Morgunblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAI 1991
47'
Eitt atriði úr myndinni „Ástin er ekkert grín“.
Háskólabíó sýnir mynd-
ina „Ast er ekkert grín“
HÁSKÓLABlÓ hefur tekið til
sýninga myndina „Ást er ekkert
grín“. Með aðalhlutverk fara
Gene Wilder og Christine Lahti.
Leikstjóri er Leonard Nimoy.
Duffy Bergman (Wilder) er
kunnur skopmyndateiknari og
myndin hefst í samkvæmi sem hald-
ið er honum til heiðurs. Þar kynnist
hann Meg. Þau fella strax hugi
saman og ekki líður á löngu þar til
hún flytur inn. Bæði langar þau að
eignast bam en það gengur brösu-
lega. Þetta verður að þráhyggju í
huga Duffys og að lokum er ástand-
ið orðið það óþolandi að þau skilja.
Duffy kynnist annarri konu,
Daphne, dæmigerðri nútímakonu.
Kynni þeirra þróast og hún flytur
inn á Duffy og verður fljótlega
barnshafandi en missir fóstrið.
Daphne er ekki fisjað saman og
afræður að þiggja starf sem henni
bauðst í Los Angeles og flytur
þangað en Duffy situr eftir með
sárt ennið. Móðir Duffys hafði dáið
og karl faðir hans fengið sér aðra
konu og hefur ákveðið að gifta sig
og að sjálfsögðu er Duffy boðið.
En þar er óvæntur gestur.
gangur meðan húsrúm leyfir.
Per Berg hefur starfað frá 1977
sem forstöðumaður deildar við
Chalmers, sem hefur sérhæft sig
í rannsóknum á meðhöndlun og
nýtingu sorps. Auk þess hefur
hann starfað sem ráðgjafi fyrir
bæjarfélög og fyrirtæki á Norðurl-
öndum.
Fyrirlestur um með-
höndlun sorps
PER Berg, lektor við Chalmers-
tækniháskólann í Gautaborg
flytur erindi á vegum verk-
fræðideildar Háskóla íslands
fimmtudaginn 2. maí um Til-
raun með meðhöndlun sorps í
Borás, Svíþjóð. Frá heimili til
endurnýtingar. Erindið verður
Hutt á ensku í stofu 101 í Odda
kl. 16.15. Öllum er heimill að-
Veislukaffi
og hlutavelta
KVENNADEILD Skagfirðinga-
félagsins í Reykjavík verður með
hlutaveltu og veislukaffi í Drang-
ey, Síðumúla 35, miðvikudaginn
1. maí nk. kl. 14.00 til eflingar
starfsemi sinni.
Kvennadeildin, sem hefur starfað
í tæp 30 ár, hefur einkum styrkt
líknar- og menningarmál heima i
héraði. Enn sem fyrr eru líknarmál-
in efst á baugi hjá deildinni og er
það von félagskvenna, að sem flest-
ir sjái sér fært að koma í veislu-
kaffi í Drangey 1. maí nk. og
styrkja með því gott málefni.
(Frcttatilkynning)
— ♦ ♦ ♦------
■ / FÉLAGSMIÐSTÖÐINNI
Vitanum, Strandgötu 1, verður
opnuð 2. maí vinnumiðlun unglinga.
Miðlunin er ætluð skólafólki 16 ára
og eldra. Allir þeir aðilar er leita
eftir starfi eða starfskröftum eru
hvattir til að hafa samband við
miðlunina, síminn er 50299. Opnun-
artími er frá 10.00-12.00 og frá
14.00-16.00 alla virka daga.
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
KEM/
H0BBY
HÁÞRÝSTiDÆLAN
Á auðveldan hátt
þrífur þú:
Bílinn, húsið,
rúðurnar,
yemndina0.fi.
Úrval aukahluta!
w
R
iW
Hreinlega allt til hreinlætis
REKSTRARVÖRUR
Rétlarhálsi i - í 10 R vik - Simar: 31956-685554
í Landsbanka“
Ur frétt i Morgunblaðinu
fimmtudaginn 28. febrúar 1991.
Nýlega geröi Verðlagsstofnun könnun
þar sem bornar voru saman verðskrár
banka og sparisjóða frá 1. janúar
síðastliðnum. Samkvæmt könnuninni
reyndust heildarútgjöld einstaklinga
vegna bankaviðskipta vera lægstí
Landsbankanum.
Niöurstaðan kom okkur ekki á óvart.
Að þessari hagkvæmu þjónustu geta
viðskiptavinir okkar gengið á
afgreiðslustöðum Landsbankans og
Samvinnubankans um land allt.
Bt
í m i
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna