Morgunblaðið - 21.09.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.09.1991, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991 ---------------------------------------- Feðgaminning: Jóhann Þórðarson Þórður Guðnason Jóhann Fæddur 23. júní 1961 Dáinn 1. maí 1991 Þórður Fæddur 31. júlí 1917 Dáinn 12. september 1991 Við, sem kynnst höfum heimili þeirra Völu og Þórðar í Sunnutúni, í gegnum árin, höfum fundið þar mikla friðsemd og góðvild. Þar var eins og lífið væri aðeins ljúft og auðvelt að lifa því. Eins og mót- lætið væri allstaðar annarstaðar. Það var eins og þar væru stroknir strengir einungis af glaðværð, mannúð og rausn. Fyrst þurfti auð- vitað að bijóta örlitla skel af varúð þeirra við að taka við hveijum gal- gopa sem bar að bæ þeirra, þótt þau gerðu sér engan mannamun í þeim efnum. En þau voru þeirrar gerðar að þau hlógu ekki við hveij- um sem var. En heimili þeirra var mjög ylríkt. Börnin þeirra þijú: Elvar, Gerður og Jóhann, eru öll sömu gerðar. Heilsteypt og prúð og leyna mjög á sér um hæfileika sína. Hafa erft ’ og numið manngildis dyggðir traustra stofna. Þessvegna er það, að manni rennur það ósjálfrátt mjög til rifja, þegar þau miklu örlög stíga fram, sem gera þennan ylríka reit að döprum ranni. Það gerðist. Það gerðist með þeim hætti, að hinn ungi maður, Jóhann Þórðarson, yngsta barn þeirra Völu og Þórðar, gekk að venjulegum hætti til sinnar hvílu, en kom ekki aftur á okkar mann- lega svið. Hann var látinn. Þá snoppungaði dauðinn Stokkseyri, einu sinni til, eins og stórbrimið gerir í sínum viltasta ham. En þá þegar fer napur næðingur um sálir þess fólks sem á þessum vorbjarta maímorgni fréttir af því, að mikill og sannur mannkosta drengur varð eldi að bráð. Við, sem í fjarlægð erum, stönd- um hnípin með kalt vatn á bakinu í sólskinsdegi af ímynduðum sárs- auka, ef miðað er við það sem að foreldrum og systkinum þessa gæða drengs var rétt, með þessum hætti. Nú vildi svo til, að Þórður, faðir Jóhanns, var lagstur á sinn bana-' - beð á Landakotsspítalanum í Reykjavík, þegar lát sonar hans bar að. Fyrir góðvild og mannúð ráðandi fólks á Landakoti fékk hann að hafa Valgerði konu sína hjá sér, en ekki mun vera venjulegt eða algengt að ósjúkir dvelji þar með vensluðum. En þetta var ósk hans, sem kærleiksríkt fólk gat uppfyllt vitandi það, að það varð honum meira til afþreyingar og dýpri aðhlynningar en nokkurt sjúkrahús getur veitt eða látið í té. Hann var helsjúkur og þar af leið- andi orðinn smár í sniðum, miðað við fyrri tíð. Ég frétti af því, að hans hinsta ■ bón var að miklu, dýrmætu og óborganlegu þakklæti væri komið til þess fólks, sem af sérstakri nær-fæmi og ómælanlegum kær- leika fór höndum um hann og jók honum sálarstyrk í mikilli raun. Hann hafði orð á því, að 74 ára gamall hefði hann ekki gert sér grein fyrir því, að marínkærleikur- inn væri svo mikill í okkar þjóðfé- lagi, sem hann þreifaði á eða birt- ist honum á Landakoti, fyrst og síðast fyrir það að hann fékk að hafa Völu hjá sér. Af því má sjá v hve einlægur hjúskapur þeirra var, Völu og Þórðar. Ég tel þessari bón Þórðar komið til skila eftir föngum. Hann stóð þá í kröppum dansi við dauða sinn. Sá ömurlegi dans stóð rúmlega þijá mánuði þar frá. Dauðanum liggur ekki alltaf á, þótt hann sé sífellt að störfum. En þannig bar það til, að foreldr- ar Jóhanns voru bæði á Landakots- spítalnum, þegar eldsvoðinn varð í Götuhúsum á Stokksheyri, þar sem Jóhann lést. Einhver varð að færa þeim þá fregn. Það kom í hlut elsta barns þeirra, Elvars og Helgu konu hans. Ég frábið mig því að gera grein fyrir hve sársaukafull og þung spor það hafa verið, sem þessi yfirvegaði og umhyggjusami sonur varð að stíga til foreldra sinna, að því sinni, án þess að æðrast, nema þá við guð sinn. ' „Enginn þekkir gleðina til hlítar, nema hann hafi kynnst sorginni," hefir einhver málglaður sagt á sín- um tíma. Ég get ekki aðhyllst þetta spakmæli. En að öðlast skilning á dauðanum er óefað þroski til gleð- innar. Með þeim hætti er tiltölulega greið útgönguleið frá harminum. Minnumst þess líka, að þeir sem mikið hafa átt, hljóta að missa mikið, vegna forgengileikans í mannlegum heimi. Valgerður Sigurðardóttir, móðir Jóhanns, hafði skilning á því, að lífið gaf henni hugljúfan, glaðvær- an dreng, sem hún hafði ekki meiri einkarétt á en aðrar mæður eða foreldrar á sínum börnum, sem dauðinn hefir flutt frá þeim um set, með álíka hætti, þótt þau væru þeim stoð og gleðigjafi. Hún sætt- ist við sorgina og dauðann af mann- legri visku og tárin þornuðu, þrátt fyrir það að hún horfði uppá hann beija á manni sínum í húsi sínu og fór sér ekkert óðslega að því sinni. Það hlýtur að hafa hvarflað að henni að biðja hann að gera sér þann greiða að ljúka þessu af, sem hann var endanlega byijaður á. Það gerði hann. Hún er sátt við hann, að þetta er yfirstaðið, sem ekki varð umflúið. Af mínum sjónarhóli er dauðinn ekki dýpsta bölið. Stundum er hann greiðasamur og leysir fólk frá mikilli kröm. Hér eru feðgar á ferð, sem flutt- ir hafa verið til í jarðvegi, eins og alltaf gerist, með hvert eitt líf. Ég ætla mér ekki að setjast í eitthvert dómarasæti um heimmkomu þeirra, en ég tel að hún verði þeim hagstæð, vegna þess að frá þeim hríslaðist góðvildin og trúfestan við það sem við köllum fagurt í mann- lífinu. Þeir voru hvor öðrum líkir í raun, eins og vænta má. Báðir hraustleikamenn til góðra verka. Orðfáir með vaskleikann i athöfn- um sínum. Seinteknir og traustir í hógværð sinni. Þeim láðist jafnan að tróna sér á ræðupalla þjóðfé- lagsins til þess að sanna ágæti sitt í hvívetna, sem virðist vera orðinn kækur hjá einstaklingum þjóðar- innar. En þessum drengjum var það í blóð borið að vinna störf sín af samviskusemi og þeirri hollustu, að ekki yrði að fundið. Þessvegna voru þeir vel metnir af verðleikum sínum. Ef til vill höfðu þeir þess- vegna hreinni, tærari, tón í samfé- lagi sinu en þeir, sem með gaspri og fyrirheitum gefa hæpnar vonir um meiri velferð, sem þeir vita ekki hvar á að taka. Nú er komið að þeim, sem þess- um feðgum unna, að biðja almætt- ið að að greiða vegferð þeirra á nýjum leiðum. Þeir verðskulda það. Með kærri kveðju frá Valgerði Magnúsdóttur og Skarphéðrii Óssurarsyni. Hann Þórður er dáinn, eftir nokkurra mánaða baráttu við þenn- an erfiða sjúkdóm. Ég kynntist Þórði fyrir 19 árum er ég kom fyrst inn á hans heimili og Valgerðar konu hans. Það var tekið vel á móti væntanlegum tengdasyni, enda rann feimnin af mér er ég sá Þórð, því þá kom í Ijós, að hann hafði komið á minn vinnustað til að kaupa varahluti. Þórður lifði fyrir sína nánustu, traustur, raun- góður og ein af þessum hversdags- hetjum okkar lands. Hann ók vöru- bíl hjá frystihúsinu á Stokkseyri á þessum tíma og oft kom það fyrir að svefninn var stuttur þegar mik- ið var að gera. Hann fylgdist mikið með aflabrögðum báta á staðnum enda hafði hann mikinn áhuga á sjómennsku. Það var nóg að spyija Þórð um veðurspána, hann fylgdist alltaf með henni. Hann var trúmaður mikill, sótti messur þegar þær voru. Hann var bamgóður, enda var hann glaður að fá að hafa barnabörnin og lang- afabarnið hjá sér. Þórður var hæg- látur maður og lét ekki fara mikið fyrir sér. Hann átti það til að vera svolítið stríðinn, en það gerði ekk- ert til. Það er hægt að telja endalaust upp það góða í fari hvers manns, en í fari Þórðar man ég ekki eftir neinu slæmu. Hann var kvæntur Valgerði Sigurðardóttur og lifir hún mann sinn. Þau áttu þijú börn, Elfar, Gerði og Jóhann, en Jóhann misstu þau síðastjiðið vor, og var það mikill missir. Ég vil senda þeim mínar innilegustu samúðarkveðjur, og bið Guð að gefa þeim styrk í sorg sinni. Far þú I friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Bjarni Hallfreðsson Þetta var í júní. Og árið var 1961. Valgerður frænka á Stokks- eyri var að koma af fæðingardeild- inni heim til okkar í Bólstaðarhlíð- ina sem fyrsta áfanga að heimferð- inni með pínulitla nýja strákinn sinn sem storkurinn hafði þá kom- ið með rétt fáum dögum fyrr. Eða svo var okkur kynnt gangverk sköpunarverksins í þá daga sem Morgunblaðið hafði fastan greina- þátt um hvað storkurinn sagði. Ferð þeirra hjóna Þórðar og Völu var annars heitið til Sunnut- úns á Stokkseyri þar sem þau hjón bjuggu og snáðanum ætlað að slíta bamsskóm sínum í heilnæma sjáv- arloftinu. Dagurinn var óvenjusól- ríkur og því enn bjartari og fallegri í minningunni fyrir sex ára gamlan frænda sem skildi annars lítið í hvemig allir þessir undarlegu hlut- ir sköpunarverksins gengu raun- verulega fyrir sig. En það var nú önnur saga. Mér er það eitt eftirminnilegast úr æsku minni þegar þau mæðgin komu þennan dag af fæðingar- deildinni og ég og Fríða, tveggja ára systir mín þá, fengum með eftirgangsmunum að horfa alla leið ofaní burðarrúmið gegn því loforði að halda helst í okkur andanum svo við vektum nú ekki prinsinn litla sem svaf svo vært að varla sást. Árin liðu og hver hélt sína leið út í heiminn og lífið. Jóhann sem alltaf kom mér fyrir sjónir sem óvenju feiminn maður lét það nú samt ekki aftra sér frá því að rífa eitt stykki ungmennafélag upp úr hundrað ára þyrnirósarsvefni sín- um á Stokkseyrinni í að verða eitt — af virkari ungmennafélögum lands- ins. í það minnsta kosti hér á suður- horninu. Svo mikið var víst. Þrátt fyrir hógværðina og lítil- lætið þá gekk líf Sunnutúnsfólksins á Stokkseyrinni sinn vanagang. Það er meira en hægt er að segja um allar deildir ættarinnar. Að minnsta kosti sumar hvað varðar lítillætið gæti einhver sagt hér. En samt var eitt sem skar sig öll árin úr hjá Völu og Þórði og þeirri deild ijölskyldunnar. Það var hláturinn. Innilegur og einlægur hlátur og jafnvel hrossahlátur fjöl- skyldunnar allrar þegar við átti. Og einkum og sérílagi þeirra feðga Þórðar, Elvars og Jóhanns. Val- gerður lét nú sitt ekki eftir liggja þótt minna hristist glerið í húsinu af tónlægri hláturstyrk hennar og eðlislægri hógværð. En er ekki búið meira að segja að sanna vís- indalega að það sé hollt að hlæja? Og hlæja helst daga og nætur þeg- ar tilefni gefast til? Það virtist helst sem fjölskyldan í Sunnutúninu hefði tileinkað sér það holla heil- ræði í bókstaflegum skilningi. En svo mikið er víst að aldrei hef ég hitt þá feðga eða fjölskyld- una alla yfirhöfuð að ekki sé bros- að að flestu ef ekki öllu mannlegu og ómannlegu og broslegu hliðarn- ar séðar á öllu sem hægt var. Seg- ir það sína sögu af fjölskyldunni að það er til dæmis mér langminni- stæðast af þeim Þórði og Völu og börnum þeirra þremur, Elvari, Gerði og Jóhanni, hversu gott skap maður komst yfirleitt alltaf í við aðeins návist þeirra. Á hveiju sem annars gekk. Þetta er ekki lítils virði í heimi hér þar sem ferð okk- ar í þessari tilveru virðist oft vera samfelld þrautarganga í táradal heimsins. En svo kom reiðarslagið. Aðfara- Fæddur 20. ágúst 1907 Dáinn 15. september 1991 Góður vinur, Anton Guðjónsson, lést á Sjúkrahúsinu á Selfossi þann 15. þessa mánaðar. Það var árið 1965 að pabbi kynnt- ist Tona. Auðvitað var það í gegnum sameiginlegt áhugamál þeirra, stangveiði. Toni vann á Álafossi í Mosfellsbæ á þeim tíma og voru þeir kynntir hvor fyrir öðrum við Leirvogsá. Hann varð strax mjög góður fjölskylduvinur og við sys- turnar munum eftir honum þegar hann var að hjálpa við að byggja húsið heima. Ekki leið á löngu uns hann varð eins og einn af fjölskyld- unni. Eftir hádegi á hveijum laug- ardegi rann hann í hlað og svo var setið í eldhúskróknum, kaffi drukkið og spjallað um heima og geima. Ósjaldan var umræðuefnið bílar; góðir bílar og vondir bílar, nýir bílar og gamlir bílar. Oft var farið útí bílskúr og Toni dyttaði að bílnum sínum, þvoði og bónaði. Laugar- dagsheimsóknir Tona urðu fastur nótt frídags verkalýðsins í vor, þann 1. maí síðastliðinn, varð eldur laus í húsnæði Jóhanns þar sem hann var lagstur til náða og varð það því hans hinsta hvíla því hann vaknaði aldrei til þessa heims aft- ur. Erfið var sú staða fyrir foreldr- ana að sjá á bak yngsta barni sínu þótt þrítugt væri þar sem illvígur og skæður skjúkdómur hafði þá þegar heijað á Þórð. Fóru leikar svo eftir allt og þrátt fýrir allt og allgóðar batahorfur framanaf að Þórður varð nauðugur að yfirgefa hinn jarðneska líkama sinn og halda á fund forfeðra sinna. En sem kunnugt er þá lést Þórður Guðna- son þann 12. september síðastliðinn á Sjúkrahúsi Selfoss eftir erfið og hörð veikindi. Það urðu því ekki nema rúmir fjórir mánuðir á milli þeirra feðga Jóhanns og Þórðar úr heimi þess- um. Það eru spor sem helst engin fjölskylda vildi þurfa að standa í, þótt það hafi nú orðið hlutskipti fleiri syndugra og syndlausra fjöl- skyldna í heimi hér, því miður. Ein af skemmtilegri minningum síðasta árs í huga mínum var sjö- tíu ára afmæli Valgerðar í nóvem- ber á síðasta ári. Æxluðust hlutir þannig að ég varð einn af fáum afmælisgestum dagsins þar. Tvennt er mér minnisstæðara þar en annað. Annars vegar slímuseta mín þar yfir hinum girnilegu köku- borðum, ég hef ekki enn losnað við verksummerkin af mér, og hins vegar hve vel ég og þeir feðgar allir skemmtum okkur konunglega yfir hinu broslega í pólitíkinni og tilverunni almennt. Það var eitt- hvað bragð að svona húsbændum! Að slá á létta strengi og brosa og hlæja svo undir tók í nágrenninu af hjartans lyst var list þeirra feðga allra saman. Og var bara enginn þeirra hið minnsta undanskilinn öðrum þar. Því nefni ég þetta svo sterkt hér að ég er kominn á þá skoðun í líf- inu að það eru ekki lítil forréttindi í tilverunni að geta skemmt sér við lítil tilefni og hlegið helst dátt með. En eitt er ég alveg viss um. Að hrossahlátur þeirra feðga og létt- leiki glymur reglulega um himna- ríkið við öll möguleg og ómöguleg tækifæri þar nú sem hér forðum, svo syndlausum og húmorslausum gestum þar gæti jafnvel þótt nóg um í ró sinni þar. Og vona ég bara hjartanlega að fleiri gestir hér á hótelinu Jörð sem á himnahótelinu geti tileinkað sér léttleikann og hjálpsemina sem var svo ríkt í fari þeirra feðga Þórðar Guðnasonar og Jóhanns Þórðarsonar. Þá er hætt við að margt væri öðru vísi hér í heimi en er í dag. Um það er ég alveg handviss. Magnús H. Skarphéðinsson liður í fjölskyldulífinu og alltaf var beðið eftir komu hans með eftir- væntingu. Þær urðu ófáar veiðiferðirnar sem þeir pabbi og Toni fóru í saman. Oft var það Húnavatnssýslan sem var fyrirheitna landið eða þá Brú- ará, Þingvallavatn, Sogið, Leirvogs- vatn eða Leirvogsá en þar var Toni veiðivörður sumarið 1970. Nú og ef ekki var verið að veiða var verið að rökræða um veiðiskap, fram og aftur. Þó svo að Toni hætti að vinna í Reykjavík og flyttist á dvalarheimili í Hveragerði hætti hann ekki að koma til okkar í heimsókn um helg- ar. Að vísu kom hann sjaldnar en við fórum þá austur til hans og fór- um með honum í Eden og keyptum kaffi, fórum í bíltúr um nágrennið eða fórum í Tívolí með börnum okk- ar. Þegar hann svo hætti að treysta sér til að keyra suður sótti eitthvert okkar hann svo við gætum eytt með honum dagstund í Mosfellsdalnum. Þrátt fyrir að Toni væri orðinn langt leiddur undir það síðasta var Anton Guðjóns- son - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.