Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 44
Flugleiðir: Tilboð opn- uð vegna elds- —nejdiskaupa OLÍUFÉLÖGIN þrjú gerðu öll til- boð í sölu eldsneytis til Flugleiða vegna innanlandsflugsins og tvö þeirra vegna flugs til Evrópu. Til- boðin voru opnuð á fimmtudaginn en ekki er enn ljóst hver fær samn- inginn. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði að hér væri um að ræða 350 milljóna króna samning á ári, en tilboð hefðu verið gerð í sölu á öllu eldsneyti tíl félagsins vegna innanlandsflugsins og vegna flugs til Evrópu, sem er um 40% þess elds- neytis sem notað er í millilandaflug félagsins. Ameríkuflugið er ekki inni __j.myndinni því Flugleiðir flytja sjálf- ír inn nokkurt eldsneyti sem þeir nota á þeirri leið. „Skeljungur hefur verið með þessa þjónustu til fjölda ára en í fyrra var samningurinn framlengdur til níu mánaða og rennur hann út um næstu mánaðaiífiót. Það buðu öll olíufélögin í olíuafgreiðslu á Keflavíkui’velli vegna Evrópuflugsins, en Olís og Skeljungur buðu í afgreiðsluna á Reykjavíkurflugvelli," sagði Einar. Hann sagði að þetta væri gert til að reyna að fá hagstæðara verð á —áfldsneyti og afgreiðslugjöldum. Isafjörður: Japanir vilja kauparauð- magasvil Hugsanlega nýr markaður fyrir hrognkelsi UNNIÐ hefur verið við undir- búning á vinnslu grásleppu- hrogna fyrir Japansmarkað undir stjórn Kristjáns Jóakims- sonar sjávarútvegsfræðings hjá Norðurtanganum hf. á ísafirði. Síðastliðið sumar fór prufu- sending til Japans og líkaði hún svo vel að nú eru tveir Japanir komnir til Isafjarðar til rann- sókna á hrognkelsum og hugs- anlega skelfisktegundum sem hingað til hafa ekki verið nýtt- ar. Að sögn Kristjáns tókst að vinna grásleppuhrognin í höndum í fyrra þannig að þau uppfylltu kröfur, en slíkt er alltof dýrt. Nú " unnið að hönnun vélbúnaðar til verksins. En Japanirnir eru ekki eingöngu hér til að skoða vinnslu á hrogn- um. Þeir telja víst margir þarna eystra að svil auki kyngetu manna og á nú að kanna hvort rauðmaga- svil séu ekki hinn eini sanni elexír. Þá hafa Japanir lýst áhuga sínum á að kaupa bolinn, bæði af grá- sleppunni og rauðmaganum, og yrði þá um nýja útflutningsafurð að ræða. Sigurður Finnbogason kom úr "^yrsta hrognkelsaróðrinum á fimmtudag með um 100 kg af hrognum og nokkra rauðmaga. Japönsku fulltrúárnir hafa síðan verið í matreiðslu á þessum afurð- um. Síðan er áformað að fara í leiðangur um Isafjarðardjúp með köfurunum Kjartani Haukssyni og - -Gissuri Skarphéðinssyni og kanna ígulker, beitukóng og triónu- krabba. _ Úlfar LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Morgunblaðið/Róbert Schmidt Verðandi rækjusjómenn Strákarnir eru farnir að safnast saman niður á bryggju á Bíldudal til verðandi rækjusjómenn, voru vel hressir að veiðum um borð í Drif- að veiða marhnút og ufsaseiði. Þeir eru óhræddir við að fara um borð felli þegar fréttaritari Morgunblaðsins kannaði mannlífið við höfnina í rækjubátana til að fá betri veiðistaði. Þessir strákar, hugsanlega í vikunni. Verð á svartolíu og gasolíu lækkar: Útgjaldalækkun útgerðarmnar nemur um 300 milljónum á ári Laun sjómanna hækka um 1,4% vegna breytinga á hlutaskiptum VERÐLAGSRÁÐ ákvað í gær lækkun á verði svartolíu um 16,1% og á verði gasolíu um 12,6% og er olíuverðið nú að lækka aftur í kjölfar þeirrar hækkunar, sem varð vegna Persaflóastyrjaldarinnar. Krist- ján Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Landssambands íslenskra útgerðarmanna, segir að þessar breytingar á olíuverði hafi í för með sér um 400 miiljóna króna lækkun útgjalda fyrir útgerðina á ári. Þar af renni um 100 millj- ónir til sjómanna vegna breyt- inga á hlutaskiptum þannig að útgjaldalækkunin sé nettó um 300 milljónir. Verðlagsráð sam- þykkti jafnframt á fundi sínum í gær hækkun á verði sements og á farmgjöldum skipafélaga. Verð á tonni af svartolíu var á fundi verðlagsráðs í gær ákveðið 11.750 kr., úr 14.000 kr., oger það lækkun um 16,1%. Verð á gasolíu- lítranum var jafnframt lækkað um 12,6%, eða úr 24,60 kr. í 21,50 kr. Ekki voru gerðar neinar breytingar á bensínverðinu. Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri LÍU, sagði í samtáli við Morgunblaðið í gær, að olíu- verðslækkunin hafi í för með sér sem svarar um 400 milljóna króna lækkun kostnaðar á ári. Þar af renni um 100 milljónir til sjómanna vegna breytinga á hlutaskiptum, þannig að kostnaðarlækkunin verði um 300 milljónir nettó. Breytingin á hluta- skiptunum hafi í för með sér um 1,4% launahækkun til sjómanna. Kristján segir, að þessi olíuverðs- lækkun sé mun minni en ella vegna gengisþróunar Bandaríkjadals og þrátt fyrir þessa lækkun sé útgerð- in enn að kaupa olíu á mun hærra verði en svari til markaðsverðs er- lendis. Verðlagsráð samþykkti einnig á fundi sínum í gær beiðni um 7% hækkun á sementsverði og er þar um að ræða hækkun, sem gert var ráð fyrir í fjárlögum. Þá var sam- þykkt að leyfa 4% hækkun á farm- gjöldum skipafélaganna, en þau höfðu hins vegar sótt um 6% hækk- un vegna kostnaðarhækkana innan- lands. Svava Haraldsdóttir kjörín Ungfrú Island SVAVA Haraldsdóttir, átján ára Reykvíkingur, var kjörin feg- urðardrottning íslands á Hótel íslandi í gærkvöldi. Hún var valin úr hópi átján stúlkna sem komust í lokakeppnina. Svava er nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð, dóttir Haraldar Skarphéðinssonar og Hafrúnar Albertsdóttur. Svava var kjörin Fegurðardrottning Reykjavíkur fyrr í vetur. Í öðru sæti varð Sigún Eva Kristinsdóttir, nítján ára úr Innri-Njarðvík. í þriðja sæti varð Sólveig Kristjánsdóttir, nítján ára Hafnfirðingur. Besta ljósmyndafyrirsætan var kjörin Telma Birgisdótir, átj- án ára Keflvíkingur. Hún varð í fjórða sæti í keppninni. Vinsæl- asta stúlkan var kosin Selma Stefánsdóttir, nítján ára Isfirð- ingur. Fegurðardrottning íslands mun væntanlega taka þátt í Svava Haraldsdóttir. keppninni Ungfrú Heimur í London síðar á árinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.