Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 4
4
MORGÍJNBLÁÐIÐ LAÚGARDAÓUR 4. MAÍ 1991
Umferðarslysið 1 Devon í Englandi:
Fjórir á góðum batavegi,
líðan eins eftir atvikum
35 slys urðu á þessum vegarkafla á síð-
asta ári, að sögn blaðamanns í Exeter
FJÓRIR íslendinganna, sem enn liggja á Royal Devon and Exeter
sjúkrahúsinu í Exeter í Englandi eftir umferðarslys sem kostaði þrjá
menn lífið aðfaranótt fimmtudags, eru á góðum batavegi. Líðan eins
þeirra, Róberts Arnar Jónssonar, er eftir atvikum, að sögn starfsfólks
sjúkrahússins. Fréttastjóri dagblaðsins Echo and Express í Exeter, en
í frétt blaðsins á fimmtudag var vegarkaflinn sagður alræmdur slysa-
kafli, sagði í samtali við Morgunbiaðið í gær að 35 umferðarslys hefðu
orðið á þessum kafla á siðastliðnu ári.
Talsmaður lögreglunnar í Exeter
segir ekki rétt að vegarkaflinn þar
sem slysið varð sé sérstaklega hætt-
ulegur. „Slæmir vegir valda ekki
slysum, heldur aðgæsluleysi öku-
manna,“ sagði hann. Hann vísaði á
héraðsskrifstofu samgönguráðu-
neytisins í Bristol um u'pplýsingar
um slysafjölda á veginum en ekki
náðist samband við hlutaðeigandi
mann þar í gær.
Fréttastjóri Echo and Express
sagði það á almanna vitorði í Devon
að þessi vegur væri slysagildra og
nefndi að þingmaður Norður-
Devon, íhaldsmaðurinn Antony
Speller, hefði margsinnis krafíst
úrbóta, bæði þannig að gerðar yrðu
tvær aðskildar akreinar í hvora átt
og einnig hefði hann krafíst bættr-
ar löggæslu í kjördæminu, ekki síst
yfír ferðamannatímann.
Fyrirspurn í neðri málstofunni
Nefndur þingmaður, Antony
Speller, beindi fyrirspurn til John
Majors forsætisráðherra í neðri
málstofu breska þingsins á fímmtu-
dag í framahaldi af fréttum af slys-
inu. Eftirfarandi fór þingmanninum
og forsætisráðherranum á milli:
Speller: Hefur háttvirtur forsæt-
isráðherra haft spumir af slysinu
skelfílega á tengiveginum í Norður-
Devon um þijúleytið í morgun þeg-
ar sendibíll, sem kom frá Suður-
Molton, lenti í árekstri við litla rútu
með nokkra íslenska ferðamenn,
sem varð til þess að þrír (svo þeirra
fórust og sex slösuðust alvarlega?
Er háttvirtur ráðherra samþykkur
því að nú þegar ferðamannatíðin
er hafín sé brýnt að lögreglan hafi
bolmagn til að tryggja öryggi í
umferðinni, en besta leiðin til þess
VEÐURHORFUR í DAG, 4. MAÍ
YFIRLIT: Vestur af Bretlandseyjum er 1042 mb hæð og önnur
heldur minni yfir Grænlandi en hægfara lægðardrag yfir landinu.
Um 800 km suð-suðaustur af Hvarfi er 108 mb lægð á hreyfingu
norður.
SPÁ: Fremur hæg suövestlæg átt um sunnanvert landiö en hæg
breytileg átt noröanlands. Suðvestanlands verður þokuloft eða
súld framan af degi en liklega rigning síðdegis. Dálítið rignir einnig
á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi en austantil á landinu
verður þurrt og sums staðar nokkuð bjart veður. Hiti víðast á bil-
inu 5-12 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Noröaustanátt á Vestfjörðum og á annesj-
um norðanlands en vestlæg eða suðvestlæg átt um sunnanvert
landið. Rigning víða um land og hiti víða á bilinu 4-8 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG:Á mánudag styttir upp að mestu með
norðlægri átt, þó má búast við skúrum sunnanlands fram eftir
degi. Heldur kólnandi.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / #
/ * / * Slydda
f—* /
* * *
* * * * Snjókoma
* # # f* 1
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
\/ Skúrir
Él
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
þgumuveðvr
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl, tíma
Akureyri Reykjavík htti 8 7 veður skýjað súld
Bergen 10 léttskýjað
Hetslnki 8 skýjað
Kaupmannahöfn 7 alskýjað
Narssarssuaq 6 úrkomaígrennd
Nuuk 3 súld
Osló 13 skýjað
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Algarve 17 heiðskfrt
Amsterdam 7 hagiél
Barcelona 13 skýjað
Berlín 9 skýjað
Chicago 6 skýjað
Feneyjar 11 rigning
Frankfurt 9 skýjað
Glasgow 10 rigning
Hamborg 4 léttskýjað
LasPalmas vantar
London 10 skýjað
Los Angeles vantar
Lúxemborg 7 skýjað
Madrtd 13 léttskýjað
Malaga 20 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal vantar
NewYork vantar
Orlando vantar
París 10 skýjað
Róm 16 skýjað
Vín 11 rigning
Washington 13 léttskýjað
Winnipeg vantar
Morgunblaðið/Andrés Pétursson
Slysstaðurinn í Devon. BíII íslendinganna kom úr sömu átt og sendi-
bíllinn á miðjunni en hinn bíllinn úr gagnstæðri átt. Að sögn lögreglu
í Exeter þykir allt benda til að áreksturinn hafi orðið á akreininni
er að gera henni kleift að hafa
menn á vegunum?
Forsætisráðherrann: Það fékk
mjög á mig þegar ég frétti af þessu
hræðilega slysi og ég er viss um
að þingið tekur undir samúðar-
kveðjur mínar til fjölskyldna þeirra
sem urðu fyrir því. Eins og háttvirt-
ur þingmaður veit verður frumvarp-
ið um umferðarmál, sem nú liggur
fyrir þinginu, til þess að bæta um-
ferðarlögin og viðurlögin. Auk þess
hyggst háttvirtur ráðherra sam-
göngumála veija meira en sex millj-
ónum punda í herferð til að auka
öryggi í umferðinni með það að
markmiði að fækka sem mest þess-
um skelfílegu og tíðu slysum, eins
og það, sem háttvirtur þingmaður
vekur máls á, er dæmi um.
Að sögn lögreglunnar í Exeter
er þess ekki að vænta að rannsókn
á tildrögum slyssins ljúki fyrr en í
næstu viku. Talsmaður lögreglunn-
ar sagði að talið væti að eitthvert
eftirtalinna atriða hefði valdið slys-
inu: 1. íslenski ökumaðurinn hefði
talið sig vera á hraðbraut þar sem
ekki væri von á umferð á móti. 2.
Ökumaðiunn hefði gleymt því að
hann væri j breskri vinstri handar
umferð. 3. Ökumaðurinn hefði sofn-
að undir stýri. „Það er óvíst að við
fáum nokkum tímann að vita hver
þessara skýringa er hin rétta,“
sagði hann.
Nínu spáð misjöfnu gengi:
Frekar svartsýnn eins
og málin standa nú
-segir Eyjólfur Kristjánsson höfundur lagsins.
Róm, frá Sveini Guðjónssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
„Eg verð að segja eins og er að ég frekar svartsýnn eins og málin
standa nú,“ segir Eyjólfur Kristjánsson höfundur og annar aðalflytj-
andi lagsins Nína sem verður framlag íslands til Evrópusöngvakeppn-
innar í kvöld. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Eyjólf að lokinni
æfingu í Cincitta kvikmyndaverinu í Róm í gærdag þar sem æft var
í fyrsta sinn fyrir fullu húsi áhorfenda.
Islenski hópurinn fór til kvik-
myndversins í lögreglufylgd og mun
sú ráðstöfun hafa verið gerð til að
koma í veg fyrir seinkun sem hæg-
lega getur orðið í því umferðaröng-
þveiti sem gjarnan ríkir í Rómaborg
á degi hvetjum enda langt að fara
fyrir íslendingana, yfír borgina
þvera og endilanga. Blaðamaður
Morgunblaðsins fylgdist með æf-
ingunni sem var fremur mislukkuð
hvað varðar hljómgæði á íslenska
laginu. Lagið byijaði vel en þegar
kom að samsöng þeirra Eyjólfs og
Stefáns Hilmarssonar heyrðist lítið
sem ekkert í Stefáni og hljómaði
lagið því fremur illa í salnum fyrir
fullu húsi þar á meðal blaðamönn-
um víðs vegar að úr Evrópu. Auk
þess lék hljómsveitin of hægt og
var þróttlítil í flutningi sínum enda
voru undirtektimar í salnum eftir
því og var þessi æfíng því laginu
ekki til framdráttar.
Annars er Nínu spáð misjöfnu
gengi hér í Róm. Sumir eru hrifnir
af laginu og telja það vel samið
þrátt fyrir að það falli ekki inn í
hina dæmigerðu júróvisjón formúlu.
Aðrir láta sér fátt um fínnast.
Sænsku fulltrúarnir spá því næst
neðsta sæti og norska laginu því
neðsta en þar er fremstur í flokki
íslendingurinn Eiríkur Hauksson.
Möltubúar, Grikkir og Kýpurbúar
sem búa á sarna hóteli og íslending-
ar eru hins vegar sannfærðir um
að lagið verið í einu af þremur efstu
sætunum. Englendingar segja að
það verði í 12. til 16. sæti svo
dæmi séu tekin af mismunandi
skoðunum fólks hér.
Ýmsar getgátur eru uppi um sig-
urstranglegasta lagið og telja sum-
ir að sænska söngkonan Carola
muni sigra með frísklegri fram-
komu sinni enda er hún stórstjarna
í Evrópu. Ýmsum finnst þó lagið
vera dæmigert .júróvisjón formúlu-
lag“ þ.e.a.s. miklar umbúðir utan
um eEk neitt. Önnur lög sem nefnd
hafa verið eru breska lagið, sviss-
neska lagið og þegar líða tók á
föstudag fór spænska lagið að heyr-
ast í umræðunni en úr því fæst
skorið í kvöld og er talið að um 800
miljónir manna muni flylgjast með
keppninni. íslenskir sjónvarpsá-
horfendur geta skráð hjá sér stigin
sem dómnefndir gefa lögunum á
töflu sem birt er í miðopnu Morgun-
blaðsins í dag.
------»-f-4-----
Biskupsstofa:
Tveir sækja
um Langholts-
prestakall
TVEIR umsækjendur, þau Flóki
Kristinsson og Guðrún Edda
Gunnarsdóttir, eru um stöðu
sóknarprests í Langholtspre-
stakalli. Umsóknunum hefur
verið skilað til formanns sóknar-
nefndar og Jóns Dalbú Hró-
bjartssonar, prófasts. Greidd
verða atkvæði um stöðuveiting-
una á kjörmannafundi sem pró-
fastur boðar til í lok næstu viku.
Auk þeirra °.em sóttu um stöðu
sóknarprests í Langholtspre-
stakalli sóttu 10 um stöðu héraðs-
presta í Reykjaneskjördæmi og
Reykjavík, fimm um hvora. Þá
sótti einn um stöðu aðstoðarprests
í Árbæjarkirkju og einn um stöðu
aðstoðarprests' í Seljakirkju. Einn
umsækjandi, Ingileif Malmberg,
var um stöðu sóknarprests í Norð-
firði.
Engar umsóknir bárust um
lausar stöður á Patreksfirði 0g
Tálknafirði.
Biskup íslands mun vígja fimm
guðfræðinga 12. maí.