Morgunblaðið - 04.05.1991, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.05.1991, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991 Minning: Guðríður Sigurðar- dóttir fv. símstjóri Fædd 17. júlí 1910 Dáin 26. apríl 1991 Guðríður Sigurðardóttir fv. sím- stöðvarstjóri er látin í Reykjavík rúmlega áttræð að aldri. Dánar- fregnin kom okkur ekki á óvart. Hún hafði um nokkurt skeið kennt þess sjúkleika sem dró hana til dauða. Guðríður á stöðinni var hún gjaman kölluð af því að hún var símstöðvarstjóri í Grundarfirði um margra áratuga skeið. Því áttu margir erindi við Guðríði og minn- umst við hennar á tveimur stöðum í þessu starfi, í hennar eigin húsi sem var miðsvæðis í kauptúninu og í stóru símstöðinni og pósthúsinu sem reist var árið 1966. Var þar jafnframt íbúð símstöðvarstjórans. Jukust umsvifin á símstöðinni með árunum og Guðríður lét ekki sitt eftir liggja en gegndi starfinu til ársins 1977 er hún fluttist til Reykjavíkur þar sem hún dvaldist síðustu árin, fyrst í Bogahlíð 24 og síðar á heimili aldraðra á Dalbraut 20. En við minnumst Guðríðar ekki aðeins fyrir þau opinberu störf sem hún gegndi. Hún kom víðar við. Meðal annars starfaði hún um ára- bil í Kvenfélaginu Gleym-mér-ei í Eyrarsveit. Meðal helstu áhuga- mála þess félags var bygging kirkju í kauptúninu í Grundarfírði og gekk Guðríður þar fram fyrir skjöldu ásamt mörgum öðrum konum og er mér ljúft nú við fráfall Guðríðar að minnast þeirrar vösku kvenna- sveitar. Þar á meðal má nefna Höllu Halldórsdóttur, Spjör, Halldóru Jó- hannsdóttur, Ytri-Gröf, Ólöfu Þor- leifsdóttur, Hömrum, Kristínu Run- ólfsdóttur, Búðum, Þórdísi Þorleifs- dóttur, Ásgarði, Soffíu Jóhannes- dóttur kennara, Elísabetu Helga- dóttur, Kvíabryggju, Guðrúnu Ámadóttur, Hópi, Sigríði Elísdótt- ur, Skallabúðum, o.fl. sem lögðu hönd á plóginn. Var þarna mikið í fang færst enda stóð kirkjusmíðin yfir í mörg ár. Hún hófst 1960 og var ekki að fullu lokið fyrr en 1982 er pípuorg- elið kom í hana. Dáðist þýski orgel- Fædd 6. ágúst 1895 Dáin 26. apríl 1991 í dag er kvödd hinstu kveðju föðursystir mín, Sigurbjörg Jónas- dóttir, sem andaðist þann 26. apríl síðastliðinn. Sigurbjörg fæddist þann 6. ágúst 1895 að Ásum i Svínavatnshreppi, en þangað höfðu foreldrar hennar flutt tveimur árum áður. Þau voru Elín Ólafsdóttir frá Guðrúnarstöðum í Vatnsdal og Jón- as B. Bjamason frá Þórormstungu í sömu sveit. Að Sigurbjörgu stóðu traustar húnvetnskar bændaættir. Það leiksvið sem lífskjörin út- hluta fólki á fyrstu áratugum þess- arar aldar var ótrúlega ólíkt því sem við þekkjum í dag. Möguleikar til menntunar voru sáralitlir, enda þótti varla viðeigandi að kona léti mikið til sín taka í samfélagi þeirra tíma. Lífshlaup Sigurbjargar hefði að sjálfsögðu orðið allt annað hefði hún fæðst nokkmm áratugum seinna. Ekki mun hún hafa notið annarrar skólagöngu en almennrar barnafræðslu, en það breytti ekki því að hún hafði óvenju gott vald á íslensku máli og hafði afburða fallega rithönd. Um það vitna tugir sendibréfa sem hún skrifaði ætt- ingjum og vinum og varðveist hafa. Arið 1905 fluttist fjölskylda Sig- urbjargar að Litladal í Svínavatns- hreppi og er lengst af kennd við smiðurinn að því að svo fámennur söfnuður skyldi geta keypt svo dýr- an grip í kirkjuna og honum skyldi vera ætlaður þar staður frá upp- hafí kirkjubyggingarinnar. Guðríð- ur vann ötullega að kirkjubygging- unni alla tíð og að mörgum öðrum framfaramálum sem konurnar í kvenfélaginu studdu af miklum dugnaði. Hún fór oft á fornar stöðvar í Grundarfirði eftir að hún fluttist suður og studdi hún m.a. byggingu Fellaskjóls, heimilis aldraðra, með myndarlegum gjöfum. Ávallt þegar Guðríður varð á vegi okkar var hún glöð í bragði og svo bjartsýn að það smitaði frá sér. Og þungbær sjúkdómur megn- aði ekki að vinna bug á gleði henn- ar og bjartsýni. Hún hafði líka mik- ið til að gleðjast yfir, stórum og myndarlegum hópi bama og tengdabama og barnabarna. Sum voru í Englandi og Ameríku og var hún dugleg að vitja þeirra á liðnum ámm. Eiginmaður hennar var Hall- grímur Sveinsson frá Hálsi en þau slitu samvistir. 17. júlí 1990 var mikill gleðidag- ur þegar hún hélt hátíðlegt áttræð- isafmæli sitt ásamt tvíburabróður sínum, Pétri. Var þar samankomin stór fjölskylda, margir afkomendur foreldra Guðríðar og Péturs, Sig- urðar Eggertssonar skipstjóra og bónda í Suður-Bár í Gmndarfírði og konu hans, Ingibjargar Péturs- dóttur, en hún var systir Sigurðar Kristófers Péturssonar rithöfundar. Þá var það merk stund í lífí Guðríð- ar og systkinanna frá Suður-Bár er þau minntust aldarafmælis móð- ur sinnar, Ingibjargar, árið 1987 við messu í gömlu sóknarkirkjunni að Setbergi sem þau færðu altaris- klæði að gjöf í tilefni afmælisins. Góð kona, glöð og bjartsýn, er gengin, jákvæð og brosmild hvað sem á gekk, jafnvel í þungri sjúk- dómsþraut. Á saknaðarstundu biðj- um við vinir hennar og samferða- menn ástvinum hennar blessunar Guðs og óskum þess að hún megi nú njóta gleðinnar sem æðst er, gleðinnar hjá Guði. Áslaug og Magnús þann bæ. Systkini hennar vom Bjarni, fæddur 24. febrúar 1891, dáinn 1984, bóndi í Blöndudalshól- um, jafnframt kennari og fræði- maður; Ólafur, fæddur 20. desem- ber 1892, dáinn 1936, bóndi í Litla- dal, faðir minn; Guðrún, fædd 22. apríl 1893, dáin 1990; Ásta fædd 10. júlí 1904, búsett í Reykjavík. Uppvöxtur Sigurbjargar mun hafa verið með líkum hætti og gerðist til sveita á þessum áram. Rúmlega tvítug dvaldist hún um tíma í Reykjavík og fékk þar tilsögn í pijónaskap og annarri handa- vinnu. Seinna keypti hún sér pijóna- vél, og eftir það varði hún flestum þeim stundum sem gáfust frá ann- arri iðju við að pijóna. Allt fram um þrítugsaldur vann hún á búi foreldra sinna og var óþreytandi að hlynna að móður sinni eftir að heilsa hennar og kraftar fóru þverr- andi. Árið 1936 deyr Ólafur bróðir hennar, bóndi í Litladal, en hann hafði teki við búi af foreldrum sín- um nokkrum ámm áður og hafði Sigurbjörg unnið á því heimili af þeim dugnaði og trúmennsku sem henni var lagið. Við fráfall Ólafs varð mikil breyting á högum fjöl- skyldunnar. Eftirlifandi eiginkona hans, Hallfríður Björnsdóttir, seldi búið og flutti af jörðinni. Það var mikið áfall fyrir mig og sýstur mína, Vinur minn er dáinn. Hún amma mín sem var mér ómetanleg stoð og fyrirmynd er nú horfín á braut. Ég veit að hennar tími var kominn. Þó fínn ég til söknuðar og ég get ekki varist því að riíja upp minning- ar, sem eru tengdar ömmu minni. Frá æsku minni minnist ég ömmu Guju fyrir vestan, ömmu á símstöð- inni. Það var alltaf tilhlökkunarefni að fara í Gmndarfjörðinn til að vera hjá ömmu, leika sér og fá að hjálpa eftir því sem hægt var. Þar var alltaf nóg að gera. Verst var að geta ekki farið oftar í heimsókn, Amma mín var engin venjuleg amma. Hún sinnti starfí sínu sem símstöðvarstjóri af miklum dugn- aði. Á þeim árum var sjaldgæft að konur væru jafn sjálfstæðar og dugmiklar í atvinnulífinu eins og amma var. Þó fannst mér lýsandi fyrir afstöðu hennar að hún taldi sig frekar vera jafnréttissinna en kvenréttindakonu. Svo fór amma á ellilaun og flutti í bæinn. Ég hugði mér gott til glóð- arinnar og taldi að nú væm feitir sætabrauðsdagar í vændum, þar sem ég gæti alltaf skroppið í heim- sókn og setið hjá ömmu minni í góðu yfirlæti. Ég komst fljótt að því að betra var að gera boð á undan sér, því amma sat ekki auð- um höndum og líkur vom á að hún væri ekki heima. Það vom kvenfé- lagsfundir, heimsóknir til vina og ættingja, spítalavitjanir og ensku- námskeið. Ámma var alls ekki hætt að njóta lífsins þó hún væri komin á ellilaun og hafði nóg að gera. Alltaf var þó tími fyrir mig þegar ég hringdi í hana og vildi koma í heimsókn og heimsóknirnar vom ekki bara kryddaðar með sæta- brauði, því um margt var að spjalla. Samtölin við ömmu voru skemmti- leg því amma hafði skoðanir á öllu og fylgdist mjög vel með. Samtölin við ömmu voru Iíka gefandi vegna þess hve hreinskilin og jákvæð hún var. Ekki síst voru samtölin við ömmu uppbyggjandi vegna þess að hún hlustaði og tók mark á því sem ég sagði. Árin bættust við, bæði hjá ömmu minni og mér. Ég kynnti ömmu fyrir ástinni minni og stofnaði heim- ili. Síðar gifti éjg mig og amma var svaramaður. Eg held að okkur ömmu hafi báðum fundist vináttan og tengslin styrkjast við þetta. Nú er ég sjálf orðin móðir og sonur minn hefur átt langömmu í rúm 7 ár. Ég er þakklát fyrir árin sem við öll höfum fengið að njóta með ömmu. Ég er líka þakklát fyr- Birnu, að skiljast við þessa elsku- legu frænku okkar svo góð og þolin- móð sem hún var okkur, en hafði verið á heimilinu allt okkar líf. Eft- ir þetta voru fundir okkar stijálir og stuttir, en vinsemd hennar í garð minn og fjölskyldu minnar var alltaf sú sama. Árið 1937 réðst hún sem ráðs- kona að Stóm-Giljá í Þingi í Húna- vatnssýslu og þeirri stöðu gegndi hún til ársins 1972. Þessi mörgu ár vom ár mikilla anna og umsvifa, því heimilið var stórt og gestrisni í heiðri höfð. Þá kom sér vel að Sigurbjörg var ákaflega myndarleg og víkingur til allrar vinnu. En lang- ur mun vinnudagurinn oftast þafa verið og laun sennilega ekki í sam- ræmi við afköst. Árið 1972 flutti Sigurbjörg ti! Reykjavíkur og bjó um nokkurt ir þá ástúð sem hún hefur gefið okkur. Amma mín kenndi mér svo margt sem ég mun alltaf búa að. Það sem mér er þó minnisstæðast er að amma breytti viðhorfi mínu til gamals fólks. Það er ömmu að þakka að ég fagna hveiju ári sem bætist við í aldri og þroska. Ég kvíði ekki fyrir því að verða gömul og vona að ég geti borið árin af sömu reisn og amma mín gerði. Amma mín var trúuð kona og ég bið þess að hún fái nú hvíld og frið í himnaríki hjá þeim Guði sem hún trúði á. Auður Sigr. Kristinsdóttir Við áttum margra ára trygga og góða samleið. Hún var þá stöðvar- stjóri í Gmndarfirði, en ég í Stykkis- hólminum. Eftir því sem samstarf okkar var lengra því traustara. Hún kom að símanum úr sveitinni, en undarlega fljótt komst hún inn í starfíð og vann því af alhug. Stykk- ishólmur var þá aðalstöð og sjálf- virki síminn ekki kominn. Grundar- ljörður gerði skil þangað. Og ekki vom margar villurnar í reikningn- um frá henni. Og skilyrðin sem hún byijaði við frumleg svo ekki sé meira sagt. Símanum var jafnan lokað kl. 8 eða 9. Og oft var bank- að upp á þegar þurfti um nætur að fá fyrirgreiðslu sem ekki mátti bíða til morguns. Og öllu kvabbi tók hún með ró og jafnvel brosi. Leysti úr málunum. Þannig var það um allar símstöðvar þeirra daga. Marg- ur sjómaðurinn er þakklátur fyrir skeið með systrum sínum, Ástu og Guðrúnu. En hún festi ekki rætur í höfuðstaðnum sem varla var von eftir nær átta áratuga búsetu norð- ur í landi. Því ákvað hún eftir veik- indi og stranga sjúkrahúsvist að sækja um dvöl á Ellideild Héraðs- hælisins á Blönduósi. Dvöl hennar þar varð á annan áratug. Leið henni þar vel enda var starfsfólkið henni einstaklega gott. Fyrstu árin pijón- aði hún mikið því henni var sýnd sú tillitssemi að fá að hafa pijóna- vélina sína hjá sér. Það var henni mikils virði því vinna var hennar hálft líf. En það kom að því að þrekið var búið og síðustu mánuði ævi sinnar var hún rúmföst. Vinir Sigurbjargar á Blönduósi eiga þakkir skyldar fyrir þá um- hyggju sem þeir sýndu henni og vil ég þar nefna syni Klöru Bjarna- dóttur og eiginkonur þeirra, svo og Ingibjörgu Bergmann, vinkonu hennar til margra ára. Einnig vil ég þakka læknum, hjúkrunarfólki og öðru starfsfólki Héraðshælisins fyrir góða hjúkrun og alúð henni til handa. Sigurbjörg var ákafleg trygglynd kona og hreinskiptin. Hún var stór- brotin í lund og tók jafnan svari þeirra sem henni fannst hallað á og voru minnimáttar. Ekki var hún auðug á veraldarvísu en hafði því meira að gefa af hlýhug og mildi. Nú þegar elsku frænka mín er kvödd er mér efst í huga þakklæti fyrir að fá að kynnast henni og njóta þeirrar ástúðar og vinsemdar sem jafnan streymdi frá henni. Og þakka henni fyrir allt það góða sem hún gerði fyrir okkur öll. Elín Ólafsdóttir hve þeir máttu alltaf leita til stöðv- arstjóranna. Heimsóknir milli okk- ar, ekki svo fáar, efldu kynnin. Traustari urðu böndin. Hún Guðríð- ur stóð fyrir sínu. Guðríður þekkti baráttu lífsins, stóð fyrir marg- mennu heimili í þjóðbraut. Kom upp myndarlegum barnahóp. Miklum auðæfum. Hún fékk sem aðrir að kynnast kreppuárunum og mörgu öðru og kom úr þeim þrautum sterk. Með- lætið hefir sína kosti og ókosti. Það vorum við sammála um enda alin upp við slíkar aðstæður. Þegar ég kom í Hólminn bjó Guðríður asamt manni sínum Hall- grími Sveinssyni á Hálsi í Eyrar- sveit. Er hún hætti símstjórastörf- um og flutti suður breyttist ekkert vinátta okkar, varð fremur traust- ari en hitt. Við vomm bæði sam- mála um að vinátta væri gulli betri og auðæfi að hlúa að henni. Við vorum líka sammála um sárindi brigðmælgis. Póstur og sími var á heimili henn- ar og gleymi ég því aldrei þegar brann þar og hve hún var dugleg að bjarga verðmætum símans. Um sjálfa sig hugsaði hún minna. Minningar mínar em hlaðnar þakklæti nú þegar við kveðjumst í bili, því við trúðum bæði að starf biði að loknu jarðlífí. Um leið og við hjónin sendum ástvinum hennar samúðarkveðjur, biðjum við vinkonu okkar guðs blessunar á vegum ljóssins og lífs- ins._ Ég þakka kærri vinkonu fyrir allt. Árni Helgason Föstudaginn 26. apríl sl. lést á Landspítalanum föðursystir mín Guðríður Stefanía Sigurðardóttir. Hún fæddist 17. júlí 1910 á Brimil- svöllum í Fróðárhreppi, dóttir hjón- anna Ingibjargar Pétursdóttur og Sigurðar Eggertssonar skipstjóra. Þegar Guðríður var níu ára fluttist hún ásamt foreldrum að Suður-Bár í Eyrarsveit þar sem hún ólst upp. Guðríður giftist Hallgrími Sveinssyni frá Hálsi í Eyrarsveit og hófu þau búskap þar. Eitt sinn þcgar Hallgrímur var að smala varð hann fyrir því að hrapa í Kirkjufell- inu og slasaðist illa og bar hann þess aldrei bætur síðan. Hallgrímur var annálaður dugnaðarmaður og var það honum erfitt hlutskipti að geta ekki gengið heill til skógar. Brugðu þau því búi og fluttust inn í Grafarnes, sem nú er nefnt Grund- arfjörður, en þá var að myndast þar þorp og tóku þar við rekstri Pósts og síma. Afleiðingar slyss þess sem Hallgrímur varð fyrir urðu þó meiri og erfiðari en séð var fyrir. Hann varð að dveljast langdvölum undir læknishendi í Reykjavík og urðu þær aðstæður til að þau slitu sam- vistir. Stóð þá Guðríður uppi með sjö börn, yngsta á fyrsta ári og elsta fímmtán ára. Eftir að Hallgrímur náði heilsu starfaði hann hér fyrir sunnan. En þau gátu sameiginlega glaðst á góðum stundum yfír sér- staklega myndarlegum og dugmikl- um börnum og afkomendum þeirra. Hallgrímur lést 16. ágúst 1986. Börn þeirra eru: Sigurður, forstöðu- maður þjónustusviðs Hafnarfjarð- arhafnar, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Erlu Eiríksdóttur verslun- armanni og eiga þau þijú börn og eitt barnabarn: Selma, fasteigna- sali, búsett í Bandaríkjunum, gift Erastus Ruga löggiltum endurskoð- anda og eiga þau tvö börn: Sveinn, skólastjóri Bændaskólans á Hvann- eyri, kvæntur Gerði Karitas Guðna- dóttur skrifstofumanni og eiga þau eitt barn og eitt fósturbarn: Ingi- björg, skólaritari, búsett í Reykja- vík, gift Kristni Ólafssyni tollgæslu- stjóra og eiga þau ljögur börn og eitt bamabarn: Halldóra, hjúkrun- arfræðingur og ljósmæðrakennari, búsett í Englandi, gift Peter Laszlo verslunarstjóra og eiga þau tvö börn: Guðni Eggert, rafvirkjameist- ari, búsettur í Grundarfirði, kvænt- ur Bryndísi Theódórsdóttur og eiga þau þijú börn: Hallgrímur, verk- fræðingur, búsettur í Reykjavík, kvæntur Guðríði J. Guðmundsdótt- ur hjúkrunarfræðingi og eiga þau fjögur börn. Sigurbjörg Jónas- dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.