Morgunblaðið - 04.05.1991, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991
15
Átta vikna blaðgræðlingur. Saini græðlingur 4 vikum síðar.
Lítið eitt um
græðlinga
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
202 þáttur
Sá siður hefur lengi tíðkast hér
á landi og sjálfsagt víðar, að áhug-
afólk komi sér upp blómum með
„afleggjurunum", ýmist illa
fengnum og kannske ekki síður
með þeim sem hnuplað var frá
nágrannanum þegar enginn sá
til. Má segja að plöntur sem þann-
ig eru tii komnar, á hvorn veginn
sem er, séu jafnan í miklu uppá-
haldi hjá ræktandanum. Með vax-
andi menningu og menntun lands-
manna hefur hið gamla notalega
nafn „afleggjari“ svo til týnst úr
málinu og „græðlingur", sem viss-
ulega er ágætisnafn, leyst hann
af hólmi. Græðling má e.t.v. skil-
greina þannig að hann sé plöntu-
hluti sem getur myndað rætur og
þannig orðið að nýjum einstakl-
ingi ef ákveðin skilyrði eru fyrir
hendi hvað snertir hita, raka og
annan aðbúnað.
Fjölmörgum algengnum blóm-
um má fjölga með græðlingum
en rétt er að geta nokkurra atriða
sem vert er að hafa í huga ef
ráðist er í græðlingaæxlun. Fyrst
og fremst má loftið í kringum þá
ekki vera mjög þurrt, þá skal og
varast dragsúg sem hægiega get-
ur valdið rakatapi og þótt græð-
lingar þarfnist nokkurar birtu er
nauðsynlegt að veija þá fyrir sól
þangað til greinilegt er að þeir
hafi myndað rætur. Græðlingum
er ýmist:.
1) Stungið beint ofan í pott
með rakri mold sem þarf að vera
ríflega blönduð sandi og vikri.
Þjappa skaí þéttingsfast að þeim
og gott er að setja síðan plastpoka
yfir til þess að koma í veg fyrir
of mikla útgufun.
2) Settir í vatn, t.d. í hið sí-
gilda glas í eldhúsglugganum sem
nútímamenningunni virðist ekki
hafa tekist að útrýma með öllu
enda gefst þessi frumstæða að-
ferð oft furðu vel og varla fyrirf-
innst heppilegri staður til þess að
gleyma þeim ekki. í gi'æðlinga
má nota ýmsa plöntuhluta. Al-
gengast er að nota nýja sprota
og má með þeirri aðferð fjölga
ótal tegundum, t.d. pelargoníum,
iðnu-lísu, neríu, gyðingum, berg-
fléttu o.fl. o.fl. Einnig má nota
stöngulbúta (t.d. rósir, hawaiirós,
gúmmítré, mánaguli, passíublóm,
dieffenbacia o.m.fl.) og jafnvel
einstök blöð eða blaðliluta (t.d.
blaðbegoníur, st. pálíur og gloxin-
íur). Einna best þykir gefast þeg-
ar græðlingar eru teknir með
„hæl“, þ.e. að þeim fylgi smáhluti
af grein þeirri eða stofni sem þeir
eru teknir af (á það einkum um
tijákenndar jurtir). Ef til vill er
þar fengin að einhveiju leyti skýr-
ing á því sem í almæli hefur ver-
ið frá ómunatíð að stolnir græð-
lingar þrífist best. En til sanns
vegar má færa að sé græðlingur
tekinn í miklu flaustri er ósköp
hætt við að „hæll“ fylgi óvart með.
Að lokum má geta þess að
græðlinga-aðferðin er í fullu gildi
hvort heldur um er að ræða stofu-
blóm, fjölærar jurtir eða jafnvel
tré og runna.
Bænadagurinn er á sunnudag:
Beðið fyrir fórnar-
lömbum stríðsátaka
NÆSTKOMANDI sunnudagur, sem er fimmti sunnudgur eftir páska,
er bænadagur í íslensku þjóðkirkjunnar. Biskup íslands hefur beðið
presta að minnast í bænum í guðsþjónustum fórnarlamba stríðsátaka.
„Víða um heiminn á saklaust
fólk um sárt að binda vegna ófriðar
og í löndum við Persaflóa sjáum
við nú greinilega sem oft fyrr að
hernaður skapar fleiri vandamál en
leysir; hungur, þjáningar og dauði
eru nú hlutskipti margra.
Það er von mín að íslenska þjóð-
in sem býr við frið og öryggi muni
sameinast í bæn á bænadegi fyrir
fórnarlömbum stríðsátaka og að við
hugleiðum sérstaklega hlutskipti
Kúrdanna, smáþjóðar sem á sér fáa
málsvara og biðjum þess að þeir
megi lifa án ótta við tortímingu og
dauða," segir í frétt frá hr. Ólafi
Skúlasyni biskupi íslands.
Afhenti
trúnaðarbréf
Ingvi S. Ingvarsson afhenti ný-
lega Francesco Cossiga forseta It-
alíu trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra Ítalíu.
Rauði kross Islands gengst fyrir málþingi um Genfarsáttmála og önnur
mannúðarlög laugardaginn 4. maí nk. í Háskólabíói. Við höfum fengið
valinkunnan hóp fólks til þess að fjalla um þessi mál, reynslu af
styrjöldum, hlut fjölmiðla, börn og mannréttindi, mannréttindi og
mannréttindakennslu í skólum hérlendis og fleira athyglisvert.
Við bjóðum alla velkomna sem láta sig mannúðarmál einhverju skipta
og hvetjum þá til að mæta.
Málþingið sett - Björn Friðfinnsson formaður Alþjóðanefndar RKÍ
1. Fórnarlömb styrjalda
Dr. Guðjón Magnússon formaður RKÍ
7. Hvernig og hvaða fréttir fær almenningur
af stríði og mannréttindabrotum?
Ólafur Gíslason blaðamaður
2. Genfarsáttmálar - (almenn kynning)
Sölvi Sölvason lögfræðingur
8. Ríki laganna
Atli Harðarson heimspekingur
3. Methods of Warfare and the Law of War
Dr. Esbjörn Rosenblad
9. Mannréttindi á Islandi
Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur
4. Með stríðshrjáðum börnum
Hildur Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur
10. Börn og mannréttindi
Anna G. Björnsdóttir lögfræðingur
5. Á meðal fórnarlamba stríðs og ofbeldis
Dr. Gísli Sigurðsson læknir
6. Mannréttindi og mannúðarlög
Gréta Gunnarsdóttir lögfræðingur
11. Uppeldi til mannúðar - þáttur
grunnskólans
séra Ingólfur Guðmundsson
Rauði kross Islands
Málþing um Genfarsáttmála
og önnur mannúðarlög
í Háskólabíói laugardaginn 4. maí frá kl. 13-17
Allir velkomnir.
t-rjj&ii >71 i
d