Morgunblaðið - 04.05.1991, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991
33
Tinna ÝrFriðriks-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 5. júlí 1986
Dáin 3. apríl 1991
Það var fyrir tæpum 2 árum að
lítil stúlka bankaði uppá hjá okkur
og spurði hvort hér byggi stelpa
sem vildi leika við sig. Þessu boði
var tekið fagnandi af annarri stúlku
sem sáran vantapi leikfélaga. Þetta
var Tinna litla Ýr.
Fjölskylda Tinnu hafði þá nýlega
flutt frá Sauðárkróki á Kjalarnesið
og var Tinna að kynnast nýjum
krökkum. Þarna upphófst innilegur
vinskapur á milli Tinnu og Hilmu.
Þetta samband var spennandi og
vinkonurnar þurftu að hittast á
hveijum degi. Fljótlega var lært að
hringja og síminn notaður óspart.
Iðulega þegar pabbi eða mamma
Tinnu kom að sækja hana þá þurfti
að byrja á að finna fötin hennar.
Því til var kassi með ýmsum furðu-
fötum sem gaman var að búa sig
upp í, einnig voru ilmvötn og máln-
ing notuð í miklu mæii. Fyrr mátti
ekki sjást sólargeisli en vinkonurnar
voru komnar í sundföt eða stuttbux-
ur með teppi og báðu um að fá
nesti til að fara með út í garð og
skipti þá engu hvort úti var 10 stiga
frost eða snjókoma. Heimsóknir
Tinnu urðu margar og því margs
skemmtilegs að minnast.
Tinna var líflegt og skemmtilegt
barn sem veitti mikilli birtu inn í
líf okkar allra þó ekki síst Hilmu
sem nú á um, sárt að binda fyrir
vinarmissinn. Þó árin séu ekki mörg
og lítið fólk skilji ekki allan lífs-
ganginn þá vakna samt margar
spurningar og mörg áhyggjuefni
koma upp í hugann. „Á Guð brauð-
rist var spurt," því Tinnu þótti rist-
að brauð alveg óskaplega gott.
„Hittir Tinna nú Krumma, kisuna
sína sem dó í vetur,“ var önnur
spurning.
Nú er Tinna farin og söknuðurinn
er mikill, þessi litla stúlka sem hafði
gefið svo mikið af sér, tekin alltof
snemma burt frá ijölskyldu og vin-
um.
Sorg foreldra, systur og íjöl-
skyldu er mikil, þetta er áfall sem
erfitt er að lifa með en samheldin
fjölskylda styrkir og gerir harminn
léttbærari.
Við þökkum stutta en ánægju-
lega samfylgd. Blessuð sé minning
Tinnu Ýr Friðriksdóttur.
Elsku Steina, Frissi og Telma,
við sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Megi góður Guð
styrkja ykkur í þessari miklu sorg.
Fjölskyldan Esjugrund 7,
Hilma, Elín Rós, Gísli Steinn,
Freydís, Sigurlína og Pétur.
Ingileif Brynjólfs-
dóttir - Minning
Fædd 5. september 1913
Dáin 23. apríl 1991
í dag verður amma okkar, Ingi-
leif Brynjólfsdóttir, jarðsett. Hún
fæddist að Kirkjulæk í Fljótshlíð.
Foreldrar hennar voru Gróa Þórðar-
dóttir og Brynjólfur Sigurðsson.
Okkur langar að skrifa fáein orð
um ömmu sem veitti okkur svo
mikið. Þær eru margar stundirnar
sem við höfum bæði hlegið og grát-
ið hjá henni.
Amma var glaðlynd og einstak-
lega réttvís kona sem kenndi okkur
margt sem á eftir að koma sér vel
fyrir okkur á lífsleiðinni. Hún studdi
okkur með ráðum og dáð. Hún tal-
aði oft um uppvaxtarár sín og æsk-
ustöðvar, Fljótshlíðina, og hafði frá
mörgu fróðlegu að segja. Og þótt
á móti blési þá bjó hún yfir ótrúleg-
um styrk. Þá er helst að nefna að
þijú börn sín missti hún ung að
árum en sagði alltaf að Guð hefði
ætlað þeim annað og meira hlut-
verk og kenndi okkur að í trúnni
væri styrk að fá.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við ömmu okkar og biðjum
Guð að geyma hana og varðveita.
Látum við nú fylgja bænirnar sem
amma kenndi okkur fyrstar.
Vertu Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Kristur minn ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu,
gakktu hér inn og geymdu mig,
Guð, í faðmi þínum.
Vertu nú yfir og allt um kring,
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Ingileif, Margeir,
Anna Sigríður, Ægir,
Guðbjörg Bjarney og.
Hansína Guðný.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför systur
minnar,
AUÐAR HELGU ÓSKARSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks
Landspítalans.
Bent Scheving Thorsteinsson.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og
útför bróður okkar,
OKTÓS GUÐNASONAR,
Svalbarðseyri.
Birna Guðnadóttir,
Sigríður Guðnadóttir
og fjölskyldur.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til-
vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar
getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning-
argreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
t
Útför bróður okkar og vinar,
ÞÓRÐAR KR. JÓNSSONAR,
frá Hvammi í Dýrafirði,
fer fram frá Fossvogskirkju að ósk hins látna miðvikudaginn 8.
maí kl. 1 5.00.
Sigríður Jónsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir,
Sigurlaug Jónsdóttir, Inga Jónsdóttir,
Ingunn Jónsdóttir,
Kristbjörg Bjarnadóttir, Sævar Gunnarsson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EYJÓLFUR VILMUNDSSON,
frá Löndum, Grindavík,
Þórusttg 26, Njarðvik,
lést á Landspítalanum 30. april.
Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 10. maí
kl. 14.00.
Guðjón Eyjólfsson, Marta A. Hinriksdóttir,
Snorri Eyjólfsson, Ingileif Emilsdóttir,
Kristín Eyjólfsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og útför móður
okkar,
KRISTÍNAR SVEINSDÓTTUR,
Uxahrygg.
Fyrir hönd okkar systkinanna og annarra aðstandenda.
Gróa Guðjónsdóttir,
Óskar Guðjónsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar,
VILBORGAR ÓLAFSDÓTTUR,
Rauðalæk 53,
Reykjavik.
Ólafur Stefán Sigurðsson,
Þórður Örn Sigurðsson,
Brynhildur Ósk Sigurðardóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
MARKÚSAR JÓHANNS EIRÍKSSONAR.
Sérstakar þakkir til Magna Jónssonar læknis og alls starfsfólks
gjörgæsludeildar Borgarspítalans fyrir frábæra umönnun.
Salome Mariasdóttir,
Þórunn Stella Markúsdóttir,
Sigurjón Markús Jóhannsson, Þórunn Þórisdóttir,
Helga Unnur Jóhannsdóttir, Hermann Björgvinsson,
Atli Már Jóhannsson,
María Björk Hermannsdóttir,
Þórunn Stella Hermannsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÖNNU SIGRID MAGNÚSDÓTTUR,
Kirkjuvegi 59,
Vestmannaeyjum.
Sigurður Gissurarson,
Pétur L. Marteinsson, Áslaug Árnadóttir,
Karl G. Marteinsson, Svandis Sigurðardóttir,
Þórarinn S. Sigurðsson, Guðrún R. Jóhannsdóttir,
Margrét Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu, móður, tengdamóður
og ömmu okkar,
GUÐRÍÐAR HULDU
GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Bíldsfelli.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild 11 e á Landspítalanum.
Sigurður Jónsson og synir,
tengdadætur og barnabörn.