Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991 ÍÞfémR " FÓLK ■ JÓN Stefánsson, langhlaupari úr UMFA, bætti nýlega árangur sinn í 10.000 m hlaupi, er hann hljóp á 32:24,09 mín. í Lincoln í Bandaríkjunum. Jón er í mikilli framför og hljóp m.a. 3000 m á 8:54,5 mín. innanhúss í mars, en hann stundar nám í Minneapolis. ■ KRISTINN Guðmundsson hefur gengið til liðs við Þrótt Nes. Kristinn er ekki ókunnugur í her- M- búðum félagsins. Hann var þjálfari þess 1988 og 1989. ■ MANCHESTER United og Barcelona mætast í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa í Rotter- dam í maí. Búist er við fjölda stuðn- ingsmanna beggja liða. Stærstu ferðaskrifstofur Hollands hafa hinsvegar ákeðið að hleypa ekki stuðningsmönnum Man. Utd. með skipum til landsins af ótta við drykkjuskap á leiðinni. ■ UNITED hefur farið fram á að fá rúmlega 20.000 miða og Barcelona segir að a.m.k. jafn margir komi frá Spáni á leikinn. Völlurinn í Rotterdam tekur um 50.000 áhorfendur en ekki er búist við að liðin tvö fái nema 14.000 miða, hvort lið. ■ ANNAÐ vandamál hjá United er að liðið þarf að leika fjóra leiki í deildinni á sjö dögum. Fyrst gegn Mahcester City 4. maí, gegn Arse- nal 6., Tottenham 8. og Crystal Palace 11. maí. Leikurinn gegn Barcelona er svo þann 15 og verð- ur 60. leikur vetrarins hjá liðinu. Alex Ferguson hefur hótað að nota varaliðið í einhveijum deildar- leikjanna en þá má búast við hárri *" sekt. Það er þó nokkuð öruggt að hann notar sterkasta lið sitt í tveim- ur fyrstu leikjunum, gegn Man- chester City og Arsenal. KNATTSPYRNA Guðmundur skoraði sjö Guðmundur Steinsson var held- ur betur í essinu sínu í gær- kvöldi þegar Víkingur vann Ár- mann, 10:0, í Reykjavíkurmótinu. Hann skoraði sjö mörk. Atli Einars- son skoraði tvö mörk og Atli Helga- son eitt. FELAGSLIF Knattspyrnufélagið Fram var stofnað 1. maí 1908 og heldur upp á 83 ára afmæli sitt í dag. Aðalstjóm Fram hefur opið hús í Framheimilinu í dag og munu Framkonur selja kaffi og vöfflur á vægu verði milli kl. 14 og 16. Ráðstefna " um íþróttir í í fjölmiðlum Mikið er framundan hjá íþrótta- sambandi íslands næstu daga. Á föstudaginn gengst sambandið fyrir ráðstefnu um þátt íþrótta í fjölmiðlum, þar sem m.a. verður kynnt víðtæk könnum sem Félagsvísindastofnum gerði fyrir ÍSÍ. Á laugardag verður síðan árlegur sambandsstjómarfundur ÍSÍ, þar sem m.a. verður kynnt ýtarleg skýrsla um S stefnumótun í afreksíþróttum og út- hlutað verður styrkjum til sérsam- banda. Næstkomandi mánudag hefst hér á landi árlegur fundur framkvæmda- stjóra íþróttasambanda allra Norður- landanna og mánudeginum viku síðar, 13. maí, koma til landsins fulltrúar íþróttayfírvalda í Eistlandi, Lettlandi j, og Litháen, til að undirrita samstarfs- samning á sviði íþrótta milli landanna þriggja og íslands. KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Undankeppni Evrópumótsins: Raunhæfir möguleikar á sætiíloka- keppninni Góð byrjun hjá Lyn Lyn, lið Teits og Ólafs Þórðar- sonar, vann sanngjarnan sigur á Molde, 2:0, í fyrstu umferð norsku 1. deildarinnar í knattspymu á sunnudag. Lyn var betra liðið í leiknum og sigurinn gat hæglega orðið enn stærri. Bæði liðin fóru rólega af stað og fátt mark- vert gerðist fyrstu 30 mínúturnar, en er líða tók á fyrri hálfleikinn náði Lyn yfirhöndinni án þess þó að ná að skora. Seinni hálfleikur var ekki nema þriggja mínútna gamall er besti maður vallarins, Tom Sundby, skor- Erlingur Jóhannsson skrifarfrá Noregi aði fyrir Lyn. Markið kom eftir mjög skemmtilega sókn. Sex mínút- um fyrir leikslok náði Jan Amunds- en að innsigla sigur Lyn með góðu marki eftir að hann snéri af sér hálft Molde-liðið. Teitur Þórðarson, þjálfari Lyn, var ánægður með leik sinna manna og sagði að þeir hafí náð að sýna góða knattspyrnu á köflum. „Það var ákaflega mikilvægt fyrir liðið að vinna fyrsta leikinn í deildinni þvl margir leikmenn liðsins hafa ekki leikið áður í 1. deild. Nú vitum við að þetta er hægt og þess vegna verður framhaldið auðveldara og að sama skapi mjög spennandi," Ólafur í lið vikunnar Ólafur Þórðarson lék vel fyrstu 60 mínútumar á miðjunni hjá Lyn en eftir það lét hann lítið að sér kveða. Ólafur sagði í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn að hann hafi verið orðinn mjög þreyttur í lok leiksins en ástæða þess var sú að hann lék erfiðan landsleik gegn B-liði Englands daginn áður. Engu að síður var Ólafur í liði vikunnar hjá flestum dagblöðunum í Noregi. Næsti leikur Lyn er 5. maí gegn Fyllingen í Bergen. ÍÞRÚmR FOLK ■ ÍSLENDINGAR hafa einu sinni komist uppúr riðli sínum í undankeppni Evrópumótsins. Það var árið 1986 er Pálmar Sigurðs- son skoraði sigurkörfu gegn Norð- mönnum í Laugardalshöllini. Þá fóru Islendingar að vísu i B- keppni en ekki beint í riðlakeppnina eins og nú. ■ RIÐLAKEPPNIN hefur mikið að segja fyrir íjárhagslega Körfu- knattleikssambandið. Margar af stærri þjóðum Evrópu eru tilbúnar til að greiða dágóðar summur fyrir beinar útsendingar og ef Islending- ar kæmust áfram væri_ best að lenda í riðli með Spáni, Italíu eða Grikklandi þarsem gífurlegur áhugi er á körfuknattleik. ■ ISLENDINGAR standa vel að vígi þegar litið er yfir fyrri lands- leiki við þjóðirnar í undankeppn- inni. Af 25 leikjum við Norðmenn hafa 14 unnist, sex af 11 gegn Portúgal og 19 af 21 einum Dan- mörku. Útkoman er þó ekki góð gegn Finnum en þar hafa íslend- ingar aðeins unnið einn af 18 leikj- um þjóðanna. ■ TUTTUGU þjóðir taka þátt í lokakeppninni sem fer fram í fimm fjögurra liða riðlum. Sextán þjóðir eru öruggur um sæti: Belgía, Búlg- aría, England, Frakkland, Grikk- land, Holland, ísrael, Ítalía, Júgóslavía, Pólland, Rúmenia, Sovétríkin, Spánn, Svíþjóð og Tékkóslóvakia. Tvö lið komast áfram úr riðli Islendinga og önnur tvö úr riðli í Sviss þar sem leika auk heimamanna Austurríki, Kýp- ur, Luxemburg, Skotland, Sviss, Tyrkland og Ungveijaland. ■ VALUR Ingimundarson á að baki flesta landsleiki allra í undan- keppninni, 107. Næstur kemur Finninn Mikael Salmi með 102 leiki. Portúgal er þó með reynd- asta liðið, 35 leiki að meðaltali en íslendingar og Finnar eru með 33 leiki. ■ KRISTINN Albertsson dæmir fyrir hönd Islands á mótinu en hver þjóð sendir einn dómara. Auk þeirra verða tveir dómarar frá Svíþjóð og Englandi. UNDANKEPPNI Evrópumóts- ins í körf uknattleik hefst í dag kl. 16 í Laugardalshöllinni er íslendingar mæta Dönum. Fimm lið berjast um tvö sæti í riðlakeppni Evrópumótsins og segja má að möguleikar ís- lands hafi sjaldan eða aldrei verið betri. Islendingar eru á heimavelli og með mjög sterkt lið; auk þess sem sætin eru nú tvö en ekki eitt eins og ver- ið hefur. Torfi Magnússon hefur valið tólf manna hóp fyrir mótið og geta líklega flestir sætt sig við hann. Valið var þó alls ekki auðvelt og margir telja t.a.m. að Kristinn Ein- arsson hefði mátt fá tækifæri, en hann lék mjög vel í úrslitakeppn- inni. En með aðeins tólf leikmenn verða einhveijir að hvíla. Pétur Guðmundsson er stærsti maður mótsins og þrátt fyrir að hann sé ekki í góðri leikæfingu kemur mikið til með að velta á honum. Torfí hefur sagt að með hann á vellinu leiki liðið allt aðra vörn og það gefí liðinu mikið sjálf- straust og öryggi að hafa hann undir körfunni. Magnús Matthías- son er einnig sterkur miðheiji og langt síðan íslenskt lið hefur náð að stilla upp svo stóru liði. Þegar litið er á liðið er vart veika hlekki að sjá og segja má með nokk- urri vissu að hér sé á ferð besta lið landsins. En það eitt er ekki nóg og liðið þarf allt að spila mjög vel til að ná þeim þremur sigrum sem þarf í 2. sæti keppninnar. Pétur Guðmundsson. Liðið fékk sjö æfíngaleiki fyrir mótið, gegn Skotum og Austurríkis- mönnum, og vann þá alla. Þeir eru þó alls ekki marktækir enda bæði lið afar slök og örugglega lélegri en andstæðingar íslands í undan- keppninni. Fyrsti leikurinn er gegn Dönum í dag. Með eðlilegum leik ættu ís- lendingar að sigra. Það sýndi sig í þremur leikjum í ársbyijun að Is- lendingar eru með sterkara lið. Portúgalar eru næstir og það verður erfíður leikur. Portúgalar hafa alltaf verið til vandræða; síðast á Evrópumótinu fyrir tveimur árum er þeir sigruðu með 40 stiga mun. Islenska liðið situr hjá á föstu- daginn en á laugardaginn mætir það Norðmönnum. Norðmenn hafa verið með sterkt lið en senda ungt lið á mótið. í það vantar marga af bestu leikmönnum liðsins og aðeins örfáir úr liðinu sem sigraði íslend- inga naumlega á Norðurlandamót- inu í fyrra. Finnar verða síðustu andstæð- ingar íslendinga og fyrir þann leik þyrftu íslendingar að vera búnir að tryggja sér annað sætið. Finnar eru án efa með sterkasta liðið og flest- ir telja þá sigurstranglegasta. Ekkert öruggt Þrátt fyrir að hægt sé að flokka liðin á þennan hátt er ekki hægt að segja að nokkur leikur sé örugg- lega unninn eða tapaður. Það sást best hjá íslenska unglingalandslið- inu en vann Svía og Finna, sem margir áttu von á að yrðu í tveimur efstu sætunum, en töpuðu fýrir Dönum. Til að ná 2. sæti í mótinu þarf íslenska liðið að sigra í þremur leikj- um af fjórum. Sú staða gæti að vísu komið upp að það nægði ekki en það er þó afar ólíklegt. íslenski hópurinn er skipaður eft- irtöldum leikmönnum (Aldur, hæð og landsleikjafjöldi): Jón Kr. Gíslason, ÍBK.....28 185 91 MagnúsMatthíasson, Val....23 204 20 FalurHarðarson, ÍBK.......23 184 19 Teitur Örlygsson, UMFN....23 189 25 Guðmundur Bragason, UMFG .23 200 41 Axel Nikulásson, KR.......28 192 40 Páll Kolbeinsson, KR......27 184 28 Jón Amar Ingvarsson, Haukum 18 184 11 Valurlngimundarson, UMFT...29 193 107 Guðni Guðnason, KR........25 188 55 Guðjón Skúlason, ÍBK......23 182 28 PéturGuðmundsson, UMFT....32 218 39 Jón Kr. Gíslason, fyrirliði lands- liðsins. Dagskráin Miðvikudagur 1. maí: ísland—Danmörk.....16.00 Portúgal—Finnland..18.00 Fimmtudagur 2. maí: Danmörk—Noregur....18.00 ísland—Portúgal....20.00 Föstudagur 3. maí: Noregur—Finnland...18.00 Danmörk—Portúgal...20.00 Laugardagur 4. maí: ísland—Noregur.....15.00 Finnland—Danmörk...17.00 Sunnudagur 5. maí: N oregur—Portúgal..13.00 ísland—Finnland....15.00 NOREGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.