Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 42
~42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991 Rkkþ -Hut i>etha/- GeAAJM' Hótel Esju • Suðurlandsbraut 2 • Sími 680809. § Það er mikið sem býr í þessu liði - segir Kristinn Björnsson, þjálfari U-16 ára liðsins, sem heldurtil Sviss á sunnudag LATTU SENDA ÞER PIZZU YFIR„NINU” Ekki misBa mínútu úr söngvakeppninni og notfærðu þér fría heimsendingarþjónustu PIZZA HUT. Nú bjóðum við fjölskyldupizzur fyrir 4-6 scm henta einnig vel í samkvæmi og fyrir hópa. ÁFRAM ÍSLAND ! Guðmundur Benediktsson er .helsta vopn íslenska liðsins. ÍBK, Lúðvík Jónasson, Stjörnunni, Orri Þórðarson, ÍA, Sigurbjörn Hreiðarsson, Val og Þorvaldur Ás- geirsson, Fram. Aðalfararstjóri liðsins er Sveinn Sveinsson. Auk hans fara Sigmund- ur Stefánsson, Snorri Finnlaugsson og Jóhannes Sveinbjörnsson frá KSÍ. Læknir liðsins er Einar Jóns- son og dómari Eyjólfur Ólafsson. ísland er í riðli með Spánveijum Sovétmönnum og Júgóslövum. Fyrsti leikur liðsins verður gegn Júgóslöum miðvikudaginn 8. maí. Síðan verður leikið gegn Spánveij- um föstudaginn 10. maí og síðan gegn Sovétmönnum 12. maí. Tvö efstu liðin komast áfram í undan- úrsiit keppninnar. ÍSLENSKA landsliðið skipað leikmönnum 16 ára og yngri tekur þátt í úrslitakeppni Evr- ópumótsins í Sviss sem hefst á miðvikudaginn. Þjálfarar liðs- _>ins, Kristinn Björnsson og Þórður G. Lárusson hafa valið 16 leikmenn, sem fara til Sviss á sunnudag. Kristinn Bjömsson, þjálfari, sagði í samtali við Morgun- blaðið að leikirnir yrðu erfiðir enda ekki neinar smáþjóðir á knatt- spyrnusviðinu sem leikið er gegn. „Þetta verður eldskírn fyrir strák- ana. Möguleikar okkar eru kannski ekki miklir fyrirfram en enginn leik- ur er tapaður fyrirfram. Það er mikið sem býr í þessu liði og það sannaðist í leiknum gegn Wales sem vannst 6:0 og tryggði liðinu í úr- slitakeppnina," sagði Kristinn. • Kristinn sagði að besti leikmaður íslenska liðsins, Guðmundur Bene- diktsson, hafi átt við meiðsli að stríða og setti það óneitanlega strik í reikninginn. Hann vonaðist þó til að Guðmundur væri að ná sér enda gæti það skipt sköpum fyrir liðið. Islenska liðið var í æfingabúðum um páskana á Möltu og lék þá tvo æfingaleiki. Vann heimamenn, 2:1 og Kýpur, 3:2. Eftirtaldir 16 leikmenn skipa íslenska liðið: Alfreð Karlsson, ÍA, Arni G. Árnason, ÍA, Einar Baldvin Árnason, KR, Gunnar Egili Þóris- son, Víkingi, Gunnlaugur Jónsson, IA, Guðmundur Benediktsson, Þór Ak., Helgi Sigurðsson, Víkingi, Hrafnkell Kristjánsson, FH, ívar Bjarklind, KA, Jóhann Steinarsson, KNATTSPYRNA / EM U-16 ARA KORFUKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Einar Falur Norðurlandameistarar unglinga 1991 Islenska piltalandsliðið sem sigraði á Norðurlandamóti unglinga í körfuknattleik í Stykkishólmi um síðustu helgi. Efri röð frá vinstri: Jón Arnar Ingvarsson, Sigfús Gissurarson, Benedikt Sigurðssbn, Hjörtur Harðarson, Jón Stefánsson, Sigurður Jónsson og Jón Sigurðsson, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Eggert Garðarsson, Bragi Magnússon, Hermann Hauksson, Birgir Guðfinnsson og Marel Guðlaugsson. Nökkvi Már Jónsson var ekki viðstadd- ur myndatökuna þar sem hann var farinn til Bandaríkjana þar sem hann stundar nám. BADMINTON / HM ísland í 23. sæti - vann Búlgaríu 5:0 ígær Islenska landsliðið í badminton sigraði lið Búlgaríu, 5:0, í liða- keppninni á heimsmeistaramótinu í Kaupmannahöfn í gær. ísland hafn- aði í 4. sæti af 5 í 6. riðli mótsins, en Noregur sigraði í riðlinum vann alla sína leiki. ísland varð því í 23. sæti af 35 þjóðum í heimsmeistara- keppni landsliða. Leikir íslenska liðsins fóru þann- ig: Elsa Nielsen vann Diana Filipovu, 6:11, 11:8 og 12:10. Broddi Kristjánsson vann Boris Lalov, 15:10 og 15:6. Ása Pálsdótt- ir og Kristín Magnúsdóttir unnu Diana Koleve og Diena Filipovu í tvíliðaleik kvenna, 3:15, 15:11 og 15:10. Broddi og Guðmundur Adolfsson unnu Ivan Ivanov og Yassen Borisov, 15:7 og 15:10 og Kristín Magnúsdóttir og Broddi unnu S. Tzankov og Nedjalokovu, 15:4 og 15:3. Einstaklingskeppnin hefst á sunnudag. íþróttir helgarinnar Körfuknattleikur Fjórir leikir verða í Evrópu- keppni landsliða í körfuknatt- leik í Laugardalshöll um heig- ina. í dag leika íslendingar og Norðmenn kl. 15 og Finnar og Danir strax á eftir kl. 17. Á morgun lýkur mótinu með leikjum Portúgals og Norð- manna kl. 13 og leik íslend- inga og Finna kl. 15. Víðavangshlaup Víðavangshlaup íslands fer fram á Akureyri á morgun, sunnudag. Keppt verður í 8 flokkum karla og kvenna. Skíði Meistaramót íslands á skíðum 30 ára og eldri fer fram í Bláfjöllum í dag, laug- ardag, kl. 11.. Keppt verður í alpagreinum, svigi og stór- svigi, og göngu. Mótið er opið öllum skíðamönnum sem náð hafa 30 ára aldri. Fatlaðir Hægsmótið, opið íþrótta- mót, iyrir fatlaða, fer fram í íþróttahöllinni á Ákureyri um helgina og lýkur á sunnudags- kvöld. Golf Golfklúbbur Grindavíkur heldur Atlantikmót í golfi í dag, laugardag, á Húsatófta- velli. Keila Öskjuhlíðarmót í keilu verð- ur í Öskjuhlíð í kvöld kl. 20. Tunglskinsmót verður einnig í kvöld á sama stað kl. 23. Allir velkomnir. Leiðrétting Lokastaðan í 2. deild karla í hand- knattleik var röng í blaðinu á þriðju- daginn. Völsungur var sagður með þijú stig og ÍBK eitt. Keflvíkingar sigruðu í leik liðanna, en hann fór ekki jafntefli eins og sagt var. Bæði lið luku því úrslitakeppninni með tvö stig. Konur og íþróttir Ráðstefna í Garðalundi, Garðabæ, þriðjudaginn 7. maí kl. 20.30-22.30. Dagskrá: Konur - hreyfing og aldur Jón Ingi Benediktsson, lífeðlisfræðingur. Konur og þjálfun Sólveig Þráinsdóttir, sjúkraþjálfari. Anorexia/Lystarstol - áhættuþættir. Olga L. Garðarsdóttir íþrótta- og félagsfræðingur. Kaffihlé. Konur - íþróttir - mataræði Laufey Steingrímsdóttir, næringarfræðingur. Konur og stjórnunarstörf. Lovísa Einarsdóttir, íþróttakennari. Jafnrétti f íþróttum? Samúel Örn Erlingsson, íþróttafréttamaður. Ráðstefnustjórar: Erla Rafnsdóttir og Unnur Stefánsdóttir. Allt áhugafólk um konur og íþróttir er hvattt til að mæta. Þátttaka ókeypis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.