Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 34
-34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4, JVIAÍ 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrtítur (21. mars - 19. apríl) Þó að það sé efst á blaði hjá hrútnum í dag að skemmta sér er hann reiðubúinn að leggja hart að sér í starfi á næstu vikum. Naut (20. apríl - 20. maí) (fjft Það er mikið um að vera heima hjá nautinu i dag. Það lýkur því sem það ætlaði sér, en kann að vera stutt í spuna við aðra heimilismenn. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 4» Tvíburinn hugsar ekkert um starfið í .dag, en nýtur þess að eiga frí. Hann gerir einhvetjar breytingar heima fyrir á næst- unni. Krabbi (21. júní - 22. júií) HltB Þó að krabbinn eigi í engum vandræðum með að afla fjár um þessar mundir hættir hon- um verulega til að eyða um efni fram. Hann ætti að spara eins og honum er unnt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ljónið horfir með velþóknun á það sem gerist álengdar, en stendur frammi fyrir sundur- lyndi heima fyrir. Gamall kunningi skýtur upp kollinum. Það verður að standa við allt sem það hefur lofað. Meyja (23. ágúst - 22. september) á* Meyjan lýkur við ýmisiegt sem hún hefur átt ólokið og hreins- ar rækilega til hjá sér. Hún er tilbúin að hefjast handa við ný verkefni. Vog (23. sept. - 22. október) Vogin á annríkt í félagsmálun- um um þessar mundir. Hún á gott samstarf við maka sinn og verður einstaklega vel fyrir kölluð til að njóta kvöldsins með honum. Sporódreki (23. okt. -21. nóvembcr) Sporðdrekinn þarf að vera op- inn fyrir nýjum tækifærum. Gömul skuidbinding tekur toll af tíma hans í dag. Hann verð- ur að verá lítiliátur tii að ná árangri. Bogmadur (22. nóv. — 21. desember) Bogmaðurinn er ákafur í að fara á ákveðinn stað. Hann ætti að gá vel að sér að skilja ekkert eftir. Hann verður með aivarlegasta móti í kvöld. Steingeit -(22. des. - 19. janúar) Steingeitinni er óhætt að treystá á stuðning fjölskyld- unnar. Það kann að ríkja spenna milli hennar og vinar hennar út af peningamálum. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðk Dagsferð sem vatnsberinn tek- ur þátt í heppnast einstaklega vel að allra mati. Náinn ætt- ingi eða vinur þarfnast félags- skapar hans í kvöld. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Fiskurinn þarf að taka tafar- lausa afstöðu til viðskiptatil- boðs sem honum beret. Fjár- hagur hans tekur stakkaskipt- um til hins betra núna. Stj'órnuspána á aó lesa sem dœgradvöt Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunui visindalegra staóreynda. DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI /j, J, LJUOlxM HEYKTþflÐjBO&SAÐ /)LL AjZ ? < AFáOPGAAJJÆN/U? SMÁFÓLK tréð þarna hreyfði sig ekki. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Þrátt fyrir 12 tígla á milli handanna reyndu flest NS pörin að komast í grandgeim í 5. spili ísiandsmótsins. En með misjöfn- um árangri: Norður gefur; NS á hættu. Norður ♦ ÁK53 VK7 ♦ G9765 ♦ 84 Vestur Austur ♦ 97642 ♦G10 ♦ Á854 VDG1032 ♦ 10 ♦- + D63 +ÁG9752 Suður ♦ D8 ♦ 96 ♦ ÁKD8432 ♦ K10 íslandsmeistararnir Sverrir Ármannsson og Matthías Þor- valdsson voru með spil AV gegn Oddi Hjaltasyni og Eiríki Hjalta- syni. Eftir pass Odds í norður, hóf Matthías leikinn með 2 hjört- um. Sú opnun er af Geirfugla- ættinni, segir frá veikum tveim- ur í spaða eliegar tvílita hönd með hjarta og láglit. Punktarnir eru undir 11. Vestur Norúur Austur Suður Sverrir Oddur Matth. Eiríkur Pass 2 hjörtu 3 tíglar 3 hjörtu 3 grönd 4 lauf Pass 4 hjörtu 4 grönd Pass Pass 5 hjörtu Dobl Allir pass Oddur berst hetjulega þegar hann reynir 4 grönd yfir 4 hjört- um. En Sverrir þóttist vita að sá samningur ynnist og tók fórn- ina. Fimm hjörtu fóru aðeins tvo niður, sem gaf NS 300 í stað 660 fyrir grandgeimið. Umsjón Margeir Pétursson Þetta stutta og laggóða jafn- tefli sá dagsins ljós í frönsku deiid- arkeppninni í ár: Hvítt: Guigonis (2.290), svart: Benoit (2.235), fornindversk vörn. 1. d4 — Rf6, 2. c4 - d6, 3. Rc3 - Bf5, 4. f3 — e5, 5. d5 — e4i, 6. g4 og nú leikur svartur og þvingar fram jafntefli: 6. — Rxg4!, 7. fxg4 — Dh4+, 8. Kd2 — e3+! og samið jafntefli. Ekkert stórmeistarajafntefli þetta, þótt skákin hafi verið stutt, en þess má reyndar geta að á íþróttasíðum einhvers dagblaðsins um daginn var farið rangt með hugtak og merkingu þess snúið við. Þar var það notað í flenni- stórri fyrirsögn til að lýsa æsi- spennandi leik tveggja sterkra liða, sem lyktaði með jafntefli. Þetta hefur hins vegar ávallt ver- ið notað um það þegar þeir tveir stórmeistarar bera svo mikla virð- ingu hvor fyrir öðrum að þeir leggja ekki i baráttu og semja stutt jafntefli. Hugtakið stórmeistarajafntefii er neikvætt og slíkt athæfi kepp- endum til lítils sóma, svo nota ætti önnur orð til að hrósa bar- áttugleði íþróttamanna, eins og greinilega var ætlunin með við- komandi frétt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.