Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
43
Jófríður S. Kristíns-
dóttir - Minning•
Vegir Guðs eru órannsakanlegir
og mig brestur kjark til að skilja
tilgang hans.
Hvers vegna er ung kona í blóma
lífsins hrifin á brott? Tilganginn
skiljum við sennilega ekki fyrr en
við kveðjum þennan heim sjálf.
Ég verð samt að trúa því að Guð
sé með í ráðum.
Elsku Jófríði þakka ég fyrir þær
samverustundir sem við áttum sam-
an. Guð geymi hana og varðveiti.
Elsku Elín litla. Guð styrki þig
við þinn móðurmissi. Elsku Ester
og börn og íjölskyldur ég votta ykk-
ur mína dýpstu samúð.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
, Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Sb. 1886 - V. Briem)
Elín Óladóttir og fjölskylda
Bjarta von í brjósti mínu,
bú þú meðan hér ég dvel
lát mig sjá í ljósi þínu
Ijóman dýrðar bak við hei.
(H. Hálfd.)
Baráttunni er lokið, lífið og vonin
lutu í lægra haldi lyrir skæðum sjúk-
dómi, enginn fær umflúið sitt skapa-
dægur. Þegar ung stúlka í blóma
lífsins, aðeins 27 ára, er hrifin burtu
frá ungri dóttur, sem hún þráði heitt
að annast, finnst þeim sem eftir lifa
erfitt að skilja tilgang lífsins. Kynni
okkar af Jófríði einkenndust af því
að létta andrúmslofti sem ávallt ríkti
í kringum hana. Hún var hress og
elskuleg í viðmóti og átti ,svo auð-
velt með að koma auga á björtu hlið-
arnar í lífinu. Við systkinin minn-
umst þess þegar við lékum okkur
saman, hvað hún var dugleg, stjórn-
söm og hugmyndarík í öllu sem við
vorum að gera. Margir af þessum
eiginleikum komu mjög vel fram í
veikindum hennar.
Við höfum fylgst með baráttu
hennar og hefur hugarfar hennar
og hinn óbugandi vilji kennt okkur
svo ótal margt um lífið. Við höfum
iært að meta okkar eigið líf meira
og vera þakklát fyrir það. Söknuður
og tómleiki sækja að, en endurminn-
ingarnar eru bjartar og fagrar.
Elsku Ester okkar, Élín litla og
systkini, við biðjum Guð að styrkja
ykkur og ástvini ykkar. Innilegustu
samúðarkveðjur. Blessuð sé minning
góðrar stúlku.
Svanheiður, Erlingur,
Margrét og Friðgerður.
Sá sem eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn látni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna,
þeir eru himnamir,
honum yfir. piannes Pétursson)
í dag kveðjum við hinstu kveðju,
elskulega vinkonu okkar Jófríði
Soffíu Kristinsdóttur eða Jófý eins
og hún var kölluð. Það er erfitt á
svona stundu að setjast niður og
skrifa fáeinar línur. Það er margs
að minnast. Við kynntumst fyrst á
Reykjaskóla í Hrútafirði, þá ungling-
ar. í skólanum myndaðist fljótt mjög
náinn og samheldinn vinahópur. Jófý
var ein úr þeim hópi. Við nánari
kynni okkar kom í ljós trúmennska
hennar, sjálfstæði og dugnaður í
öllu því sem hún tók sér fyrir hend-
ur. Hún var mikil félagsvera og vildi
HÁRVANDAMAL?
, 'j^Nýtt
. M bE
' «e
4r zi
EURO-HfllR
á Islandi
Lausnin er: Enzymor
Nýtt í Evrópu
■ Engin hárígræðsla
■ Engin geríihár
■ Engin lyfjameðferð
■ Einungis tímabundin notkun
Eigid hár med hjálp lífefha-orku
paSxla'íizi Rwik ® 91 ■ 676331e.kl.16.00
r PHIUPS Whirlpool
FRYSTIKISTUR
Góð tæki. Gott verð
• AFG015
138 lítra. h:88 b:60 d:66 cm
kr.stgr. 29.830.-
• AFG033
327 lítra. h:88 b:112 d:66 cm
kr.stgr. 42.655.-
• AFG 041
408 lítra. h:88 b:135 d:66 cm
kr.stgr. 45.505.-
Heimilistæki hf
SÆTÚNI6 SlMI 691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
íisaM/u/yiwc
ALLT
fyrirGLUGGANN
úrval, gæði, þjónusta
úrvali.
Ódýr spönsk glugga-
tjaldaefni í breiddinni
270 sm.
Mikið úrval af glugga-
tjaldaefnum.
Rekum eigin saumastofu.
Ráðleggingar, máltökur
og uppsetningar ef óskað
er.
Sendum í póstkröfu um
land allt.
^í> Einkaumboö á íslandi
Síðumúla 32 - Reykjavík
Sími: 31870-688770
Tjarnargötu 17 - Keflavík
Sími 92-12061
Glerárgötu 26 - Akureyri
Sími 96-26685
f/"""--
■ÍGrænt númer: 99-6770
hafa margt fólk í kringum sig. Hún
var virk í öllu tómstunda- og félags-
starfi í skólanum. Þar var hún jafn-
víg í kór, íþróttum, leiklist eða í for-
svari fyrir nefndir. Úr Reykjaskóia
lá leiðin til Reykjavíkur hjá okkur
flestum í framhaldsnám. Vegalengd-
irnar lengdust á milli okkar en vin-
skapurinn hélst. Hún var sannur
vinur í raun og átti marga vini og
kunningja. Það sást best þegar mað-
ur kom til hennar í Bólstaðarhlíðina.
Þar var oft margt um manninn og
mikið spáð og spjallað. í Bólstaðar-
hlíðinni og síðar í Skálagerðinu hafði
hún búið lítið fallegt heimili fyrir sig
og „litla gullið“ sitt, Elínu Ösp, sem
við vinkonurnar teljum okkur eiga
svolítið í þar sem við höfum fengið
að fylgjast með meðgöngu hennar
og bernskusporum, en hún var fyrsta
barnið sem fæddist í þessum vin-
kvennahópi. Jófý var mjög góð móð-
urfyrirmynd með alla sína reglusemi
og skiplagningu sem viðkom barn-
inu.
Einn vordag fyrir tveimur árum
sagði hún okkur frá veikindum sín-
um. Gekk hún þá skömmu síðar
undir stóra aðgerð og þar á eftir í
erfiða eftirmeðferð. Hún var bjart-
sýn og hafði óbilandi kjark, og trúði
því að hún myndi sigra þennan ill-
víga sjúkdóm. Það var mikil lífs-
reynsla fyrir okkur að sjá nána vin-
konu í blóma Iífsins heyja svona
harða baráttu. Það er svo ótrúleg
hvað er hæt að leggja á eina mann-
eskju. En þrekið minnkaði og örlög
sín fær enginn flúið.
Elsku Elín Ösp, Ester, systkini
og aðrir aðstandendur. Missirinn er
mikill. En minningin uin góða stúlku
lifir í hjörtum okkar. Megi guð vera
með ykkur.
Gunnhildur og Sigga.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem)
Okkur langar að minnast ástkærr-
ar vinkonu okkar Jófríðar Soffíu
Kristinsdóttur sem andaðist 13. sept.
sl. Jófý var viljasterk og kjarkmikil,
sem sýndi sig best í baráttu hennar
við erfiðan sjúkdóm. Við kynntumst
Jófý í Reykjaskóla og áttum þar
margar skemmtilegar stundir sam-
an. Jófý tók virkan þátt í öllu félags-
lífi skólans, jafnt blaðaútgáfu, klúb-
bastarfsemi, veisluhöldum og prakk-
arastrikum og svo auðvitað íþrótt-
um. Þar keppti hún í flestum íþrótta-
greinum fyrir hönd skólans.
Ef söng bar á góma var Jófý þar
á meðal og átti hún stóran þátt í
að kvennasveitin Rokkskessurnar
tók þátt í hljómsveitakeppninni í
Reykjaskóla, Jófý var þar í broddi
fylkingar sem aðalsöngkona hljóm-
sveitarinnar. Jófý var mörgum hæfi-
leikum gædd og kunna margir að
minnast þess að hafa lagt leið sína
í herbergi 49 til að fá hár sitt snyrt.
Við erum þakklátar fyrir þær
samverustundir sem við fengum að
njóta með elsku Jófý.
Ester, Elín, systkini og aðrir að-
standendur, við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð. Guð styrki ykkur öll.
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem, Sb. 1886.)
Jónína, Jóga og Daddý
JT>íl1
18. -28. september
O Geriðkjarakaupá
gólfefnadögum
Húsasmiðjunnar.
HUSASMIÐJAN
Skútuvogi 16, Reykjavík