Morgunblaðið - 01.05.1991, Síða 26
26
MQRQWNBLAÐffl;.WÐ;VjKW>AQUft.liv MAUS)!}J
■ BARÁTTUDAGUR VERKALÝDSINS
Akureyri;
Launin
mættu vera
hærri
„LAUNIN mættu vera hærri,“
sagði Ingi Rafn Ingason 18 ára
starfsmaður Sanitas á Akureyri,
en hann starfar aðallega í véla-
salnum, þar sem hann raðar flösk-
um í þvottavél og sér um þrif
„Það er mjög
gott að vinna
hérna, andinn er
góður og það er
fyrst og fremst
hann sem heldur
manni hér í þessari
vinnu,“ sagði Ingi
Rafn.
Aður var hann í
fiskvinnu hjá Sig-
urbimi hf. í Gríms-
ey og líkaði það
mjög vel. Hann sagði að launin fyr-
ir fiskvinnuna hefðu verið eitthvað
hærri en Iðjutaxtinn sem hann hún
starfar eftir, en starfsfélagamir og
hinn góði andi í hópnum hefðu mik-
ið að segja um að hann kysi að starfa
hjá fyrirtækinu.
Ingi Rafn sagðist að jafnaði vinna
frá 8-16.15 á daginn og eftirvinna
væri lítil, þannig að menn hefðu
nánast eingöngu dagvinnuna og
vissulega væri kaupið því ekki hátt.
„Ég kem svo sem ekki illa út, er
ekki fjölskyldumaður, en er að kaupa
bíl og stór hluti minna tekna fer í
að borga af honum, það er ekki
mikið eftir þegar búið er að greiða
það sem greiða þarf, en þetta slepp-
ur oftast á milli mánaðamóta," sagði
Ingi Rafn.
Blönduós:
Njju ríkis-
stjórnina
máekki
dæma fyrir-
fram
Blönduósi.
„Það er mikilvægt að verka-
fólk í A-Húnavatnssýslu sé I einu
verkalýðsfélagi og sýslan öll
gerð að einu atvinnusvæði,"
sagði Ólafur Guðmannsson verk-
og fleira.
Ingi Rafn
Ingnson.
Hátíðahöld á bar-
áttudegi launafólks
HÁTÍÐAHÖLD verða víða um land í dag í tilefni af alþjóðlegum bar-
áttudegi launafólks. í Reykjavík standa Fulltrúaráð verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Iðnnemasam-
band Islands saman að hátíðahöldunum, og verða þau með sama sniði
og verið hefur undanfarin ár.
Safnast verður saman við Hlemm
kl. 13.30, og ganga leggur af stað
kl. 14. Gengið verður niður Lauga-
veg að Lækjartorgi og leika Lúðra-
sveit verkalýðsins og Lúðrasveitin
Svanur fyrir göngunni.
Útifundur verður haldinn á Lækj-
artorgi að göngu lokinni. Ræðumenn
dagsins verða Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB, og Sigurður Rúnar
Magnússon, hafnarverkamaður.
Milli ræðuhalda munu nemendur úr
Söngskóla Reykjavíkur, þau Ragnar
Davíðsson og Auður Gunnarsdóttir,
syngja nokkur lög við undirleik Jóns
Stefánssonar píanóleikara. Einnig
mun Bubbi Morthens koma fram og
syngja nokkur lög. Fundarstjóri
verður Elín Sigurðardóttir, formað-
ur Iðnnemasambands íslands.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
gangast fyrir útifundi á Hallæris-
planinu að lokinni göngu niður
Laugaveginn, en samtökin munu
ganga aftan við göngu Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna, BSRB og Iðn-
nemasambands íslands. Ávörp flytja
Ásdís Steingrímsdóttir meinatæknir,
fyrir hönd Samtaka kvenna á vinnu-
markaði, Elna Katrín Jónsdóttir
kennari, varaformaður Hins íslenska
kennarafélags, og Stefanía Þorgr-
ímsdóttir, borgarstarfsmaður i
Gerðubergi. Lóurnar sjá um söng
og skemmtan, en fundarstjóri verður
Bjarnfríður Leósdóttir.
amaður í rækjuvinnslunni Sær-
únu hf. á Blönduósi.
Ólafur sagði að
1. maí væri í huga
sínum stór dagur
en hátíðahöld
væru engin á
Blönduósi í tilefni
dagsins. í fyrra
var réynt að halda
sjómannadaginn
hátíðlegan en
þátttaka í þeim
hátíðarhöldum
hefði verið dræm.
Aðspurður um kjörin sagði Ólafur
að þau væru aldrei of góð og aldrei
nóg að gert en hann vonaði að þjóð-
arsáttin myndi halda en hag hinna
lægst launuðu verður að bæta.
Hann sagði að nýja ríkisstjórn
mætti ekki dæma of snemma, „það
verður að gefa henni tækifæri en
það liggur ljóst fyrir að verkefni
hennar í atvinnumálum á lands-
byggðinni eru stór því útlitið í þeim
málum er ekki allt of bjart í nán-
ustu framtíð." jón Sig.
Akureyri:
Öll eftir-
vinna fer í
skattinn
Ólafur
Guðmannsson
ARNAJR Cristian Edvardsson er
24urra ára starfsmaður í Vega-
nesti við Hörgárbraut á Akur-
eyri, en áður hefur hann starfað
við bensínafgreiðslu og sem
pizzugerðarmaður.
„Það er alveg
daágætt að prófa
að vinna í sjoppu,
það er gaman að
kynnast því líka
hvernig er að vera
hinum megin
borðsins. Ég byij-
aði hér fyrst þegar
verið var að koma
sölu á pizzum í
gang, en býst við
að fara fljótlega
aftur í bensínið,"
sagði Amar.
Hann sagðist vera á jafnaðar-
kaupi og vinna tvo daga í einu frá
kl. 8 á morgnana til 23.30 á kvöld-
in og síðan eiga frí í tvo daga.
„Maður er yfirleitt vinnandi alla
daga, því inn á milli vinnudaga
koma aukavaktir og það er hægt
að ná ágætis launum ef við vinnum
mikið. En það fer að vísu allt í
skatta, svo kannski er ekki til mik-
ils að vinna í sjálfu sér,“ sagði Am-
ar. Hann sagðist eitt sinn hafa far-
ið upp í 381 tíma í vinnu á 23 dög-
um og heildarlaunin vom 171 þús-
und krónur. „En ég fékk ekki út-
borgað nema 75 þúsund, því það
vom dregin af mér um 96 krónur
í skyldusparnað, orlof og þessa
föstu liði, þannig að þó launin séu
þokkaleg í heildina þá er ekki mik-
ið eftir í vasanum," sagði Amar.
Selfoss:
Vonaað
kjörin batni
Selfossi.
„Ríkissíjornin hrellir mig og og
það er spurning hvort hún haldi
lífinu í okkur eða að það litla sem
eftir er af liftórunni í ókkur
murkist burt,“ sagði Sigurdór
Stefánsson hjá Sólningu hf.
Sigurdór sagð-
ist vonast til þess
að ástandið í laun-
amálum batnaði
og launin hækk-
uðu, þau hefðu
staðið í stað nógu
lengi. Það þyrfti
að vera meginat-
riði hjá stjórnvöld-
um og vinnumark-
aðnum að vinna
að hækkun launa
án þess að verðbólgan ykist. Kjara-
bæturnar þyrftu að vera raunvem-
legar annars sagðist hann bara bíða
og vona að verk ríkisstjórnarinnar
kæmu málum í rétta átt.
Sig. Jóns.
Akureyri:
Gengnr
þokkalega
að lifa af
laununum
„MÉR gengur þokkalega að lifa
af minum launum, en auðvitað
gæti maður vel hugsað sér að fá
meira í vasann,“ sagði Ævar
Jónsson tæplega 19 ára Akur-
Sigurdór
Stefánsson
eyringur og starfsmaður hjá
Gúmmivinnslunni. Hann starfar
á hjólbarðaverkstæði og er einn-
ig á lagernum.
„Ég er að kaupa
mér bíl og tók stórt
lán í skamman
tíma. Mér finnast
vextirnir nokkuð
háir og þetta em
býsna stífar
greiðslur. Það er
ekki mikið eftir af
laununum þegar
ég er búinn að
greiða þessa af-
borgun,“ sagði Ævar.
Hann taldi að lágmarkslaun ættu
að vera um 70 þúsund krónur og
skattleysismörkin mættu einnig vera
hærri. „Það lifir enginn fjölskyldu-
maður af þessum lágmarkslaunum,
það sér hver maður."
Ævar stefnir að því að fara í skóla
næsta vetur, en kvaðst ekki búinn
að gera upp við sig hvað nákvæm-
lega hann ætlaði að læra. „Þetta er
ekki framtíðarstarf, ég stefni að því
að læra eitthvað. En þetta starf hér
er samt fjölbreytt, ég er ekki alltaf
í því sama og það er ágætt. Það er
gott að vinna hér í Gúmmívinnslunni
og aðbúnaður okkar starfsfólksins
er mjög góður,“ sagði Ævar.
Selfoss:
Ottast að
launin
hækki lítið
Selfossi.
„Ég er dálítið hrædd við nýju rík-
isstjórnina og óttast að launin
muni hækka lítið,“ sagði Ágústa
Traustadóttir saumakona í Vopna
hf á Selfossi.
Ágústa sagðist
vonast til þess að
launin hækkuðu
þau væm léleg og
nauðsynlegt væri
að kjarabætur yrðu
að vemleika og
staðið við það sem
lofað hefði verið.
Hún sagði að
mð þessum lágu
launum væri í raun
litið á verkafólkið
sem annars flokks
starfsfólk en það væri hættulegt því
atvinnulífíð byggði á því.
Sig. Jóns.
Ágústa
Traustadóttir
Morgunblaðið/Sverrir
„Þetta ernýi ráðherrabíllinn
minn“
Nýskipuð ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tók við umboði sínu á
ríkisráðsfundi hjá forseta ísiands að Bessastöðum ígær. Myndirn-
ar voru teknar er ráðherrar ríkisstjórnarinnar vcru að fara frá
Bessastöðum. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra brá á
leik og fékk lánaða bifreið Ijósmyndara Morgunbiaðsins, Ragn-
ars Axelssonar, til að flytja sig til Reykjavíkur. Bifreiðin er af
Citroen-bragga gerð, sömu tegundar ogJón Baldvin hugleiddi
um skeið að festa kaup á. Myndirnar sýna þegarJón Baidvin
bendirDavíð Oddssyni forsætisráðherra á bíiinn ogsegir: „Þetta
er nýi ráðherrabíllinn minn “. Loks sést hann veífa hatti sín um
upp um sólarlúgu bílsins í kveðjuskyni.