Morgunblaðið - 04.05.1991, Page 18

Morgunblaðið - 04.05.1991, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991 Raunverðslækkun raforku frá Landsvirkjun: Breytíngar á forsend- um og verðlagsaðhald JÓHANNES Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar, segir að ástæðan fyrir því að raunverð raforku frá Landsvirkjun hafi lækkað meira en langtímaáætlanir hafi gert ráð fyrir séu meðal annars þær, að verðlagsforsendur hafi breyst og verðbólga orðið meiri en verðlagsákvarðanir stjórnar fyrirtækisins hafi gert ráð fyrir, og einnig að stjórnin hafi haldið að sér höndum með verðhækkanir undanfarið eitt og hálft ár vegna aðhalds í verðlags- og launamálum. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu hefur það verið stefna Landsvirkjunar frá árinu 1986 að lækka raunverð raforku til almenningsveitna um 3% að jafn- aði á ári, en árleg raunverðslækkun hefur hins vegar orðið 5,5% á þessu tímabili. var, þá var það augljóst mál að önnur hækkun þyrfti að koma síðar á árinu. Um það hefur hins vegar ekki verið tekin nein ákvörðun, og engin tillaga um hækkun liggur fyrir hjá stjóm Landsvirkjunar," sagði Jóhannes. Frá aðalfundi íslenskra sjávarafurða hf. í Sambandshúsinu á Kirkjusandi í gær. „Svona gerist auðvitað vegna samspils á milli ákvarðana um verð- hækkanir og verðlagsbreytinga, en auðvitað hafa ekki verið teknar beinar ákvarðanir um að lækka raunverðið eins mikið og gerst hef- ur. Stundum hefur þetta gerst vegna þess að verðbólga hefur orð- ið meiri heldur en gert var ráð fyrir í forsendum, en einnig hefur þrð gerst vegna þess að við höfum hald- ið að okkur höndum vegna að- stæðna í verðlagsmálum, til dæmis vegna þess að þrýst hefur verið á út af þjóðarsátt eða öðru slíku,“ sagði Jóhannes Nordal. Hann sagði að stjórn Landsvirkj- unar hefði tekið þá ákvörðun að hækka gjaldskrá fyrirtækisins að- eins um 5% 1. janúar síðastliðinn, þegar Þjóðhagsstofnun hafði mælt með 8-9% hækkun, vegna þess að það hafi verið talið nauðsynlegt fyrst og fremst vegna þjóðarsáttar- innar. „Menn sáu hvert stefndi fyr- ir síðustu áramót, en sú ákvörðun var tekin að hækka ekki meira en þá var gert. Þar sem sú hækkun var lægri heldur en nauðsynlegt Sjávarafurðadeild Sambandsins: Heildarútflutningsverð- mæti 11,3 milljarðar í fyrra Hagnaðurinn samtals 269 milljónir VERÐMÆTI alls útflutnings sjávarafurðadeildar Sambandsins nam 11,316 milljörðum króna að cif-verðmæti árið 1990, samanborið við 9,992 milljarða árið 1989. Aukningin nemur því 1,324 milljörðum, eða 13,3%. Hagnaður sjávarafurðadeildar var 64,2 milljónir króna árið 1990, hagnaður Iceland Seafood Corp. í Bandaríkjunum 212 milljón- ir og hagnaður Iceland Seafood Ltd. í Bretlandi 11,5 milljónir. Útvegs- mannafélag samvinnumanna tapaði hins vegar 18,4 milljónum króna vegna gjaldþrots fyrirtækja. Hagnaðurinn var þvi samtals 269,3 miiy- ónir króna í fyrra en hagnaður I.S.C. og I.S.L. er reiknaður miðað við meðalgengi bandaríkjadals og sterlingspunds á árinu 1990. Þetta kom fram á aðalfundi Islenskra sjávarafurða hf. í gær en fyrirtækið tók við af sjávarafurðadeiid Sambandsins um síðustu áramót. Hermann Hansson, kaupfélags- inga á Höfn í Hornafirði, var kosinn stjóri Kaupfélags Austur-Skaftfell- stjómarformaður íslenskra sjávar- Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra: Aðalatriðið er að fyrirtækin hafi tækifæri til að hagnast „AÐALATRIÐIÐ er að sjávarút- vegsfyrirtæki hafi tækifæri til að hagnast, þannig að þau geti rutt nýjar brautir og bætt lífsaf- komu þjóðarinnar," sagði Þor- steinn Pálsson á aðalfundi ís- lenskra sjávarafurða hf. í Sam- bandshúsinu á Kirkjusandi í gær. Þorsteinn Pálsson sagði einnig í ræðu sinni að í greinargerðum þeirra, sem stóðu að þjóðarsáttar- samningunum, hefði verið varað við skyndilegum ákvörðunum varðandi Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins. Þorsteinn sagðist ætla að taka fullt tillit til þessara aðvarana. Sjálfur væri hann þeirrar skoðunar að þeg- ar til lengri tíma sé Iitið ættu fyrir- tækin sjálf að ákveða hvenær þau legðu fyrir. „Við verðum að horfa fram á við og huga jafnframt að verðmyndun fisks í landinu og ég álít að við eigum að stuðla að minni ríkisafskiptum í þeim efnum." Þorsteinn sagði að ekki hefði verið eytt löngum tíma í að skrifa stjómarsáttmála. „Við ætlum á hinn bóginn að undirbúa og gefa út verkefnaáætlun ríkisstjómarinn- ar á einstökum sviðum og gefin verður út stefnumörkun í sjávarút- vegi þegar hún verður tilbúin.“ Hann sagði að eitt af mikilvæg- ustu verkefnunum væri híndrunar- laus aðgangur fyrir sjávarafurðir okkar inn á Evrópumarkaðinn. „Við ætlum hins vegar ekki að hleypa útlendingum í fiskimið okkar,“ full- yrti Þorsteinn. Hann sagði að ef viðunandi árangur- næðist ekki í samningaviðræðum á næstunni gætum við ekki gerst aðilar að Evrópsku efnahagssvæði (EES) en Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra lenskra sjávarafurða hf. í gær. þyrftum þá að sækja okkar mál eftir öðrum leiðum. Þorsteinn sagði að mikið hefði verið fjallað um fyrirkomulag á stjómun fískveiða en núverandi kerfí væri það, sem mest sátt hefði tekist um. Ríkisstjórnin vildi hins vegar endurskoða og endurmeta skipan þessara mála, eins og núver- andi lög gerðu reyndar ráð fyrir. „Ætlunin er hins vegar ekki að skipta um kerfi annað eða þríðja hvert ár. Sjávarútvegurinn verður að byggja á því kerfi, sem nú er. Þetta kerfi er þó ekki gallalaust og við verðum að þróa það og sníða af því gallana," fullyrti Þorsteinn. Hann sagði að fískimiðin væra Morgunblaðið/KGA ræðustól á aðalfundi ís- sameign þjóðarinnar og hugsanlega yrði að binda þennan sameiginlega rétt í stjómarskrá. „Ég er andvígur því að stjóma veiðum með skatt- heimtu eða uppboði á veiðileyfum. Það þarf að meta atriði eins og að fækka fiskiskipum og vemda físki- stofnana og ákvarðanir þarf að taka á grandvelli sem bestra vísindalegra rannsókna. Bæta þarf aðstöðu físki- fræðinga og efla Hafrannsókna- stofnun," sagði Þorsteinn. „Forveri minn hefur mótað skyn- samlega stefnu í hvalveiðum og ég mun kappkosta að fylgja þeirri stefnu. Við verðum að meta hvort við eigum samleið með öðrum þjóð- um í Alþjóðahvalveiðiráðinu." afurða hf. í stað Tryggva Finnsson- ar framkvæmdastjóra Fiskiðjusam- lags Húsavíkur hf. Einar Svansson, framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauðár- króks hf., var kosinn aðalmaður í stjóm en Friðrik Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tanga hf. á Vopnafírði, var kosinn varamaður. Islenskar sjávarafurðir hf. voru stofnaðar 14. desember í fyrra og fyrirtækið tók við starfsemi sjávar- afurðadeildar Sambandsins, til dæmis útflutningi á frystum og ferskum sjávarafurðum, vöruþróun og tækniaðstoð við framleiðendur. SAFF, sem starfað hefur frá árinu 1969 sem rekstraraðili að sjávaraf- urðadeild, hætti starfsemi um ára- mótin þegar íslenskar sjávarafurðir hf. tóku við af sjávarafurðadeild. Hið nýja fyrirtæki yfírtók meiri- hlutaeign Sambandsins í Iceland Seafood Corp. í Bandaríkjunum og Iceland Seafood Ltd. í Bretlandi. Fyrirtækið keypti einnig eignarhluti Sambandsins í frystihúsum og Út- vegsfélagi Samvinnumanna. Heildarveltan 11,8 milljarðar í fyrra Heildarvelta sjávarafurðadeildar var um 11,8 milljarðar króna árið 1990 en var um 10,5 milljarðar árið áður. Breytingin er 12,5%. Þá er ekki meðtalinn útflutningur á saltfíski, sem að venju fór fram í gegnum Samband íslenskra físk- framleiðenda (SÍFj. Fiskvinnslu- stöðvar tengdar sjávarafurðadeild fluttu út 7.496 tonn af saltfiski fyrir 1.542 milljónir króna árið 1990 en 9.707 tonn fyrir 1.643 milljónir króna árið 1989. Magnið minnkaði því um 23% en verðmætið um 6,1%. Framleiðendur sjávarafurða- deildar framleiddu samtals 49.250 tonn af frystum sjávarafurðum í fyrra á móti 50.660 tonnum árið áður. Samdrátturinn nemur 1.410 tonnum, eða 2,8%. Á árinu 1990 flutti sjávarafurðadeild út 49.110 tonn af öllum frystum sjávarfurð- um, samanborið við 53.720 tonn árið 1989. Útflutt magn dróst því saman um 4.610 tonn, eða 8,6%. Úflutningur annarra afurða en frystra nam 5.185 tonnum á móti 8.260 tonnum árið 1989. Hér er um að ræða skreið, mjöl, söltuð hrogn, ferskan lax og ferskan físk. Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum seldi fyrir 138,1 milljón Bandaríkjadala í fyrra en 132,7 milljónir dala árið 1989. Sal- an jókst því um 4% á milli áranna 1989 og 1990, talið í dolluram. Á sama tíma minnkaði selt magn um 5,1 milljón punda (2.300 tonn); eða 6%, sem rekja má til nokkuð minnk- andi sölu fískrétta og minna fram- boðs af frystum flökum frá íslandi. Um 46% verðmætisaukning hjá Iceland Seafood Ltd. Iceland Seafood Ltd. í Bretlandi seldi fyrir 64,6 milljónir sterlings- punda í fyrra en 44,2 milljónir punda árið 1989. Aukningin er 46% á milli áranna í sterlingspundum. Magnaukningin varð hins vegar 15% og því ljóst að verðmæti afurð- anna hækkaði mikið á árinu 1990. í fyrra var hlutdeild sjávaraf- urðadeildar í vöruútflutningi lands- manna 15,1%, miðað við fob-verð- mæti útflutnings, en 18,3% árið 1986. Landsmenn juku útflutning sinn á frystum botnfiskafurðum um 0,4% á síðastliðnu ári, miðað við magn, en á sama tíma dróst útflutn- ingur sjávarafurðadeildar saman um 11%. Á árinu 1990 jókst heildar- útflutningur landsmanna í krónum talinn um 15,7% og útflutningur landsmanna af sjávarafurðum um 15,1%, miðað við fob-verðmæti. Árið 1990 vora frystar afurðir 93% af veltu sjávarafurðadeildar, árið 1989 91%, árið 1988 92%, árið 1987 88% og 1986 90%. Rækju- frysting jókst um tæp 600 tonn í fyrra, eða 34%. SAFF-frystihúsin frystu samtals 39.070 tonn af þorski, ýsu, karfa, ufsa og grálúðu á síðastliðnu ári en samtals 39.350 tonn árið 1986. Á árinu 1990 var hlutfall þessara fimm meginteg- unda í heildarfrystingu botnfísk- afurða 96,1% en 96% árið áður. Loðnufrysting varð aðeins um 65 tonn í fyrra á móti 480 tonnum árið 1989 en síldarfrysting jókst um rúm 1.800 tonn, eða tæp 50%. Þáttur mjöls og lýsis var 2% árið 1986 en var einungis 0,5% á árinu 1990 og raunar var aðeins um mjöl að ræða. Reiknað er með að útflutn- ingi mjöls verði hætt á þessu ári. Gengi gjaldmiðla hefur áhrif á markaðsdreifingu og á árinu 1990 dróg Evrópa mest til sín af afurðum vegna sterkra gjaldmiðla og hás verðs. I fyrra var hlutdeild Vestur- Evrópu 60% en 36% árið 1986. Hlutdeild Bandaríkjanna var hins vegar 17% árið 1990 en 46% árið 1986. Hlutdeild Sovétríkjanna var 4% í fyrra er 12% árið 1986 og hlutdeild Austurlanda fjær var 18% á síðastliðnu ári en 5% árið 1986. Meðalgengi bandaríkjadals hækkaði um 1,9% í fyrra, meðal- gengi sterlingspunds hækkaði um 11,3%, vestur-þýsks marks um 18,6% og fransks franka um 19,5% en meðalgengi japansks jens lækk- aði um 2,3%. Meðalgengi banda- ríkjadals hækkaði um 41,9% frá árinu 1986 til 1990, meðalgengi sterlingspunds hækkaði um 72,6%, vestur-þýsks marks um 89,9%, fransks franka um 80,3% og jap- ansks jens um 64,6%. Morgunblaðið/KGA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.