Morgunblaðið - 26.02.1991, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991
BASINGER
Græðir stórfé á
fótleggj afegurð
Bandaríska kynbomban Kim
Basinger þykir hafa meira en
í meðallagi fallega fótleggi og læri.
Ber mikið á því þar sem hún fer,
enda býður tískan upp á það. Nú
er svo komið að Basinger mun
græða á tá og fingri fyrir það eitt
að leyfa myndatökur af umræddum
fótleggjum íklæddum sokkabuxum
frá fyrirtækinu „Golden lady“. Bas-
inger mun mæta í nokkrar stúdíó-
tökur og verða valdar úr þeim
nokkrar myndir til birtingar í aug-
lýsingum fyrirtækisins. Fyrir snún-
ingin þiggur ungfrúin 2 milljónir
dollara! Ekki skal kastað rýrð á
umrædda líkamshluta ungfrú Bas-
inger, en hins vegar rifjað upp að
þegar hún lék annað aðalhlutver-
kanna í grínmyndinni „My mother
is an alien“ fyrir einum þremur
árum eða svo gerði ein takan ráð
fyrir því að fagrir fótleggir leikkon-
unnar yrðu í brennidepli. Þá þóttu
umræddir fótleggir ekki nógu góðir
og minna þekkt leikkona, Catharine
Oxenbergh, var fengin til að sýna
fætur sína í umræddri töku. Það
var óhætt þar sem takan sýndi
ekki andlit leikkonunnar. Samt
spurðist það út og þótti heldur hlá-
legt fyrir bombuna Basinger.
Og enn um Kim Basinger. Fregn-
ir herma að hún sé ekki heilsu-
hraust þessi misserin og valdi því
töluverð kókainneysla. Heyrst hefur
að hún íhugi að skrá sig á Betty
Ford stofnunina þar sem sér gangi
bölvanlega að ráða við vandann
hjálparlaust...
muiguwuiauiu/ ovei i ii v iiiiuinibbUil
Guðlaugur Pálsson ásamt Sigrúnu Stefánsdóttur sem var meðal
gesta. ___________________________
K AUPMENN SKA
Löng ævi að baki
búðarborðs
Guðlaugur Pálsson kaupmaður
á Eyrarbakka hélt nýverið
upp á 95 ára afmælið og í tilefni
dagsins, lokaði verslun sú sem
Guðlaugur hefur rekið um áratuga
skeið í plássinu efir hádegið. Ann-
ars er búðin alltaf opin, sama hvaða
dagur er...
Guðlaugur hefur lengi sett mikinn
svip á umhverfi sitt, dugnaður hans
og elja hafa heillað sveitunga hans
og áunnið honum virðingu og hlý-
hug. Hnyttin tilsvör hans hans
hafa ævinlega vakið athygli. Er
skemmst að minnast tilsvör þau
sem féllu í tilefni af afmælinu.
Guðlaugur var þá spurður einhvern
vegin sem svo hvort að hann ætl-
aði ekki að fara að minnka umsvif-
in og karlinn svaraði, ,jú, ég lok-
aði eftir hádegi í dag!“ Og hvort
hann ætlaði ekki bara að fara að
hætta þessu og breyta til svaraði
karlinn að það hefði hvarflað að
sér, en hann hefði ekki talið það
rétt, það væri nefnilega svo erfitt
fyrir 95 ára gamlan mann að fá
vinnu hér á landi!
Kim í brókunum frá „Golden lady“
Mikligarður
9 Hcrra- oj; kvcnna- kruml>gallar
kr. 2.900,-
• Kvenna nœrfatasett kr. 295,-
9 Bamaúlþur kr. 995,-
Bombey
• Telþnakjálar frá kr. 1.500,-
9 Gallabuxur barna frá
kr. 1.300,-
• Ungbama fatnadur,
mikiú úrval, gott veró.
Cara
• Peysur frá kr. 3.250,-
st' 38-50
• Blússur frá kr. 2.250,-
st. 38-50
• Pilsfrá kr. 3.950,-51. 38-50
Saumalist
• Fataefni frá kr. 200,- þr. m
9 Gluggatjaldaefni frá kr. 250,-
þr. m 1 ,40 cm breitt
9 Scengurverasett
frá kr. 1.290,-
Party
• Kjólarkr. 1.890,-
9 Blússur frá kr. 1.690,-
• Ullarþeysur frá kr. 2.400,-
Studio
• Bolir frá kr. 450,-
9 Gallabuxur frá kr. 1.500,-
9 Jakkar frá kr. 1.500,-
Gallery skór
• Dömuskór frá kr. 990,-
9 Herraskór frá kr. 990,-
Kókó/Kjallarinn
• Buxur frá kr. 500,-
9 Pils frá kr. 900,-
9 Jakkar frá kr. 2.000,-
Vinnufatabúðin
Blómalist
• Gjafavörur
9 Silkiblóm,
• Körfur,
9 Pottaþlöntur,
>
50% afláttur
25% afsláttur
Kuldagallar kr. 4.900,-
Gallajakkar kr. 990,-
Gallabuxur kr. 990,-
Madam
Sundbolir kr. 1.500,-
Toþþar kr. 500,-
Náttfatnaóur frá kr. 1.000,-
Karnabær
Wax jakkar kr. 5.900,-
Kaóalþrjónþeysur kr. 1.990,-
Buxur frá kr. 1.490,-
Hummel
• Ulþur frá kr. 2.990,-
• Buxur frá kr. 990,-
9 íþróttaskór frá kr. 1.990,-
9 Skór frá kr. 600,- til
kr. 2.900,-
Steinar
• Isl. og erlendar þlötur frá
kr. 99,-
9 Isl. geisladiskar frá kr. 599,-
• Erlendir geilsadiskar frá
kr. 499,-
Opnunartími: Föstudaga kl. 13-19 . Laugardaga kl. 10-16. Aðra daga kl. 13-18
c°VÖr/.;
C,-*Oí)U 0|
_ ■’"*ncu ■
'Unrjy
Va"GHn
nammi^
góðarmyndir
vinsældalisti
bónuskort
4 verðflokkar
Þar sem myndirnar fást!
MYNDIRÆ
myndbandaleigur
KRINGLUNNI 4, SÍMI 679015 REYKJAVÍKURVEGI 64, SÍMI 651425 ■ ÁLFABAKKA 14, MJÓDD, SÍMI 79050 • SKIPH0LTI 9, SÍMI 626171
Æsispennandí mynd sem byggð er é
sannsögulegum atburðum.
O
Væntanleg
í mars
Væntanleg
í mars