Morgunblaðið - 04.05.1991, Síða 7
MORGUNBLAÖIÐ LÁÚGÁRDAGUR '4. MAÍ 1991’
7.
Listahátíð í Hafnarfirði:
Alþjóðleg vinnustofa
myndhöggvara í Straumi
EIGENDASKIPTI urðu á
veitingastaðnum Naustinu 1.
maí síðastliðinn. Tvenn hjón,
Hafsteinn Egilsson og María
Hilmarsdóttir og Hörður Sig-
urjónsson og Itannveig Ingv-
arsdóttir, keyptu staðinn af
hjónunum Sveini Hjörleifs-
syni og Kristjönu Geirsdótt-
ur.
Hörður og Hafsteinn eru
þekktir veitingamenn. Hörður
hefur starfað sem veitingastjóri
á Hótel Sögu en Hafsteinn sem-
stoðarhótelstjóri á Hótel ís-
landi.
Sveinn og Kristjana eiga
áfram og reka Naustkrána í
kjallara Naustsins.
NOKKRIR Hafnfirðingar hafa
tekið sig saman um að efna til
lista- og menningarhátíðar í
Hafnarfirði í samvinnu við Hafn-
arfjarðarbæ og Listamiðstöðina
í Straumi í júní. Hátíðin, sem ber
yfirskriftina „Listahátíð í Hafn-
arfirði 1991“, er tvíþætt. Annars
vegar er um að ræða alþjóðlega
vinnustofu 15 myndhöggvara frá
ýmsum löndum í Straumi 1. til
14. júní og hins vegar sýningar,
tónleika, fyrirlestra og fleira.
Meðal tónlistarfólks sem kemur
fram á hátíðinni eru Sigrún Eð-
valdsdóttir, Gunnar Gunnars-
son,Ármann Helgason, Bubbi
Mortens (með nýstofnaðri hljóm-
sveit), Todmobile, Risaeðlan,
Thunder og Slaughter.
í stuttu samtali við Þorgeir Ólafs-
son, einn af aðstandendum htðar-
innar, kom fram að myndhöggvar-
arnir munu búa til eitt verk hver á
meðan á hátíðinni stendur. í lok
hátíðarinnar munu þeir svo afhenda
Hafnaríjarðarbæ verkin en í framt-
íðinni munu þau mynda kjarna í
Höggmyndagarði Hafnafjarðar sem
verður við Víðistaðakirkju. Er hér
um að ræða fyrsta höggmynda-
garðinn á íslandi sem ekki er í
tengslum við listamannasöfn. Áætl-
aður kostnaður við hvert verk er
um 300 þúsund íslenskar krónur
og sagði Þorgeir að unnið væri að
því að afla fjármagns hjá menning-
arstofnunum í heimalöndum lista-
mannanna 15 sem eru frá Finn-
landi, Frakklandi, Japan, Norcgi,
Mexíkó, Svíþjóð, Sviss, Bandaríkj-
unum, Þýskalandi og íslandi. ís-
lendingarnir eru Kristján Guð-
mundsson, Brynhildur Þorgeirs-
dóttir og Magnús Kjartansson. Af
erlendu listamönnumum má nefna
Sebastian frá Mexíkó og Jurg Alt-
herr frá Sviss.
Listahátíðin í Hafnarfirði hefst
1. júní með opnun vinnustofunnar
í Straumnesi. 9. júní verður Kiýn-
ingarmessan flutt í Hafnarborg.
Einsöngvarar verða Sigríður
Gröndal, sópran, Guðný Árnardótt-
ir, mezzósópran, Þorgeir Andrés-
son, tenór, og Ragnar Davíðsson, j
baríton. 13. júní verða fyrirlestrar
og kynningar á listamönnum í
Hafnarborg en 15. júni hefst Lista-
hátíðin formlega með opnun mynd-
listarýningar í og við Hafnarborg.
Daginn eftir verður sónötukvöld í
Hafnarborg þar sem fram koma
Ármann Helgason, klarinett, David
Knowles, píanó, Guðrún Guð-
mundsdóttir, píanó, Gunnar Gunn-
arsson, þverflauta, og Martin Frew-
er, fiðla, en sama kvöld verða popp-
tónleikar á vegum Smekkleysu í
Eigenda-
skiptiá
Naustinu
INGÓLFS KYNNIR
LISTA, ÓPERU OG SÆLKERAFERÐ - ÞAÐ BEZTA Á ÍTALÍU
TÖFRAR ITALÍU
2ja vikna listskoðun og lífsnautn í fegurstu héruðum og borgum Ítalíu. Brottför 23. ágúst.
Kaplakrika. Meðal þeirra sem koma
fram eru sveitirnar Todmobile,
Risaeðlan, Bubbi Mortens með ný-
stofnaðri hljómsveit, Quireboys,
Thunder, Poison, Slaughter og
GCD. 23. júni verður Óperusmiðjan
með dagskrá í Hafnarborg og Sigr-
ún Eðvaldsdóttir og Selma Guð-
mundsdóttir halda tónleika á sama
stað 30. júní. 13. júlí vígja lista-
menn Höggmyndagarðinn með
uppákomu.
Frá 3. júní er Straumur opinn
almenningi milli 17:00 og 22:00.
Undirbúningsnefnd Menningardag-
anna í Hafnarfirði skipa Sverrir
Ólafsson, formaður, Þorgeir Ólafs-
son, ritari, Eiríkur Óskarsson, og
Gunnar Gunnarsson. Stefnt er að
því að halda Listahátíð í Hafnar-
firði annað hvert ár en að sögn
Þorgeirs Ólafssonar er reiknað með
að áhersla verði á mismunandi list-
greinar á hátíðunum.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Listahátíð í Hafnarfirði kynnt. F. v.: Árni Ibsen, Þorgeir Ólafsson,
Guðmundur Jónsson, Eiríkur Óskarsson, Sverrir Ólafsson, Gunnar
Gunnarsson og Hafsteinn Ólafsson.
FERÐAMATI: Flug til MILANO og til baka frá Róm.
Akstur um Ítalíu í glæsilegustu gerð farþegavagna.
GISTIIUG: Alls staðar á 4-5 stjörnu hótelum, sérvöldum
með tilliti til gæða og staðsetningar.
Hlaðborðsmorgunverður.
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR:
1. MILANO, m.a. LA SCALA óperan, Dómkirkjan, BRARI
safnið og Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci
í Santa Maria delle Grazie.
2. VERONA, hin heillandi miðaldaborg Rómeós og Júlíu
og óperan TURANDOT í ARENUNNI með frægustu
söngvurum heimsins. Gist á splunkunýju glæsihóteli,
LEON D'ORO.
3. GARDAVATNIÐ með töfrandi fegurð og bæjunum
SIRMIONE, BARDOLINO, GARDA, TORBOLE, RIVA.
Siglt á vatninu.
4. Listir og líf í FENEYJUM. Þar sem gist verður á HOTEL
LUNA við CANAL GRANDE, rétt við MARKÚSARTORG
til að upplifa töfra borgar hertoganna á nóttu sem degi.
5. ítalska hjartað - listaborgin FLÓRENS, þar sem gist er
3 nætur á BERNINI PALACE, mitt í heimslistinni til að
sjá með eigin augum snilld endurreisnarinnar, mestu
listfjársjóði veraldar í söfnunum UFFIZI og PITTI.
6. PISA, SIENA OG ASSISI, borgirnar, sem eru sjálfar
eins og undurfagurt safn aftan úr öldum, ótrúlegri en
orð fá lýst. Gist á PERUGIA PLAZA.
7. RÓM, borgin eilífa, fyrrum miðpunktur heimsins, hefur
engu tapað af þeim segulmagnaða krafti, sem dregið
hefur að ferðamenn fá öllum heimshornum í 2000 ár.
Gist 4 nætur á REGINA BAGLIONE hótelinu við sjálfa
VIA VENETO.
Ef listir, saga og fegurð höfða til þín, er þetta ferð sem
þú mátt ekki missa af. Allur viðurgerningur, matur og vín
eins og bezt gerist í gósenlandi sælkera.
EIMDURTEKIN, ENDURBÆTT FRÁ í FYRRA.
Aðrar ferðir
HEIMSKLÚBBSINS
í ár eru uppseldar.
REYNSLA FARÞEGA:
„Við hjónin höfum verið tvisvar á Italíu áður, en okkur opnað-
ist nýr heimur í Lista- og óperuferðinni, slíkur unaður var hún
og samfelld veizla, sem við vildum gjarnan endurtaka. Þetta
þökkum við fyrst og fremst skipulagi og fararstjórn Ingólfs
Guðbrandssonar, sem við teljum alveg í sérflokki. Ef fólk vill
kynnast fegurð Ítalíu, þá er þetta ferðin. Beztu kveðjur.“
EDDA GÍSLADÓTTIR LAXDAL
Athygli er vakin á að hámarksfjöldi þátttakenda í þessari ferð er 40.
"fERÐAKYNNING:
Ingótfur Guðbrandsson kynmr
I ferðina í máli ocj myndum i ARbAL
lferÖHÓTELSÖGUámorgun,
sunnudag 5. mai ki.16.
As^o^n.irÓkeVPIS-
AUSTURSTRÆTI17, SIMI: (91)622011 & 622200
HEIMSKLUBBUR
Skipulag og fararstjórn:
Ingólfur Guðbrandsson