Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 41
MÖRGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAI 1991 01' ■ 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ,ur It * * Agætastur allra Itala Von er á Cossica, Ítalíuforseta, (forsætisráðherra ítala), hingað til lands og vaknar þá sú spurning hver hafi verið ágætastur þar í landi fyrr og síðar, alira manna. Mörg eru nöfnin sem „meitluðu svip í ásýnd heimsins“, en þó tel ég einn bera af. Það er sá sem uppgötvaði alheiminn. Brúnó skildi fyrstur óendanleik- ann, að til væru aðrar sólir, önnur sólhverfí, tók fram ótal atriði, sem síðar urðu að mælinganiðurstöðum, og var ekki í vafa um að alheimur væri heimkynni lífs en ekki ólífs. Það hefur sannast að Galileó hafði flest það sem mest er um Armband týndist Hvítagullsarmband með steinum týndist sl. sunnudag eða mánu- dag. Velvakandi hefur verið beð- inn að koma því á framfæri, að armband þetta hefur minningar- gildi og tilfínningalegt verðmæti fyrir eigandann. Sá sem kann að hafa fundið armbandið er því beðinn að hafa samband í síma 24398. vert, frá Brúnó, en minntist ekki á það og lá honum það þó fæstir. Goðsögnina um hindina — sem veiðimaðurinn eltir í skóginum og verður sjálfur að bráðinni um leið og hann fellir hana (Jónas Hall- grímsson orti eftir þessu), endur- vakti Brúnó á Vesturlöndum og lifði eftir henni. Meiri maður en Michelangelo og Sesar, djarfari en Garibaldi, betri en allir páfar samanlagðir, vitrari en Cicero, Seneca og Leonardó, var berfætti vitringurinn frá Nóla, sem lagði upp í háskaför um Evrópulönd árið 1576, og lifði allt af nema endurkomuna til fósturjarðar sinnar sautján árum síðar. Þegar þeir jarðarmennimir voru að búa sig undir brennumorðið hræðilega 17.2. 1600, þar sem voru saman komnir helstu höfðingjar Suður-Evrópu, kirkjulegir og ver- aldlegir, þá sagði hann þeim, að gneistaflugið mundi bera sál sína til þeirra veralda, sem skínandi blasa við hvers manns augum. Enn í dag er séð til þess að allur þorri manna nái ekki fram til skiln- ings á þessum einföldu hlutum sem Brúnó uppgötvaði og allir hafa sannir reynst. Nafni hans er útrýmt Borgarstjórn Reykjavíkur: Deilur nm heimaþjón- ustu fyrir aldraða FULLTRÚAR Nýs vettvangs í borgarstjórn Reykjavíkur lögðu á fimmtudaginn fram tillögu um að komið yrði á í borginni heimilishjálp- arþjónustu um kvöld og helgar. Guðrún Zoega, formaður félagsmála- ráðs, lagði til að tillögunni yrði vísað frá, enda væri þegar verið að vinna að þessu máli á vegum ráðsins. Tilefni umræðunnar í borgarstjórn á fínmitudaginn um heimilishjálpar- þjónustuna var fjölmiðlauniræða, sem kom í kjölfar yfirlýsinga tals- manna ríkisspítalanna um þetta efni. Kristín Á. Ólafsdóttir, borgarfulltrúi Nýs vettvangs; taldi að formaður félagsmálaráðs, Guðrún Zoega, hefði í sjónvarpsviðtali gert of lítið úr vanda, sem við væri að glíma í þessu sambandi. Sagði hún að bæði vant- aði fleiri stöðugildi til að sinna þess- ari þjónustu og að vegna launakjara væru mannabreytingar of tíðar. Kristín lagði fram tillögu, þar sem lagt var til að félagsmálaráð kæmi hið fyrsta á heimilishjálparþjónustu um kvöld og helgar og með nýju fyrirkomulagi yrði tekið á kjaramál- um starfsmanna, þannig að auðveld- ara yrði að manna þjónustuna og koma á meiri stöðugleika en nú væri. Guðrún Zoega, formaður félags- málaráðs, mótmælti því að hún hefði fullyrt í fjölmiðlum að heimilishjálp- arþjónustan væri í fullkomnu lagi. Reynt væri að fullnægja óskum um þessa þjónustu en þeim væri ekki alitaf hægt mæta frá degi til dags. Guðrún sagði að af hálfu borgar- yfirvalda væri vilji til að stánda vel að málefnum heimilisþjónustunnar og á síðasta kjörtímabili hefðu átt sér stað breytingar á skipulagi þess- arar starfsemi. Þá hefði verið komið á hverfaskiptingu öldrunarþjón- ustunnar, sem leiddi til þess að auð- veldara væri að átta sig á þörfínni á hveijum tíma en áður. Hún sagði að lokum að tillaga Nýs vettvangs væri óþörf þar sem þessi mál væru þegar í athugun hjá félagsmálaráði og lagði til að henni yrði vísað frá. Frávísunartillagan var samþykkt með 10 atkvæðum sjálfstæðismanna gegn 5 atkvæðum fulltrúa minni- hlutaflokkanna. Umhverfissýning við Hagatorg í Reykjavík 12.-15. júní 1991. Síðustu forvöð að tilkynna þátttöku. Hafið samband við Sigurlín í síma 609560 eða Guðrúnu í síma 45155. Undirbúningsnefnd. nniuo9i úr fræðibókunum og settar blekk- ingar í staðinn. Og ekki aðeins úr nýjum bókum, heldur er nákvæmar að unnið. Hafa menn reynt að fá bækur hans til láns eða lestrar á bókasöfnum? Ef til vill er það einhvers staðar hægt, en ekki víða. Þær „hverfa" og þar er Landsbókasafn íslands ekki und- anskilið. (Hafa menn í svörtum kuflum verið á kreiki?) Þorsteinn Guðjónsson Svissneskur hótel- og ferðamálaskóli 1 árs nám í hótelrekstri. Lýkur með prófskírteini. 2 ára nám íhótelstjórnun. Lýkur með prófskírteini. Námið er viðurkennt af HCIMA. Námið fæst metið í bandarískum og evrópskum há- skólum. 1 árs nám í ferðamálafræði. Lýkur með prófskírteini. HOSTR Námskeið í almennum ferðaskrifstofustörfum. IATA réttindi. 32 ára reynsla SEH réttindi. Skrifið til: HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL, 1854 D Leysin, Switzerland. Sími: 9041-25-342611 - Fax: 9041-25-341821. Þessir hringdu . . Kettlingar Þrír gullfallegir fresskettlingar fást geftns. Upplýsingar í síma 672248. Köttur Ungur fressköttur tapaðist 1. maí. Hann er eyrnamerktur, er með hálsól og gegnir nafninu Alex. Vinsamlegast hringið í síma 39766 ef hann hefur einhvers staðar komið fram. Frakki Svartur síður leðurfrakki hvarf á bar á Hótel íslandi fyrir um það bil einum og hálfum mánuði síð- an. Þetta er mjög sérstakur frakki sem þekkist hvar sem er, leðrið í honum er allt röndótt, matt og glansandi og það eru engar hneppingar á honum. Ef einhver hefur tekið frakkann í misgripum eða veit hvar hann er niður kom- inn vinsamlegast hafið við sam- band við Ástur Dís í síma 30645 eða Hótel ísland. Kettir í óskilum Nokkrir kettir eru í óskilum á Dýraspítalanum í Víðidal: Brún- bröndóttur fress með hvíta bringu og hosur. Fannst við Borgarspítal- ann. Svartur síamsblendingur, fress, snögghærður. Fannst við Nönn- ustíg. Svartur fress með hvít hár í eyr- um. Fannst við Miðtún. Upplýsingar í síma 674020. Frakki Hinn 24. apríl var tekinn frakki í steikhúsinu Argentínu. Um er að ræða grábrúnan herrafrakka, stærð 56. í vasa frakkans voru húslyklar og bíllyklar. Vinsamleg- ast skilið frakkanum í afgreiðslu Argentínu eða hringið í síma 19555. 1 . 9 V KVENNA ATHVARF BORNI OFBELDISHEIMI AD ALAST UPP A HEIMIU ÞAR SEM PABBIHN MISÞYRMIR MÖMMUNNI Mánudaginn 6. maí kl. 20.00 mun danski sálfræðingurinn Else Christensen, sem hér er stödd í boði Samtaka um kvennaathvarf, halda fyrirlestur í Norræna húsinu um reynslu barna sem alast upp á heimilum þar sem móðirin er beitt ofbeldi af eiginmanni sínum eða sambýlismanni. (fyrirlestrinum mun hún með- al annars gera grein fyrir upplifun barnanna, viðbrögðum þeirra og vörnum. í framhaldi af fyrirlestrinum verða umræður. Fundurinn er öllum opinn og eru þeir sem starfa að málefnum barna sérstak- lega hvattir til að mæta. Aðgangseyrir kr. 200,-. Samtök um kvennaathvarf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.