Morgunblaðið - 21.09.1991, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991
Frá fundi nemenda Menntaskólans við Hamrahlið með menntamálaráðherra.
Nefnd fari yfir inntökuskilyrði HÍ:
Morgunblaðið/KGA
Því ekki að láta reyna á
nýja kerfið og fylgjast með
- spurði nemandi í MH á fundi með menntamálaráðherra
HVERS vegna fáum við ekki að reyna nýtt fyrirkomulag í fjögur ár?
Nemendur og kennarar í Menntaskólanum við Hamrahlíð spurðu Ólaf
G. Einarsson menntamálaráðherra þessa á fundi í skólanum á fimmtu-
dagskvöid. Ólafur dró í haust til baka ákvörðun um að leyfa skólanum
að gera tilraun með aukið valfrelsi nemenda, eftir að kennslumála-
nefnd Háskólans lýsti áhyggjum yfir breytingunum. Ráðherrann hyggst
skipa nefnd til að fara yfir hvaða kröfur séu gerðar til stúdenta sem
hefja nám í Háskólanum. Einn þeirra nemenda sem töluðu á fundinum
í MH spurði hvort ekki væri réttast láta reyna á nýja kerfið og nær
fyrir nefndina að fylgjast grannt með framvindu þess.
Undirbúningur breytinga á náms-
fyrirkomulagi í MH fór fram í sam-
vinnu við ráðuneytismenn. Breyting-
amar snúast um að auka frelsi nem-
enda til að velja námsgreinar og til
að mæta því átti að ráða fleiri náms-
ráðgjafa að skólanum. Ólafur G.
Einarsson segir Svavar Gestsson
hafa samþykkt þessi áform í mars
án þess að gefa embættismönnum
ráðun'eytisins færi á að athuga mál-
ið. Síðan hafi það ekki komið á borð
ráðherra fyrr en í ágúst, en þá hafi
háskólayfírvöld látið í ljós áhyggjur.
Benedikt Hjartarson forseti Nem-
endafélags MH segir málið snúast
um hvort nemendum á framhalds-
skólastigi sé treyst til að undirbúa
sig fyrir það nám sem þeir hyggja
á. Menn virðist halda að einingar
sem nemendur taki í fijálsu vali
megi allt eins færa þeim að gjöf. En
í nýja kerfinu sé heldur skerpt á
kröfum og aukið við gildi
stúdentsprófs.
Þórður Kristinsson talaði fyrir
hönd kennslumálanefndar Háskól-
ans. Hann segir nefndina telja að
breytingamar í MH hafi bein áhrif
á inntökuskilyrði í HÍ. Nemendur
geti útskrifast með ónógan undir-
búning og við hafi blasað ný skil-
greining stúdentsprófs. Spuming sé
hvort ekki þurfi að endurmeta það
í heild.
Að öðmm kosti segir Þórður að
Háskólinn geti bmgðist við á tvenn-
an hátt og þuki hvorugt fýsilegt.
Annars vegar með því að skilgreina
lágmarkskröfur til setu í einstökum
deildum, eins og nú er um lyfja-
fræði. Hins vegar að halda einhvers-
konar inntökupróf.
Menntamálaráðherra svaraði á
þessa leið spumingum um hvers
vegna horfið hafi verið frá því að
leyfa breytingarnar: „Við teljum rétt
af því tilefni sem hér gafst að sam-
ráð og sáttir náist milli Háskólans
og framhaldsskóla um skilgreiningu
stúdentsprófsins. Það þarf að vera
ljóst hveijar kröfur Háskólinn gerir.
Svo getur verið að þetta fyrirkomu-
lag verði reynt hér við Hamrahlíð.
Það hef ég aldrei útilokað."
Fleiri Spjaldvísur
eftir Hallberg
Hallmundsson
BRÚ hefur gefið út Spjaldvísur II
eftir Hallberg Hallmundsson. Þetta
er fimmta bók Hallbergs á íslenzku,
en hann hefur einnig þýtt á íslenzku
og verið enn stórvirkari í þýðingum
á ensku. Ejórða bók Hállbergs var
Spjaldvísur, stutt ljóð, sem kom út
1985.
Um þessa nýju bók segir m.a. á
kápu: „Þegar fyrri bindi Spjaldvísna
kom út, árið 1985, vom margir sem
vissu ekki hvernig þeir áttu að taka
því. Það var óiíkt öðmm ljóðabókum.
Hér var hnyttnin, skopið, kaldhæðnin
í öndvegi; skemmtileg bók sem jafn-
framt vakti til umhugsunar. Skáldaði
kafaði undir yfirborðið skyggndist í
mennska hugi — og hafði flest að
gamni sem fyrir augu bar. í bland
var þó slegið á þýðari stengi.
Nú er þessi sami sposki höfundur
á ferð með nýjar Spjaldvísur, kannski
öllu ljúfari og lýrískari en hinar fyrri,
en af sömu íþrótt kveðnar."
Hailberg Hallmundsson
Spjaldvísur II skiptist í fímm hluta
með hátt í 70 ljóðum. Bókin er 90
blaðsíður.
Arétting frá Sjónvarpinu
Morgunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi frá Pétri Guðfinnssyni,
framkvæmdastjóra Sjónvarps-
ins:
„í frétt í Morgunblaðinu í dag
[20. september] um Textavarp
kemur fram sá misskilningur hjá
formanni Útvarpsréttamefndar að
Sjónvarpið sendi út brenglaða stafí
sem ekki samrýmist íslensku staf-
rófí. Af þessu tilefni tekur Sjón-
varpið fram, að senditæki þess
senda út rétt íslenskt letur að frá-
töldu „ý“.
Hins vegar eru tiltölulega fá sjón-
varpstæki landsmanna enn sem
komið er með réttum búnaði fyrir
textavarp sem ræður við að fram-
kalla séríslenska stafi. Hægt á að
vera að breyta viðtökubúnaði í nýrri
gerðum tækja, en óvíst er um ýms-
ar eldri gerðir.
Þær útsendingar sem í gangi
hafa verið síðan um miðjan ágúst
em til þess gerðar að auðvelda selj-
endum viðtækja að vinna að nauð-
synlegum endurbótum í samvinnu
við framleiðendur tækjanna.
Sjónvarpið væntir þess að menn
bregðist fljótt við og hafi samband
við sölumenn tækja sinna um þessa
nauðsynlegu breytingu.“
Vorfermingar í Reykjavík 1992
Reykjavíkur-
prófastsdæmi eystra:
Upphaf
fermingar-
fræðslu
í vikunni eftir 22. september
næstkomandi fer fram innritun
bama til fermingarundirbúnings
hjá söfnuðum í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi eystra. Nær prófasts-
dæmið yfir Árbæ, Grafarvog,
Breiðholt og Kópavog. Verða þá
innrituð á fermingamámskeið
böm, sem fædd em a árinu 1978
og verða 14 ára árið 1992. For-
eldrar og aðrir forráðamenn bama
em vinsamlegast beðnir að kynna
sér, í auglýsingum frá söfnuðun-
um, hvenær og hvar innritunin á
sér stað og er æskilegt, að börnin
hafi með sér ritföng. Fermingar-
fræðslan stendur yfir til marsloka,
en fermingar fara síðan fram í
apríl á vori komanda. Eftir að
fermingamámskeiðið er hafið,
verða foreldrar boðaðir á foreldra-
fundi og námið kynnt fyrir þeim.
Einn liðurinn í fermingamndir-
búningi barnanna, og ekki hinn
léttvægasti, er sá, að bömin sæki
guðsþjónustur safnaðanna og
kynnist guðsþjónustunni, sem er
þungamiðja kristins safnaðarlífs.
Er þá mikils um vert, að foreldrar
fylgi bömum sínum til guðsþjón-
ustu og sýni þeim þar með gott
fordæmi og einnig er afar mikil-
vægt, að foreldrar fylgist vel með
námi barnanna heima fyrir og
hafi samband við fermingarfræð-
arana. Fyrirhugað er eins og tvo
undanfarna vetur að bjóða upp á
stutta námsdvöl (tveir dagar) í
Skálholti í lok októbermánaðar
og í nóvember næstkomandi.
Verða þær námsferðir kynntar
síðar.
Bamaguðsþjónustur í Reykja-
víkurprófastsdæmi eystra munu
yfirleitt hefjast sunnudaginn 29.
september. Verða þær á sunnu-
dagsmorgnum á vetri komanda
en bamastarfið mun kynnt betur
síðar.
Kirkjan er oss kristnum móðir.
Sú móðir kallar bömin sín til sam-
funda við konung lífsins, frelsar-
ann Jesú Krist. Hún er starfstæki
hans hér á jörð. Ekkert verður
æsku íslands betur gjört en leiða
hana á hans fund, sem er vegur-
inn, sannleikurinn og lífið. Guð
styrki hugi okkar og hendur til
hins góða verksins. Hann blessi
starf kirkjunnar, sem framundan
er og gefí því vöxtinn.
Guðmundur Þorsteins-
son, dómprófastur.
Reykjavíkur-
Barnastarf og
fermingar
fræðsla
Vetrarstarf kirkjunnar er nú
óðum að hefjast í Reykjavíkurpró-
fastsdæmi vestra. Barna- og ungl-
ingastarf í kirkjum prófastsdæm-
isins mun yfirleitt hefjast frá og
með sunnudeginum 22. septemb-
er. Barna- og unglingastarf er
íjölbreytt í prófastsdæminu og
hvet ég foreldra að kynna sér
starfsemi sóknarkirkjunnar í því
sambandi.
Innritun í fermingarfræðslu
vetrarins hefst mánudaginn 23.
september og stendur alla næstu
viku. Sjá meðfylgjandi lista yfir
innritun.
Prófastsdæmið nær yfir allar
sóknir frá Elliðaám og vestur í
bæ auk Seltjamamess.
Fermingarböm næsta vors eru
böm, sem fædd eru árið 1978 og
verða 14 ára árið sem þau ferm-
ast.
Auk hefðbundins fermingar-
undirbúnings og þátttöku í safn-
aðarstarfi hvers safnaðar verður
í vetur boðið upp á fermingar-
bamanámskeið í Skálholti, sem
stendur í tvo daga. Námskeið sem
þessi hafa verið undanfarin tvö
ár og reynst vel. Aldrei verður
nógu vel undirstrikað hve
þátttaka fjölskyldu fermingar-
bams er nauðsynleg og góð
meðan á undirbúningi stendur.
Kirkjuganga og þátttaka á fund-
um fyrir foreldra fermingarbama
og/eða forráðamenn þeirra er
nauðsynlegur stuðningur við
bömin svo og gott samband við
fermingarfræðarann allan
tímann.
Fermingarárið er viðkvæmur
tími í lífi unglingsins. Unglingur-
inn er að byija að losa sig undan
áhrifamætti foreldranna, en vill
samt eiga þar ömggt skjól. Hann
er að byija að takast á við erfiðu
spumingar lífsins og þarfnast því
leiðsagnar og hjálpar. Besta hjálp-
in kemur frá foreldrunum, en
kirkjan vill leggja sitt af mörkum
í þessu sambandi. í fermingar-
fræðslunni er leitast við að fara
yfír grundvallaratriði í kristinni
trúfræði og siðfræði. Einnig er
lögð rík áhersla á að kenna böm-
unum að umgangast hið heilaga,
þ.e. að læra að ganga í Guðs hús
og tilbiðja Guð.
Góður Guð blessi starf kirkj-
unnar á komandi missemm og
gefi okkur öllum náð til að starfa
vel saman.
Jón Dalbú Hróbjartsson,
prófastur.
Fermingarböm vorsins 1992
komi til skráningar og viðtals
hjá sóknarprestum sem hér
segir.
Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra
Ásprestakall: í Áskirkju þriðju-
daginn 24. september kl. 17.
Bömin em beðin að hafa með sér
ritföng. Sr. Ámi Bergur Sigur-
bjömsson.
Bústaðaprestakall: í Bústaða-
kirkju miðvikudaginn 25. septem-
ber kl. 17-18. Sr. Pálmi Matthías-
son.
Dómkirkjuprestakall: í Dóm-
kirkjunni mánudaginn 23.
september kl. 18. Sr. Jakob Á.
Hjálmarsson og sr. Hjalti Guð-
mundsson.
Grensásprestakall: í Grensás-
kirkju miðvikudaginn 25. septem-
ber kl. 15-16. Sr. Halldór S. Grön-
dal og sr. Gylfi Jónsson.
Hallgrímsprestakall: í Hallgr-
ímskirkju þriðjudaginn 24. sept-
ember kl. 17.30. Sr. Karl Sigur-
bjömsson og sr. Ragnar Fjalar
Lámsson.
Háteigsprestakall: í Háteigs-
kirkju fimmtudaginn 26. sept-
ember kl. 16. Sr. Amgrímur Jóns-
son og sr. Tómas Sveinsson.
Langholtsprestakall: Sóknar-
prestur hefur samband við ferm-
ingarbömin.
Laugamesprestakall: í safnað-
arheimili Laugameskirkju þriðju-.
daginn 24. september kl. 17-18.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson.
Nesprestakall: í Neskirkju mið-
vikudaginn 25. september kl.
15.15. Sr. Frank M. Halldórsson
og sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra
Árbæjarprestakall: í Árbæjar-
kirkju þriðjudaginn 24. september
kl. 5-7 síðdegis. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Breiðholtsprestakall: í Breið-
holtskirkju miðvikudaginn 25.
september kl. 16. Sr. Gísli Jónas-
son.
Digranesprestakall: Böm er
fermast á árinu 1992 komi til
innritunar í safnaðarheimilinu
Bjamhólastíg þriðjudaginn 24.
september kl. 13-15. Sr. Þorberg-
ur Kristjánsson.
Fellaprestakall: í Fella- og Hól-
akirkju þriðjudaginn 24. sept-
ember kl. 16-17. Sr. Hreinn Hjart-
arson.
Grafarvogsprestakall: Haft
verður samband við fermingar-
bömin í Foldaskóla á skólatíma.
Sr. Vigfús Þór Ámason.
Hjallaprestakall: í samkomusal
Digranesskóla þriðjudaginn 24.
september frá kl. 16-18. Bömin
hafí með sér skriffæri. Sr. Krist-
ján Þorvarðarson.
Hólabrekkuprestakall: í Fella-
og Hólakirkju fímmtudaginn 26.
september kl. 12-14. Sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson.
Kársnesprestakall: Þau böm
sem ekki verður haft samband við
í skólanum, komi í kirkjuna mið-
vikudaginn 25. september kl.
15-17. Prestur í Kársnespresta-
kalli er sr. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son.
Seljaprestakall: í Seljakirkju
mánudaginn 23. september kl. 16
fyrir Seljaskóla. Þriðjudaginn 24.
september kl. 16 fyrir Öldusels-
skóla. Sr. Valgeir Ástráðsson.
(Fréttatilkynning)