Morgunblaðið - 01.05.1991, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991
49
Afmæliskveðja:
Guðmundur Sveins
son skólameistari
Guðmundur Sveinsson, skóla-
meistari Fjölbrautaskólans í Breið-
holti, varð sjötugur 28. apríl sl.
Hann lauk guðfræðiprófi frá
Háskóla íslands 1945, stundaði
framhaldsnám í guðfræði við Kaup-
mannahafnarháskóla og háskólann
í Lundi og lauk þar fil.kand.-prófi
í semískum málum.
Guðmundur hefur farið margar
náms- og kynnisferðir til Norður-
ianda, Bretlands, Þýskalands,
Bandaríkjanna og Indlands og
kynnt sér guðfræði, sagnfræði og
skólamál, m.a. 1963 í boði Banda-
ríkjastjórnar, 1974 í boði Independ-
ence Foundation og 1987 fór hann
til Indlands á vegum Fulbright-
stofnunar. Hann hefur í öllum þess-
um ferðum aukið þekkingu sína og
víðsýni.
Guðmundur Sveinsson var sókn-
arprestur í Hestþingaprestakalli í
Borgarfirði 1945-1956, gegndi
kennslustörfum í guðfræðideild
Háskóla íslands 1952-1954, settur
dósent þar 1954. Skólastjóri Sam-
vinnuskólans að Bifröst 1955-1974
og skólameistari Fjölbrautaskólans
í Breiðholti frá 1973, en hefur ver-
ið í leyfi frá 1987. Að undanförnu
hefur hann fengist við að rita sögu
og aðdraganda að stofnun Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti.
Guðmundur hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum og starfað í mörg-
um nefndum, m.a. formaður nefnd-
ar er samdi heildarfrumvarp um
fullorðinsfræðslu 1971-1974. Skip-
aður í nefnd er gerði tillögur um
skipan ljölbrautaskóla 1973 og í
starfshópi á vegum menntamála-
ráðuneytis er samræmdi nám í
framhaldsskólum með áfangakerfi.
Guðmundur Sveinsson hefur ver-
ið mjög afkastasamur við ritstörf.
Hann var ritstjóri Samvinnunnar
1959-1963 og hefur skrifað fjölda
greina um samvinnuhreyfinguna og
rit um guðfræði. Einnig hefur hann
skrifað mörg rit um menningar-
sagnfræði sem hafa verið kennd
bæði við Samvinnuskólann og Fjöl-
brautaskólann i Breiðholti. Aðal-
starf Guðmundar hefur verið á sviði
skólamála, þar hefur hann löngum
verið brautiyðjandi og gengið
ótroðnar slóðir.
Eftir tæplega tuttugu ára far-
sælt mótunar- og stjórnunarstarf
við Samvinnuskólann að Bifröst
sótti hann enn á brattann og tók
að sér að skipuleggja og stjórna
fyrsta fjölbrautaskóla landsins,
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Þar nýttist vel framsýni, áræði og
eldmóður Guðmundar, en hann
hafði strax frá upphafi óbifandi trú
á nýja skólakerfinu sem átti eftir
að valda sannkallaðri byltingu í
menntamálum okkar íslendinga.
Þrátt fyrir margs konar fordóma
og erfiðleika tókst Guðmundi að
leggja svo traustan grunn að Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti að í
dag er hann ijölmennasti og fjöl-
breyttasti framhaldsskóli landsins.
Areiðanlega á eiginkona Guð-
mundar, Guðlaug Einarsdóttir, ekki
lítinn þátt í velgengni hans en hún
hefur alla tíð stutt hann dyggilega
og gegndi mikilvægum störfum
bæði í Samvinnuskólanum og Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti.
Samstarf okkar Guðmundar hef-
ur alla tíð gengið mjög vel, og þeg-
ar ég lít til baka finnst mér ég
hafa verið einstaklega lánsöm að
hafa féngið tækifæri til að starfa
með slíkum skólamanni sem Guð-
mundur er. Þau ár eru mér ómetan-
leg reynsla og hafa orðið mér hvatn-
ing og aflvaki í oft erfiðu starfi,
sem fylgir því að stjórna ijölmenn-
um framhaldsskóla.
Við hér í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti óskum Guðmundi til
hamingju með sjötíu ára afmælið
um leið og við þökkum honum
brautryðjandastarfið sem við öll
njótum góðs af.
Megi hann lengi lifa.
Kristín Arnalds,
skólameistari.
Bíldudalur:
Vatns-
veitufram-
kvæmdir á
Hnjúksdal
Bíldudal.
í SUMAR verður ráðist í
vatnsveituframkvæmdir á
Hnjúksdal, til að fullnægja
vatnsþörf kauptúnsins, en
vatnsveitumál Bilddælinga
hafa lengi verið í ólestri.
Framkvæmdafé er um 7
milljónir króna.
Byijað verður á að leggja
1,2 km langan veg frá afleggj-
ara upp á Hnjúksdal í júní. Síð-
an verður unnið við að koma
jöfnunarþró fyrir, ásamt lögn-
um til virkjananna. Stefnt er
að verklokum í haust.
Undanfarin ár hafa farið
fram rannsóknir á Hnjúksdal
varðandi vatnsmagn og kosti
þess að virkja þar lindarvatn.
Niðurstöður rannsóknanna
urðu þær að vatnsveitufram-
kvæmdir á Hnjúksdal væru
hagkvæmasti kosturinn.
R. Schmidt
Akranes:
Fokhelt hús
eyðileggst í eldi
LIÐLEGA fokhelt einbýlishús á
Akranesi eyðilagðist af eldi um
kl. 14 á mánudag.
Að sögn lögreglu var enginn við
vinnu í húsinu þegar eldsins var
vart og það stóð í ljósum logum.
Grunur leikur á að um íkveikju
hafi verið að ræða þegar börn voru
að fikta með eld.
' ,|| l|||| I Li
ípooorl :
:=:5
hvíla þreytta fætur
XÍJI7
Wicanders
SsL Kork-O'Plast
Korkflísar er barnaleikur
að þrífa
gg ámla 29. Múlatorgi, síml 31641
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
„Charme"
40 ára reynsla
25 ár á íslandi
þjónusta
PFAFF
Borgartúni 20, sími: 626788
Græna línan
Gæði og góð
j -----------
Wamemmmammam
maammasi
mmmmm