Morgunblaðið - 04.05.1991, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAI 1991
„Leviterat“ vatn
- orkubættvatn
eftir Guðna Rúnar
Agnarsson
Það er ekki langt síðan ég'heyrði
í fyrsta sinn minnst á „leviterat"
vatn. Sá sem kynnti mig fyrirbær-
inu var danskur félagi minn, einn
af þessum lágvöxnu og þybbnu
Dönum sem tala í sífellu.' Illskiljan-
legur, en kann skil á öllu milli him-
ins og jarðar.
„Leviterat“ vatn var það síðasta
nýtt — „þyngdarlaust" vatn. For-
vitni mín var vakin. Ég komst þó
ekki að til að spyija nánar. Minn
danski félagi var svo uppfullur og
óðamála að ég fékk þar að auki
eins konar tunguhaft. I sömu andrá
talaði hann um orkubætt drykkjar-
vatn og austurlenska meistara sem
hafa yfirunnið kraft þyngdarlög-
málsins og fljúga frjálsir ferða
sinna.
Nú hefur myndin skýrst; ofsinn
í mínum danska félaga hefur lagt
sig, samtímis því sem mér hefur
gefist tóm til að kynna mér fyrir-
bærið með eigin hraða. Og vissu-
lega er niðurstaðan athyglisverð:
ekki aðeins fyrir þá sem hneigjast
að því dularfulla og torskilda, eða
aukinni heilsumeðvitund („eilífu
lífí?“), heldur einnig, og kannski
ekki sízt, fyrir raunvísindamanninn
sem leitar svaranna í efninu.
Upphafsmaðurinn að „leviter-
uðu“ vatni er Þjóðveijinn Wilfried
Hacheney, verkfræðingur og eðlis-
fræðingur. Hann hefur undanfarin
fimmtán ár unnið að mjög ítarleg-
um rannsóknum á vatni, eiginleik-
um þess og ólíkri formbyggingu.
Afleiðingin af þessum rannsóknum
er „leviterat" vatn, eða orkubætt
vatn (energized water) eins og það
kallast vestan hafs; upprunalega
venjulegt vatn sem hefur farið í
gegnum vél, hannaða af Hacheney,
sem dreifir vatninu í mun smærri
einingar; breytir formi vatnsins og
hleður það orku.
Hugtakið „levitation“ (andstæð-
an við gravitation; þyngdarafl) gef-
ur í skyn eins konar „afnám“
þyngdarkraftsins. „Leviterat“ vatn
hefur öðlast þetta heiti þar sem það
hefur svipaða eiginleika og það
vatn sem er að finna í 80 kílómetra
fjarlægð frá yfirborði jarðar.
Venjulegt vatn hefur dropalaga
form og er stærð dropanna um 200
míkrón, sem samsvarar því að yfir-
borðsflatarmál eins rúmmetra vatns
er 26 þúsund fermetrar (þ.e.a.s.
samanlagt flatarmál allra drop-
anna). „Leviterat" vatn hefur kúlu-
laga form og er stærð hverrar kúlu
10 míkrón í þvermál, sem samsvar-
ar að flatarmáli eins rúmmetra af
„leviteruðu" vatni er 320 þúsund
fermetrar. Þetta kúlulaga form hef-
ur í för með sér allt aðra eiginleika
vatnsins. „Leviterat" vatn hefur
fengið aukið flatarmál, aukinn sog-
kraft, sem gerir það að verkum að
það bindur sig mun sterkar við
önnur efni en venjulegt vatn.
Bakgrunnur
Árið 1974 hóf Hacheney rann-
sóknarverkefni, ásamt nokkrum
öðrum vísindamönnum, með það
markmið að finna nýjar leiðir hvern-
ig auka mætti styrkleika og ending-
arþol steinsteypu. Hacheney áleit
að svarið væri að finna í vatninu
sem notað væri. Vatn hefur sterka
viðloðunareiginleika, eins og sést
glögglega á því að vatnsdropi getur
„haldið sér föstum“ við gluggarúðu
þrátt fyrir þyngdarkraftinn. Hac-
heney rannsakaði form vatnsins og
komst fljótlega að því að vatn sem
slíkt er eiginlega ekki til. HO tákn-
ar aðeins efnafræðilega samsetn-
ingu, en það eru nánast óendanlega
margir möguleikar hvemig þessar
vatnssameindir raða sér í það sem
við almennt köllum vatn.
Hacheney hefur stuðst við rann-
Vélin sem framleiðir „leviterat"
eða orkubætt vatn.
sóknir fjölmargra annarra vísinda-
manna, þar á meðal bandaríska
nóbelsverðlaunahafans Luis Paul-
ing. Pauling sótti vatn með sérstök-
um tækjum 80 kílómetra upp í and-
rúmsloftið. Hann grunaði að vatnið
þarna uppi hefði annað og uppruna-
legra form en það vatn sem við
þekkjum niðri á jörðinni, að það
væri nær sínu sameindaformi þar
sem vatnið væri dreift í miklu fínni
og smærri einingar. Og hann hafði
rétt fyrir sér: Pauling komst að því
að þrátt fyrir 108 stiga frost sem
ríkir þarna uppi þá fraus vatnið
ekki. Það gerðist fyrst við mínus
200 stig. Þetta vatn hafði allt ann-
að form en venjulegt vatn. Formlög-
un vatnsins var „hyperbolísk“
(þ.e.a.s. án horna), og hafði að
geyma í sér mikla orku. Þegar þetta
vatn kemur til jarðar gefur það frá
sér þessa samansöfnuðu orku og
tekur á sig ennþá nýtt form. Þessa
geymdu orku kallaði Pauling fyrir
„ Vatnið sem kom út úr
þessari vél kallaði hann
„leviterat“ vatn, þar
sem vélin gaf vatninu
aukinn sogkraft sem er
svo að segja andstæður
póll þyngdarkraftsins.
Vatnið er komið í svo
smáar einingar að þessi
tilkomna orka staldrar
við í vatninu — óskert
í 2-3 vikur.“
„kosmískan" kraft.
Út frá þessum niðurstöðum Luis
Paulings hefur Hacheney unnið að
því að gera það tæknilega mögulegt
að koma venjulegu vatni í það form
sem vatn hefur þarna 80 kílómetra.
uppi í andrúmsloftinu. Honum tókst
að gera vél sem líkir eftir því „kos-
míska“ ferli sem vatnið fer í gegn-
um. Vatnið sem kom út úr þessari
vél kallaði hann „leviterat" vatn,
þar sem vélin gaf vatninu aukinn
sogkraft sem er svo að segja and-
stæður póll þyngdarkraftsins. Vat-
nið er komið í svo smáar einingar
að þessi tilkomna orka staldrar við
í vatninu — óskert í 2-3 vikur.
Með því að nota vatn sem var
meðhöndlað á þennan hátt gat
Hachney framleitt steinsteypu sem
var minnst tvisvar sinnum sterkari
og endingarbetri en venjuieg stein-
steypa. Óháðar rannsóknarstofnan-
ir á sviði byggingariðnaðarins stað-
festa þessar niðurstöður. Sem þátt-
ur í þessu óháða rannsóknarstarfi
var hluti frárennsliskerfisins í Ham-
borg lagður með rörum steyptum
með „leviteruðu“ vatni. Þar þykir
árangurinn nú þegat' lofa mjög
góðu.
En „levitrat“ vatn hentar ekki
aðeins til framleiðslu steinsteypu.
Fyrst og fremst er það drykkjar-
vatn og hentar alls staðar þar sem
vatns er þörf; í matlagningu, við
brauðbakstur (það eru nú þegar
nokkur bakarí í Þýzkalandi sem
nota vatnið), við lyljaframleiðslu,
grænmetisræktun o.s.frv. Kostirnir
við notkun vatnsins þykja augljósir
- í mörgum tilvikum ótrúlegir.
Lýsing á vélinni
Vélin rúmar 35 lítra í einu og
getur á einum tíma umbreytt
250-400 lítrum vatns í „leviterat"
vatn. Vélin er búin til úr hágæða-
stáli.
Ytri mál: Flatarmál: 0,65 1,65
m. Hæsta hæð: 1,65 m. Þyngd: 380
kg. Á framleiðslustigi er ný vél sem
rúmar 1200 lítra.
Vélin er hönnuð sem „hyperból-
ískur“ sívalningur. í miðju hennar
er eins konar trekt og undir honum
er öxull sem snýst 6 þúsund snún-
inga á mínútu. Þessi mikli hraði
ásamt innra og ytra formi vélarinn-
ar orsakar reglubundnar stefnu-
breytingar; vatnið verður ýmist fyr-
ir miðflóttar eða miðsóknarkröft-
um. Út kemur „leviterat“ vatn.
Hacheney hefur margoft verið
spurður hvort vatn þoli svona kröft-
uga meðferð. Hann segist ekki vita
annað en það sem hann sjái; vatnið
hefur mælanlega kosti framyfir
venjulegt vatn. „Ég hef aðeins gert
það tæknilega kleift að framleiða
svona vatn,“ segir Hacheney, „geti
einhver annar komið fram með aðra
aðferð sem ekki virkar jafn ofsa-
fengin, þá er það vel.“ í dag er um
70 svona vélar í notkun, flestar í
Þýzkalandi. Verð einnar slíkrar vél-
ar er 38.800 þýzk mörk.
Hafi einhver áhuga á að kynna
sér nánar þessa aðferð þá er full-
trúi á Norðurlöndum Erik Nielsen,
Dragebjerggárd, 3300 Fredriks-
værk, Danmörku.
Höfundur er búsettur í Svíþjóð.
Þurfum að auka að-
stoð við bágstödd ríki
eftir Guðm und
Eiríksson
Hinn 12. maí nk. gengst Rauði
kross íslands fyrir söfnun um allt
land undir kjörorðinu Sól úr sorta.
Þessi söfnun er iiður í alheimsátaki
til hjálpar stríðshrjáðum, sem Rauði
krossinn í yfir 100 löndum lýsti
yfir hinn 28. janúar í ár.
Rauði kross íslands hefur ákveð-
in takmörk í huga með söfnuninni.
Annars vegar stuðningur við það
ógæfusama fólk, sem misst hefur
útlimi, fót eða handlegg, í stríðinu
við Afg'anistan og hins vegar land-
flótta Kúrda, en þjáningar þeirra
sjáum við á sjónvarpsskjánum dag
eftir dag.
Rauði krossinn hefur undanfarin
tvö ár rekið lítil gervilimaverkstæði
í gamalli reiðhjólaverksmiðju í Kab-
úl við mjög svo ófullnægjandi að-
stæður. Þar hafa starfað sjö gervi-
limasmiðir á vegum Rauða krossins
með um 70 lærlinga. Þeim er kennt
að nota nútíma tækni við gerð gerv-
ilima og meðferð þeirra gerviefna
sem nú eru notuð í stoðtæki og
gervilimi í stað trés og leðurs, eins
og tíðkast hefur með Afgana. Nú
í sumar á að taka í notkun nýtt og
fullkomið verkstæði sem mun gjör-
breyta aðstöðunni og stórauka
framleiðsluna. Að því kemur síðan
að lærlingarnir geta starfað sjálf-
i 4 ^'W**' 5ÓL ÚR
1 30
Alheimsótcik til hjóipctr striðshrjádum
stætt og opnað sín eigin verkstæði.
Ekki veitir af því þörfin er brýn og
væntanlega verður ekkert lát á eft-
irspurn á næstu árum. Nú eru um
2.700 manns á biðlista eftir að fá
gervilimi og þúsundir eða tugþús-
undir þurfandi eru hvergi á skrá.
Daglega fjölgar í þeim hópi.
I stríðinu í Afganistan, sem enn
geisar, hefur um 30 milljónum jarð-
sprengja verið dreift um byggðir
landsins. Þessar sprengjur eru stöð-
ug ógnun við líf og limi fólks, og
þær munu verða í jörðu um fyrirsjá-
anlega framtíð. Nær ógerlegt er að
fjarlægja þær meðan stríð geisar,
og jafnvel við bestu aðstæður og
með hjálp sérþjálfaðra manna gæti
það tekið áratugi. Það er háskalegt
verk og áætlað er að fýrir hveijar
Börn verða fyrir jarðsprengjum
ekki síður en fullorðnir. Einfald-
ur gervilimur breytti miklu fyrir
þennan unga dreng...
5.000 sprengjur sem fjariægðar
eru, láti einn maður lífið og tveir
Guðmundur Eiríksson
slasist og er þá miðað við að kunn-
áttumenn séu að verki. Þetta þýðir
að 6.000 menn látist og 12.000
særist við það eitt að fjarlægja
sprengjurnar. Lítið sem ekkert er
unnið í því nú, með núverandi hraða
tæki það 1700 ár að hreinsa jarð-
sprengjurnar úr jörðu í Afganistan.
Þær stríðshörmungar sem gengið
hafa yfir Afganistan hafa eins og
annars staðar bitnað mest á hinum
varnarlausu, fyrst og fremst börn-
um. Hátt á aðra milljón manna
hefur hlotið varanleg meiðsl og ör-
kuml síðan stríðið hófst 1978, og
af þessum fjölda er meira en helm-
ingurinn börn og ungmenni innan
18 ára aldurs. Mörg þessara ung-
menna hafa misst útlim eða útlimi
af völdum jarðsprengja og annarra
vítisvéla. Án vel gerðra gervilima
bíður þeirra dapurleg framtíð.
Nýja gervilimaverkstæðið, sem
söfnunin 12. maí mun styrkja, er í
raun þróunarverkefni. Sú þekking
sem þar er verið að leggja grunn
að verður eftir í landinu og mun
nýtast stríðshijáðum á mjög áþreif-
anlegan hátt.
Af nýlegri skoðanakönnun að
dæma er meirihluti íslendinga
þeirrar skoðunar að framlag íslands
til aðstoðar við þróunarlöndin sé
hæfilega mikið og sjá þeir ekki
ástæðu tii að auka það. Samt er
framlag íslands til aðstoðar við
bágstödd ríki minna en nokkurt
annað vestrænt ríki telur sér sæma.
Vera má að fólk á íslandi geri sér
ekki grein fyrir því hve lánsöm þjóð
við erum að hafa aldrei kynnst þeim
hörmungum sem yfir fólk ganga í
þriðja heiminum.
í ávarpi sínu um alheimsátak til
hjálpar stríðshijáðum segir frú Vig-
dís Finnbogadóttir, forseti íslands:
„Við Islendingar skulum minnast
þess láns að hafa aldrei átt aðild
að stríðsátökum í þeim mæli sem
svo margar þjóðir hafa orðið að
þola. íslendingar hafa ávallt haft
samkennd með þeim sem þjáðst
hafa og hugsa með hryggð og djúp-
ri samúð til þeirra sem nú hafa
orðið fómarlömb blóðugra styijalda
þar sem vopnuð átök eiga sér stað
og stríð geisa.“
Þegar söfnunarátakið undir kjör-
orðinu „Sól úr sorta“ fer fram hinn
12. maí gefst íslendingum kostur á
að sýna í verki með framlögum sín-
um hug sinn til ógæfusamra fórnar-
lamba stríðs til hins betra.
Höfundur er sendiherra ogsitur
ínlþjóðanefnd Rauðn kross
íslnnds.