Morgunblaðið - 30.08.1991, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991
.■ )'■ :i 0 1 : •-.-i—'U
HINII EINI OG SANNI
STEINAR
Hljómplötur — kasettur
KARNABÆR
SONJA
VINNUFATABÚÐIN
PARTÝ
B LDSHÓFÐI „ _ _ -
STÓRUTSOLU
MARKAÐURINN
vESTURLANDSVEGUH
STRAUMUH
j Opnunartími j
■ I
■ __________ I
J Föstudaga J
: ki. 13-19 ;
: Laugardaga 1
: ki. w-16 :
: Aðra daga í
í kl. 13-18 I
FRÍTT KAFFI — VÍDEÓHORN FYRIR BÖRNIAI - ÓTRÚLEGT VERfi
Tískuvörur
BOMBEY
Barnafatnaður
STRIKIÐ
Skór á alla fjölskylduna
KJALLARINN/KOKO
Alhliða tískufatnaður
Fatnaður
SAUMALIST
THEODORA
Tískufataverslun
OG MARGIR FLEIRI
Fjöldi fyrirtækja — gífurlegt vöruúrval
NÝTT GREIÐSLUKORTATÍMABIL HEFST Í DAG
.DSHOFBA 10
Með lágu verði, miklu vöruúrvali og þátttöku fjölda fyrirtœkja
hefur stórútsölumarkaðurinn svo sannarlega slegið ígegn
__________________og stendur undir nafni.________________
Joan
Collins
kynnir
nýju
bókina
sína.
BÆKUR
Joan Collins í fótspor
systur sinnar
Leikkonan Joan Collins fylgir nú
eftir nýrri skáldsögu sinni sem
ber heitið „Love, Desire and hate“.
Hún fer vítt og breitt og er koma
hennar hvarvetna auglýst þannig
að æstir aðdáendur geta komið og
fengið hana til að árita bókina. Það
væsir ekki um ungfrúna í uppákom-
um þessum, hún rennir yfirleitt í
hlað bókaverslana í gljásvörtum lí-
músínum og sýnir lærleggina
augnablik er hún stígur út úr þeim
sötrandi bleikt kampavín. Aðsóknin
er góð og bókin hefur verið rifin út.
Joan er þekktari fyrir frammsitöðu
sína á sviði, í kvikmyndum og sjón-
varpi heldur en á ritvellinum. Bók
hennar þykir vera mjög í anda
þeirra bókmennta sem systir hennar
Jacky Collins hefur auðgast ógur-
lega á í gegn um árin. Þetta eru
spennusögur með hráum ofbeldis-
og kynlífslýsingum og tilheyrandi
slanguryrðum og ljótu orðbragði.
Það var raunar sagt strax um afurð
Joan, að hún tæri beint í smiðju
Jacky og viki ekki þaðan. Joan
kærir sig kollótta um slíka dóma
og ekki hefur heyrst að Jacky mis-
líki það.
Sem fyrr segir hefur aðsókn að
áritunarstundum Joan verið mjög
góð. Svo góð’ á stundum að komið
hefur fyrir að hún hefur mátt hrök-
klast úr verslunum vegna ágangs
æstra aðdáenda sem láta sér ekki
duga að fá áritaða bók, heldur rifr-
ildi af fötum ungfrúarinnar. Eru
þeir aðallega karlkyns sem svo
langt ganga.
Tískufatnaður herra og
dömu
Tískufataverslun
Allskonar efni
LEIKARAR
Lífið ekki bara dans á rósum
hjá Patrick Swayze
Nýr hönnuður
haslar sér völl
Rétt rúmlega þrítug kona er
nú mjög áberandi í heimi
tískuhönnuða. Hún heitir Chynt-
hia Steffe og tískujöfurinn Donna
Karan réði hana í vinnu til sín
áður en hún úitskrifaðist úr þekkt-
um hönnunarskóla.
Steffe segir að hún hafi alist upp
í smábæ á afskekktum stað í
Bandaríkjunum og það hafi ekki
verið stanslaus dans á rósum-'aö
láta verða þar af fatahönnun, slíkt
hafi talist hinn versti hégómi.
Fyrir vikið hafi hún verið álitin
snobbaður sérvitringur erhún tók
að ganga um í fötum sem hún
hannaði sjálf, enda stakk hún þar
með verulega í stúf við þorpsbúa.
Hún hélt sér hins vegar við efn-
ið og réðist til vinnu hjá Donnu
Karan eins og áður sagði. Hróður
hennar barst skjótt vítt og breitt
og þar kom að hún treysti sér til
að slíta tengslin við tískuhúsið og
stofna sitt eigið. Eiginmaður
hennar Richard Roberts stendur
með henni og er meðeigandi.
Hann segir að hún hafi haft slík
áhrif á sig er hann sá hana fyrst,
að ekki hafi annað komiö tií
greina eu að giftast henni, sama
hvað það tæki iangan tíma að
sannfæra hana. Þó það tæki alla
ævi. Það tók reyndar mun
skemmri tíma, hann reyndist hafa
sama aðdráttaraflið á hana og
öfugt. Cynthia leggur áherslu á
léttan útivistarfatnað fyrir konur
með þeim orðum aö ef að konur
fái á tilfinninguna að þær taki sig
vel út í ákveðnum fatnaði þá hefj-
ist þegar jákvæð útgeislun frá
þeim....
Það skiptast á skin og skúrir
hjá leikaranum og kyntröll-
inu Patrick Swayze. Fyrir skömmu
kusu lesendur bandaríska tíma-
ritsins „People“ hann kynþokka-
fyllsta karlmann veraldar og er
talið að frammistaða hans í met-
sölukvikmyndinni „Ghost“ hafi
ráðið þar nokkru um og svo dálít-
il forn frægð frá dögum kvikmynd-
arinnar „Dirty Dancing".
Síðustu ár hafa kappar á borð
við Sean Connery, Tom Cruise,
Harry Hamlin og Mel Gibson verið
kosnir í umrætt óformlegt emb-
ætti. Demi Moore, leikkonan sem
lék á móti Swayze í „Ghost“ sagði
um hann í blaðinu, að hann væri
heiðursmaður, kurteis og snoppu-
fríður, en líkami hans minnti helst
á stælt villidýr! Það var og.
En það var talað um skin og
skúri. Það kom skúr hjá Swayze
fyrir skömmu er hann var við tök-
ur á nýjustu kvikmynd sinni „Po-
int Break“.
Þar leikur hann mikinn snilling
í brimbrettamennsku og þar sem
Swayze hefur ævinlega lagt
Patrick Swayze var hætt kominn
áherslu á að leika sjálfur í sínum
áhættuatriðum, nema að þau séu
þeim mun vafasamari, þá kom
auðvitað ekki annað til greina en
að sigla sjálfur á brimbrettinu í
einu af aðalskotum myndarinnar,
er hetjan tekst á við slíkan brotsjó
að hann myndi laska meðaltogara.
Þetta var mikil bára og Swayze
reyndist ekki vera jafn liðtækur
brimbrettamaður og hann hugði.
Löðrið þeytti honum fyrst af brett-
inu og leikaranum skolaði upp í
ijöru.
Er hann ætlaði að klóra sig í
land þreif sogið í hann og spyrnti
á haf út og það þurfti hálft dúsín
strandvarða til að bjarga garpin-
um úr sjónum.
Hann var nærri rænulaus er
menn náðu til hans og hann sagði
eftir á að sú hugsun hefði flogið
í gegn um höfuð hans, að lungun
væru að springa, „ég er að deyja,“
var síðasta hugsun hans áður en
hann missti meðvitund og það
næsta sem hann vissi var að björg-
unarmenn voru að dæla upp úr
honum sjó...
Cynthia Steffe...
TÍSKA