Morgunblaðið - 01.05.1991, Page 10
I
?lo
Morgunblaðið/Júlíus
Atta fyrstu skóflustungurn-
ar að endurhæfingarstöð
Framkvæmdastjórn og starfs-
menn SAA tóku fyrstu skófl-
ustunguna að nýrri endurhæf-
ingarstöð, Vík, í landi Saltvíkur
á Kjalarnesi, síðastliðinn laug-
ardag. Stöðinni er ætlað að
koma í stað endurhæfingar-
stöðvarinnar að Sogni í Ölfusi
og er ráðgert að verði unnt að
veita 30 manns meðferð hverju
sinni.
Við fyrstu skóflustunguna var
notuð sérhönnuð átta manna
skófla. Myndin var tekin við það
tækifæri og þeir sem munda skófl-
una eru frá vinstri: Gunnar Kvar-
an, framkvæmdastjómarmaður,
Tryggvi Sigurbjarnarson, formað-
ur bygginganefndar, Kristín Wa-
age, deildarstjóri, Sigurður Gunn-
steinsson, deildarstjóri, Þórarinn
Tyrfingsson, formaður SÁÁ, The-
ódór Halldórsson, framkvæmda-
stjóri, og framkvæmdastjórnar-
mennirnir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson og Guðmundur J. Guð-
mundsson.
Byggingafyrirtækið Álftárós
reisir endurhæfingarstöðina Vík.
Fyrirtækið varð hlutskarpast í
alútboði um hönnun Víkur og átti
lægsta tilboðið í smíði hússins,
61 milljón króna.
Ráðstefna ráðgjafarverkfræðinga:
Abyrgð verkfræð-
inga á umhverfimi
Götuhlaup í
Grafarvogi
Frjálsíþróttadeild Fjölnis í
Grafarvogi heldur í dag, 1.
maí, árlegt götuhlaup. í ár verð-
ur í fyrsta skipti keppt í tveim
vegalengdum. Styttri leiðin er
1,6 km en sú lengri 2,7 km.
Veittir verða verðlaunapeningar
fyrir fyrstu þijú sætin í öllum ald-
ursflokkum. Oliuverslun íslands
hf. er aðalstyrktaraðili hlaupsins
en Ölgerðin hf. og Kjörís einnig.
Á sjálfan hlaupadaginn hefst
skráning kl. 12.00 í Félagsmið-
stöðinni Fjörgyn í Foldaskóla og
lýkur kl. 13.30. Þátttökugjald er
kr. 500.
------*-*-*----
Danskur
gestaleikur
í Borgar-
leikhúsinu
DÖNSKU leikararnir Ebbe Rode
og Bodil Kjer setja upp gestaleik
frá Betty Nansen leikhúsinu í
Kaupmannahöfn í Borgarleik-
húsinu dagana 5. og 6. maí. Leik-
ritið, sem þau seíja upp, er eftir
Bandaríkjamanninn A. R. Gur-
ney og nefnist það „Love letters"
eða „Kærlighedsbreve“ í danskri
þýðingu Jesper Kjær. Leikritið
er sviðsett af Morten Grunwald.
í fréttatilkynningu frá Leikfélagi
Reykjavíkur segir um leikritið Love
letters, að það hafi farið sigurför
um heiminn og kallað á krafta leik-
ara, sem telja verði meistara í sinni
grein.
Fram kemur að Bodil Kjer hafí
starfað við Konunglega leikhúsið í
Kaupmannahöfn frá 1937 og sé
margverðlaunuð fyrir störf sín í
þágu danskrar leiklistar. Ebbe Rode
hafí hafið störf hjá Dagmarleikhús-
inu í Kaupmannahöfn 1931 og hafi
leikið við öll helstu leikhús í Dan-
mörku. Hann hafí sérhæft sig í hlut-
verkum í sígildum verkum Holbergs
og Moliere og hafí hlotið margvís-
lega viðurkenningu fyrir störf sín.
í fréttatilkynningunni kemur að
lokum fram, að þau Rode og Kjer
hafí leikið Kærlighedsbreve síðan í
mars 1989 og hafi þau hlotið ein-
róma lof fyrir meistaraleg tök á
hlutverkum sínum.
FÉLAG ráðgjafarverkfræðinga
(FRV) gengst fyrir ráðstefnu á
föstudaginn um ábyrgð verk-
fræðinga á umhverfinu. Mikið
er rætt um umhverfismál í
heiminum um þessar mundir og
er ráðstefnan haldin til að
árétta fyrir verkfræðingum
mikilvægi þess að gæta að um-
hverfinu við undirbúning allra
framkvæmda.
Pétur Stefánsson, formaður
FRV, sagði að á ráðstefnunni yrði
fyrst og fremst tekin fyrir þtjú
mál. Umhverfísmál heimsins, í
víðu samhengi verða rædd, einnig
verður tekin fyrir stefnuyfirlýsing
alþjóðasamtaka ráðgjafarverk-
fræðinga, sem nýlega var gefin
út. Þar eru mjög eindregin til-
mæli til allra aðildarfélaga að hafa
umhverfismál í brennidepli við
undirbúning allra framkvæmda. í
þriðja lagi munu verkfræðingar
ræða umhverfismálin eins og þau
blasa við hér á landi.
Pétur sagði að hér á landi væri
ástandið í mengunarmálum við-
undandi, ef miðað væri við allan
heiminn. „Hins vegar erum við á
eftir varðandi vinnubrögð við und-
irbúning stórframkvæmda, sérs-
taklega á þetta við um lög á þessu
sviði. Bandaríkjamenn settu t.d.
lög árið 1970 um að fyrir allar
framkvæmdir, sem fjármagnaðar
væru af alríkisstjórninni, skyldi
gera rannsókn á öllu umhverfí og
meta áhrif sem framkvæmdir
gætu haft á umhverfið. Slík lög
eru nú í flestum nágrannaríkjum
okkar en ekkert slíkt er hér á landi,
þannig að við erum 5-8 árum á
eftir nágrönnum okkar,“ sagði
Pétur.
Hann sagðist búast við að einn-
ig yrði nokkuð rætt um ferða-
mannaslóðir, sem væri nýtt sjónar-
mið í umhverfismálum hér á landi.
Bandaríkjamaðurinn Dr. James
Roberts, alþjóðlegur ráðgjafi í
skipulagsmálum, verður gestafyr-
irlesari á ráðstefnunni, en hann
hefur unnið hér á landi með skipu-
lagsyfirvöldum. Aðrir sem flytja
framsögu eru Dr. Sigmundur Guð-
bjarnason, háskólarektor, Pétur
Stefánsson, formaður FRV, Halld-
ór Jónatansson, forstjóri Lands-
virkjunar, Kristín Halldórsdóttir,
formaður Ferðamálaráðs, Þórodd-
ur Þóroddsson, framkvæmdastjóri
Náttúruvermdarráðs, Þórður Þor-
bjarnarson, borgarverkfræðingur,
Jón B. G. Jónsson, yfirverkfræð-
ingur hjá Vegagerðinni, Auður
Sveinsdóttir, formaður Land-
varndar, Stefán Thors, skipulags-
stjóri og Jón Sigurðsson, forstjóri
á Grundartanga.
Ráðstefna FRV hefst á Hótel
Sögu á föstudaginn klukkan 10
árdegis og mun standa til klukkan
16.30.
Kaþólska kirkjan:
Torfi sæmdur riddaranafnbót
Morgunblaðið/KGA
Torfi tekur við heiðursskjali til staðfestingar nafnbótinni. Til
hægri á myndinni er biskup kaþólskra á íslandi Alfreð Jolson S.J.
Jóhannes Páll páfi II. hefur
tilnefnt Torfa Ólafsson riddara
af reglu heilags Silvesters.
Torfi er annar Islendingurinn
sem hlýtur riddaranafnbót inn-
an kaþólsku kirkjunnar. Hinn
var Gunnar Einarsson en hann
var tilnefndur riddari af reglu
Gregoríusar mikla árið 1925.
Biskup kaþólskra á Islandi Al-
freð Jolson S.J. afhenti Torfa
heiðurskjal og merki nafnbót-
inni til staðfestingar. Henni
fylgir réttur til að bera ein-
kennisbúning reglunnar með
sverði.
Torfi er fæddur 26. maí árið
1919 í Stakkdal á Rauðasandi í
Vestur-Barðastrandasýslu. Hann
gekk í kaþólsku kirkjuna árið
1953 og tók við ritstjórn Merkis
krossins árið 1974. Hefur hann
gegnt því starfi síðan. Einnig hef-
ur hann þýtt ýmsar bækur og
bæklinga fyrir kirkjuna og auk
þess ýmsar aðrar bækur, verald-
legs eðlis. Nokkra sálma hefur
hann þýtt. Þá hefur Torfi gegnt
formennsku í Félagi kaþólskra
leikmanna um 15 ára skeið og
kom á stofn íslandsdeild Sam-
verkamanna móður Teresu árið
1982. Síðastliðið ár hefur hann
annast bóksölu Félags kaþólskra
leikmanna að Hávallagötu 14 en
hann er upphafsmaður hennar.
Torfi hefur, ásamt fleirum, tekið
þátt í samstarfi kaþólskra manna
á Norðurlöndum og sótt kaþólsk
mót víðar, aðallega í Þýskalandi.
SKEIFAM
FASTEIGNAMIOLUN • SKEIFUNNI 19 • 685556
SÍMI: 685556
Einbýli og raðhús
MOAFLOT - GBÆ
Glæsil. einbhús á einni hæð 143 fm nt.
ásamt 41 fm bílsk. 5 svefnherb. Fallegt
útsýni. Fallegur staður. Ákv. sala. Verð
14,8-15,0 millj.
FANIMAFOLD
Glæsil. einbhús á fráb. útsýnisstað með
innb. bílsk. 5 góð svefnherb. Ákv. sala.
Verð 15,4 millj.
SMÁÍBÚÐAHVERFI
Fallegt keðjuhús sem er kj. og tvær
hæðir 171,9 fm nettó ásamt bílsk. 5
svefnherb., nýtt eldhús. Parket. Verð
12,5 millj.
4ra-5 herb.
FURUGRUND - BÍL-
SKÝLI
Mjög falleg 4ra herb. íb. á 4. hæð í
lyftublokk, 84 fm nettó. Suðursv. Fal-
legt útsýni. Parket. Bilskýli fylgir. Ákv.
SELTJARNARNES
Falleg jarðhæð í tvíbýli. 110 fm. Mikið
endurn. íb. Sérþvottah. Áhv. sala. Verð
7,5 millj.
JÖRVABAKKI
Falleg 4ra herb. íb. á 2. hæð 90 fm nt.
Suðursv. Nýtt eldh. m/þvottah. og búri
innaf. Ákv. sala. Verð 6,8 millj.
BARMAHLÍÐ - BÍLSK.
Góð 5 herb. hæð í fjórb. 110 fm nt.
ásamt 24 fm bílsk. 4 svefnherb. Ákv.
sala. Laus strax. Verð 8,5 millj.
LYNGMÓAR
Falleg 3ja-4ra herb. íb. á 1. hæð
92 fm nettó ásamt bílsk. 3 svefn-
herb. Suðursv. Ákv. sala. Verð
8,8 millj.
HRÍSMÓAR - GB.
Falleg 4ra herb. íb. sem er hæð og ris
105 fm í 3ja hæða blokk. Suðursv.
Endaíb. Fráb. útsýni. Áhv. veödeild ca
2 millj. Verö 8-8,1 millj.
VESTURBERG
Snyrtil. og björt 4ra herb. íb. á
2. hæð. Suöursv. Parket. Ákv.
sala. Verð 6,5 millj.
3ja herb.
STELKSHOLAR
Mjög falleg og snyrtileg 3ja herb. íb.
77 fm nettó á 3. hæð (efstu). Suðvest-
ursv. Fallegar innr. Ákv. sala.
DVERGABAKKI
Falleg 3ja herb. (b. á 2. hæð, 89 fm
nettó ásamt aukaherb. í kj. Sufisvest-
ursv. Þvottah. og búr innaf eldh. Ákv.
HRAUNBÆR
Mjög falleg 3ja herb. íb. ca 80 fm á 3.
hæð. Suðvestursv. Snyrtil. og björt íb.
Útsýni. Ákv. sala. Verð 6,1 millj.
2ja herb.
ÞANGABAKKI
Falleg 2ja herb. íb. á 8. hæð í lyftu-
blokk. Góðar innr. Þvottah. á hæðinni.
Stórar suðvestursv. Frábært útsýni.
Verð 5,3-5,4 millj.
LYNGMÓAR - BÍLSK.
Glæsil. 2ja herb. íb. á 3. hæð 69 fm
nt. Rúmg. suðaustursv. Fráb. útsýni.
Þvottah. i ib. Gott hús. Verð 6,4 millj.
HAMRABORG
Falleg 2ja herb. íb. á 5. hæð í lyftubl.
Suðursv. Laus strax. Bílgeymsla undir
húsinu. Ákv. sala.
BARMAHLÍÐ
Góð 2ja-3ja herb. íb. í kj. 63 fm nt. í
þríbhúsi. Sérinng. Sérhiti. Verð 4,4 millj.
SEILUGRANDI
Falleg 2ja herb. íb. á jarðhæð 66,7 fm
nt. Laus fljótl. Ákv. sala.
SIMI: 685556
r
MAGNÚS HILMARSSON
EVSTEINN SIGURÐSSON
HEIMIR DAVlÐSON
JÓN MAGNÚSSON HRL.
vy
o Lofta- plötur og lím Nýkomin sending
Þ.ÞORGRlMSSON&CO
ÁPPMJ3 gg^Beykjavík, sími 38640