Morgunblaðið - 04.05.1991, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAl 1991
Aðalfundur Orkubús Vestfjarða:
Orkuverð óbreytt þrátt fyr-
ir hækkun Landsvirkjunar
fsafirði.
HAGNAÐUR Orkubús Vestfjarða fyrir áskriftir og sérstakt gjald
til ríkissjóðs nam 155 milljónum króna. Afskriftir námu 194 milljón-
um og sérstakt gjald til ríkissjóðs nam 59 milljónum þannig að niður-
stöðutölur rekstrarreiknings Orkubúsins fyrir árið 1990 sýnir tap
upp á 98 milljónir króna.
Orkubúið hefur nú verið með
sama orkusöluverð frá 1. janúar
1990 og gerir ráð fyrir að halda
sömu gjaldskrá út þetta ár ef al-
mennar verðlagsforsendur breytast
ekki. Er þetta lægsta gjaldskrá
Orkubúsins á mælikvarða bygging-
arvísitölu frá stofnun þess.
Þetta kom fram í ræðu stjómar-
formanns Orkubúsins, Eiríks Finns
Greipssonar.
Fegnrðarsam-
keppni Islands:
Ekki sjón-
varpað beint
HVORUG sjónvarpsstöðin sýndi
beint frá krýnignu Fegurðar-
drottningar Islands á Hótel Is-
Iandi í gærkvöldi, en undanfarin
ár hefur verið sjónvarpað beint
frá úrslitakvöldi keppninnar.
Að sögn Baldvins Jónssonar, eins
aðstandanda keppninnar, var
ákveðið að gera tilraun með að sýna
ekki beint. „Stöð 2 mun hins vegar
sýna þátt á sunnudaginn þar sem
fylgst er með stúlkunum fyrir
keppni, í keppninni sjálfri og síðan
eftir keppni," sagði Baldvin.
Hann sagði að á næsta ári væru
liðin tíu ár frá því þeir, sem nú sjá
um keppnina, tók við henni og þá
ætti að vanda sérstaklega til allra
hluta. Með því að sýna ekki beint
í gærkvöldi væri hægt að gera sam-
anburð á því hvort betra væri að
sýna beint frá úrslitakvöldinu eða
vera með þátt eins og Stöð 2 verð-
ur með á sunnudaginn.
------i-m------
Hafnarfjarðar-
kirkja:
50 og 60 ára
fermingar-
börn heim-
sækja kirkjuna
Á SUNNUDAGINN kemur, 5.
maí, 5. sd. eftir páska sem er
bænadagur kirkjunnar, munu
nokkur 50 ára og 60 ára ferming-
arbörn Hafnarfjarðarkirkju
heimsækja kirkjuna en þau
fermdust árin 1931 fyrri árgang-
urinn í upphafi kreppunnar og
hinn 1941 er heimsstríð hafði
teygt sig hingað norður í höf
með gjörtækum afleiðingum fyr-
ir mannlíf og samfélag. Þæ var
sannarlega ástæða til að biðja
fyrir mannlífi og heimi og var
ugglaust gert og hefur stuðlað
að farsælum málalyktum.
Gott er að geta litið yfir liðna tíð
í þökk í kirkjunni og beðið enn fyr-
ir framtíð. Við messuna sem hefst
kl. 14 mun séra Rögnvaldur Finn-
bogason einn úr hópi 50 ára ferm-
ingarbarna predika og þjóna fyrir
altari ásamt sóknarpresti og Svala
Nielsen óperusöngkona syngja lag
eftir Árna Gunnlaugsson við texta
Helgu Guðmundsdóttur en þau eru
bæði úr þeim hópi. Að messu lok-
inni munu fermingarbömin hittast
í veitingahúsinu Skútunni, Dals-
hrauni, og rifja upp fyrri tíð og
endumýja kynni.
Gunnþór lngason,
sóknarprestur.
Tókst að ná þessu þrátt fyrir að
Landsvirkjun lækkaði afslátt af
orkuverði til rafhitunar um 50% á
tímabilinu. Orkubúið kaupir nú 61%
af orkuþörfinni frá Landsvirkjun
og RARIK og er meðalkaupverð
kr. 1,48 kílówattstundin. Vegna
aðstæðna hefur Orkubú Vestfiarða
komið sér upp miklu varaafli með
díselvélum í hinum mörgu sveitarfé-
lögum og er nú svo komið að Orku-
búið getur selt Rafmagnsveitum
Reykjavíkur varaafl við sérstakar
aðstaeður.
Skuldir Orkubúsins eru afar litlar
og námu vaxtagjöld ársins 290
þúsund krónur. Ekki er gert ráð
fyrir að taka lán til framkvæmda á
þessu ári, en áætlað er að þær kosti
118 milljónir króna.
Rannsóknir hafa farið fram á
mögulegum virkjanaframkvæmd-
um á Vestfjörðum, en að sögn
Kristjáns Haraldssonar orkubús-
stjóra er nú 70 GWh orka nýtt af
þeim 610 GWh sem hagkvæmt er
talið að virkja á Vestfjörðum. Nokk-
uð langt er komið rannsóknum við
svokallaða Mjólká 3, en jafnframt
hefur farið fram rannsókn á hag-
kvæmni virkjunar í Vatnsfirði á
Barðaströnd og virðist sú virkjun
vera hagkvæmasti kostur Vestfírð-
inga í dag.
Björn Steingrímsson verkfræð-
ingur kynnti niðurstöður rannsókna
Vatnsfiarðarvirkjunar og eins og
sjá má á meðfylgjandi töflu er
kostnaðarverð orkunnar vel innan
meðalkostnaðar þeirra virkjana sem
nú eru starfræktar í landinu og er
þá ekki gert ráð fyrir því mikla
tapi sem verður við flutning orkunn-
ar til Vestfjarða.
Engar umræður urðu þó um
skýrslu Björns og aðeins tvær fyrir-
spurnir gerðar, annarsvegar um
hvort rætt hefði verið við Náttúru-
vemdarráð, en Vatnsfjörður er frið-
lýst svæði, og hvort ekki væri hægt
að veita vatninu í Kjálkafjörð, sem
liggur aðeins austar. Kom þá fram
að ekki hefur verið rætt við Nátt-
úruvemdarráð, en talið að næsta
skrefíð yrði slíkar viðræður. Mjög
vel er framkvæmanlegt að flytja
virkjunina yfir í Kjálkafjörð en varla
yrði talið heppilegra að gera Vatns-
fjörð vatnslausan.
Jón Ingimarsson verkfræðingur
flutti erindi um störf Orkuverðs-
jöfnunarnefndar, sem starfaði á síð-
asta vetri. I upphafi flaggaði hann
fjölda skýrelna sem gefnar hafa
verið út um málið á undanförnum
árum þótt lítið hafí áunnist. í
skýrslu þessarar nefndar er lagt til
að rafhitunarkostnaður vísitölufjöl-
skyldunnar verði hvergi hærri en 5
þúsund krónur á mánuði á verðlagi
í janúar 1991 og að það markmið
náist innan tveggja ára. í dag er
240% dýrara að kaupa orku til hús-
hitunar á Vestfjörðum en í Reykja-
vík og er þó verðið ekki hæst á
Vestfjörðum. Heimilisrafmagn er
þó ekki nema 22,5% dýrara vestra
en_í Reykjavík.
í ársskýrslu orkubúsins er sýnt
í súluriti þróun fólksfjölda á Vest-
fiörðum frá árinu 1930 til 1990,
þar kemur fram að á þessum 50
árum hefur íbúafjöldi í þéttbýii, það
er stöðum með yfír 200 íbúa á
Vestfjörðum, staðið í stað en íbúum
fækkað um 65%. Á sama tíma hef-
ur íbúum landsins fjölgað um tæp
400%. Þrátt fyrir þetta fer orku-
notkun í fjórðungnum vaxandi.
Stjóm Orkubúsins kjörin á aðal-
Morgunblaðid/Úlfar Ágústsson
Jón Ingimarsson flaggar skýrsl-
um um orkuverðsjöfnun sem
samdar hafa verið á undanförn-
um árum. Lítið hefur þó áunnist
nema góður hugur þeirra sem
skýrslurnar semja. Nýjasta
skýrslan kom fram á síðustu dög-
um Alþingis og var ekki af-
greidd.
fundi var endurkjörin, en hana
skipa: Eiríkur F'innur Greipsson,
Flateyri, Ólafur Helgi Kjartansson,
ísafirði, og Magnús Björnsson,
Bíldudal. Auk þeirra eru ráðherra-
skipuð í stjórn þau Kristján K. Jón-
asson, Isafirði, fyrir iðnaðarráðu-
neytið, og Bryndís Friðgeirsdóttir,
ísafirði, fyrir fjármálaráðuneytið.
- Úlfar
Vortónleikar í Tón-
listarskóla FÍH
TÓNLISTARSKÓLI FÍH heldur
þrenna tónleika á næstu dögum
í tilefni af lokum 11. starfsárs
skólans. Vortónleikar skólans
verða haldnir laugardaginn 11.
maí.
Klukkan 13.30 verða tónleikar
sígrildrar brautar. Að þeim loknum
verður tónleikagestum boðið upp á
kaffi og meðlæti, en kl. 15 verða
tónleikar jazz- og poppbrautar.
Mánudaginn 6. maí kl. 21 verða
útskriftartónleikar Eðvarðs Lárus-
sonar gítarleikara, en hann er 6.
nemandinn sem útskrifast frá Tón-
listarskóla FÍH. Eðvarð hóf gít-
arnám hjá Guðmundi Gunnarssyni
við tónlistarskólann á Akranesi
1978. Hann nam við tónlistarskóla
FÍH hjá Snorra Emi Snorrasyni,
Birni Thoroddsen og Vilhjálmi Guð-
jónssyni frá 1981. Eðvarð hefur
leikið með ýmsum þekktum hljóm-
sveitum s.s. Tíbrá, Start og nú ís-
Eðvarð Lárusson gítarleikari.
landsvinum. Eðvarð útskrifast af
jazzbraut og samanstendur efnis-
skrá tónleikanna af nýjum og göml-
um jazzverkum auk eigin verka
Eðvarðs.
. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill að öllum tónleikunum.
Gísli Jósefsson við verk sín.
Leiðrétting
I frétt Morgunblaðsins á mið-
vikudag um kjaradeilu flugmanna
og Flugleiða var ranglega haft eft-
ir Geir Garðarssyni, formanni Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna,
að flugmenn hefðu fallið frá flestum
kröfum um breyttan vinnutíma. Að
sögn Geire voru það Flugleiðir sem
féllu frá þessari kröfu. Hins vegar
væri það rétt að flugmenn hefðu
sett fram sömu kröfu og yrði hún
tekin upp aftur í haust.
Sýnir í fflaðvarpanum Leiðrétting
GlSLI Jósefsson opnaði föstu-
daginn 3. maí málverkasýningu
í Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3B.
Þetta er önnur einkasýning Gísla
en hann sýndi fyrir nokkrum árum
í Hamragörðum við Hávallagötu og
seldust þá flestar myndimar. Verk-
in sem Gísli sýnir eru flest teikning-
ar og vatnslitamyndir.
Á sýningunni em milli 40 og 50
myndir. Gísli er húsamálari að at-
vinnu og hefur unnið við það í 38
ár, en teiknar og málar myndir í
frístundum. Hann stundaði nám í
Myndlistarekólanum við Freyjugötu
á árunum 1964 og ’65. Sýningin
er opin daglega frá kl. 12-18 til
12. maí en lokað mánudaga.
(Fréttatilkynning)
í frásögn af viðurkenningum sem
tveir tónlistarskólar veittu efnileg-
ustu hljóðfæraleikurum i nýliðnum
Músíktilraunum Tónabæjar var far-
ið rangt með nafn annars skólans.
Hið rétta er að efnilegasti gítarleik-
ari Músíktilrauna hlaut viðurkenn-
ingu og námskeið að launum hjá
Nýja gítarskólanum. Beðist er
velvirðingar á þessari missögn.
25
Maíflóa-
markaðir
FEF hefj-
ast í dag
MAÍFLÆR FEF fara á kreik í
dag, laugardag, en þá verður
fyrsti flóamarkaðurinn en síðan
alla laugardaga í mánuðnum.
Flóamarkaðurinn er haldinn í
Skeljanesi 6 og hefst kl 14 eftir
hádegi. I fréttíitilkynningu segir *
að þar sé að fá tískufatnað frá
ýmsum tímum, m.a. hin glæsileg-
ustu sumarpils og boli, föt á börn-
in í sveitina, mikið er af skóm
og töskum, gamaldags herra-
bindum og léttum yfirhöfnum.
Ekki má gleyma skrautmunum,
þjóðbúningadúkkum og búsá-
höldum, sófum og smáborðum,
vöggu og barnarúmum og er þá
fátt eitt talið. Allt er selt á hinu
þekkta aldamótaverði sem flóa-
markaðir Félags einstæðra for-
eldra eru frægir fyrir.
Fyrir tveimur vikum var haldið
upp á það með kaffisamsæti, tísku-
sýningu og ávörpum að tíu ár eru
liðin síðan Skeljanes 6 var tekið í
notkun sem neyðar og bráðabirgða-
húsnæði félagsins. A þessum tíu
árum hafa búið þar 178 einstæðir
foreldrar með 251 barn eða sam-
tals 429 manns. í tilefni þessa var
boðið fjölda gesta til afmælishófs,
fyrverandi íbúum, ýmsum velunn-
urum félagsins, alþingismönnum og
borgarfulltrúum ofl. Félagar og íbú-
ar mættu vel og dyggilega en það
olli undrun að af ráðamönnum
mættu aðeins tveir borgarfulltrúar
og einn alþingismaður en nokkrir
boðuðu forföll vegna kosninganna
sem þá voru að bresta á.
Félagið keypti svo annað hús
fyrir fimm árum á Öldugötu 11 og
getur því hýst samtímis 21 fjöl-
skyldu í húsunum. I sumar þarf að
gera býsna viðamiklar viðgerðir á
þaki Öldugötuhússins og rennur
allur ágóði flóamarkaðanna rakleitt
í það.
A
mSKDLABÖ
SJÁ BÍÓSÍÐU
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa semlága!