Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 11
MQRGBNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAI 1991 'ifl Operutónleikar Rangæingakórinn _________Tónlist______________ Jón Asgeirsson Miklar framfarir hafa orðið í aílri söngtækni á Islandi á undanf- örnum árum, sem má rekja til þess að tónlistarskólarnir, ekki aðeins í Reykjavík, heldur og víða út um landið, hafa tekið upp kennslu i raddbeitingu. Óperutón- leikar sem haldnir voru sl. mánu- dag í Seltjarnarneskirkju voru ef svo má að orði komast, afrakstur slíkrar vinnu, enda voru tónleik- arnir haldnir undir yfirskriftinni „Söngvarar af Suðurnesjum". Til liðs við sig höfðu skipuleggjendur tónleikanna fengið nokkra kór- söngvara og hljóðfæraleikara undir stjórn Arnars Óskarssonar. Fyrri hluti tónleikanna var helgaður Mozart og hófust á Ave verum corpus. Þessi fallega. mót- etta var ágætlega flutt. Sungin voru atriði úr Brúðkaupinu, Don Giovanni og Töfraflautunni. Eðli- lega voru söngvararnir mis langt komnir og þeir sem helst skáru sig úr að því leyti, bæði hvað varðar meiri söngreynslu og kunnáttu, voru María Guðmunds- dóttir og Steinn Erlingsson. Aðrir sem einnig komu fram voru Bjarni Thor Kristinsson, Sigurður Sæv- arsson og Guðmundur Sigurðs- son, sungu af þeim þokka sem fallegastur getur verið hjá góðum Einleikstónleikar Bryndísar Höllu Gylfadóttur á vegum Musica Nova voru haldnir sl. mið- vikudag í Bústaðakirkju. Á efnis- skránni voru verk eftir Hauk Tómasson, Atla Heimi Sveinsson, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og Guðmund Hafsteinsson. Tónleikarnir hófust á verki eft- ir Hauk Tómasson, sem hann nefnir Eter. Ekki gefur höfundur- inn neitt uppi um merkingu nafns- ins, hvort hér er átt við svæfingat'- vökvann eða hásali himnanna, nema ef vera kynni að hér sé vís- að til heimskenningar Aristóteles- nemendum. í samsöngsatriði úr Don Giovanni bættust í hópinn Jóhann Smári Sævarsson og Hlíf Káradóttir. Eftir hlé var sungið úr ítölskum óperum og þar vakti athygli efni- legur söngvari, Jóhann Smári Sævarsson, með II lacerato spir- ito, úr Simon Boccanegra, eftir Verdi. Guðmundur Sigurðsson söng Matinata eftir Leoncavallo. Hann hefur góða rödd en vantar enn upp á að geta leikið sér með hana. Sá sem bar höfuð og herðar yfir alla söngvara kvöldsins var Helgi Maronsson. Hann söng þijár aríur, eina eftir Donizetti og tvær eftir Puccini. Helgi syng- ur af töluverðri kunnáttu en það sem þó er mest um vert, að í söng hans gefur að heyra góða túlkun og sterka tilfinningu fyrir mótun tónhendinga. Hlíf Káradóttir söng Visi d’arte úr Toscu ágætlega en tónleikun- um lauk með kórþætti úr Cavel- leria rusticana eftir Mascagni. Auk undirleiks í áðurnefndum söngatriðum, lék hljómsveitin for- leikinn að La Traviata og Int- ermezzo úr Cavaleria rusticana. Hljómsveitarstjóri var Örn Óskarsson og var stjórn hans í heild allt of varfærin, svo að á köflum vantaði skerpu í flutning- inn. ar um fimmtu höfuðskepnuna. Hvað um það, þá var eins og varð- andi nafnið ríkjandi óræði í verk- inu, sem Bryndís Halla náði að útfæra mjög fallega. Dal regno del silenzio, Þagnar- heimur, eftir Atla Heimi Sveins- son, var mjög fallega flutt af Bryndísi Höllu og náði hún að draga fram dulúð verksins á eink- ar sannfærandi máta. Flakk heitir þriðja verkefni Bryndísar Höllu og er það eftir Hróðmar Inga Sig- urbjörnsson. Flakk er í fimm köfl- um og er þriðji kaflinn rismestur og besti kafli verksins. í verkinu Kór Rangæingafélagsins Rangæingar búsettir í Reykja- vík hafa í 15 ár haldið úti kór og héldu upp á afmælið með tónleik- um í Áskirkju sl. þriðjudag. Ein- söngvari með kórnum var Kjartan Ólafsson, undirleikari Krystyna Cortes en stjórnandi var Elín Osk Bryndís Halla Gylfadóttir fæst Hróðmar við ýmsar aðferðir, sem þó eru bundnar saman í nán- Óskarsdóttir. Nokkuð hefur starfsemi ýmissa áhugahópa á sviði tónlistar lent utan við þá umfjöllun sem kallast tónlistargagnrýni. Margt kemut' til og óþarft að tíunda annað-en að í slíkum tilfellum er það einkum ast tónalt tónferli, þar sem jafn- vel bregður fyrir smá rómantík. Mesta verk tónleikanna og það sem reyndi hvað mest á flytjand- ann á þessum tónleikum var Spuni I eftir Guðmund Hafsteinsson. Þetta verk var frumflutt fyrir stuttu af Bryndísi Höllu og hefur undirritaður þegar íjallað um gerð þessa ágæta verks. Flutningur Bryndísar Höllu var að þessu sinni á köflum hraðari og síðasti kaflinn t.d. mun betur leikinn að þessu sinni. I hröðu köflunum var tón- staðan á stundum nokkuð óhrein, aðallega á hásviðinu og virðist Bryndís Halla eiga þar helst í erfiðleikum með tóninn. Tónleikarnir í heild voru skemmtilegir og flutningur Bryndísar Höllu mjög góður. áhuginn og félagshygð sem stefnir mönnum saman. Tónleikarnir hófust á íslenskum þjóðlögum og voru þau í heild vel sungin, einkum þó Vísur Vatns- enda-Rósu, Krummi krunkar úti og Undir bláum sóiarsali. Tvö lög eftir ísólf Pálsson, Vögguvísa og Sumar voru ágætlega sungin svo og tvö lög eftir Inga T. Lárusson, Blessuð sértu sumarsól og Kvöld í sveit. Kjartan Ólafsson söng einsöng í kórútfærslu Garðars Cortes á íslenskum þjóðlögum við stökur eftir Örn Arnarson. Þá söng Kjart- an Sverri konung og Sprett eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson en síð- asta lag hans var Maístjarnan. Kjartan er ágætlega kunnandi söngvari og söng þessi mikið sungnu lög af töluverðri reisn. í heild var þokki yfir þessum tón- leikum og auðheyrt að Elín Ósk kann vel til verka að ofbjóða ekki reynslulausum söngvurum og laða fram hjá þeim áreynslulausan og þokkafullan söng. MusicaNova Islandsmót í hárgreiðslu o g hárskurði ÍSLANDSKEPPNI í hár- greiðslu og hárskurði verður lialdin sunnudaginn 5. maí i veitingahúsinu Breiðvangi. Keppni hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 17.00. Keppt er í alls 10 greinum og eru yfirdómarar keppninnar erlendis frá, Tion Constantinou frá Englandi og Alf Johan feld frá Noregi. Ásamt þeim verða tveir íslensk- ir dómarar, Elsa Haraldsdóttir og Ágúst Friðriksson. Keppni þessi er haldin annað hvert ár og liður í að velja lands- lið íslands til að taka þátt í keppni erlendis og þá sérstaklega í heims- meistarakeppninni. Hún verður haldin í september á næsta ári í Tókýó og er þegar hafinn undir- búningur að því að ísland verði á meðal þátttakenda. Keppnin á sunnudaginn er frá- brugðin því sem áður hefur tíðkast að því leyti að mikið verður lagt upp úr tísku og framþróun hennar. Verðlaunaafhending og við- hafnarkvöldverður hefjast kl. 20 þar sem verða fjölbreytt skemmti- atriði. Kynnir verður Lovísa Jóns- dóttir. (Fréttatilkynning) Ný|ar innréttingar í eldhús og Veana bió'óast nu noKKui Nýjar innrértingar 1caHa ó ^ r innréttingar í eldhús, stakar sýnishorn meb gobum *. LiA|nhrautum fyrir fataskópa. skápaeminga^ og ur & má|u&um innréttingum í eldhús, og Og sumarsmellunnr, er A5 , * ^ ^ ^ a||, ð sama verði. þtrir bjóSast nokkrir sturtuklefar á frábæru verð,. Oplð laugardag W. 1M5 og sunnudag W. 13-16. LWmL Nýbýiavegi 12 200 Kópavogur Sími 44011. Pósthólt 167.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.