Morgunblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 59
VANDRÆÐI
Mikið
mótlæti
Borg-
hjónanna
Það gengur allt á afturfótunum
hjá Birni Borg og frú hans
ítölsku poppsöngkonunni Lored-
önu Berte. Það var ekki nóg með
að viðskiptaveldi Borgs hryndi til
grunna og skyldi eftir sig fádæma
skuldahala, heldur var Borg ger-
sigraður í fyrstu umferð nýafstað-
ins tennismóts er hann gerði til-
raun til þess að vinna sér aftur
sess sem tennisleikari í fremstu
röð. Vart hafði hann gengið
beygður af velli er þau tíðindi
bárust að heiman, að frú hans
hafði hellt í sig heilu glasi af ró-
andi pillum og verið drifin í gjör-
gæslu. Hún er þó á batavegi.
Þó Borg og Berte hafi ekki verið
ýkja lengi gift telja sérfræðingar
að brestir séu orðnir margir og
stórir í sambúðinni og uni Berte
illa auraleysinu sem er þó að
margra mati ekki alvarlegt, enda
lifa þau tiltölulega hátt sérstak-
lega í ljósi þess að Borg er gjald-
þrota. A sama tíma og hvert áfall-
ið af öðru hefur dunið yfir Borg,
hefur frami Bert sem poppari í
Evrópu farið dvínandi. Hun hefur
leitast við að hressa upp á vinsæld-
ir sínar, en sól hennar hefur sigið
æ nær haffletinum. Nú síðast frei-
staði hún þess að sigra i forvali
fyrir þátttöku á komandi Eurovisi-
on söngvakeppni, en varð ekki
kápan úr því klæðinu. Er Borg var
ekki til staðar til að styðja hana
í þeim vonbrigðum virðist hún
hafa látið hugfallast og misst
lífsneistann. Talsmaður Fatebe-
nefratelli-sjúkrahússins í Napolí
sagði á fréttamannafundi, að
Berte væri á batavegi, en um al-
vöru tilraun til sjálfsvígs hefði
verið að ræða. Læknar hefðu
pumpað um 100 pillum upp úr
henni og ef einhver töf hefði orðið
á því að koma henni undir læknis-
hendur hefði hún látist.
Laura Antonelli.
Sophiu Loren. Var hún talin
eigi ósvipuð „típa“ og Loren
og auk þess margfalt frakkari
að kasta af sér klæðum og
jafn vel að láta mynda sig í
fölbláum ástarsenum. Hún var
því með meiri kyntáknum ítala
á hvíta tjaldinu, en á miðjum
áttunda áratugnum sást lítið
til hennar. Síðustu ár voru ítal-
ir glaðir að sjá hana aftur í
hinum og þessum hlutverkum
í sjónvarpi, en augljóst var þó
að frægðarsól hennar var
hnigin til viðar og spurning
hvernig henni gengur að koma
fótunum undir sig á nýjan leik.
Hér eru Borg-hjónin skönnnu fyrir síðustu örlagaríku atburði.
COSPER
Öllum þeim, skyldum og vandalausum, sem
með ýmsu móti heiðruÖu okkur og glöddu á
60 ára hjúskaparafmœli okkar á sumardaginn
fyrsta, 25. apríl, sendum við hjartanlegar þakk-
ir og hugheilar árnaðaróskir.
Guð blessi ykkur öll.
Gróa Ásmundsdóttir,
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Gamlir munir og myndir
Knattspyrnulélagið
VALIIR 80 ára.
Vitað er að nokkrir munir og myndir er tengjast starfi
VALS eru hjá VALSMÖNNUM eða fjölskyldum þeirra sem
best væru geymdar í Valsheimilinu á afmælisárinu eða til
frambúðar.
Vitir þú um muni eða myndir má koma þeim til húsvarðar
í .Valsheimilinu s. 11134 eða til Jafets S. Ólafssonar
s. 82831/vs. 691800.
1. MAÍ KAFFI Í MÍR
Kaffisala verður að venju 1. maí í félagsheimili
MÍR, Vatnsstíg 10. Húsið opnað kl. 14.00. Glæsi-
legt hlaðborð. Hlutavelta. Kvikmyndasýningar.
Lítió inn.
Mfft.
LEIDRETTING
Við biðjumst velvirðingar á því að
vegna mistaka er uppgefið rangt
verð á Mondial orkujöfnunararm-
böndunum og segularmböndun-
um frá okkur í ARES póstlistanum.
Verð á Mondial orkujöfnunararm-
bandinu er sem hér segir:
Silfur kr. 2.990,-
Silfurm/gullkúlum kr. 2.990,-
Gullhúðað kr. 3.990,-
Verð á segularmböndunum er
sem hér segir:
Með 6 segulpunktum kr. 2.390,-
Með 3 segulpunktum kr. 2.590,-
Æk VER
beuR/MEip
sgi 66 - 101 Reykjavík^^^^ símar (9
VERSLUN í ANDA
NÝRRAR
ALDAR
Laugavegi 6b - 101 Reykjavík símar (91) 623336 -
626265
Póstkröfuþjónusta — greiðslukortaþjónusta
Pantanasímar: (91) 623336 og 626265