Morgunblaðið - 04.05.1991, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991
Jökuldalur:
Tilraunir hefjast
með bleikjueldi
Vaðbrekku, Jökuldal.
TILRAUNIR með bleikjueldi hófust nýlega á Jökuldal. Smábleikja
er veidd úr Þríhyrningsvatni sem er ofsetið og flutt að Brú þar sem
ætlunin er að ala hana upp í matfiskstærð til útflutnings. Tilraunin
er gerð að undirlagi Fiskeldisfélags Austurlands er fékk liðveislu
Háskólans í Tromsö í Noregi, og sameiginlega eru þau styrkt af
Vest Norden-sjóðnum.
Stjórnendur verkefnisins eru Per
Gijotnes prófessor við Tromsö-
háskóla, Þórarinn Lárusson tilraun-
5 astjóri á Skriðuklaustri, og Axel
Beck iðnráðgjafi Austurlands.
Byrjað var að leggja 19 gildrur
í vatnið til að veiða í og náðust
allt að 130 fiskar í hveija gildru í
fyrstu lögn, að meðaltali 85 grömm
hver, er fiskurinn fluttur niður að
Brú þar sem hann er settur í bráða-
Handbók um
starfsemi
borgarinnar
_ .* Upplýsingahandbók um starf-
semi Reykjavíkurborgar er komin
út. Henni er ætlað að gefa íbúum
Reykjavíkur glögga innsýn í
rekstur og stjórnkerfi borgarinn-
ar, segir í fréttatilkynningu frá
upplýsingafulltrúa borgarinnar.
Auk þess er handbókinni ætlað
að skilgreina hver svarar hveiju um
hina ýmsu málaflokka og rekstrar-
þætti borgarinnar.
Handbókin er prentuð í 40 þúsund
eintökum og verður dreift inn á öll
heimili í Reykjavík.
birgðaker sem eru 2 rúmmetrar
alls, jafnframt er hafin uppsetning
á stærri varanlegum keijum alls
36 rúmmetrum.
í þeim á fiskurinn að tífalda
stærð sína fram í nóvember, þá er
reiknað mað að slátra honum og
flytja hann út sem matfisk.
Lítur þetta nokkuð vel út nú
þegar þar sem fiskurinn er strax
byijaður að taka fóður, og næst er
að vinsa úr kynþroska fisk og sýkt-
an því ekki er talið svara kostnaði
að ala hann.
Að sögn Per Gijotnes er þó miklu
minna af sýktum fiski en reiknað
var með, en aðal sjúkdómur í villtri
bleikju er ormaveiki. Hitinn á vatn-
inu í keijunum verður til að byija
með 2 gráður, en þar sem þetta er
yfirborðsvatn úr Þverá sem kemur
út stöðuvatni hitnar það upp í 8
gráður er líða tekur á sumarið.
Reiknað er með að taka 30.000
fiska úr vatninu til að bytja með,
að þremur árum liðnum ætti sam-
kvæmt gefnum forsendum sá fiskur
sem eftir er í vatninu að vera sæmi-
lega ætur og vatnið eftirsótt til
stangveiða. _ „. . ,
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Vök er gerð á Þríhyrningsvatni og bleikjugildra sett niður.
Gildran tekin upp og reyndist full af spriklandi smásilungi.
Athuga-
semd frá
rannsóknar-
lögreglustjóra
BOGI Nilsson rannsóknarlög-
reglustjóri ríksins segir að það
sé ekki rétt hjá Ólá Þ. Guðbjarts-
syni fyrrverandi dómsmálaráð-
herra að Rannsóknarlögreglan
hafi sent sent mál forstöðumanns
Bifreiðaprófa ríkisins aftur til
ráðuneytisins án þess að lagt
væri til að til aðgerð yrði gripið.
Þessi ummæli Óla komu fram í
frétt í Morgunblaðinu í gær. Af
þessu tilefni vildi Bogi Nilsson koma
á framfæri eftirfarandi niðurlagi
bréfs RLR til dómsmálaráðuneyts-
ins vegna þessa máls en það var
sent eftir viðræður við starfsmenn
dómsdómaráðuneytisins, m.a. að-
stoðarmann ráðherra, og lítur Bogi
svo á að þar hefði náðst samkomu-
lag um málsmeðferð:
„Með bréfi þessu er dómsmála-
ráðuneytinu tilkynnt formlega um
rannsóknarbeiðni lögreglustjóran í
Reykjavík, kynnt gögn sem fylgdu
beiðninni svo og það sem aflað hef-
ur verið eftir að Rannsóknarlög-
reglu ríkisins barst beiðnin.
Gert er ráð fyrir því að dóms-
málaráðuneytið muni af þessu til-
efni kanna eða láta kanna starfsemi
Bifreiðaprófa ríkisins og síðan eftir
atvikum krefjast opinberrar rann-
sóknar á hugsanlegum hegninga-
lagabrotum, sem forstöðumaður
eða aðrir starfsmennn Bifreiðaprófa
ríkisins kunna að hafa framið í stafi
sínu. Þess vegna mun Rannsóknar-
lögregla ríkisins ekki hafast frekar
að í málinu að svo stöddu.
YMISLEGT
Sumarbústaðalönd
Til sölu sumarbústaðalönd úr landi Úteyjar
I við Laugarvatn. Þurrt og gott land til rækt-
unar á góðum útsýnisstað. Stutt í veiði. Kalt
vatn og möguleiki á heitu vatni.
Upplýsingar í síma 98-61194.
Útey I, Laugarvatni.
VEIÐI
Veiðimenn athugið!
Til sölu lax- og silungsveiðileyfi í Söginu fyr-
ir landi Torfastaða. Gott veiðihús fylgir.
Ódýr veiðileyfi.
Upplýsingar í símum 666125 og 35686.
SJÁLFSTJEÐISFLOKKURINN
F É I. A G S S T A R F
Akureyri - Akureyri
Bæjarmálafundur verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 6. maí kl.
20.30. Nefndarmenn og varamenn í nefndum eru hvattir til að
mæta. Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
Kópavogur - spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi verður I Sjálfstæðishús-
inu, Hamraborg 1, mánudaginn 6. maí kl. 21.00 stundvíslega. Mæt-
um öll.
Stjórnin.
Akureyri - Akureyri
Sjálfstæðiskvennafélagið Vörn
Siðasti félagsfundur fyrir sumarið verður
haldinn í Kaupangi við Mýrarveg laugardag-
inn 4. maí kl. 12.00.
Gestur fundarins: Halldór Blöndal.
Sjálfstæðiskonur í kjördæminu verið vel-
komnar.
Stjórn Varnar
m lnrgTwlbl
Metsölublaö á hveijum degi!
■?
FÉLAGSLÍF
fómhjólp
Samhjálparsamkoma
verður í Fíladelfíukirkjunni á
morgun kl. 16.30.
Fjölbreytt dagskrá. Mikill söng-
ur, margir vitnisburðir. Sam-
hjálparkórinn tekur lagið.
Söngtríóíð „Beiskar jurtir" syng-
ur. Stjórnandi Óli Ágústsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Húsdýrin okkar
Fyrsta ferðin í einstakri ferðaröð
Náttúruverndarfélags Suðvest-
urlands sem nefnist „Húsdýrin
okkar" veröurfarin laugardaginn
4. mai kl. 13.30. Lagt verður af
stað frá inngangi Húsdýragarðs;
ins í Laugardal og komið aftur í
bæinn um kl. 18.00.
Fargjald er kr. 600,-.
NVSV/UÞL
Meistaramót íslands
1991 á skíðum
í flokkum 30 ára og eldri verður
haldið í Bláfjöllum laugardaginn
4. maí nk. Keppt verður í svigi
og stórsvigi og hefst keppnin kl.
11.00. Keppt er I flokkum karla
og kvenna 30-34 ára, 36-39 ára
o.s.frv. Mótið er opið öllu skíða-
áhugafólki 30 ára og eldra. Verð-
launaafhending, kvöldverður og
dans verður I Norðurljósum um
kvöldið. Þátttökutilkynníngar be-
rist til Arnórs i sima 82922.
Upplýsingar um frestun vegna
veðurs verða í símsvara Blá-
fjallanefndar sími 80111 á móts-
Hvítasunnukirkjan
Filadelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar
framundan:
Sunnudagur: Almenn samkoma
kl. 16.30 í umsjón Samhjálpar.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Fimmtudagur, uppstigningar-
dagur: Vorferðalag eldri safnað-
armeðlima. Almenn samkoma
kl. 20.30.
Föstudagur: Æskulýðssam-
koma kl. 20.30.
Laugardagur: Aðalfundur
Fíladelfíusafnaðarins laugar-
daginn 11. maí kl. 19.00.
ÚTIVIST
GRÓFINNI l * REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Sunnudagur 5. mai'
Póstgangan, 9. áfangi
Méltunnuklif - Deildarháls
Gengin verður gömul póstleið
frá Métunnuklifi að Deildarhálsi
við Geitahlíð. Brottför I árdegis-
ferðina er kl, 10.30 frá BSI-
bensínsölu, I síðdegisferðina,
sem sameinast morgun-
göngunni við Krísuvikur-Mæli-
fell, kl. 13.00. Þá verður einnig
boðið upp á auöveldari göngu
fyrir fjölskyldur, sem eru að byrja
í gönguferðum, frá Krísuvik að
Deildarhálsi. Hægt er að koma
í rútuna á leiöinni.
Hjólað um Heiðmörk
Á sunnudaginn hefjast hjólreiða-
ferðir Útivistar á ný með hjól-
reiðaferð um Heiðmörk, Lagt
verður af stað frá Árbæjarsafni
kl. 13. Þaðan verður hjólað að
Rauðhólum og farinn góður
hringur um Heiðmörk. Auðveld
hjólreiðaferð fyrir alla fjölskyld-
una.
Tvær góðar ferðir 9., 10.-12.
maí:
Eyjafjallajökull
Gist í Básum. Þaðan verður
gengin Hátindaleið yfir jökulinn
og komiö niður við Seljavelli og
slappað af í lauginni.
Þórsmörk - Giljagöngur
M.a. farið í hin stórfenglegu gil,
Bæjargil og Nauthúsagil, enn-
fremur Sauðárgil, Selgil, Kýlisgil
og Smjörgilin. Þá verður einnig
boðið upp á göngur upp á Mor-
insheiði og yfir í Hamraskóga
ef farið er 9. maí. Jöklaförunum
fagnað í Seljavallalaug.
Sjáumst!
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTl' 3 S. 11798 19533
Sunnudagsferðir 5. maí
Raðgangan1991:
Gönguferð um gosbeltið,
3. ferð
A. Kl. 10.30, Bláalónið-
Fagradalsfjall-Slaga
Gengið frá Bláa lóninu inn á >
vestasta fjall í Reykjanesfjall-
garði. Ekki mjög erfið fjallganga.
Ef þú vilt sleppa fjallinu, mætirðu
i feröina kl. 13.00.
B. Kl. 13.00, Bláa lónið-
Sundhnúkur-Vatnsheiði-
Slaga
Gengið norðan Svartsengisfells
um dyngjuna Vatnsheiði að
hamrinum Slögu ofan við bæinn
ísólfsskála. Áning við Drykkjar-
stein f báðum ferðum. Verð kr.
1.100.-, fritt f. börn m. fullorön-
um. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. Hægt að
taka rútuna á leiöinni m.a. á
Kópavogshálsi, Ásgarði
Garöabæ og við kirkjugarðinn í
Hafnarfiröi. Mætiö vel í rað-
göngu Ferðafélagsins 1991;
gengið í 12 áföngum um gos-
beltið Suðvestanlands, frá
Reykjanestá að Skjaldbreið. Fjöl-
breytt leið sem allir ættu að
kynnast. Byrjið nú og verið með
í sem flestum áföngunum.
Spurning ferðagetraunar 3. ferð-
ar: Hvert er annaö nafn á Svarts-
engisfelli? Viðurkenning verður
veitt þeim sem mæta i flestar
ferðanna.
Frönsku alparnir-Mt. Blanc.
Kynningarfundur fyrir áhugafólk
um ferð þangaö 11.-20. júli I
sumar, er á mánúdagskvöldið
5. maí kl. 20,30 í húsnæði isalp,
Grensásvegi 5. Páll Svéinsson,
fararstjóri, segir frá ferðinni.
Munið hvítasunnuferðir Ferða-
félagsins: 1. Þórsmörk, 2.
Fimmvörðuháls-Mýrdalsjökull.
3. Snæfellsnes-Snæfellsjökull.
4. Skaftafell-Öræfasveit. 5. Ör-
æfajökull-Skaftafell.
Nánar auglýst sfðar.
Ferðafélag íslands.