um íslenskra króna og að þeim
rannsóknum hafa 8 þús. manns
unnið. Rannsóknum á lyfinu er
hins vegar ekki að fullu lokið og
bendir ýmislegt til að Ondansetr-
ongeti komi að gagni í meðferð á
geðklofa, angist og minnistruflun-
um en ennþá er of snemmt að
fullyrða nokkuð í þvi sambandi þar
sem þær rannsóknir eru á frum-
stigi.
Ondasetron var fyrst skráð í
Bretlandi og Frakklandi á síðasta
ári en nú hafa um 56 þús. einstakl-
ingar með Ondansetron fengið lyf-
ið. Hér á landi er kostnaður við
að meðhöndla sjúkling inni á
spítala vegna slæmrar ógleði í 5
daga um 25 þúsund krónur.
jajOHNSON &WALES
UNIVERSITY
Hyggur þú ú framhaldsnúm?
Fulltrúi frá Johnson og Wales verður með kynningar-
fund á Holiday Inn, Reykjavík, miðvikudaginn
27. febrúar 1991 kl. 17.00 og 20.00.
Johnson og Wales er einn af virtustu viðskiptaháskólum
Bandaríkjanna og býður m.a. upp á nám í eftirtöldum
námsgreinum, sem allar teljast lánshæfar hjá LIN:
A. S. „HoteLRestaurant Management"
B. S. „Hospitality Management"
B.S. „Hotel-Restaurant/Institutional Management
B.S. „Travel-Tourism Management“
B.S. „Retail Mercandise Management"
M.S. „Hospitality Administration"
Providence, Rhode Island, USA
„Merkt Iceland express"
JOHNSON &WALES
UNIVERSITY
Providence, Rhode Island, USA
„Merkt Iceland express“
Lyfjanefnd:
Rannsóknir á áhrífum
parasetamóls ræddar
LYFJANEFND niun ræða niðurstöður nýlegra rannsókna á paraseta-
móli, að sögn Sigurðar B. Þorsteinssonar læknis og formanns nefndar-
innar, en fram hefur komið að lyf sem innihalda parasetamól eru
hugsanlegir krabbameinsvaldar séu þau tekin í stórum skömmtum.
„Eg reikna með að brugðist verði við með sama hætti og hjá nágranna-
þjóðunum og mér vitanlega eru engir farnir að túlka rannsóknirnar
þannig að ástæða sé til að takmarka sölu eða notkun eins og komið
er,“ sagði Sigurður.
Benti Sigurður á að lyfin sem um
er að ræða hefðu verið á markaði
hér í áratugi og þessar upplýsingar
sem nú hefðu komið fram væru ef
til vill áhyggjuefni en þæl' gjörbyltu
ekki á einum degi fyrri hugmyndum
um öiyggi þeirra. Sagði hann að við
skráningu nýrra lyfja væru gerðar
mun strangari kröfur en áður og
meiri rannsóknir framkvæmdar á
krabbameinsvaldandi áhrifilm
þeirra. „En málið snýr aðeins öðruv-
ísi við í þessu tilviki, þar sem um
er að ræða lyf, sem hefur verið til
í nær hveiju kaupfélagi í sumum
löndum í langan tíma án þess að
hægt hafi verið að sýna fram á þessi
áhrif á menn. Það má ekki alveg
leggja þetta að jöfnu,“ sagði Sigurð-
ur. „Að sanna orsakasamhengi lyfja
sem örugglega hafa mjög lága tíðni
af einhveijum aukaverkunum er
ekki einfalt mál og erfitt að taka á
fyrir ýmsar hluta sakir. Parasetamól
er mjög þægilegt lyf og hefur ýmsa
kosti þrátt fyrir ókostina. Á hveiju
ári hafa komið fram nokkur eitrun-
artilvik af parasetamóli, sem getur
Verk ungra
manna sýnd
HÓTEL Lind' tók fyrir nokkru
upp þá nýbreytni að sýna verk
ungra myndlistamanna í veit-
ingasal hótelsins, Lindinni. Nú
hefur verið sett upp sýning á
myndverkum Sjafnar Eggerts-
dóttur, sem mun standa yfir
fram til mánaðamóta mars-
apríl.
Sjöfn sækir fyrirmyndir sínar í
íslenska náttúru og eru flest verk-
anna unnin á síðastliðnu ári.
Sjöfn Eggertsdóttir fæddist í
Reykjavík 7. mars 1949. Hún
stundaði nám í málunardeild Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands árin
1982-’86.
valdið alvarlegri lifrarbólgu og jafn-
vel lifrarbilun. Þetta er eins og önn-
ur lyf, ekki hættulaust og þetta með
krabbameinstengslin ér að rnínu
mati ekki hægt að slá neinu föstu
um á þessu stigi málsins,"
Barnaskák-
mót í Faxafeni
BARNASKÁKMÓTIÐ ABC-
mótið verður haldið sunnu-
daginn 3. mars kl. 14.00, á
vegum Skáksambands ís-
lands og Fróða hf.
Mótið verður haldið í húsnæði
skákhreyfingarinnar í Faxafeni
12 og er opið öllum börnum sem
fædd eru 1978 og síðar. Góð
verðlaun eru í boði og allir kepp-
endur frá viðurkenningarskjal.
Skráning á mótið fer fram í
síma Skáksambandsins,
689141, vikuna 25. febrúar til
1. mars milli kl. 11 og 12.
myndlistar-
á Hótel Lind
Eitt verka Sjafnar Eggertsdótt-
ii*« *
Daglegur sýningartími fylgir
opnunartíma veitingasalarins Lind-
arinnar frá kl. 7.30-22.00.
Námskeið
sem hefjast á næstuimi.
AÐ SKIPULEGGJA TÍMA SINN.
Þú lærir aö nota tímann betur, skilgreina forgangsverkefni og
tímaþjófa. Gera áætlanir og dreifa verketnum.
Leiöbeinandi: Þóröur M. Þórðarson.
GLUGGAÚTSTILLINGAR.
Þú lærir um sölugildi glugga, vörumeöferö og efni, liti, form og
lýsingu. Þú færð æfingu í að raöa í búðaglugga.
Leiöbeinendur: Steinunn Ólafsdóttir og Gunnhildur
Þórarinsdóttir.
ALMENN SKRIFSTOFUSTÖRF.
Þú-kynnist störfum á skrifstofunni og lærir undirstöðuatriðin.
Fyrir byrjendur og þá sem stefna á slík störf.
Leiðbeinandi: Elín Guöjónsdóttir.
HLÍFÐARGASSUÐA.
MIG /MAG og TIG suöa. Kennd aöferöin, undirbúningur, val og
hreinsun efnis, stilling og meðferð véla og um suöugalla og
orsakir þeirra.
Leiöbeinandi: Alfreö Haröarson.
AÐ RATA UM PENINGAFRUMSKÓGINN.
Þú öðlast innsýn í fjármálaheiminn. Fjallað um meðferð og
ávöxtun sþarifjár.veröbréfamarkaöinn, launamál og
fjárfestingar. Fyrirspurnir og umræður.
Leiöbeinandi: Friðrik Halldórsson.
Nánari upplýsingar um námskeiöin, verö, staö og
tímasetningu á skrifstofu okkar.
1ÓM5TUNDA
- SKOUNN
Skólavörðustig 28 Sími 6214 88
Verð frá 49.900 m/vsk.
SKRIFBÆRI
W
Hverfisgötu 103 - sími 627250
LÉTTITÆKI
í ÚRVALI
Bjóðum einnig sérsmíði
eftir óskum viðskiptavina
w
LETTITÆKI HR
Bíldshöfða 18 S. 67 69 55