Morgunblaðið - 21.09.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.09.1991, Blaðsíða 35
Motócx'BLAÐii) LAUGARDAdck '21. éki,irK.iíBr:R ibk félk í fréttum HUNDAR Fagnaðarfundir er drottning sótti hunda sína Margret Danadrottning er með- al annarra hluta mikill dýra- vinur og það endurspeglast ekki hvað síst í þeirri staðreynd að hún er stoltur eigandi þriggja smá- hunda sem henni þykir afar vænt um. Svo vænt, að hún skilur þá helst ekki við sig og ef slíkt reyn- ist nauðsynlegt verða ævinlega miklir fagnaðarfundir er fundum þeirra ber saman á nýjan leik. Þegar Margrét fór í opinbera heimsókn til Frakklands á dögun- um æxluðust mál þannig, að þau gátu ekki orðið samferða, Margrét og hundrarnir þrír, Zenobia, Achil- les og Asterix. Þeir komu seinna og útheimtu að sjálfsögðu hver sitt einkasæti í „Euro-class“. Það er ekki lengi gert að fljúga milli Köben og Parísar, en engu að síð- ur rómuðu aðrir farþegar það hversu vel upp aldir þeir félagarnir væru. Það heyrðist aldrei svo mikið sem eitt gelt. Það voru engir nagaðir inniskór við leiðarlok. Hundarnir lögðu sig og rétt rumskuðu til þess að fá sér í svanginn, en þeir fengu sína matar- bakka eins og aðrir farþeg- ar. Að vlsu ekki sömu fæð- usamsetninguna. Við kom- una til De Gaulle flugvall- arins urðu síðan fagnaðar- fundir eins og myndirnar bera með sér. Fagnaðarfundir í París. Achilles og* Asterix...eftirvæntingin skín úr augum þeirra. VERÐLAUNAVEITING Tekið við bjart- sýnisverð laun- um Bröstes Helga Gíslasyni myndhöggvara voru afhent bjartsýnisverð- laun Bröstes fyrir árið 1991 sl. föstudag. Verðlaunaupphæðin er kr. 30.000 danskar. Vigdís Finn- bogadóttir forseti íslands afhenti verðlaunin og var Peter Bröste for- stjóri viðstaddur athöfnina sem fór fram í Gallerí Asbæk, þar sem úr- val verka Helga eru nú til sýnis til 22. september. Filipus prins kastar flugu sinni fyrir silunga úr bátnum góða. VESEN Ryljulegur veiðiþjófur reyndist vera prins Skoskur lögregluþjónn að nafni Ian Cameron, lenti í honum kröppum fyrir nokkru. Hann var á eftirlitsferð skammt frá kónga- setrinu Balmoralhöll og sá allt í einu rytjulegan eldri mann að veiðum úr árabáti á einkaveiði- tjörn bresku krúnunnar. Skammt frá sá hann rauða Ford-bifreið sem hann kannaðist ekki við. Hann néri saman höndum, hér var á ferðinni veiðiþjófur og hann kæmist ekki undan þessi. „Jæja kariinn, átt þú þennan rauða Ford þarna?“ æpti lög- regluþjónninn, en sá rytjulegi svaraði, „Nei, ég er á græna Landrovernum þarna við tréin.“ Það kom aðeins á Cameron og hann svaraði um hæl, svona til þess að vinna tíma, „Ertu viss?“, en þá gafst „veiðiþjófurinn" upp á löggæslumanninum, snéri við honum baki og hélt veiðinni áfram. Cameron skoðaði sig þá aðeins nánar um og sá á númar- plötum jeppans, að hann tilheyrði krúnunni. Rytjulegi veiðiþjófur- inn reyndist þá vera enginn ann- ar en hinn sjötugi Filipus prins! Það sá undir yljarnar á Cameron, en eftirmálar urðu engir. NAMIÐ,F|ARMALIN LÍFIÐ!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.