Morgunblaðið - 04.05.1991, Síða 9
MQPGUNBLAPIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991
9
GEFÐU DOS TIL HJALPAR!
Á laugardögum söfnum viö einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum.
S
ÞJOÐÞRIF
BANDALM ISUNSWU SKll*
<5^
UN0SS*MB*N0
HJlLPMS.EIT*
SKÁT*
Dósakúlur um allan bæ.
TIL SÖLU
Mercedes Benz 280 GE jeppi árgerð 1986.
Nánari upplýsingar gefur Stefán
hjá Rœsi hf í síma 619550.
Afmœlistilboð
VIÐ ERUM 5 ÁRA
í tilefni af 5 ára afmæli X & Z bjóðum við
25% afmælisafslátt næstu daga.
Verslunin hefur á boðstólum barnafatnað
í stærðum 0 -14 ára og byggir eingöngu á
eigin merkjum sem ma. eru: Pony, Königsmuhle,
Overdress, John Sl.im, Balotta, Steilmann,
Bopy, Caddy, Sonni o.fl.
Barnaskór — Barnaföt
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
X & z
BARNAFATAVERSLUN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6B. SÍMI 621682
Bölv og ragn og
sleikibrjóstsykurinn
Ráðherrasósíalistar Alþýðubandalagsins
geta ekki á heilum sér tekið vegna miss-
is ráðherrastólanna. Reiði þeirra hefur
fyrst og fremst beinzt gegn Alþýðuflokkn-
um, sem þeir telja hafa svikið breiðfylk-
ingu jafnaðarmanna og vinstrimanna
með því að endurnýja ekki ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar eftir kosn-
Upphlaup
Það fer ekkert milli
mála, að þeir félagar
Ólafur Ragnar og Svavar
Gestsson munu reyna að
veikja nýju viðreisnar-
stjómina með upphlaup-
um innan Alþýðuflokks-
ins. Þeir hafa þegar lýst
því yfir, að þeir séu for-
ingjar breiðfylkingar um
samciningu allra jafnað-
armanna í einum, stómm
flokki. Stjómarsamvinna
Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks hafi dæmt
kralana úr leik. I augum
þeirra Ólafs Ragnars og
fclaga á það að vera hlut-
verk Alþýðuflokksins að
tryggja þeim setu í
Stjómarráðinu — alveg
sama hvað þjóðin segir í
kosningum.
Út í hörgul
Alit frá því kommún-
istar klufu flokk jafnað-
armmma á íslandi löngu
fyrir síðari heimsstyijöld
hafa þeir talið það hlut-
verk sitt að lialda klofn-
ingsiðjuimi áfram til að
voikja Alþýðuflokkinn og
hefur orðið vel ágengt í
gegn um tiðina. Komm-
únistar hafa iýst Alþýðu-
flokknum sem stéttar-
fjanda, hækju íhaldsins
og flokki iandsöiumanna.
Nu á að endurnýja þessar
árásir af fullum krafti.
En það hefur mikið
vatn runnið til sjávar.
Kratarnir þekkja út í
hörgul þessi viimubrögð
og ekki sizt Ólafs Ragn-
ars. Þeir mmiu því svara
fyrir sig fullum hálsi.
Kratamir em reyndar
þegar byijaðir á því. I
gær 001181 grein í Al-
þýðublaðinu eftir Guð-
inund Einarsson, aðstoð-
armann iðnaðarráð-
herra, þar sem hann
svarar Alþýðubandalag-
inu og formaimi þess full-
um hálsi.
Geðshræring
Grein siiia nefnir Guð-
ingar.
mundur „Ölafur Bölvar
og Ragnar" og fer hún
hér á eftir:
- „Geðshræringar Ólafs
Ragnars em ótrúlegar
þessa dagana. Arásir
hans á Alþýðuflokkiim
em allar á tilfinninga-
legu nótunum og haim
brigslar bæði flokki og
mönnum um svik. Af tali
hans mætti ráða að hann
hafi sjálfur sýnt sérstaka
viðleitni allan tímann til
að draga saman Alþýðu-
bandalag og Alþýðu-
flokk, enda virðist liann
telja sjálfan sig prókúm-
hafa fyrir jafnaðar-
meimsku á íslandi.
En hefur Ólafur Ragn-
ar Grímsson alltaf talað
vel um Alþýðuflokkinn?
í fréttum Ríkisútvarpsins
þann 13. febniar sl. var
lýsing á fundi sem ráð-
herrar Alþýðubandalags-
ins áttu með sínu fólki í
Reykjavík kvöldið áður.
„Og Alþýðuflokkurinn
fékk það óþvegið frá
formanni Alþýðubanda-
lagsins," sagði frétta-
maður og rakti nokkur
dæmi u m ofsafengnar
árásir Ólafs á Alþýðu-
flokkinn.
Rammasta
afturhald
Það var ekki talað á
neinum þeim nótum að
hann teldi að þessir
flokkar ættu að eiga sér-
staka samleið í íslensku
sanifélagi.
Flokkamir eiga það
heldur ekki. Alþýðu-
bandalagið er ekki jafn-
aðannannaflokkur, og
hefur aldrei verið það.
Flokkurinn er merkis-
beri rammasta aftnr-
halds.
Þetta er flokkurinn
sem vai- andvígur inn-
göngunni í EFTA og taldi
að útlendingar og
straumar fjármagns og
ósóma myndu flæða yfir
landið.
Þetta er flokkurinn
sem var andvígur og hef-
ur alla tíð verið andvígur
álbræðslu á Islandi.
Þetta er flokkurinn
sem hefur þvælst fyrir
öllu sem til framfara var
borið á borð í tíð fyrrver-
andi ríkisstjómar.
Alþýðubandalagið
reyndi að þvælast fyrir
því að íslendingar fengju
að umgangast gjaldeyri
eins og annað fólk.
Alþýðubandalagið
reyndi að þvælast fyrir
því að Atlantsálssanm-
bigar yrðu gerðir.
Alþýðubandalagið hef-
ur reynt að þvælast fyrir
og tortryggja samninga
íslendinga og annarra
EFTA-rikja við Evrópu-
bandalagslöndin.
Atlaga
Þannig er Alþýðu-
bandalagið. En þairnig
er ekki nútímajafiiaðar-
stefna. Og að lokum
þetta: Síðasta ríkisstjórn
gerði ýmislegt mjög mik-
ilvægt til þess að búa í
haginn fyrir ujipbygg-
ingu betri lífskjara á Is-
landi. Umgangur Ólafs
Ragnars Grímssonar um
ríkissjóð síðustu vikur og
mánuði valdatíma haus
er hins vegar atlaga að
því að hægt verði að
halda þeim hlutum
áfram.
Sleikibrjóst-
sykur
Nú em að koma upp á
yfirborðið tölur um það
hvemig Ólafur Ragnar í
raun og vem hélt á ríkis-
fjármálunum undir lokin.
Goðsögnin sem hann hef-
ur reynt að búa til um
sjálfan sig sem hinn að-
haldssama fjármálaráð-
herra er að hiynja.
Kaimski er það ein
ástæðan fyrir því að
haim er nú eins og ung-
bam sem misst hefur
sleikibij óstsy kurúin
siim.“
Mikil hækkun á erlendum verðbréfum
35% hækkun á 4 mánuðum
KRÓNUR
1
140.000 s É
120.000 /
100.000 / '
80.000 / 100.000 kr.
60.000 /
40.000 /
20.000 /
r\ / Á á /
27. DESEMBER 23. APRÍL
Ef þú keyptir verðbréf í Skandifond North America sjóðnum um síðastliðin áramót
fyrir 100.000 kr. áttu 135.200 kr. í dag. Verðbréfin hafa því hækkað um 35% á 4 mánuðum.
Raunávöxtun miðað við heilt ár er 132,69%.
Q2>
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
HAFNARSTRÆTI 7, 101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566 KRINGLUNNI, 103 REYKJAVIK S. (91) 689700 • RÁÐHÚSTORGI 3,600 AKUREYRl S. (96) 11100