Morgunblaðið - 01.05.1991, Síða 39
IMO’RGUfjBLXÖÍ0'''^feVl'!^yéÁÖt]Rl.|:’MÁ}'Véb'l
-^9
Hvalahljóð og
klarinett á Höfn
GUÐNI Franzson heldur föstu-
daginn 3. maí einleikstónleika í
Hafnarkirkju á Höfn. Guðni leik-
ur verk eftir íslenska höfunda
og leikur einnig skoska þjóðlaga-
tónlist á ýmsar flautur.
Einnig spilar Guðni verk sem er
samið við söng hvalanna. Verkið
er fyrir segulband og klarinett, en
höfundur þess er Þórólfur Eiríks-
son. Einnig verður leikið verk eftir
organista Hafnar, Hákon Leifsson,
sem heitir Flug. Verkið reynir að
gera sögu úr flugi fugla.
Guðni hefur haldið fjölda tónleika
á klarinett, bæði hér heima og er-
lendis. Hann vann á sínum tíma
Sonning-verðlaunin dönsku bæði
fyrir áræði sitt við að panta og
spila verk ungra höfunda. Hann
hefur leikið einleik með Sinfóníu-
Guðni Franzson
hljómsveit íslands, Kammersveit
Reykjavíkur og öðrum sveitum.
Tónleikarnir heíjast kl. 20.30.
(Úr fréttatilkynningu)
Ný reglugerð um Iþrótta-
miðstöðina á Laugarvatni
Svavar Gestsson f.v. mennta-
málaráðherra, samþykkti 26.
apríl þessa mánaðar Reglugerð
um Iþróttamiðstöð íslands að
Laugarvatni og samning íþrótta-
miðstöðvarinnar við mennta-
málaráðuneytið fyrir hönd skól-
ans á Laugarvatni um afnot af
eignum ríkisins á staðnum.
Með þessu er náð áfanga sem
unnið hefur verið að f tvö ár, um
samstarf fyrrnefndra aðila að efl-
ingu Iþrótta- og skólastarfs að
Laugarvatni og uppbyggingu á að-
stöðu fyrir alla landsmenn með
íþróttafræðslu og útivist að leiðar-
ljósi.
Menntamálaráðherra hefur einn-
ig samþykkt yfirlýsingu þar sem
ráðuneytið fyrir sitt leyti afhendir
íþróttakennaraskóla íslands fyrrum
húsnæði Hússtjórnarskóla Suður-
lands að uppfylltum skilyrðum eins
og;
- að þar geti farið fram kennsla
í heimilisfræðum fyrir skólana á
Laugarvatni,
- að í framtíðinni verði tekin
ákvörðun um frekari samnýtingu
þessara fasteigna og annars skóla-
húsnæðis á staðnum,
- að húsnæðið verði nýtt fyrir
hótelrekstur á sumrin.
(Fréttatilkynning)
1. maíávarp
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi frá Ólafi Ragnari
Grímssyni, formanni Alþýðu-
bandalagsins:
Á undanförnum mánuðum hefur
krafan um lífskjarajöfnun orðið
sameiningarkraftur launafólks í
landinu. Sá einstæði árangur sem
náðist í stjórn efnahagsmála eftir
að Alþýðubandalagið gekk til
myndunar ríkisstjómar haustið
1988 hefur skapað traustan grund-
völl til að færa launafólki betri
kjör, aukinn kaupmátt og jafnrétti
á sviði húsnæðismála, velferðar-
þjónustu og skattamála. Verkefnið
er að skila árangrinum til launa-
fólks.
Alþýðubandalagið vildi halda
áfram á þessari braut. Alþýðu-
flokkurinn hljópst hins vegar und-
an merkjum og kaus að reisa við
valdakerfi Sjálfstæðisflokksins,
tryggja atvinnurekendum úrslita-
áhrif á stjórn landsins og slá
skjaldborg um hagsmunavígi fjár-
magnsins og fjölskyldnanna fjórt-
án.
Á baráttudegi launafólks blasir
því við nýr veruleiki. Hægri öflin
hafa tekið völdin á íslandi. Þótt
þjóðin hafi veitt ríkisstjórn okkar
umboð til að halda áfram kaus
Alþýðuflokkurinn að fóma hags-
munum fjöldans.
Launafólk!
Nú er nýr veruleiki í íslenskum
stjórnmálum.
Þjóðinni hefur verið skipt í tvær
fylkingar.
Nú þurfum við að safna liði.
Nú tökum við saman höndum
og finnum samvinnuform fyrir alla
sem eiga samleið í baráttunni gegn
þeirri valdatöku sem undirrituð var
á borði ættarveldisins í Viðey.
Launafólk!
Við eigum okkur draum —
draum um jöfnuð og réttlæti, um
breiðfylkingu jafnaðarmanna og
félagshyggjufólks.
í dag, 1. maí, fylkjum við nýju
liði undir þeim merkjum — merkj-
um lífskjarajöfnunar og réttlætis.
Frá
unglingadeild
Fyrirhugað er að halda námskeið til undirbúnings fyr-
ir þátttakendur í gæðingakeppni. Kennari verður Haf-
liði Halldórsson. Námskeiðið hefst 3. maí, fyrir yngri
flokk kl. 17.00 og eldri kl. 19.00. Skráning verður 30.
apríl og 2. maí á skrifstofu Fáks frá kl. 13.00-17.00.
Einnig er fyrirhugað að halda námskeið í hlýðniæfing-
um 21.-25. maí. Þátttaka tilkynnist einnig á skrifstofu
Fáks.
Hestamannafélagið Fákur
unglingadeild.
H'ERRAMENN rýma
fyrir nýjum vörum,
því höldum við 3ja daga
SKYNDISÖLU
FRÁ FIMMTUDEGI 2/5 - LAUGARDAGS 4/5
Gallabuxur kr 2.900
Jakkaföt frá kr. 9.500
Skyrtur frá kr. 2.000
Laugavegi 97 S. 621655
Þvottavélar
Þurrkarar
Uppþvottavélar
Eldavélar
SYNING A FEIN
Gæða rafmagns handverkfærum
fimmtudag og föstudag 2. og 3. maí, kl. 13:00-18:00.
RAFLAGNIR - TÖLVULAGNIR - MÓTORVINDINGAR - VERZLUN - ÞJÓNUSTA
RAFVER HF
SlMI 91-82415-82117 • TELEFAX 1-680215 • SKEIFAN 3E-F, BOX 8433, 128 REYKJAVlK
Örbylgjuofnar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300