Morgunblaðið - 04.05.1991, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARPAGUR 4,. MAÍ.1991
t
Móðir okkar,
GUÐRÚN SÍMONARDÓTTIR BECH,
andaðist í Hjúkrunarheimilinu Skjóii fimmtudaginn 2. maí sl.
Auður Þorbergsdóttir,
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir,
Þór Þorbergsson,
Þorbergur Þorbergsson.
t
Ástkær móðir mín, amma og langamma,
ÁSDÍS ÞÓRKATLA MAGNÚSDÓTTIR,
Hörgatúni 7, Garðabæ,
andaðist á heimili sínu að morgni fimmtudagsins 2. maí.
María Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
BJÖRN KRISTINN KJARTANSSON,
Skipasundi 88,
lést á Landakotsspítala föstudaginn 3. maí. Útförin auglýst síðar.
Guðbjörg Guðnadóttir,
Guðni Gunnarsson, Esther Gunnarsson,
Gunnar Guðnason,
Helgi Guðnason,
Kristinn Guðnason.
Systir okkar, t HERDIS MAGNÚSDÓTTIR,
Reynimel 50,
lést í Landakotsspítala fimmtudaginn 2. maí.
Sæunn Magnúsdóttir Jónas Óskar Magnússon,
Ragnhildur H. Magnúsdóttir, Inga Magnúsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GÍSLI ÓLAFSSON,
húsvörður,
Hamrahlíð 17,
andaðist á heimili sínu 2. maí.
Jarðarförin verður augtýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Sigrún Þorsteinsdóttir.
t
Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur,
JÓHANN ÞÓRÐARSON,
Sunnutúni,
Stokkseyri,
lést af slysförum 1. maí. Jarðarförin auglýst sfðar.
Valgerður Sigurðardóttir, Þórður Guðnason,
Elvar Þórðarson, Helga Jónasdóttir,
Gerður Þórðardóttir, Bjarni Hallfreðsson
og systkinabörn.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR
frá Torfgarði,
til heimilis 1 Lönguhlið 3 Reykjavik,
andaðist að kvöldi sunnudagsins 28. apríl á Lyflækningadeild St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði.
Útför hennar verður tilkynnt síðar.
Fyrir hönd vandamanna.
Sigurður Helgi Björnsson, Auður Theodórs,
Egill Birkir, Theodór Skúli.
t
Þökkum auðsýnda vináttu og hlýhug við lát
RÖGNU ELÍSABETH WENDEL.
Bjarnþór Karlsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og
systkini hinnar látnu.
Hörður S. Jóns-
son - Kveðjuorð
Fæddur 2. október 1933
Dáinn 24. apríl 1991
Hann er dáinn, hann Hörður
bróðir minn, stundi eiginkona mín
er hún lagði frá sér heymartólið á
símann. Hvílík harmafregn. Mig
setti hljóðan 0g ég sat agndofa um
stund. Hugurinn fór á flug og ótal
minningar brutust fram tengdar
þessum góða mági mínum sem alla
tíð hafði að leiðarljósi staka góðvild
og mannkærleika. Ég vil með
nokkrum orðum minnast kærkom-
ins mágs míns sem andaðist 24.
apríl sl. langt fyrir aldur fram.
Hörður fæddist í Hafnamesi,
Fáskrúðsfirði, 2. október 1933, son-
ur hjónanna Guðlaugar Halldórs-
dóttur og Jóns Níelssonar, útvegs-
bónda, er þar bjuggu og var hann
yngstur 10 systkina. í Hafnarnesi
kynnist Hörður snemma allri al-
gengri vinnu, bæði til sjós og lands.
Eftir fráfall föður síns bjó Hörður
með móður sinni um árabil í Hafn-
arnesi. Á veturna þurfti hann, eins
og þá var títt, að sækja atvinnu
burt úr plássinu og urðu þá bæði
Vestmannaeyjar og Sandgerði fyrir
valinu því ávallt var sjósókn eða
önnur tengd störf honum efst í
huga.
I Sandgerði kynntist hann svo
eftirlifandi eiginkonu sinni, Elínu
Traustadóttur, ættaðri úr Sand-
gerði og giftu þau sig 14. desember
1956. Þar bjuggu þau um tíma.
Börn þeirra eru sex og öll hin mann-
væniegustu. Þau eru: Jón Trausti,
fæddur 24. október 1956, kvæntur
Fjólu Kristjánsdóttur, búsett í
Hafnarfirði: Jóhanna, fædd 17. nóv-
ember 1957, gift Birgi Jósafats-
syni, búsett í Rvík; Dagbjartur,
fæddur 30. desember 1959, sambýl-
iskona Anna Bergsdóttir, búsett á
Djúpavogi; Guðlaugur, fæddur 23.
júní 1961, sambýliskona Hafdís E.
Bragadóttir, búsett á Djúpavogi;
Erlingur fæddur 19. mars 1963,
sambýliskona Elsa E. Sigurfinns-
dóttir, búsett í Rvík; Björk, fædd
20. mars 1967, unnusti Renos Dem-
endrío, búsett á Kýpur. Fyrir hjóna-
band eignaðist Hörður einn son,
Ingvar Hjört, búsettan á Fáskrúðs-
firði.
Barnabörnin eru orðin 11 en 10
eru á lífi og voru þau öll sólargeisl-
ar afa síns enda barngóður með
endemum.
Frá Sandgerði flytja þau svo
búferlum til Hafnarfjarðar og þaðan
er svo stunduð vinna, ýmist á sjó
eða landi og gripið það sem best
gaf hverju sinni. Um árabil stund-
aði Hörður sendibílaakstur í Hafn-
arfírði og muna margir þau störf
hans sökum ljúfmennsku og lipurð-
ar. Það er svo margs að minnast
að það gæti enst í margar greinar.
Hörður var einlægur í viðmóti,
gestrisinn og viðræðugóður, barn-
góður með afbrigðum, jafnvel svo
að um var talað. Hann var einnig
vel virtur meðal samstarfsmanna
og allra þeirra er áttu við hann
Valtýr Guðmundsson
skipsljóri - Minning
Þegar dauðann ber að garði,
verða fyrstu viðbrögð oft vantrú og
reiði. Síðan hvolfist sorgin yfír og
þeir heppnu geta grátið og fengið
eðlilega útrás fyrir hana. Dauðinn
er jú þróun i lífskeðjunni, við fæð-
umst, lifum og deyjum síðan.
Þann 26. apríl síðastliðinn kvaddi
þennan heim tengdafaðir minn,
Valtýr Guðmundsson. Mig langar
að minnast hans í örfáum orðum.
Ég kynntist Valtý fyrir um það bil
fímmtán árum. Það var fljótlega
sem ég tók eftir yfirmáta hjálpsemi
sem hann vildi sýna fólki sínu.
Þannig var að ég var að koma heim
með syni hans í fyrsta sinn og
Valtýr hafði frétt af því að ég hafði
verið svo óheppin að tapa seðla-
veski mínu daginn áður, nema það,
áður en ég fór kallaði hann á mig
. og rétti mér peningaseðil og sagði,
hérna væna mín, það er ómögulegt
að vera auralaus. Þetta lýsir honum
vel, finnst mér, því hann var sérlega
næmur á að fínna hvenær hjálpsemi
væri þörf. Þeir eiginleikar sem Val-
týr bjó einnig yfir var ákveðni, hann
komst það sem hann ætlaði sér.
Það hefur nú sjálfsagt verið lítið
annað en ákveðni og harka sem
dreif hann til útlanda þrisvar sinn-
um á þessu eina og hálfa ári síðan
‘hann veiktist. Það var mjög svo
ánægjuleg ferð sem við fórum í
saman til Danmerkur nú um pásk-
ana og hann hafði svo gaman af,
en hún var alveg áreiðanlega erfíð
fyrir hann, en þetta var það sem
hann ætlaði sér. Nú hefur hann
farið sína hinstu ferð 0g ég trúi því
að þjáningar hans séu að baki. Ég
vil þakka elskulegum tengdaföður
góð kynni, hann hefur kennt mér
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT THEODÓRA GUNNARSDÓTTIR,
Reykjahlið 12,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. maí kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á líknarfélög.
Guðjón Sigurðsson,
Auður Guðjónsdóttir, Kristján Róbertsson,
Unnur Guðjónsdóttir,
Bergljót Guðjónsdóttir, Jóhannes Eiríksson,
Bragi Guðjónsson,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
t
Við hið hörmulega fráfall sonar okkar, bróður og mágs,
ÓLAFS PÁLS PÁLSSONAR,
Skúlagötu 9,
Borgarnesi,
viljum við þakka öllum þeim sem sýndu okkur hlýju, hug og styrk
í mikilli sorg okkar.
Guð blessi ykkur öll,
Ragnheiður Oddsdóttir, Páll Kjartansson,
Einar Pálsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Ásta Pálsdóttir, Guðmundur Þorgrimsson.
samskipti og nú sakna vinar í stað.
Hann hafði í nokkur ár átt við las-
leika að stríða en stundaði störf sín
fram á síðasta dag. Hörður var ljúf-
ur maður og vildi öllum vel og gott
gera. Hann var samviskusamur,
nákvæmur og kröfuharður, hafði
ákveðnar skoðanir og sterka kímn-
igáfu. Hjálpsamur var hann með
afbrigðum og alltaf reiðubúinn ef
með þurfti. Hann reyndist heimili
mínu sannur vinur. Fyrir það vil
ég þakka. Minningin lifír um góðan
dreng. Elskulegri eftirlifandi eigin-
konu, börnum, tengdabörnum,
barnabörnum, svo og öðrum að-
standendum bið ég blessunar Guðs,
við hið mikla fráfall.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Sigurður Hjartarson
margt í lífínu.
Ég læt þetta ljóðabrot eftir Stein-
grím Thorsteinsson fylgja með því
hann Valtýr hélt mikið upp á það.
Trúðu á tvennt í heimi,
tign sem æðstá ber,
guð í alheimsgeimi,
guð í sjálfum þér.
Jónína Jóhannsdóttir
fyrir
steinsteypu.
Þ.ÞORGRlMSSON&CO
Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640