Morgunblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR l. MAÍ 1991
!• HglÍ BARÁTTUDAGUR VERKALÝÐSINS
1. maí ávarp Samtaka
kvenna á vinnumarkaði
Konur á vinnumarkaði eru fyrir-
vinnur.
Konur á vinnumarkaði eru gift-
ar.
Konur á vinnumarkaði eru
margvíslegar, við búum við misjöfn
kjör, erum á öllum aldri og af ólík-
um kynþáttum.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
krefjast þess að allar konur á
vinnumarkaði geti með reisn geng-
ið til vinnu sinnar fyrir mannsæm-
andi laun er nægja til framfærslu.
Það verður ekki á meðan taxta-
kaupið er langt fyrir neðan öll
framfærslumörk. Það verður ekki
á meðan stórir hópar launafólks
vinna á töxtum á meðan aðrir fá
ómældar sporslur. Það verður ekki
á meðan laun eru leyndarmál og
launaseðlar jafnvel sendir heim í
ábyrgðarpósti eins og sums staðar
tíðkast. Því á töxtunum sitja kon-
ur, ekki allar en neðstar eru ætíð
konur. A meðan svo er þurfum við
sérstök baráttusamtök kvenna inn-
an verkalýðshreyfíngarinnar.
Við verðum að ræða opinskátt
innan verkalýðshreyfingarinnar
hvaða launastefnu við viljum hafa,
annars ráða atvinnurekendur og
þar með ríkisvaldið launastefnunni
eins og reyndin er nú. Við verðum
að ræða opinskátt hvort við viljum
launamun og ef svo er eftir hveiju
hann skuli fara. Hvernig metum
við erfiði, líkamlegt/andlegt,
ábyrgð á börnum/peningum, um-
sjón með fólki/vopnum?
Réttindi færir enginn okkur,
réttindi okkar sköpum við sjálfar
— krefjumst — skilgreinum og tök-
um.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
hafna verkalýðshreyfingu sem orð-
in er stofnun, stofnun sem virðist
til lítils fær utan að viðhalda sjálfri
sér og skapa forystumönnum at-
vinnu. Við þekkjum dæmi um öðru-
vísi verkalýðshreyfingu, við þekkj-
um dæmi um uppreisn innan verk-
alýðshreyfingarinnar. Takist ekki
að breyta verkalýðshreyfingunni í
okkar þágu verðum við að skapa
nýja.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
vilja lifandi og virka verkalýðs-
hreyfíngu sem tekur mið af þörfum
félaga sinna en ekki hversdags-
þörfum pólitískra aðila.
Þjóðarsáttin hefur verið sátt
þeirra sem mega sín á kostnað
taxtafólksins. Aróðurinn glymur
frá atvinnurekendum, ríkisvaldi og
verkalýðsforystu um að ekki megi
hækka launin því þá geysist verð-
bólgan af stað. En hvað með þau
sem ekki taka laun heldur aðeins
fé út úr fyrirtækjum, aldrei valda
þau verðbólgunni voðalegu — held-
ur aðeins við, einkum og sér í lagi
konur á lægstu launum ef launin
lúsast aðeins upp á við.
En okkar sök er sögð stærri.
Okkar sök er að eignast börn sem
enginn tekur við nema gatan í
Reykjavík. Börn skaffa ekkert
nema vandræði þar til þau verða
háttvirtir kjósendur! En börn eiga
heimtingu á sínum rétti í þjóðfélag-
inu — rétti til að eiga ánægða for-
eldra, öruggt umhverfi — öruggan
aðbúnað — að vera ekki stöðugt
fyrir — að vera metin að verðleik-
um sem manneskjur.
Konur á vinnumarkaði þurfa
margar hveijar að þola ómögulega
sambúð, vegna þess að þær hafa
ekki efnahagslegt bolmagn til að
sjá sér og börnum sínum farborða.
Húsnæði er ekki fáanlegt og ekki
hafa húsbréfin bætt möguleikana.
Venjulegar launakonur geta fengið
tvær til þijár milljónir á húsbréfa-
TIL SÖLU
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Forval
Byggung Kópavogi
auglýsir til sölu byggingarkrana á sporbraut.
Kraninn er við Trönuhjalla 1-3 í Kópavogi.
Upplýsingar veitir Bragi Mikaelsson í síma
44906 eða heimasíma 42910.
ÝMISLEGT
Orlofshús
Tekið verður við umsóknum um dvöl í orlofs-
húsum félagsins frá og með 2. maí gegn
greiðslu dvalargjalds kr. 8.000.
Sjómannafélag Reykjavíkur.
Utboð
BÚSETI
HÚSNÆÐISSAMVINNUFÉLAG
Búseti hsf. og Bessastaðahreppur óska eftir
tilboðum í byggingu 3ja fjórbýlishúsa við
A-tún í Bessastaðahreppi.
Hvert hús er 429,6 m2 brúttó og 1.457,6
m3 brúttó.
Verktími fyrsta húss er áætlaður júní ’91 til
júlí ’92 og verktími hinna síðar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Búseta
hsf., Laufásvegi 17, 101 Reykjavík, fimmtudag-
inn 2. maí gegn 20.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
14. maí kl. 14.00.
BESSAS TA ÐA HREPP UR
SKRIFSTOFA. BJARSASTÖDUM SlMI: 51950
221 BESSASTAÐAHREPPUR
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
byggingadeildar borgarverkfræðings, óskar
eftir umsóknum verktaka um að fá að taka
þátt í lokuðu útboði vegna byggingar þjón-
ustusels fyrir aldraða í Hæðargarði 31,
Reykjavík.
Um er að ræða endurbyggingu og viðbygg-
ingu á gamla Víkingsheimilinu.
Þeir verktakar sem áhuga hafa á að taka
þátt í lokuðu útþoði vegna ofangreinds verks
skulu skila skriflegri umsókn þar um ásamt
þeim upplýsingum sem óskað er eftir í for-
valsgögnum.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Útfylltum gögnum ásamt fylgiskjölum skal
skila á sama stað eigi síðar en miðvikudag-
inn 8. maí 1991, kl. 16.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvetji 3 Simi 25800
TIL SÖLU
Fiskbúð til sölu
á góöum staö í bænum.
Upplýsingar í síma 53075 og á
kvöldin í síma 71988.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 7 = 173518V2 =
I.O.O.F. 5 = 173527A = Lf.
I.O.O.F. 9 = 17351872 = 9.III.
□ HELGAFELL 5991517 IV/V
Lokaf.
I.O.O.F. 11 =1730502772 =LF.
□ GLITNIR 5991527 - Lf.
REGLA MUSTERISRIDDARA
A RM Hekla
1.5. VS. FR.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Vakningarsamkoma annað
kvöld, fimmtudag, kl. 20.30. Allir
hjartanlega velkomnir.
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
Félagsvistin fimmtudaginn 2.
maí. Byrjum að spila kl. 20.30
stundvíslega.
Allir velkomnir. Fjölmennið.
Meistaramót íslands
1991 áskíðum
í flokkum 30 ára og eldri verður
haldið í Bláfjöllum laugardaginn
4. maí nk. Keppt verður í svigi
og stórsvigi og hefst keppnin kl.
11.00. Keppt er í flokkum karla
og kvenna 30-34 ára, 35-39 ára
o.s.frv. Mótið er opiö öllu skiöa-
áhugafólki 30 ára og eldra. Verð-
launaafhending, kvöldverður og
dans verður í Norðurljósum um
kvöldið. Fararstjórafundur verð-
ur föstudaginn 3. maí kl. 20.30
í Rauða Ijóninu, Eiðistorgi. Þátt-
tökutilkynningar berist til Arnórs
í síma 82922. Upplýsingar um
frestun vegna veðurs verða í
símsvara Bláfjallanefndar sími
80111 á mótsdag.
Nefndin.
Skipholti 50b
Almenn samkoma verður annað
kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Fjölskyldusamvera í kvöld kl.
19.00.
éSAMBAND ÍSLENZKRA
' KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kaffisala
Hin árlega kaffisala Kristniboðs-
félags kvenna verður haldin í
dag, 1. maí, í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58 kl. 14.00-
18.00. Um kvöldið er samkoma
kl. 20.30 og kaffisala á eftir
henni. Allur ágóði rennur til
kristniboðsstarfsins í Eþíópiu og
Kenýa. Vertu velkominn.
Kristniboðsfélag kvenna.
fítmhjólp
Almenn samkoma verður í Kap-
ellunni í Hlaðgerðarkoti annað
kvöld, 2. mai, kl. 20.30. Umsjón:
Reynir Einarsson.
Samhjálp.
Kristniboðsfélag
kvenna í Reykjavík
Árleg kaffisala verður á Háaleit-
isbraut 58, 3. hæð, milli kl. 14.00
og 18.00 í dag 1. maí.
Nefndin.
I
Aðalsafnaðarfundur
Nessóknar í Reykjavík
verður haldinn fimmtudaginn 2.
maí kl. 18.00 i safnaðarheimil-
inu.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd.
Seltjarnarneskirkja
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Sönghópurinn Án skilyrða, Þor-
valdur Halldórsson stjórnar.
Prédikun og fyrirbænir.
SAMBAND ÍSŒNZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58 í kvöld kl. 20.30.
Ræðumenn: Kristbjörg Gísla-
dóttir og Páll Friðriksson. Þórður
Búason syngur. Muniö kaffisöl-
una um daginn kl. 14.00.
Allir velkomnir.
HÚTIVIST
G8ÓFINNI1 - REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI14606
Miðvikud. 1. maí
Skrautsteinaleit
Skrautsteinar oft í fjöru finnast,
á fallegum stað við Hvalfjörðinn.
Úr ferðunum er svo margs að
minnast,
og mikið fjör í hvert eitt sinn.
Glerhallar, geislasteinar, bagga-
lútar og ef heppnin er með,
jaspis. Brottför kl. 13.00 frá
BSI-bensínsölu. Stansaö við Ár-
bæjarsafn og við Kaupfélagið i
Mosfellsbæ.
Myndakvöld
verður fimmtudaginn 2. maí í
Fóstbræðraheimilinu, Lang-
holtsvegi 109.
Kynntar verða í máli og myndum
nokkrar góðar sumarleyfisferðir,
sem Útivist býður upp á í ár:
Perlur Suðurlands, Jökulsár-
gljúfur, Á skíðum yfir þveran
Vatnajökul, Árneshreppur -
Strandir og Hveravellir Kal-
manstunga (norður fyrir Lang-
jökul). Góð myndasyrpa frá þeim
svæðum, sem farið verður um í
þessum ferðum. Kaffinefndin
sér að venju um hressingu í hléi.
Sýningin hefst kl. 20.30.
Á myndakvöld Útivistar eru all-
ir velkomnir.
Sjáumst!
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANOS
ÖLDUGÖTl13 S: 11798 19533
Miðvikudagur 1. maí
A) KI. 10.30, Hengill,
gönguferð.
Gengið um Innstadal á Skeggja
hæsta hluta Hengils. Tilvaliö að
vera á gönguskíðum en ekki skil-
yrði. Verð kr. 1.100.
B) Kl. 13.00, Hellaskoðun í
Leitahrauni (gosbeltið neð-
anjarðar).
Spennandi ferð fyrir alla fjöl-
skylduna. Farið verður í mikla
hraunhella í Ölfusi, Arnarker og
Raufarhólshelli. Hella- og
ísmyndanir. Fararstjóri verður
frá Hellarannsóknafélagi Is-
lands. Munið góða skó, vasa-
Ijós og húfu. Verð kr. 1.100.
Frítt fyrir börn með foreldrum
sínum. Ath. að þessi ferð verð-
ur metin sem 2. áfangi göngu-
ferðar um gosbeltið, en margir
misstu af þeim áfanga síöastlið-
inn sunnudag. Brottför frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmeg-
in. Munið þriðja áfanga rað-
göngunnar um gosbeltið nk.
sunnudag kl. 10.30 og 13.00.
Pantið tímanlega f hvítasunnu-
ferðirnar: 1. Snæfellsnes -
Snæfellsjökull. 2. Skaftafell -
Öræfasveit. 3. Öræfajökull -
Skaftafell. 4. Þórsmörk. 5.
Fimmvörðuháls - Mýrdalsjökull.
Gangið í Ferðafélagið.
Ferðafélag íslands.