Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 35
MORÖUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 1. MAÍ 1991 fclk í fréttum Kristján Sæmundsson liðssljóri, Kristján Gunnarsson, Bjarni Óli Haraldsson og Vilhelm Vestmann. M ATREIÐSLU S AMKEPPNI Islenskir matreiðslu- nemar í fyrsta sæti ívar Bragason og Jóhann Jóhannsson. Tslenskir matreiðslunemar, þeir Bjarni Óli Haraldsson og Kristj- án Gunnarsson, báru sigur úr být- um í matreiðslu í Norrænni nema- keppni í matreiðslu og framreiðslu á Hótel Sögu um síðustu helgi. í öðru sæti urðu Danir og Norðmenn í því þriðja. Norðmenn sigruðu keppni í framrejðslu, Danir urðu í öðru sæti og íslendingar urðu í þriöja sæti. I liði íslendinga voru Ivar Bragason og Jóhann Jóhanns- son. Keppnin hófst á föstudagsmorg- uninn með skriflegu prófi þar sem meðal annars var prófað í næring- arfræði en daginn eftir áttu nem- arnir að útbúa hádegisverð úr hrá- efni sem þeim var úthlutað. Þá tók við undirbúningur fyrir kvöldverð- inn en nemarnir höfðu fengið þau fyrirmæli að hafa lax í forrétt, lambákjöt í aðalrétt og súkkulaði- rétt í eftirrétt. Ann^r nemanna , Kristján Gunn- arsson,1 satði í saihtali við Morgun- blaðið að| félagarnir hefðu verið yinna ána^gðastir með hádegisverð- mn. „Viðí vorurn til dæmis mjög ánægðir með aðalréttinn," sagði Kristján, „skriflega prófið gekk líka ágætlega hjá okkur, við gerðum engar villur, en yfirleitt hefur þetta verið sá hluti sem dregið hefur Is- lendingana niður ef eitthvað hefur lækkað þá. Kvöldið gekk líka nokk- uð vel hjá okkur. Það eina sem ef til vill hefði mátt vera öðruvísi var eftirréttatertan. Þegar við fórum að bera hana saman við hina eftir- réttina fannst okkur hún í stærra lagi.“ I samtali við Bjarna Óla kom fram að farið hefði fram undan- keppni fyrir þessa keppni í febrúar en undirbúningur hefur staðið yfir í tvo mánuði. Bjarni Óli sagði að keppnin hefði að þessu sinni verið mjög jöfn. „Ég held að einungis smáatriði hafi skilið á milli kepp- endanna," sagði Bjarni Óli.„Til dæmis held ég að margir hafi ekki gætt sín nógu vel hvað varðar snyrtimennsku sem gat skipt sköp- um vegna þess hve keppnin var jöfn.“ Þetta er í fimmta sinn sem Is- lendingar taka þátt í keppninni sem haldin hefur verið tíu sinnum. Keppnin_ nú er fyrsta keppnin á íslandi. í samtali við Kristján kom fram að afar vel hefði verið að henni staðið. Þeir Bjarni Óli voru sam- mála um að keppnin sem þessi væri afar hvetjandi fyrir nemana auk þess sem hún gæfi þeim tæki- færi til að kynnast norrænum starfsfélögum sínum. COSPER Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Fánaberar fóru fyrir skrúðgöngu skáta á Selfossi. SELFOSS 65 ungskátar vígðir á sumardaginn fyrsta Skátar voru burðarásinn í hátíða- höldum á sumardaginn fyrsta á Selfossi. Þeir gengu fylktu liði í ski-úðgöngu frá barnaskólanum til skátamessu í Selfosskirkju þar sem 65 ungir skátar unnu skátaheitið og voru vígðir inn í hreyfinguna. Þátttaka í skrúðgöngunni var góð þrátt fyrir að frekar napurt væri. Fyrir skrúðgöngunni fóru fánaberar skátanna og lúðrasveit. Gengið var fylktu liði um götur bæjarins og staðnæmst fyrir fram- an Ljósheima, hjúkrunarheimili aldraðra, þar sem lúðrasveitin lék viðbótarlag. I skátamessunni að lokinni skrúðgöngunni fylgdust kirkju- gestir með því þegar 65 ungir skát- ar voru vígðir inn í hreyfinguna. Þetta var hátíðleg stund og ógleymanleg fyrir börnin og ungl- ingana sem þarna stigu þýðingar- mikil skref í uppbyggilegu tóm- stundastarfi. Séra Sigurður Sigurðarson minnti á það í ræðu sinni hversu uppbyggilegt skátastarfið er og notadijúg sú reynsla sem skátar, og þeir sem taka þátt í félags- starfi, fá við það að leggja sig fram. Síðar um daginn gengust skátar fyrir barnaskemmtun í Hótel Sel- fossi og buðu upp á sumarkaffi að henni lokinni. Var þar glatt á hjalla og ekki að sjá annað en ungviðið skemmti sér vel. - Sig. Jóns. 10. tíma námskeið haldið í maí Bamadansar 3ja—5 ára Samkvæmisdansar, Gömlu dansar, Rock'n Roll og Tjútt. Street Dancing. Byrjendur — framhald. Innritun stendur yfir Auðar h a r a l ds^— SKEIFUNNI 11 B, SÍMI39600 FRÁ KL.13 - 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.