Morgunblaðið - 04.05.1991, Page 2

Morgunblaðið - 04.05.1991, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAI 1991 Evrópska efnahagssvæðið: Ákvörðun um framhald við- ræðna á sunnudagskvöld Utanríkisráðherra segir Norðmenn og Svía styðja aðgerðir íslendinga RIKISSTJÓRNIN mun koma saman til sérstaks fundar kl. 19 á sunnu- dagskvöld til að veita utanríkisráðherra endurnýjað umboð til þátttöku í samningaviðræðum EFTA og EB um Evrópska efnahagssvæðið. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, segir að þar verði tekin ákvörðun um, hvort fulltrúar íslands munu taka þátt í lokuðum fundi yfirsamninganefnda bandalaganna tveggja á þriðjudag. Engin formleg viðbrögð framkvæmdastjórnar EB hafa borist íslenskum stjórnvöldum vegna þeirra mótmælaaðgerða íslendinga að sitja ekki sameiginlega fundi samningancfnda bandalaganna. Utanríkisráðhcrra sagði að þessi aðgerð hefði hlotið stuðningsyfirlýsingar frá Svíum og Norðmönnum. „Norðmenn taka undir með okkur, að ekki sé lengur viðunandi að EB hreyfi sig ekki gagnvart okkar kröf- um,“ sagði Jón Baldvin. „Að minni ósk er boðaður ríkisstjómarfundur á sunnudagskvöld og þar mun ég leggja fram tillögur um endumýjað samningsumboð, meðal annars vegna þess að samningsumboð fyrri ríkisstjómar var ekki afdráttarlaust og vísa ég þar til fyrirvara Alþýðu- bandalagsins," sagði hann. Jón sagði að ákvörðunin um að sitja ekki samningafundi EB og EFTA hefði verið tekin af sér til að taka af öll tvímæli, gagnvart sam- starfsaðilum og mótaðilum, að veiði- heimildir í íslenskri fiskeiðilögsögu í stað aðgangs að markaði kæmu ekki til greina. „Þetta er líka hugsað til þess að styrkja stöðu framkvæmda- stjómar EB gagnvart aðildarríkjum þess, sem hafa haldið uppi óraunsæj- um kröfum og komið í veg fyrir að framkvæmdastjómin gæti náð sam- stöðu innan bandalagsins um samn- ingstilboð. Þessu er líka ætlað að árétta, gagnvart samstarfsaðilunum í EFTA að íslendingar ætla sér ekki að hverfa frá samningaborðinu með þetta mál. Endumýjaðar stuðnings- yfirlýsingar af hálfu Norðurlandanna eru þess vegna vel þegnar og eyða öllum efasemdum um að unnt sé að í haldi vegna fíkniefna- misferlis MAÐUR um þrítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á mánudag vegna gruns um misferli með hass og amfetamín. Maðurinn var handtekinn í bíl að- faranótt miðvikudags ásamt þremur öðmm mönnum og fannst þá lítils- háttar af fíkniefnum í fómm hans. Við húsleit í framhaldi af handtök- unni fannst amfetamín og hass á heimili mannsins. leysa málið með því að víkja því út af borðinu,“ sagði hann. Aðspurður kvaðst ráðherra ekki eiga von á að formlegt tilboð bærist frá framkvæmdastjórn EB fyrir sam- eiginlegan ráðherrafund bandalag- anna í Bmssel 13. maí. „Ég geri mér hins vegar vonir um að önnur minni háttar ágreiningsmál verði komin á leiðarenda vegna þess að .þetta þarf allt að vera frá svo samn- ingsdrögin liggi á borðinu áður en pólitísk lausn á erfiðasta samnings- knippinu getur legið fyrir. Þetta samningsknippi á eðli málsins sam- kvæmt að koma seinast í viðræðun- um vegna þess að niðurstöður í þess- um málum skera úr um hvaða jafn- vægi verður í samningnum varðandi ávinning og óhagræði einstakra að- ildarríkja,“ sagði utanríkisráðherra. Krían komin á Tjörnina Fyrstu kríurnar í vor sáust í gærmorgun í hólmanum í Syðri-Tjörn- inni. Vegfarandi lét Morgunblaðið vita. Krían kemur venjulega á Reykjavíkurtjöm í byijun maí og kemur því að þessu sinni á svipuðum tíma og venjulega. Myndin var tekin í gær af einni af fyrstu kríunum að setjast eftir langa flugferð. Hagvirki bauð best í Fljótsdalsvirkjun: Lægstu tilboð 1.260 milljónir kr. undir kostnaðaráætlun HAGVIRKI átti lægsta boðið í þijá verkþætti Fyótsdalsvirkj- unar þegar tilboð voru opnuð í gær. Hagvirki býður í verkið ásamt NCC International i Svíþjóð og Statkraft í Noregi. Tilboð þeirra voru um 1.260 milljónum lægri en áætlun Landsvirkjunar gerði ráð fyrir. í bréfi frá fyrirtækjunum er tekið fram að tilboðin standi óbreytt ef þau fái alla verkþætt- ina en hækki ef þau fái aðeins hluta verksins. Tilboðin gilda í sex mánuði en ekki verður ráð- ist í framkvæmdir fyrr en samn- ingar um byggingu nýs álvers liggja fyrir. Tilboð bárust frá sjö aðilum í hvert verkanna. Hagvirki/Hag- tala, NCC International og Stat- kraft áttu lægstu boð í öll verkin. Stærsti þátturinn er gerð að- rennslisganga, sem verða 31 kíló- metri að lengd og þarf að bora stærstan hluta þeirra, en rúmir 3 kílómetrar verða sprengdir með hefðbundnum hætti. Hagvirki bauð rúmar 4.200 milljónir í það verk og var það 79,8% af kostnað- aráætlun. Hojgaard og Schultz frá Danmörku áttu annað lægsta boð- ið, tæpar 4.700 milljónir, eða 88,5% af áætlun. Tilboð Hagvirkis er um 460 milljónum lægra en áætlunin gerði ráð fyrir. Fjögur fyrirtæki buðu lægra en kostnað- aráætlunin gerði ráð fyrir. í gerð stíflu við Eyjabakka og botnrásar bauð Hagvirki einnig best, 1.877 milljónir, eða 79,4% af kostnaðaráætlun. Tilboðið er um 487 milljónum lægra en áætl- unin gerði ráð fyrir. Áætlunin er um 313 milljónum hærri en tilboð Hagvirkis. Istak, í samvinnu við erlend fyrirtæki, átti næstlægsta boð, 2.412 milljónir, eða 2,0% hærra en áætlunin hljóðaði uppá.' Hagvirki bauð einnig lægst í gerð stöðvarhúss og frárennslis- ganga. Áætlunin hljóðaði upp á 1.212 milljónir en Hagvirki bauð rúmar 899 milljónir, eða 74,2% kostnaðaráætlunar. Hojgaard átti næstlægsta tilboðið, 1.056 milljón- ir, eða 87,1% kostnaðar. Þetta voru einu tilboðin sem vora undir kostnaðaráætlun. í bréfi frá NCC og Hagvirki er þess getið að tilboðin séu gild svo fremi þeir fái alla verkþættina. Ef það verður ekki munu tilboðin hækka nokkuð. Tilboð þeirra í verkin þijú eru um 1.260 milljón- um lægri en áætlun Landsvirkjun- ar gerði ráð fyrir. Bandaríska sendiráðið: * Islendingi neitað um áritun fyrir að sinna ekki herkvaðningu í stríðinu HALLDÓRI Þorsteinssyni, bókaverði og eiganda Málaskóla Halldórs, hefur verið neitað um vegabréfsáritun til Banda- rikjanna fyrir að hafa neitað að gegna herþjónustu í Banda- ríkjunum, þegar hann var þar búsettur fyrir hálfri öld. Hall- dór, sem verður sjötugur 18. maí, hugðist halda upp á afmælið ásamt eiginkonu sinni í Bandaríkjunum og höfðu þau ráðgert að halda vestur á mánudaginn. Halldór sagði í samtali við Morgunblaðið, að hann hefði ver- ið við nám í Bandaríkjunum í síðari heimsstyrjöldinni og búið vestra um fimm ára skeið. Var hann þá kvaddur í herinn en ósk- aði eftir að verða leystur undan herkvaðningu. Þurfti hann að undirrita yfirlýsingu þar sem hann afsalaði sér rétti til að sækja um bandarískan ríkisborg- ararétt. „Ég hef ekki farið til Banda- ríkjanna síðan þetta var en í til- efni sjötugsafmælisins ákváðum við hjónin að ferðast til Banda- ríkjanna, meðal annars til að heimsækja vin minn sem þar býr,“ sagði Halldór. „Við sóttum um vegabréfsárit- un í bandaríska sendiráðinu og fékk eiginkonan hana athuga- semdalaust en mér var hins veg- ar neitað um áritun. Vora þær skýringar gefnar, að ég fengi ekki áritun fyrir að hafa neitað að gegna herþjónustu í Banda- ríkjunum. Slíkt fymist aldrei þar í landi. Ég var svo kallaður á fund ræðismanns sendiráðsins, sem sagði mér að ég gæti fengið und- anþágu ef ég undirritaði sérstaka umsókn en það tæki mánuð að fá hana afgreidda. Vinkona okk- ar hjóna átti fund með Jóni Bald- vini Hannibalssyni, utanríkisráð- herra, og var honum sagt frá þessu máli. Það varð til þess að sendiráðið hringdi og bauð mér að leggja inn umsókn um undan- þágu sem yrði afgreidd á einni viku en jafnframt yrði mér gert að mæta í yfirheyrslu áður en hún fengist afgreidd. Það kemur hins vegar ekki til greina. Ég læt ekki bjóða mér að fara í yfir- heyrslu fyrir að hafa ekki gegnt herþjónustu í stríði þjóðar sem mér kom ekki við. Þetta er nú landið sem kennir sig mest við lýðræði,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið. Rúmlega 7,7 milljón- ir söfnuðust til kaupa á heilasírita RÚMLEGA 7,7 milljónir söfnuð- ust á Rás 2 í gær til kaupa á heilasírita, sem nota á til rann- sókna á flogaveiki. Að söfnun- inni stóðu Landssamtök áhuga- fólks um flogaveiki (LAUF), Rás 2 og Kiwanisklúbburinn Viðey. Heilasiritinn verður settur upp á taugalækningadeild Landspít- alans. Að sögn Guðlaugar Maríu Bjamadóttur, sem tók þátt í söfn- uninni fyrir hönd Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki, gekk söfnunin framar vonum. Um 3.000 manns hefðu hringt inn og lagt fram fé og hefðu sumar upphæð- irnar numið tugum og jafnvel hundruðum þusunda króna. Hún sagði að gert væri ráð fyr- ir að heilasíritinn kostaði milli 6 og 6,5 milljónir króna en einnig yrði töluverður kostnaður samfara .flutningi. hanstjl Jand_sins. og. uppr. setningu á Landspítalanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.