Morgunblaðið - 24.09.1991, Side 35

Morgunblaðið - 24.09.1991, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 35 Nokkrar athugasemdir við skrif dr. J. Currans um Island og EES eftir Magna Guðmundsson Dr. Joseph Curran, sem er Belgi búsettur í Kanada, ritaði „Hugleið- ingar um ísland og EES“ í Morg- unblaðið 24. ágúst sl. Hann hefir áhyggjur okkar íslendinga vegna, ef við náum ekki samningum um tollfríðindi fiskafurða í EB-lönd- um. Hitt virðist fara fram hjá honum, hversu dýrt spaug það gæti orðið EB-lö_ndunum sjálfum, ef þau misstu af íslands-fiski, sem myndi fara á aðra markaði. Fis- kverð í EB-löndum myndi hækka við slíka skerðingu framboðs og vafalítið mun meira en nemur að- Gestur Ól. Þórólfsson Hjaltastöðum — Kveðja Fæddur 24. september 1964 Dáinn 20. júlí 1991 Laugardagurinn 20. júlí síðast- liðinn var bjartur og fagur eins og sumarið hefur allt verið, en skyndilega dró ský fyrir sólu, harmafregnir berast, enn eitt um- ferðarslys hefur orðið og nú er hrifinn brott kær vinur. Gestur Ólafur Þórólfsson frá Hjaltastöð- um í Skagafirði hafði látist í um- ferðarslysi snemma morguns. Enn einu sinni erum við minnt á hversu stutt er milli lífs og dauða. Við skiljum ekki tilgangur- inn er ungur maður sem rétt er að byija lífið er kallaðru svo fijótt, en við trúum að það sé vilji guðs. Gestur Ólafur var fæddur á Akra- nesi 24. september 1964, sonur hjónanna Þórólfs Péturssonar og Sæunnar Kolbrúnar Jónsdóttur, var hann næstelstur fimm barna þeirra. Móðir Gests lést er hann var tíu ára og má nærri geta hvað þungbært það hefur verið svo ung- um dreng. Seinni kona Þórólfs er Anna Jóhannesdóttir og eiga þau tvær litlar dætur. Gestur kom fyrst á mitt heimili með Eddu dóttur minni, ég fann fljótt að hér var á ferðinni drengur góður sem öllum vildi vel. Gestur og Edda eiga eina dóttur, Ester Ósk, sem er rúmlega ársgömul er faðir hennar deyr, og þekkir hún nú bara pabba á mynd. Gestur var ljóðvinur og söngelskgr, hann var alltaf syngjandi, hafði fagratenór- rödd. Síðast þegar hann kom í heimsókn til okkar skildi hann eftir á blaði uppskrifaðan texta sem honum var kær og læt ég hann fylgja þessum kveðjuorðum. Ætti ég hörpu hljómaþýða hreina mjúka gígjustrengi til þín mundu lög mín líð^a leita mín er einn ég gengi. Viltu þegar vorið blíða vefja rósir kvölddögginni koma til mín kvæði blíða kveðja mig í hinsta sinni. Lífið allt má léttar falla Ijósið vaka í hugsun minni frystiskápar * frystikistur /j—þ mm CSgjfB! n i— ] GÓÐIR SKILMALflR TRAUST ÞJÓNUSTA /Fdnix HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SÍMI (91)-24420 flutningsgjöldunum, sem þau lönd vilja heimta af okkur. Þeirra er því vandinn að velja, en ekki okk- ar. Það má sjálfsagt lengi um það deila, hvort við eigum eða eigum ekki að sameinast EES. Mörgum geðjast hreinlega ekki að aðferð- inni, sem EB-stórveldið beitir. Hún ber keim af viðskiptastríði — án vopna vissulega. Boðskapurinn er í fáum orðum þessi: Látið okkur í té auðlindir ykkar, þeirra á með- al fiskimiðin; að öðrum kosti mun- um við gera kröfu til milljarða króna tolla af afurðum ykkar. Varla leikur vafi á því, að ör- smárri þjóð sem okkar geti verið ýmis konar hætta búin af nánum bindandi tengslum við EB, sem enn er í mótun. Við vitum t.d. af reynslunni á Nýfundnalandi og írlandi, að sum aðildarríkjanna eru líkleg til að fara sínu fram, ef þeim verður á annað börð hleypt inn í landhelgina. Við kynnum með þeim hætti að kalla yfir okkur eins konar „þorskastríð". Dr. Curran óttast, ef við höfnum aðild að EES, „að ísland skipi sér á bekk meðal þjóða þriðja heimsins Magni Guðmundsson „Varla leikur vafi á því, að örsmárri þjóð sem okkar geti verið ýmis konar hætta búin af nánum bindandi tengslum við EB.“ og verði fátækt land á sama hátt og varð raunin á Nýfundnalandi hinum megin Atlantsála.“ EitG hvað ér þetta málum blandið, svo að ekki sé meira sagt. Nýfundna- land_ átti um tíma svipaða sögu og ísland: Mikil kreppa var þar milli heimsstyrjaldarma tveggja, en hraður efnahagsvöxtur í seinni heimsstyrjöld, meðan landið var hernumið. Að henni lokinni, þegar erfiðleikar jukust aftur, gerðist Nýfundnaland fylki í Sambands- ríki Kanada (Confederation). Leystust vandkvæði Nýfundna- lands við það? Nei, frumstæður landbúnaður lagðist nánast niður, líka heimaiðnaður, sem gat ekki keppt við meginlandið. Vöru- skiptahalli myndaðist, sem jafna þurfti með peningatilfærslum frá Ottawa. Styrkveitingar þaðan í ýmsu formi nema gífurlegum fjárhæðum. Er útilokað, að eitt- hvað svipað kynni að gerast hér, ef við gengjum í EB? Fiskur af íslandsmiðum hefir markaðsmöguleika víða um heim, einnig í Bandaríkjunum og Kanada, sem nú eru í fríverzlunar- bandalagi. Hið sama gildir um aðrar auðlindir okkar. Við höfum hins vegar ekki efni á því að selja raforku á hálfvirði til útlanda — líkt og Nýfundnaland gerði á sín- um tíma með sölusamningi við Quebec-fylki á meginlandi Kanada. Höfundur er doktor íhagfræði og vnnn uni tíma sérfræðistörf fyrir ráðuneyti og ríkisstjórnir bæði hér heima og í Kanada. ef ég má þig aðeins kalla yndið mitt í fjarlægðinni. (Fr. H. - Vasasöngbókin) Gestur hafði mikið dálæti á hest- um og var hestamaður góður, hann átti fallega hesta Ferðalög um óbyggðir landsins í góðravinahópi voru hans uppáhaldsferðir, hann kunni frá mörgu að segja er hann fór með sunnlenskum vinum sínum á hestum yfir hálendið sumarið 1990. Gestur fluttist til ömmu sinnar og afa, Ragnheiðar og Péturs á Hjaltastöðum, eftir að móðir hans lést. Seinna flutti svo Þórólfur með hin börnin og hefur búið þar síðan. Þeir eru margir sem syrgja látinn vin, Gestur eignaðist alls staðar vini hvar sem hann kom. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þes, sem var gleði þín. (K.G.) Öllum ástvinum Gests sendi ég innilegar samúðarkveðjur og bið þeim blessunar guðs. Ég kveð góð- an dreng, með þakklæti fyrir góð kynni sem voru alltof stutt. Ég vona að Gestur minn hafi sæst við ný heimkynni. Blessuð sé minning hans. Ester Steindórsdóttir Fremstur jafningja Hann er fallegur og rennilegur, lætur vel að stjóm og þýðist þig á allan hátt. Rúmgóður, ríkulega búinn og ótrúlega spameytinn. Hann er HONDA CIVIC. Greiðsluskilmáiar fyrir alla. Verð frá kr. 1.090 þús. stgr. WHOIVDA HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRDUM 24, S-B89900 W HOIVDA ar Hressingarleikfimi kvenna og karla Haustnámskeið hefjast fimmtudaginn 26. sept. nk. Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskóla og íþróttahús Seltjarnarness. Fjölbreyttar æfíngar Músík Dansspuni Þrekæfíngar Slökun Innritun og upplýsingar í síma 38290 Ástbjörg S. Gunnarsdóttir, íþróttakennari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.