Morgunblaðið - 24.09.1991, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
17
A að brjóta á bak aftur
brautryðjendastarf?
eftir Svavar Gestsson
Ég sé að menntamálaráðherra
er að reyna að kenna forvera sínum
um það að hann skuldi hafa aftur-
kallað ákvarðanir um breytingar á
námsskrá í Hamrahlíðarskóla. Rök
ráðherrans eru þau að ekki hafi
verið haft samráð við háskólann.
En það eru engin rök í málinu —
síst fyrir núverandi menntamála-
ráðherra sem tekur einhliða og án
samtala ákvarðanir um róttækar
breytingar á skólum og starfsemi
þeirra — jafnvel um að leggja skól-
ana niður.
Menntaskólinn við Hamrahlíð
hefur haft forystu um verulegar
breytingar á framhaldsskólanámi á
undanförnum áratugum. Fyrst er
að nefna áfangakerfið þar sem for-
ysta Hamrahlíðarskólans var ótví-
ræð og hið sama er raunar að segja
um öldungadeildirnar í þeirri mynd
sem þær eru nú; viðurkenndar af
öllum skólum og mikið sóttar af
almenningi í þessu landi. Það var
því í góðu samræmi við þessa hefð
brautryðjandans að hamrahlíðar-
menn ákváðu að breyta innra skipu-
lagi skólans ekki síst í ljósi þess
að framhaldsskólunum er nú ætlað
að taka við öllum sem lokið hafa
10 ára veru í grunnskóla. í minni
tíð í, menntamálaráðuneytinu var
þróuð sú stefna að skólar og menn-
ingarstofnanir ættu að fá að njóta
frumkvæðis síns. Það þýddi að skól-
arnir urðu að bera ábyrgð á mistök-
um sínum líka. Þess vegna kom það
ekki til greina að mínu mati að
beita fyrirskipanastefnu gagnvart
Menntaskólanum í Hamrahlíð. Nú
er öldin önnur: Miðstýring ofan frá
og skólar og menningarstofnanir
hneppt í fjötra valdsins og fyrirskip-
ana.
En forráðamenn MH ákváðu ekki
einhliða að breyta námsskipulagi
heldur unnu þeir tillögur eftir ítar-
legar umræður innan skólans og í
samvinnu við ráðuneytið. í ráðu-
neytinu liggur fyrir að fjöldi funda
var haldinn um þessi mál og þegar
hamrahlíðarmenn kynntu hug-
myndirnar og tillögurnar fyrir ráð-
herra ' voru embættismenn ráðu-
neytisins viðstaddir. Það er því
rangt sem ráðherrann hélt fram á
fundi í MH á fimmtudagskvöldið
að embættismenn hafi staðið
frammi fyrir gerræðisákvörðun ráð-
herra; bæði fjármálaskrifstofan og
skólamálaskrifstofan fylgdust með
málunum lið fyrir lið.
Og meginröksemd ráðherra er
nú sú að ráðuneytið hafi vanrækt
að hafa samráð við háskólann um
þessi efni. Það hefði verið eðlilegt
Gustavsberg
Veljið aðeins það besta
— veljið heildarlausn
frá Gustavsberg
i baðherbergið
Fæstihelstu
byggingarvöruverslunum
um lanú allt.
vorverk ráðuneytisins til dæmis í
maímánuði — en það var ekki gert
og er ekki við mig að sakast. Það
má líka spyija hvort það á að vera
hlutverk háskólans að ráða skipan
framhaldsskólanna að þessu leyti.
Ég tel að háskólarnir eigi að setja
sér og nemendum sínum tiltekin og
skilgreind markmið að keppa að;
þeir eigi ekki að ákveða einhliða
„Það má líka spyrja
hvort það á að vera
hlutverk háskólans að
ráða skipan framhalds-
skólanna.“
Svavar Gestsson
hvernig inngönguskilyrðum er hátt-
að. Þá er til lítils talað um faglegt
sjálfstæði skóla ef næsta skólastig
við á að ráða því hvernig hagað er
námi á næsta skólastigi á undan.
Það yrði æði flókið mál til dæmis
á framhaldsskólastigi að ekki sé
minnst á grunnskólana. En auðvit-
að á almennt að stuðla að sem bestri
samvinnu skólastiganna. Og það
hefur verið gert meðal annars í
skólastefnunni sem rædd var á
fyrsta menntamálaþinginu sl. ár.
Vonandi tekst menntamálaráð-
herra ekki að bijóta á bak aftur
það brautryðjendastarf sem Mennt-
askólinn í Hamrahlið hefur beitt sér
fyrir.
Höfundur er fyrrv.
menntamálaráðherra.
SKÓLANESTISDAGAR
Vera Gröndal líffræðikei
nnari
Kjarngott skólanesti
- örvar ímyndunarafl
Lystug skólasamloka:
Stórbrauðssamloka
með tómötum, eggjum
og mæjónesi.
Gott fyrir alla nemendur
-og suma kennara!
- matur frá morgni til kvölds