Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 16
JH NViOlSVDNIS^lOnV V31SN31SJ
16
MORGUNBLAÐIÐ TVIIÐVIKUDAGUK l. 'MAl 1991
Omissandi
uppsláttarrit
um EB
Evrópuréttur, réttarreglur og stofnanir Efnahags-
bandalagsins, er bók sem vissulega er tfmabært að
kynna sér. Ómissandi uppsláttarrit fyrir alla þá sem
stunda viðskipti eða eiga annarra hagsmuna að gæta á
Evrópumarkaði. Nauðsynlegt heimildarrit fyrir lög-
fræðinga, endurskoðendur og annað fagfólk, þvf að
þekking á réttarreglum Evrópubandalagsins er forsenda
þess að geta tekið réttar ákvarðanir. Skilningur á starf-
semi, verkefhum og völdum Evrópubandalagsins er
grundvallaratriði hvort sem um hugsanlega aðild verður
að ræða eða f öðrum samskiptum við bandalagið.
f þessu efnismikla riti lýsir Stefán Már Stefánsson
prófessor ftarlega og á afar skýran og aðgengilegan hátt
réttarkerfi Evrópubandalagsins og lagaáhrifum EB-
reglna. Ennfremur er gerð grein fyrir stofnunum
Evrópubandalagsins, hvemig þær taka ákvarðanir og
þeim efhisreglum sem þeim ber að fylgja.
Evrópuréttur er mikilvægt
framlag til að glæða skilning
manna á Evrópubandalaginu og
á samvinnu þjóða í Evrópu, og á
erindi til allra sem vilja glöggva
sig á þeim reglum sem banda-
lagið byggir á.
Stefán Már Stefánsson
lögfræðingur og prðfessor
við lagadeild HÍ.
IÐUNN
• VANDAÐAR BÆKUR í 45 ÁR •
Sérkennilegt
barnaleikrit
_________Leiklist__________
Súsanna Svavarsdótti
Leikfélag Kópavogs
í SÚRMJÓLKURÞORPI
Höfundur: Eduard Uspenski
Leikgerð: Ritva Siikala
Þýðandi: Kristín M“antyl“a
Leikstjóri: Asdís Skúladóttir
Leikmynda- og búningahönn-
uður: Hlín Gunnarsdóttir
Ljósahönnuður: Alexander
Ingvar Ólafsson
Sagan segir frá Finni karlin-
um, sem býr hjá mömmu sinni
og pabba í blokkaborg og vill fá
að hafa dýr. Á vegi hans verður
forláta köttur, sem talar manna-
mál, og Finnur vill fá að hafa
hann hjá sér. En móðir hans Jeyf-
ir það ekki og gerir Kisu Oldu-
dals (afþví hún er af sjókattaætt-
um) burtræka. Finnur ákveður
að fara með henni.
Þau ferðast með lest, þar til
þau koma í þorp eitt og hitta
hundinn Kol (talar líka manna-
mál), sem segir þeim að nóg sé
af auðum húsum í þorpinu, því
fólkið hafi allt flutt í blokkir.
Kolur slæst í hópinn og þau Finn-
ur, Kisa og Kolur finna hús og
setjast þar að. Þau koma sér vel
fyrir og hafa nóg að bíta og
brenna, því í húsinu þeirra leyn-
ist fjársjóður — og Kisa hefur
verið alls staðar og kann á kerf-
ið. í húsinu er gömul kráka, sem
verður líka fjölskyldumeðlimur
og Kisa kaupir belju, sem eign-
ast síðan kálf. Eini gesturinn er
Pétur póstberi, sem kemur með
ýmis tímarit og er alltaf jafn-
undrandi yfir þessu furðulega
heimilishaldi.
Foreldrar Finns fara að hafa
áhyggjur og auglýsa eftir hon-
um. En ekkert gerist fyrr en dag
einn, að þau fá bréf frá honum
og sjá að það er póststimplað í
Súrmjólkurþorpi. En það eru yfir
tuttugu súrmjólkurþorp í
landinu. Þau hefja leitina; hafa
uppi á Finni og sækja hann. En
dýrin ákveða að vera áfram í
húsinu.
Súrmjólkurþorp er eftir sov-
éska höfundinn Uspenskij — og
þótt söguþráðurinn sé einfaldur
er í honum haugur af pólitískum
áróðri. Og kannski er það ein-
mitt þessvegna sem leikritið
sjálft verður innantómt og hál-
fleiðinlegt. Það gerist eiginlega
ekki neitt. Eina uppbrotið á
hangsinu í Finni og dýrunum er
þessi Pétur póstur og hann er
stöðugt með sömu setningarnar;
„stórundarlegt hús — alveg furð-
ulegt“. í verkinu eru engir mögu-
leikar á að virkja áhrofendur,
sem þó er dálítið nauðsynlegt,
þegar um barnasýningar er að
ræða. Textinn er skírskotun í
pólitískt ástand í Sovétríkjunum
og fer fyrir ofan garð og neðan.
Verkið er ekkert fyndið og fram-
vindan er hæg og þyngslaleg —
eiginlega alveg drep.
En það er nú svo skrítið að
uppsetningin vegur heilmikið
upp. Gervi dýranna er mjög gott
og þau verða mjög raunveruleg,
framsögn og látbragð þeirra Jó-
hönnu Pálsdóttur (Kisu) og Run-
ólfs Einarssonar (Kols) er einnig
mjög gott og þau halda athygli
áhorfandans auðveldlega. Það
sama má segja um Finn karlinn.
Ingimundur K. Guðmundsson fer
með hlutverk hans og gerir það
bísna vel. Hann er skírmæltur
og skemmtilegur á sviði; laus við
ærsl og hávaða. Aðrir leikarar
eru í smærri hlutverkum, en skila
sínu mjög vel. Þrátt fyrir hæga
framvindu, er sýningin vel unnin
og þótt leiksviðið sé lítið, eru
hreyfingar eðlilegar. Samspil
búninga, leikmyndar og leik-
stjórnar er
ágætt. Leikmyndin er mjög
skemmtileg; gefur sýningunni
raunveruleikablæ um leið og hún
ýtir undir ímyndunaraflið. Eigin-
lega varð mér hugsað til þess
að miklu skemmtilegra hefði ver-
ið að setja sýninguna upp sem
látbragðsleik, þar sem textinn
sjálfur er sísti þáttur sýningar-
innar.
Þrjár söngskemmtan-
ir karlakórsins Þrasta
Karlakórinn Þrestir í
Hafnarfirði heldur árlegar
söngskemmtanir sínar fyrir
styrktarfélaga kórsins og aðra
velunnara hans í Víðistaða-
kirkju dagana 1., 2. og 4. maí.
Fyrsta skemmtunin verður í
kvöld klukkan 20.30 og á morgun
er önnur skemmtunin á sama
tíma. Á laugardag hefst skemmt-
unin hins vegar klukkan 17.
Efnisskrá söngskemmtananna
er fjölbreytt, innlend og erlend
lög. Söngstjóri Karlakórsins
Þrasta er Ronald W. Turner,
Anna Málfríður Sigurðardóttir
annast undirleik á píanó og ein-
söngvari verður Þorgeir Andrés-
son, tenór. Miðar verða seldir við
innganginn.