Morgunblaðið - 24.09.1991, Side 18

Morgunblaðið - 24.09.1991, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 Látíð heimamenn eiga kvölina og völina eftir Áskel Einarsson I Reykjavíkurbréfi Morg-un- blaðsins 7. september sl. bregður fyrir athyglisverðum tón í byggða- málum. Morgunblaðið tekur ský- lausa afstöðu gegn miðstýringu og forræðishyggju stjórnkerfisins í málefnum landsbyggðarinnr. Höfundur Reykjavíkurbréfsins bendir á að ríkjandi miðstýring og forræðishyggja í málum lands- byggðarinnar minni helst á vinnu- lag sem tíðkaðist í Sovétríkjunum, en telst nú til liðins tíma. Bent var á að forræðis- og miðstýringar- hyggja eigi að vera fjarri grund- vallarsjónarmiðum Sjálfstæðis- flokksins. Vaxandi andstaða gegn forræðishyggj unni Því er ekki að leyna að margur landsbyggðarmaðurinn trúir á for- ræðishyggju stofnana og alþingis- manna. Það fer ekki á milli mála að alþingismenn landsbyggðarinn- ar hafa ekki verið fúsir til að gefa lausan tauminn t.d. um ráðstöfun fjárveitinga og um aukið forræði landshlutanna. Það merkilega er að sumir landsbyggðarþingmenn Sjálfstæð- isflokksins hafa verið manna treg- astir að auka á forræði lands- byggðarsamtakanna um meðferð mála, sem nú eru á vegum ríkis- ins, en gæti alveg eins verið verk- efni á landshluta- og héraðsvísu. Stuðningur Morgunblaðsins við þau sjónarmið landsbyggðar- manna um að færa völd og ábyrgð heim í landshlutann eða til kjördæ- manna er málefnalegur stuðningur við hugmyndir landshlutasamtak- anna á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum um tilfærslu stjórnsýslu og opinberrar þjóðustu til kjördæmanna. í þessari gein verða megin þættir þessarar undir- búningsvinnu raktir í stórum drátt- um. Tilfærsla stjórnsýslu til kjördæmanna Þessar hugmyndir gera ráð fyrir því að hvert kjördæmi verði sérstök landfræðileg stjómeining. Sveitar- félög skulu eiga aðild að landshlut- asamtökum sveitarfélaga í sínu kjördæmi. Kosið skal til lands- hlufaþinga (kjördæmaþinga) í beinum almennum kosningum. Landshlutaþing kýs landshluta- stjóm, sem annist yfirstjórn hvers kjördæmis, sem sérstakrar land- fræðilegrar stjómeiningar. Fela skal landshlutastjóm, sem yfír- stjórn, stjómeiningar kjördæmis meðferð tiltekinna verkefna stjóm- sýslu- og umsýsluþátta ríkiskerfís- ins. Uppbyggingá kjördæmagrundvelli Stefnt er að því að a.m.k. á ein- um stað í hveiju kjördæmi verði til staðar einskonar stjórnsýs- lusambýli, þar sem fyrir hendi verði margþætt verkefnasvið stjómsýsluþjónustu og annarra opinberra umsýslu. Þar verði til staðar verkefnaþættir einstakra ráðuneyta, annað hvort í umsjá landshlutastjórna eða sem sjálf- stæð starfsemi. Forræði færist til kjördæmanna I áður nefndum hugmyndum er lögð megin áhersla á að til stjórn- eininga kjördæmanna verði flutt verkefni, sem áður voru í umsjá héraða og sveitarstjórna, en hafa sogast suður með ýmsum hætti. Haft er í huga að auka forræði fræðslurápa þ.m.t. fræðsluskrif- stofa, um framkvæmd allra fræðsl- umála í sínu umdæmi, einnig er varðar skiptingu Ijárveitinga á milli verkefna. Lagt er til að kom- ið verði á fót heilbrigðis- og trygg- ingaskrifstofu í hveiju kjördæmi undir forystu lýðræðislega kjörinn- ar heilbrigðismálastjórnar og hér- aðslæknis, sem annist heildarstjóm heilbrigðis- og tryggingamála, þar er meðtalið skipting íjárveitinga til verkefna í kjördæminu. í þess- um hópi verkefna má nefna sam- gönguskrifstofur kjördæmanna, með stjómaraðild heimamanna. Þungamiðjan er, að landshluta- sjórn geri milliliðalaust fjárlagatil- lögur til Alþingis, og sjái um skipt- ingu þeirra fjárveitinga, sem komi í hlut kjördæmisins. Öll áætlana- gerð og ákvörðun um röðun verk- efna verði á vettvangi landshluta- stjórna og landshlutaþinga. Landshlutaaðild að stjórnun kjördæmatengdri starfsemi Sú megin stefna verði tekin upp að landshlutastjóm verði falið umsjón eða eftirlitshlutverk með öllum verkefnaþáttum, sem kost- aðir eru til af fjárlagafé er varðar þjónustu við íbúa kjördæmisins. Bundið verði í lögin að hálf opin- berar stofnanir skuli aðlagast stjórneiningarkerfí kjördæmanna. Sama á við um bankastarfsemi ríkisins og fjárfestingarsjóði þess. Áskell Einarsson „Kjarni málsins er sá, að hin svonefnda byggðastefna hefur mistekist. Eftir 20 ára störf Byggðastofnunar og núverandi miðstýr- ingu og forsjárhyggju í byggðamálum, er byggðavandinn aldrei meiri en nú.“ Landshlutaaðild ríkisverndaðrar fj ármálastarfsemi í hveiju kjördæmi verði aðal- útibú ríkisbanka, með heimakjör- inni stjórn. Fjárfestingarsjóðir í opinberri umsjá verði sameinaðir og starfi á kjördæmagrundvelli, með heimakjörinni stjórn. Þetta á einnig við um byggðasjóð og hús- næðismálasjóði ríkisins. Forgangsverkefni í uppbyggingu stjórneininga kjördæmanna Það er grundvallaratriði um valdatilfærslu til landshlutastjóm- ar að við umsýslunni taki lýðræðis- kjörið heimastjórnarvald, sem ekki þarf að taka tillit til sér sjónarmiða einstakra sveitarfélaga í störfum sínum. Tilfærsla verkefna á ein- göngu að vera frá ríkinu, þannig að hlutur nýju stjómeiningarinnar þrengi ekki að valdsviði sveitarfé- laga. Verkefni sem færa á til stjómeininga kjördæmanna má flokka í stórum dráttum þannig: a. Stjórnsýsla og verkefni, sem færst hafa til ríkisvaldsins frá heimaaðilum, að því er varðar kjör- dæmin. b. Verkefni sem tengjast þjón- ustu við íbúa og atvinnulífið í kjör- dæmunum. c. Verkefni er varðar byggða- þróun í kjördæmunum. Við endurskipulagningu ráðu- neytanna þarf að hverfa frá þeirri sundurgreiníngu verkefna, sem nú tíðkast. Þetta gerist með fækkun ráðuneyta og með aukinni þjónustu frá þeim i stjómeiningum kjör- dæmanna. Kjarni málsins er sá, að hin svo- nefnda byggðastefna hefur mis- tekist. Eftir 20 ára störf Byggða- stofnunar og núverandi miðstýr- ingu og forsjárhyggju í byggða- málum, er byggðavandinn aldrei meiri en nú. Áðumefnt Reykjavíkurbréf er innilegg í þessa umræðu. Þessi grein er skrifuð í þeim tilgangi að sýna fram á að margir landsbyggð- armenn em sama sinnis og höfund- ur Reykjavíkurbréfsins. Það er fleira að finna í þeim hugmyndum, sem lagðar voru fyr- ir samstarfshóp formanna og framkvæmdastjóra landshluta- samtakanna á Vestfjörðum, Aust- fjörðúm og Norðurlandi. Hér verð- ur að þessu sinni látið staðar num- ið. Hvað sem síðar verður. Hugmyndir þessar vann fram- kvæmdastjóri Fjórðungsambands Norðlendinga. Höfundur er framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga. Skömm þeim sem hana lasta eftirBaldur Hermannsson Svo má brýna deigt jám að bíti og nú er mér nóg boðið. Dag eftir dag má heyra og lesa rustaróg og illyrði um Jóhannes Zoéga, fyrrum Hitaveitustjóra í Reykjavík og yf- irsmið Perlunnar í Oskjuhlíð. Nú síðast kveður Siguijón Pét- ursson sér hljóðs og vill hrekja hann með offorsi úr starfí. En það er ósæmilegt að veitast að slíkum manni, sem Jóhannes er, svo dygg- ilega sem hann hefur þjónað okkur Reykvíkingum um langan aldur. Þegar hann tók við forystu Hita- veitunnar árið 1962 var hún ennþá smá í sniðum og aðeins 38.000 manns nutu góðs af henni, það var um helmingur borgarbúa. En Jóhannes breytti henni í stórfyrir- tæki. Nú þjónar hún 136.000 manns, helmingi landsmanna og það vita allir sem til borgarmála þekkja, hve röggsamlega Jóhann- es hefur haldið þar um stjóm- tauma, en þó hefði röggsemin ekki hrokkið langt, ef hann hefði ekki verið vel búinn öðrum góðum hæfileikum, þeim er verkfræðing mega prýða, nefnilega framsýni, farsæld, góðfýsi og stórhug. Und- ir hans leiðsögn hefur Hitaveitan verið eitt best rekna fyrirtæki landsins, kennslubókardæmi um það, hvernig virkja skal auðlindir landsins bömum þess til hagsæld- ar. Það er á engan mann hallað þótt því sé slegið föstu, að starf Jóhannesar Zoéga í þágu okkar borgarbúa skipi honum á bekk með fremstu verkfræðingum okk- - ar, þeim sem hvað ötullegast hafa þokað þjóðlífí okkar út úr skugg- um frumstæðra verkhátta og kunnáttuleysis í stjórnun. Fyrir þetta langa og farsæla ævistarf á þessi góði drengur allt annað skil- ið en skítkast það sem rússadindill- inn Sigurjón Pétursson hefur iðkað um hríð með fulltingi tveggja óvandaðra stelpna. Farið hefur fé betra Það er vert að bera saman það starf"sem þeir hafa unnið fyrir okkur Reykvíkinga í áranna rás, þeir Siguijón og Jóhannes. Báðir hafa þegið laun fyrir verk sín, en ólíku er þó saman að jafna. Annar hefur jafnan unnið okkur allt til farsældar, en hinn til ama og ófamaðar, og ekki erum við Reykvíkingar svo vitlausir menn að við munum ekki hvernig Sigur- jóni fórst úr hendi að ráðskast með borgina okkar hér um árið. Hann kunni ekki neitt til neins. Hann steypti veitustofnunum og þar á meðal Hitaveitunni í svo miklar skuldir að þær áttu í erfið- um vanda. Hann sólundaði al- mannafé í hálfónýta strætisvagna frá vinum sínum í kommúnistaríkj- unum austantjalds. Það tókst með naumindum að koma í veg fyrir að hann eyðilegði Laugardalinn með skammsýnum byggingafram- kvæmdum og réðist í að hola fólki niður á sprungusvæðum við Rauðavatn. Hann var alls staðar til vandræða ög þegar fólkið loks- ins ruddi honum úr vegi var að- koman skelfileg, fjárhagur borgar- innar í kaldakoli og það er skoðun mín, að þetta hafi verið versta kjörtímabil í -sögu borgarinnar okkar. Það verður því miður ekki sagt Siguijóni Péturssyni til málsbóta, að tillögur hans í stjórnarandstöðu hafi verið til nytsemda í áranna rás, því viðhorf hans eru orpin beiskju og rógi eins og títt er um afdankaða kommúnista og lítt af setningi slegið þegar hann kveður sér hljóðs. Það er fagnaðarefni ef satt reynist, að flokksmenn hans hafí loksins tekið af skarið og ákveðið að bægja honum frá sæti við næstu kosningar, svo að yngri menn og fijórri komist að í stað- inn. Þau eftirmæli sem Siguijón fær eftir áratuga slímusetur í borgar- stjórn eru þessi: Farið hefur fé betra. Óvenjuleg mannvirki Kostnaður við Perluna og Ráð- hús Reykvíkinga hefur farið fram úr upphaflegum áætlunum, en það er ekki þar með sagt að óvarlega hafi verið haldið um pyngjuna, því umframgjöldin hafa einkum sprot- tið af ýmiskonar endurbótum og viðbótum. Það er rétt sem reyndur verk- fræðingur hefur bent á, að erfitt eða ógerlegt er að áætla nákvæm- lega kostnað uinfangsmikilla mannvirkja, sem eru alveg sér á báti um alla gerð, og þar við bæt- ist auðvitað, að þegar byggingar þessar rísa af grunni og blasa við augum, þá sjá menn gjarnan hvað betur má fara og ráðlegt er að auka við í stað þess að láta slag standa og bíða þess að næsta kyn- slóð beri kostnað af nauðsynlegum lagfæringum. Bæði einkafyrirtæki og opinber- ar stofnanir þurfa iðulega að Baldur Hermannsson „Kjarni málsins er sá, að hvorki Jóhannes né ráðhússmiðir hafa farið illa með fjármuni okk- ar, heldur hafa þeir jafnan brugðist skyn- samlega við hverjum vanda og ávallt leitað bestu úrlausna.“ breyta húsakosti sínum eða auka við hann með ýmsu móti, og flögr- ar þó ekki að neinum að það stafi af fljótfærni eða fyrirhyggjuleysi þeirra sem húsin byggðu. Kjarni málsins er sá, að hvorki Jóhannes né ráðhússmiðir hafa farið illa með fjármuni okkar, held- ur hafa þeir jafnan brugðist skyn- samlega við hveijum vanda og ávallt leitað bestu úrlausna. Ásýnd borgar og bæjarbragur Ég man vel eftir því, að fyrir rúmlega áratug var það daglegt umfjöllunarefni í fjölmiðlum hve rislág borg og leiðinleg Reykjavík væri og létu ýmsir spakvitrir menn ljós sitt skína af því tilefni. Nú á dögum dettur engum í hug að kalla Reykjavík leiðinlega borg og rislága. Hversvegna skyldi það nú vera? Það er vegna þess, að þegar alþýðan varpaði Siguijóni Péturssyni á dyr og hyski hans, hófust þróttmiklir menn handa um að breyta ásýnd borgarinnar og efla bæjarbraginn. Við sáum upp þjóta ný og glæsileg borgarhverfi, fyrirtæki eflast, hag fólksins blómgast. Borgarleikhúsið, Ráð- húsið og Perlan eru meðal ávaxta þessa blómaskeiðs, listaverk lif- andi handa sem vekja hrifningu gesta okkar hvaðanæva úr heimin- um, ljá höfuðborginni glæsileik og þokka, og eru jafnframt borgarlíf- inu kærkomin lyftistöng. Þau munu standa um aldir og þegar stundir líða mun enginn velkjast í vafa um, að hverri krónu er til þeirra rann var hyggilega varið. Perlan mun þjóna okkur sem nú lifum, því næst börnum okkar og barnabörnum sem stórbrotinn samkomustaður, ráðstefnuhús og menningarsetur, og hafi þeir þökk og heiður sem að henni unnu, en þeir háð og skömm sem hana lasta. Höfhndur er eðlisfræðingur og fæst við ritstörf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.