Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 12
p
Í2
MORGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991
Röntgendeild Borg-
arspítalans 2 5 ára
i'yrsta kransæðaþræðingin á dcildinni 20. apríl 1990.
eftir Örn Smára
Arnaldsson
Þann 6. maí 1966 var fyrsti
sjúklingurinn færður til rannsókn-
ar á röntgendeild Borgarspítalans,
en það var fyrsta deildin, sem tók
til starfa í hinum nýja Borgarspít-
ala, sem hafði verið í byggingu frá
árinu 1952, en það ár hafði aðeins
verið tekinn grunnur fyrir fyrsta
byggingaráfanga. Þessi fyrsti
áfangi var síðan steyptur upp frá
miðju ári 1954 til haustins 1960.
Stofndagur spítalans er 28. des-
ember 1967 þegar fyrsti legusjúkl-
ingurinn var fluttur i Borgarspítal-
ann á lyflækningadeild, sem þá var
opnuð. Röntgendeildin var þannig
fyrsta deildin, sem hóf starfsemi í
Borgarspítalanum og eina deildin
er þar var starfrækt næstu 20
mánuði. Ásmundur Brekkan pró^-
essor var fyrsti yfirlæknir röntgen-
deildarinnar og Sigrún Jónatans-
dóttir hjúkrunarfræðingur fyrsti
deildarstjórinn. Undirritaður var
ráðinn fyrsti og eini aðstoðarlækn-
irinn að þessari deild á þessum
vordögum fyrir 25 árum og var
því viðstaddur þennan merkisdag.
Það var ákaflega ánægjulegt fyrir
alla starfsmenn að hefja störf á
þessum vinnustað í nýjum húsa-
kynnum með nýjum röntgentækj-
um á hverri rannsóknarstofu. Á
deildinni áttu að vera 6 rannsókn-
arstofur en aðeins 5 þeirra voru
fullbúnar þegar opnað var en sú
sjötta-komst í gagnið nokkru síðar.
í dag 25 árum síðar eru 11 rann-
sóknarstofur í notkun á deildinni.
Rannsóknarstarfsemin
Fyrstu 8 mánuðina sem deildin
starfaði voru gerðar rúmlega 4.200
rannsóknir, en á næsta ári, 1967,
sem var fyrsta heila árið í starf-
semi deildarinnar voru gerðar tæp-
ar 9.800 rannsóknir. Starfsemi
deildarinnar jókst verulega eftir
því sem fleiri deildir tóku til starfa
í spítalanum, en þó sérstaklega
þegar slysavarðstofan var flutt úr
húsakynnum Heilsuverndarstöðv-
arinnar í Borgarspítalann í maí
1968. Á meðfylgjandi töflu má sjá
fjölda rannsókna á hverju ári og
hlutfallslega aukningu eða fækkun
á milli ára.
Flestar rannsóknir eru gerðar
vegna þeirra er leita til slydsadeild-
ar, u.þ.b. 45%. Röntgenrannsóknir
inniliggjandi sjúklinga eru um 30%
og vegna utanspítalasjúklinga frá
sérfræðingum á stofum, heimilis-
og heilsugæslulæknum og frá öðr-
um stofnunum u.þ.b. 25%.
Framfarir og nýjungar
Miklar framfarir hafa átt sér
stað í myndgreiningu frá þ ví að
deildin tók til starfa. Sumar i-ann-
sóknir sem gerðar voru fyir 25
árum heyra nú sögunni til og veru-
lega hefur dregið úr mörgum öðr-
um rannsóknum um leið og nýjar
rannsóknaraðferðir hafa verið
teknar upp. Stærsta byltingin á
myndgreiningarsviðinu á þessum
árum var uppgötvun tölvusneið-
myndatækisins, sem kom fram á
sjónarsviðið í byrjun 8. áratugarins
og þróaðist mjög hratt á næstu
árum, sem leiddi til þess að minni
og minni meinsemdir var hægt að
greina mun skýrar en nokkru sinni
áður. Fyrsta tölvusneiðmyndatæk-
ið sem kom til landsins var tekið
í notkun á röntgendeild Borg-
arspítalans í október 1981 og var
það tæki notað á deildinni til 1988
þegar nýrra og fullkomnara tæki
leysti það af hólmi. Á árinu 1980
var tekið í notkun myndgerðar-
kerfi, þar sem notuð voru geisla-
virk efni og svokölluð „Gammaka-
mera“ og var tækjabúnaður vegna
þessarar starfsemi endurnýjaður
með fullkomnari tækjabúnaði á
árinu 1989. Á árinu 1984 var enn
bætt við nýrri tækni þegar svokall-
að ómskoðunartæki var keypt.
Stefnt er að því að endurnýja þenn-
an búnað á þessu ári. Með tilkomu
þessara nýju myndgreiningarað-
ferða dró verulega úr æðaþræðing-
Davíð Oddsson borgarstjóri kveikir á nýju tölvusneiðmyndatæki 30. sept. 1988.
Örn Smári Arnaldsson
um, sem var ein aðal sérhæfða
myndgreiningaraðferðin á árunum
á undan. Nýr og fullkominn tækja-
búnaður til æðaþræðinga var
keyptur til deildarinnar og settur
upp á árinu 1989 og var þá hægt
að framkvæma slíkar rannsóknir
á deildinni að nýju frá miðjum
desember eftir nokkurra mánaða
hlé. Kransæðaþræðingar hófust
20. apríl 1990. Þær eru nú algeng-
ustu æðarannsóknirnar og veru-
legur biðtími var orðinn eftir
slíkum rannsóknum í landinu. Allar
þessar nýjungar hafa leitt til skjót-
ari og nákvæmari sjúkdómsgrein-
ingar, sem hafa gert meðferð
markvissari, mögulega fyrr en ella
og fækkað mjög mikið legudögum
vegna hinnu ýmsu sjúkdóma og
slysa. Þessar nýju rannsóknarað-
ferðir eru auðveldari fyrir sjúkl-
inga, valda minni sársauka og öðr-
um óþægindum, sem oft voru óhjá-
kvæmilegar áður. Sparnaður sem
náðst hefur vegna þessara nýju
tækniframfara er ómældur.
Fjárveitingarvandi
Röntgendeild Borgarspítalans
var búin nýjum röntgentækjum í
nýjum húsakynnum fyrir aldar-
fjórðungi og sinnti vel hlutverki
sínu næstu árin.
Fljótlega kom að því að end-
urnýja þurfti tækjabúnaðinn sök-
um aldurs og slits og bæta við
nýjum rannsóknartækjum vegna
nýrra myndgreiningaraðferða.
Röntgentæki hafa verið talin dýr
og afskriftir hafa aldrei verið
reiknaðar í rekstrarkostnaði
sjúkrahúsa. Ætíð hefur reynst erf-
itt að fá eðlilegar fjárveitingar til
endurnýjunar á eldri tækjabúnaði
og til kaupa á nýjum myndgrein-
ingartækjum og hefur röntgen-
deild Borgarspítalans óneitanlega
liðið fyrir þetta ár eftir ár. Hús-
næði röntgendeildarinnar sem svo
margra annarra deilda í Borg-
arspítalanum varð fljótt of lítið og
óhagkvæmt. Þegar á fyrri hluta
8. áratugarins voru uppi áætlanir
um nýbyggingu svokallaðrar þjón-
ustuálmu, sem m.a. átti að hýsa
nýja röntgendeild. Þörfin á slíkri
ISLANDSKEPPNIN í hárgreiðslu og hárskurði
Breiðvangi 5. maí.
Keppnin hefst kl. 10.00 — Komið og fylgist með spennandi keppni.
Glæsilegur viðhafnarkvöldverður (Gala dinner) hefst kl. 20.00.
Fjölbreytt skemmtiatriði — Allir velkomnir — Borðapantanir í síma 77500.
Siðumúla 17,-Rvk.
Sími 91-687166.
KEUNE^
HAIRCOSMETCS
KENT
THE WORLDS FINEST BRUSH MAKER
M.G.C
INTERNATIONAL
La Perle SHHM
UT^IC L>JOV