Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 30
STJORNARSKIPTIN
MÖRÖWjBtÁÐIíy ^HöVlíájÓXdtíR 4. MÁ!!iI991
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra:
Helsta verkefnið verður
að taka á halla ríkissjóðs
FRIÐRIK Sophusson, nýskipaður
fjármálaráðherra, segir að
fyrstu verkefni sín í nýrri ríkis-
stjórn verði að takast á við ríkis-
sjóðshalla, sem sé mjög mikill,
að lækka skuld ríkissjóðs hjá
Seðiabankanum og undirbúa
einkavæðingu hluta núverandi
ríkisreksturs.
„Staðan er auðvitað mjög erfíð
eins og fram hefur komið. Það verð-
ur án efa afar erfitt að ná tökum
á þessu risavaxna verkefni_ sem
býður fj ármálaráðherrans. Ég er
þó sannfærður um að það tekst, ef
allir leggjast á eitt og hafa skilning
á því að við getum ekki endalaust
skuldsett framtíðina fyrir það sem
við veitum okkur nú. Ég treýsti á
gott samstarf í ríkisstjórninni og
stjórnarflokkunum og er bjartsýnn
á að andinn í þessri ríkistjórn verði
góður og hún skili árangri,“ sagði
Friðrik.
Hann sagði ljóst, að lánsfjárþörf
ríkisins á þessu ári yrði ekki að
fullu mætt á innlendum markaði.
„Það eru aðeins 8 mánuðir eftir af
árinu og það sem af er hefur verið
innleyst meira af ríkisskuldabréfum
en hafa selst. Og jafnvel þótt allur
nýr innlendur sparnaður færí til að
standa undir lánsíjárþörf ríkisins
þá dygði það ekki til,“ sagði Friðrik
Sophusson.
Fráfarandi ríkis-
stjóm skilar af sér
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra tekur við heillaóskum frá fyrir-
rennara sínum, Ólafi Ragnari Grímssyni í fjármálaráðuneytinu.
Ólafur Ragnar Grímsson:
Sjálfstæðisflokkurinn er
drottnandi afl í ríkisstjóminni
„ÉG finn ekki til saknaðar yfir því að sleppa ráðherraembættinu,
þetta hefur verið erfiður en lærdómsríkur tími, en það er söknuður
í því að sjá menn sem ég taldi vini mína bregðast hugsjónum sem
ég taldi sameiginlegar," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að hann
lét af embætti fjármálaráðherra. Hann var þarna að vísa til þess
að Alþýðuflokkurinn hefði rofið ríkissljómarsamstarf þeirra þriggja
stjórnarflokka sem eiga menn á þingi, sagði að þeir hefðu getað
haldið áfram án þess að breyta neinu í ríkisstjórninni.
RÍKISSTJÓRN Steingríms Her-
mannssonar skilaði af sér á
ríkisráðsfundi á Bessastöðum
klukkan ellefu í gærmorgun.
Aður var haldinn stuttur ríkis-
stjórnarfundur á sama stað.
Félagsmálaráðuneyti:
Aðstoðar-
maður ráð-
herra snýr til
fyrri starfa
GRÉTAR J. Guðmundsson lét í
gær af starfi aðstoðarmanns fé-
lagsmálaráðherra og snýr til
fyrri starfa hjá Húsnæðisstofnun
rikisins.
„Það varð að samkomulagi þegar
hann fékk leyfí úr Húsnæðisstofnun
að það yrði ekki lengra en til þess
tíma sem nú er kominn,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið
í gær. „Hann hefur mjög brýnum
störfum að gegna þar og hans er
mjög mikil þörf þar aftur,“ sagði
Jóhanna. Hún sagði að óákveðið
væri hver yrði nýr aðstoðarmaður
sinn.
TÓLF aðstoðarmenn og ráðgjaf-
ar létu í gær af störfum í stjórn-
arráðinu, um leið og ráðherrarn-
ir átta sem ekki eiga sæti í nýju
ríkisstjóminni. Sumir ganga í sín
fyrri störf en aðrir þurfa að leita
sér að nýrri vinnu. Aðstoðar-
mennimir og ráðgjafarnir halda
launum í þrjá mánuði.
Jón Sveinsson, aðstoðarmaður
Steingríms Hermannssonar fyrr-
verandi forsætisráðherra, kvaðst
gera ráð fyrir að hefja störf sem
lögmaður í Reykjavík í sumar eða
haust. Hann var áður starfandi lög-
maður á Akranesi. Óráðið mun hvað
Bolli Héðinsson, sem var efnahags-
ráðgjafi forsætisráðherra, tekur sér
fyrir hendur en hann er hagfræð-
ingur. Hermann Sveinbjömsson,
aðstoðarmaður Halldórs Ásgríms-
sonar fyrrverandi sjávarútvegsráð-
herra, er líf- og umhverfísfræðingur
og er óráðið í hvaða vinnu hann
fer. Finnur Ingólfsson, sem var
aðstoðarmaður Guðmundar Bjarna-
sonar á meðan hann var í heilbrigð-
is- og tryggingaráðuneytinu, hefur
verið kjörinn alþingismaður.
Svanfríður Jónasdóttir, aðstoðar-
maður Ólafs Ragnars Grímssonar
fyrrverandi fjármálaráðherra, fer
heim til Dalvíkur en þar var hún
kennari áður en hún tók til starfa
í stjórnarráðinu. Már Guðmunds-
Steingrímur Hermannsson sagði
að ríkisstjórnarfundurinn hefðu
menn aðallega verið að þakka fyrir
samstarfið. Staðfest hefðu verið
örfá mál sem óafgreidd hefðu verið
í ríkisstjórninni.
Á fundi ríkisráðs gerði
Steingrímur og ráðuneyti hans
grein fyrir því að stjórnarathafnir
hefðu verið afgreiddar, eins og for-
seti íslands hefði óskað þegar hann
féllst á að veita því lausn eftir kosn-
ingarnar. Staðfesti forseti skipan
Magnúsar Pétursonar í stöðu ráðu-
neytisstjóra fjármálaráðuneytisins.
Þá féllst forsetinn á tillögu heil-
brigðis- og tryggingamálráðherra
um að skipa Einar Magnússon og
Sólveigu Guðmundsdóttur deildar-
stjóra í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu og tillögu um-
hverfisráðherra um að skipa Ingi-
björgu Ólafsdóttur fulltrúa deildar-
stjóra í umhverfisráðuneytinu. Þá
voru staðfestsir ýmsir úrskurðir
sem gefnir höfðu verið út utan
ríkisráðsfundar.
Boðað var til annars ríkisráðs-
fundar klukkan 14. Á þeim fundi
skipaði forseti Davíð Óddsson til
að vera forsætisráðherra og aðra
ráðherra í ráðuneyti íslands. Jafn-
framt var gefínn út úrskurðum um
skipun og skipting starfa ráðherr-
anna, segir í fréttatilkynningu frá
ríkisráðsritara.
son, efnahagsráðgjafí Ólafs Ragn-
ars, fer til fyrri starfa í Seðlabanka
íslands. Mörður Ámason, sem var
upplýsingafulltrúi fjármálaráðu-
neytisins, sagði óráðið hvað hann
tæki sér fýrir hendur. „Ég mun
athuga með aðstoðarforstjórastöð-
una hjá Reykvískri tryggingu, ég
veit að hún er laus,“ sagði Mörður.
Guðrún Ágústsdóttir, aðstoðarmað-
ur Svavars Gestssonar fyrrverandi
menntamálaráðherra, sagðist fara
beint í það að sá fyrir gulrótum og
salati, tæki sér síðan sumarfrí og
færi loks að líta í kringum sig eftir
nýrri vinnu. Gerður Oskarsdóttir,
sem var ráðunautur menntamála-
ráðherra, í uppeldis- og kennslumál-
um gengur í sitt fyrra starf í Há-
skóla íslands þar sem hún var
kennslustjóri i uppeldis- og kennslu-
fræðum. Ekki náðist í gær í Gunn-
laug Júlíusson, aðstoðarmann
Steingríms J. Sigfússonar fyrrver-
andi landbúnaðarráðherra. Hann
var hagfræðingur Stéttarsambands
bænda áður en hann fór í stjórnar-
ráðið.
Sigurður Jónsson, sem var að-
stoðarmaður dóms- og kirkjumála-
ráðherra í tíð Óla Þ. Guðbjartsson-
ar, sagði óráðið hvað við tæki.
Hann var áður starfsmannastjóri
Sláturfélags Suðurlands. Ekki náð-
ist í Jón Gunnarsson, aðstoðarmann-
Olafur Ragnar sagði að stjórnin
skilaði af sér betra búi en nokkur
önnur ríkisstjórn. „Það hefur aldrei
fyrr gerst að ríkisstjóm hafi sest
að öðru eins gósenbúi og nú.
Ástandið var þannig þegar Alþýðu-
bandalagið kom í fjármálaráðuneyt-
ið fyrir tveimur og hálfu ári að tal-
að var um þjóðargjaldþrot. Þá hefði
enginn trúað því að við myndum
skila verki sem felur í sér að ísland
þolir samanburð við það besta í
hagstjóm í Vestur-Evrópu," sagði
Ólafur Ragnar.
Aðspurður um álit á stefnu nýju
ríkisstjómarinnar sagði Ólafur: „Er
þetta einhver stefna? Ég las þennan
texta í morgun en sá ekkert í hon-
Júlíusar Sólness fyrrverandi um-
hverfisráðherra.
í upphaflegum tillögum sínum
um skiptingu ráðuneyta lagði Jón
Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins, til að Jóhanna
færði sig um set og settist í heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytið.
Hún var spurð hvers vegna hún
hefði lagst gegn þeirri breytingu.
„Heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið er um margt áhugavetl ráðu-
neyti og þar eru stór og brýn verk-
efni að takast á við, sem snerta
velferð fólksins. Ég býst við að ég
hefði eitthvað leitírhugann að því
um sem hönd er á festandi. Jón
Baldvin hefur sagt að undanförnu
að Alþýðuflokkurinn fái meira af
sínum málum fram í samvinnu við
Sjálfstæðisflokkinn en hina flokk-
ana. Ég sé engin mál Alþýðuflokks-
ins í þessari stefnuyfirlýsingu. Þetta
er almennt huggulegt orðalag í
þeim stíl sem Davíð Oddsson flutti
á fundum fyrir kosningar. Þá kall-
aði Jón Baldvin það innihaldslausa
orðaleiki og skoraði á Davíð að
mæta sér á fundum til að leita að
stefnunni. Jón virðist ekki heldur
hafa fundið hana úti í Viðey.
Enn meira undrandi varð ég þeg-
ar ég sá verkaskiptinguna. Sjálf-
stæðisflokkurinn fær öll sterku
ráðuneytin og verður því drottnandi
afl í þessari ríkisstjórn. Alþýðu-
flokkurinn hefur hvergi fótfestu í
efnahagsmálum til dæmis. Þegar
upp er staðið fær Alþýðuflokkurinn
tvö ráðuneyti til viðbótar við það
sem hann hafði, heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið, sem hann
hefði getað fengið í þriggja flokka
stjórn okkar, og umhverfisráðu-
neytið. Það eina sem Alþýðuflokk-
að skipta um ef ég hefði ekki utan
míns flokks fundið mjög óviður-
kvæmilegan þrýsting þar sem reynt
var að hafa áhrif á að ég færi út
úr þessu ráðuneyti," sagði Jóhanna
Sigurðardóttir. Aðspurð vildi hún
ekki segja hvaðan sá þrýstingur
hefði komið né af hveiju hann hefði
sprottið. „Ég vil ekki nefna neitt í
því sambandi en ég fann þetta mjög
á síðustu dögum stjórnarmyndunar-
innar,“ sagði hún.
—Lét þá formaður flokksins und-
an þessum þrýstingi þegar hann
urinn hefur upp úr þessu krafsi er
jeppinn hans Júlíusar."
- Hvaða ráð vilt þú gefa nýjum
fjármálaráðherra?
„Friðrik Sophusson er góður
drengur. Fjármálaráðherraembæt-
tið er eitt erfiðasta starfið í landinu.
Það er vanþakklátt og hér inni
brenna allir eldar. Ég hef stundum
líkt þessari skrifstofu við járnbraut-
arstöð íslenska stjórnkerfísins. Sá
maður sem _hér sest þarf að hafa
sterk bein. Ég vona að Friðrik hafí
þau því það eru mörg mikilvæg
verk sem þarf að vinna í ríkisfjár-
málunum.
Mig langar til að bæta einu við,
vegna þess að ég skrifaði einu sinni
doktorsritgerð um ættarveldið í
íslenskum stjórnmálum á 19. öld
og burðarásinn í því ættarveldi var
Stephensen-Finnsenættin sem hafði
Viðey að valdasetri. Mér fannst það
merkilegt hugmyndaflug hjá Davíð
Oddssyni að knýja Jón Baldvin til
að undirrita sáttmálann við gamla
ættarborði í Viðey, sáttmála þar
sem verið er að endurreisa veldi
fjölskyldnanna fjórtán. Jón Baldvin
hefur talað meira á móti þessu
ættarveldi en nokkur annar maður
að Vilmundi heitnum Gylfasyni
undanskildum. Það er því sérkenni-
leg byijun á samstarfi tveggja
manna að Davíð skuli þannig gera
grín að öllu því sem Jón Baldvin
hefur sagt á undanförnum árum,“
sagði Ólafur Ragnar Grímsson.
gerði sína tillögu?
Nei, hann lét ekki undan þessum
þrýstingi enda er ég hér ennþá,“
sagði Jóhanna.
Aðspurð um meginverkefni fé-
lagsmálaráðherra í hinni nýju ríkis-
stjórn, sagði Jóhanna Sigurðardótt-
ir: „í þessu ráðuneyti eru mörg
brýn verkefni að takast á við á
sviði húsnæðismála. Næstu verk-
efni verða að taka á húsnæðismál-
um fatlaðra og aldraðra. Einnig vil
ég efla samstarf í vinnumarkaðs-
málum. í sveitarstjórnarmálum bíða
líka stór verkefni á ýmsum sviðum.
Þar nefni ég til dæmis vinnu um
breytta skiptingu landsins í sveitar-
félög. Einnig þarf að gera breyting-
ar á löggjöf um málefni fatlaðra
og koma hér á löggjöf um starfs-
menntun í atvinnulífínu."
Tólf aðstoðarmenn og ráð-
gjafar láta af störfum
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra:
Þrýst varáutan flokksins
að ég færi úr ráðuneytinu
„ÉG vænti þess að það geti tekist gott samstarf milli Alþýðuflokks
og Sjálfstæðisflokks í þessari ríkisstjórn og ég lít á það sem megin-
hlutverk þessarar ríkisstjórnar að bæta lífskjörin og tryggja áfram-
haldandi stöðugleika og uppbyggingu atvinnulífsins," sagði Jóhanna
Sigurðardóttir, sem er félagsmálaráðherra í ráðuneyti Davíðs Odds-
sonar, eins og í fyrri ríkisstjórn.