Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991 Morgunblaðið/Haukur Frosti í heimahöfn, Grenivík, eft- ir nokkuð langt stopp, en skipið var um tíma í slipp. Grenivík: Frosti aftur í heimahöfn FROSTI-ÞH-229 kom til heima- hafnar fyrir skömmu eftir að hafa verið í slipp um tíma. I síðasta veiðitúr bilaði vökvarótor í spili og varð þá að fara í land, en hann hafði þó fengið um 100 tonn. Frosti er með stærra spil en gengur og gerist í hliðstæðum skip- um og því var erfiðara að fá vara- hluti og stoppið varð þar af leið- andi lengra. Biðtíminn var notaður til að dytta að öðru og til endur- bóta á skipinu. Mestu munar um að skipið var málað og er það nú í þeim lit sem um árabil hefur verið einkennislitur Frosta frá Grenivík, þ.e. neðri hlut- inn grár og sá efri hvítur. Þykir sumum sem nú fyrst sé hægt að tala um skipið sem Frosta. Bilanir voru þó ekki allar úr sög- unni, því þegar setja átti í gang eftir stoppið bilaði ljósavél skipsins. Fyrsti túrinn eftir þetta stopp gekk þokkalega og landaði skipið um 70 tonnum hjá frystihúsi Kaldbaks í vikunni. Haukur ---------------- ■ VÍÐA VANGSHLA UP íslands fer fram á Akureyri á morgun, sunnudag, og hefst hlaupið kl. 14 á mjólkursamlagstúninu. Þetta er í fyrsta sinn sem Víðavangshlaup íslands fer fram í Eyjafirði og í annað sinn sem hlaupið er á Norð- urlandi, en árið 1985 fór hlaupið fram á Hvammstanga. Keppt verð- ur í 8 flokkum, frá 12 ára og upp í flokk öldunga. Margir af bestu hlaupurum landsins verða á meðal ^Jþátttakenda í hlaupinu, en búist er “'við að um 200 manns taki þátt í því. UA á skýlausan siðferðilegan rétt á forgangi á Bandaríkjamarkaði: Rangt af útgerðarmönnum að hafna alfarið hugmyndum um veiðigjald — sagði Pétur Bjarnason formaður stjórnar í ræðu sinni á aðalfundi Utgerðarfélags Akureyringa PÉTUR Bjarnason formaður sjórnar Útgerðarfélags Akureyringa telur rangt af útgerðarmönnum að hafna alfarið hugmyndum um leigugjald fyrir aflaheimildir eða hugmyndum um önnur skil- yrði sem hugsanlega mætti ná víðtækri sátt um, án þess að skoða slíkar hugmyndir til fullnustu. Hann sagði hinn valkostinn áfram- haldandi hringlandahátt, þar sem stefnan væri mörkuð til fárra missera í einu. Pétur sagði einnig í ræðu sinni á aðalfundi ÚA sem haldinn var í gær að félagið ætti skýlausan siðferðilegan rétt á því að njóta forgangs á Bandaríkjamarkaði nú þegar styrking dollarans gerir hann aðlaðandi að nýju, en flest islensk frystihús hafi á undanförnum árum aukið framleiðslu á Evrópumarkað þegar staða Bandaríkjadollars var veik. Samþykkt var á fundinum að veita hluthöfum 10% arð og einnig var sljórn veitt heimild til að auka hlutafé félagins um 50 milljónir króna. Pétur Bjarnason sem verið hef- ur formaður ÚA síðustu tvö ár kom inn á framtíðarstefnu í ræðu sinni á fundinum og sagði það vart fara á milli mála að sjávarút- vegur á íslandi starfaði í afar órólegu umhverfi. Stjórnun fisk- veiða væri vandasöm og ekki auð- velt að gera svo öllum líki. Fyrir- tæki í sjávarútvegi þurfi að búa við jafn stöðug skilyrði og unnt er að skapa, það sé forsenda þess að hægt sé að taka skynsamlegar ákvarðanir í rekstri. Víðtæk sam- vinna verði að nást um þann ramma sem settur er með stjórnun fiskveiða, en kvótakerfið hafí ávallt verið umdeilt. „Það hefur verið ákveðið til skamms tíma í senn og vegna deilna um það hefur framtíð þess aldrei verið trygg. Af þessum sök- um hefur kvótakerfið aldrei náð að skila því hagræði sem það gæti. Stjórnendur fyrirtækja geta ekki treyst því að ákvarðanir sem að óbreyttu ástandi eru skynsam- legar verði ekki hvenær sem er eyðilagðar af nýjum herrum í valdastóli," sagði Pétur í ræðu sinni. Rangt að hafna alfarið hugmyndum um veiðigjald Hann sagði þá óvissu sem stjórnvaldsaðgerðir hafi ætíð sett fyrirtæki í sjávarútvegi í vera fyrirtækjunum dýrar og erfiðar, afrakstur greinarinnar rýrni og sú arðsemi sem starfsemi þeirra skapar og berist með beinum eða óbeinum hætti út um allt þjóðfé- lagið rýrni að sama skapi. Þessi óvissa um rekstrarumhverfi sé því þjóðfélaginu öllu dýr. Pétur sagði kvótakerfið hafa þróast með till- tölulega góðri samstöðu hags- munaaðila í sjávarútvegi, en um- ræður í þjóðfélaginu um óréttlæti kerfisins og ábendingar um að ekki sé tekið tillit til hagsmuna annarra þegna en aðila í sjávarút- vegi fari vaxandi. „Mörgum þykir rétt að skilyrða úthlutun veiðileyfa þannig að við veiðar og ráðstöfun afla sé tekið tillit til heildarhagsmuna og eða að þeir sem úthlutun hljóta greiði fyrir þau réttindi á einhvern hátt. Stjórn Útgerðarfélags Akur- eyringa hefur ekki tekið efnislega afstöðu til þessara mála. Ég leyfi mér að setja það fram sem mína Morgunblaðið/Rúnar Þór Hluthöfum í Útgerðarfélagi Akureyringa var boðið að skoða fyrir- tækið fyrir aðalfund þess sem haldinn var í gær og var myndin tekin við það tækifæri. eigin skoðun, að mér finnst rangt af útgerðarmönnum að hafna al- farið hugmyndum um leigugjald fyrir aflaheimildir eða hugmynd- um um önnur skilyrði sem hugs- anlega mætti nást víðtæk sátt um, án þess að skoða slíkar hugmynd- ir til fullnustu. Ég held við verðum að gera okkur grein fyrir því að valkosturinn er áframhaldandi hringlandaháttur, þar sem stefn- an er mörkuð til fárra missera í einu með þeim kostnaði sem ég hef minnst á.“ Skýlaus siðferðilegur réttur á forgangi á Bandaríkjamarkaði í ræðu Péturs kom einnig fram að vegna veikrar stöðu Banda- ríkjadollars undanfarið ár hafi flest íslensk frystihús aukið fram- leiðslu sína til Evrópulanda í stað þess að framleiða fyrir Bandaríkj- amarkað. Hann sagði fulla ástæðu hafa verið til að óttast um hags- muni félagsins á þeim markaði vegna fiskskorts. Þegar slík staða kæmi upp þyrftu framleiðendur að gera upp hug sinn varðandi að hve miklu leyti taka eigi tillit til skammtímasjónarmiða og langtímasjónarmiða. ÚA hafi va- lið að bregðast ekki markaðnum í Bandaríkjunum, heldur reyna eftir mætti að fylla upp í þau skörð sem þar mynduðust þegar Evrópumarkaður gaf betur. „Þetta er umdeilanleg stefna en ætla má að sá fórnarkostnaður sem henni fylgdi hafi að nokkru leyti unnist upp með minni uppi- höldum í framleiðslunni í landi, því pakkningar til Bandaríkjanna eru seinunnari en aðrar pakkning- ar. Hitt er einnig, að Útgerðarfé- lag Akureyringa hf. á skýlausan siðferðilegan rétt á því að njóta forgangs á Bandaríkjamarkað nú þegar styrking dollarans gerir hann aðlaðandi að nýju,“ sagði Pétur Bjarnason. Iðnaðarhúsnæöi á Akureyri Til sölu eru verksmiðjuhús Álafoss á Gleráreyrum á Akureyri. Um er að ræða núverandi verslunarhús ásamt góðri lageraðstöðu (vörugeymslu), samkomusal (Félagsborg), ásamt tveimur stórum vinnslusölum. Húseignirnar seljast sem ein heild eða í smærri eining- um. Upplýsingar fást hjá Fasteignasölunni, Brekkugötu 4, Akureyri, sími 21744. MYNDLISTASKOLINN Á AKUREYRI Myndlistaskólinn á Akureyri auglýsir inntöku nýrra nemenda í fornámsdeild veturinn 1991- 1992. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, Kaupvangsstræti 16. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 96-24958. Umsóknarfrestur er til 25. maí. Skólastjóri. Tæplega 186 milljóna hagnaður af rekstri ÚA HAGNAÐUR af rekstri Útgerð- arfélags Akureyringa á síðasta ári nam 185,6 milljónum króna, en var árið 1989 91,5 milljónir króna. Rekstrartekjur félagsins námu tæpum tveimur milljörðum á liðnu ári og hækkuðu þær um ■ HALLDÓR Haraldsson píanó- leikari heldur tónleika í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju sunnu- daginn 5. maí kl. 17. Á efnis- skránni eru verk eftir Beethoven, Bartók, Ravel, Debussy og Chop- in. Halldór er löngu landsþekkt- ur fyrir leik sinn og kennslu- störf. Hann hefur auk fjölda ein- leikstónleika leikið með Gísla Magnússyni verk fyrir tvö píanó og árið 1988 stofnaði hann Tríó Reykjavíkur ásamt Guðnýju Guð- mundsdóttur og Gunnari Kvaran og hafa þau leikið bæði hérlendis og erlendis. Halldór er deildarstjóri píanódeildar , Tónlistarskólans í Reykjavík og hefur útskrifað marga efnilega píanóleikara sem nú taka virkan þátt í tónlistarlífi landisins. 21,8% á milli ára sem er 2,6% raunvirðisaukning miðað við byggingarvísitölu. Hagnaður af reglulegri starfsemi síðasta árs var 208 milljónir króna, en vegna mismunar milli almennra verðlagsbreytinga og hækkunar eða lækkunar erlendra gjaldmiðla gagnvart krónunni, að teknu tilliti til erlendra verðlagsbreytinga, nem- ur reiknaður gengishagnaður 64 milljónum króna. Aðrir óreglulegir liðir innihalda gjöld upp á um 77 milljónir króna, en að verulegu leyti er um að ræða kostnað vegna sam- einingar við Hraðfrystihús Kefla- víkur í kjölfar kaupa á Sólbaki EA-307 (áður Aðalvík KE). Þegar tillit er tekið til óreglulegra liða er hagnaður tii ráðstöfunar eftir eign- askatt 185,6 milljónir króna. Heildareignir félagsins voru bók- færðar á rúma 2,7 milljarða, skuld- ir námu rúmlega 1,4 milljörðum og eigið fé í árslok var 1,3 milljarðar króna. Samtök til styrktar krabbameinssjúklingum STOFNFUNDUR samtaka til styrktar krabbameinssjúklingum og aðstandendum þeirra verður haldinn næstkomandi mánudags- kvöld, 6. maí, kl. 20 í Glerárgötu 36, 2. hæð. Félagsskapur þessi mun starfa á svipuðum grunni og Styrkur í Reykjavík. Markmið samtakanna er m.a. að miðla upplýsingum og veita fræðslu um sjúkdóminn, að styðja og styrkja þá sem við hann eiga að etja og aðra þá sem þurfa að vinna sig út úr erfiðleikum sem sjúkdómnum fylgja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.