Morgunblaðið - 24.09.1991, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
45
brauð kr. 0,68, viðgerð á skóm kr.
3,90. 8. maí 1942: Útvarpsafnota-
gjald kr. 30, hörtvinni kr. 1,20,
hárgreiða kr. 1,15, rennilás kr.
3,00, 1 kg hrísgijón kr. 1,39, 2 kg
molasykur kr. 2,80, 2 kg strásykur
kr. 2,38, 2 pk. kaffi kr. 3,00, 2 st.
kaffibætir kr. 2,40, 1 kg smjör kr.
11,50, 1 kg blautsápa kr. 3,00, 2
st. stangasápa kr. 1,15, 1 pk.
þvottaduft kr. 1,00. 9. maí 1942: 3
kg ýsa kr. 1,80, 3 kg frosið dilka-
læri kr. 14,10, 2 hárklippingar
(krakka) kr. 4,00. 10. maí 1942: 1
peli 'ijómi kr. 1,63, sundlaugar kr.
0,20. 11. maí 1942: IV2 kg saltfisk-
ur kr. 3,00. 12. maí 1942: Ný ýsa
kr. 1,80, franskbrauð kr. 0,68, 1
st. rúgbrauð kr. 1,02, ‘/2 kg rúsínur
kr. 3,00, skór kr. 20. 18. maí 1942:
1V2 kg saltfiskur kr. 3,00, 1 kg
kremkex kr. 5,25, hitabrúsi kr.
6,35, 1 pk. klór kr. 0,50, 1 st. rúg-
brauð kr. 1,02, 1 pk. þvottaduft kr.
.1,15, 1 st. franskbrauð kr. 0,68,
150 kg kol kr. 24,00.“
Annað sem kemur fram er alúð
afa við garðinn sinn og skúrinn.
„Kálgarðsleiga kr. 18,00, garð-
áburður 50 kg kr. 36,50, rákajárn
kr. 11,00, tröllamjöl, skrár og lam-
ir kr. 9,50, garðplæging kr. 30,00.“
Hér er meiri fróðleikur fyrir maí
1942: „Endurnýjun happdrættis kr.
2,00, gasreikningur kr. 6,40, raf-
magnsreikningur kr. 5,70, vekjara-
klukka kr. 30,00, vegabrjefahulstur
kr. 2,50, sjómannafjelagsgjald kr.
| 24,00, viðgerð á hjóli kr. 13,00,
húsaleiga kr. 70,00.“
Eitthvað hefur hjólgarmurinn
verið að angra afa því þessi kostn-
aðarliður kemur oft fyrir, en víða
í dagbókunum er hann að þvo og
pússa hjólið. Á eftir hjólinu kemur
alúð hans við sundiðkanir og þá
einn, kr. 0,20, eða dæturnar með,
kr. 2,30. Hann afí átti ekki bíl.
Dagbækurnar ijalla um heimilið,
frúna, dæturnar, vinnuna, veðrið,
kálgarðinn og atburði er vöktu at-
hygli afa, en lítið fjallaði hann um
sjálfan sig, af svo mikilli alúð heim-
ilisföður að til fyrirmyndar er. Þetta
var maðurinn sem hún amma gift-
! ist, draumaprinsinn. Ég er smá
saman að kynnast afa og ömmu frá
þessum dagbókum afa.
19. júní 1949 var sorgardagur
fyrir Þuríði Ámundadóttur og dætur
hennar fjórar, Laufeyju, Ingu, Auð-
| björgu og Johönnu, sem átti eftir
1 að breyta mjög miklu fyrir mjög
marga. Afi dó eftir miklar kvalir
og heyrðust bergmál neyðarópa
hans í atferli móður minnar lengi
lengi. Hann afi dó af brunasárum
eftir um vikulegu á spítala hér í
Reykjavík.
Ég vil leyfa mér að segja að upp
frá þessu hafi amma mín gerst
„nunna þagnarinnar" á sinn hátt.
Hún byijað að vinna úti sem fyrir-
vinna hjá klaustursystrunum í
NÁMSAÐSTOÐ
við þá sem viíja. ná ferujra í ?;
• grunnskóla • framhaldsskóla |
• háskóla
Innritun í síma: 79233
Nemendaþjánustan sf.
Fagmenn biðja um
| (D DEITERMANN
flísalímið, því það er
| ÖRUGGT og þjált í notkun.
Fúgusement í litum.
' ALFABORG P
BYGGINGAMARKAÐUR
KNARRARVOGI 4 — SÍMI 686755
Landakoti og var þar fram á ellilíf-
eyrisaldur, en giftist aldrei aftur.
Ekki skorti ömmu biðlana eins
og hún sjálf sagði við mig eitt sinn,
stoltið uppmálað á sinn tignarlega
hátt, en ég mun aldrei gleyma orð-
um ömmu er við sátuin saman einu
sinni sem oftar, er ég otaði að henni
forvitni minni: „Elsku Guðbrandur
minn, það getur enginn karlmaður
fyllt rúm afa þíns.“ Þetta voru orð
ömmu minnar um eilífa ást. Síðar
og á öðrum stað kom til ömmu
kona er spurði, „Þuríður mín,
hvernig stendur á því að þú er allt-
af svona slétt og falleg" og þessi
amma mín svarar og reisti sig í
stólnum: „Ég var svo vel gift.“
Það yrði of langt mál að telja
upp allt það góða sem Þura amma
mín hefur sagt um mig og gert
fyrir mig, en þó vil ég minnast þess
að ekki fór Guðbrandur Jónsson ber
í leiðangurinn til Grænlands forð-
um, þökk sé ömmu minni, það var
dáðst að útliti íslenska lopans eins
og hún amma mín hafði frá honum
gengið, sokkar, peysur, vettlingar
og treflar, íslensk menningararf-
leifð, sem amma mín varðveitti í
handavinnu sinni og lopapeysan
góða var jafn góð í 40 stiga frosti
í Grænlandi sem í 40 stiga hita í
frumskógum Borneó er ég var þar.
Já, íslenski lopinn hennar ömmu
minnar hafði töframátt sem á sér
engann líka.
Hún amma Þura hefur staðið við
heit þagnarinnar eftir lát drauma-
prinsins, eiginmannsins.
Amma mín, Þuríður Ámunda-
dóttir og afi minn, Guðbrandur
Gunnlaugsson, munu nú aftur sofa
saman í einu rúmi, hlið við hlið að
eilífu. Blessuð veri minning þeirra.
Guðbrandur Jónsson.
Elskuleg amma mín og nafna,
Þuríður Ingibjörg Ámundadóttir, er
látin í hárri elli, á 94. aldursári.
Þrátt fyrir það að við höfum fengið
að njóta hennar eins lengi og raun
ber vitni er söknuður ininn við frá-
fall hennar mikill.
Amma Þuríður fæddist'á Kambi
í Flóa 23. júní 1898, dóttir hjón-
anna Ámunda Sigmundssonar, Jó-
hannessonar frá Langholti í Ytri-
Hrepp, og Ingibjargar Pálsdóttur,
Guðmundssonar frá Keldum á
Rangárvöllum.
Amma ólst upp með foreldrum
sínum í stórum, glæsilegum og
glaðværum hópi systkina, en þau
voru átta sem lifðu til fullorðins ára
af ellefu börnum hjónanna. Oft var
glatt á hjalla í Kambi, mikið sungið
og gert að gamni sínu. En að sjálf-
sögðu voru þau systkinin að þeirrar
tíðar hætti alin upp við að láta vinn-
una við hin daglegu bústörf, inni
og úti, ganga fyrir öllu öðru. Efni
munu ekki alltaf hafa verið mikil í
Kambi, en þeim mun meira um
hjartahlýju og góðvild, ekki síst
gagnvart þeim, sem með einhveij-
um hætti höfðu orðið undir í lífsbar-
áttunni eða áttu við einhvers konar
erfiðleika að stríða.
21. ágúst 1924 giftist amma
Guðbrandi Gunnlaugssyni frá Há-
koti í Flóa. Voru þau þá flutt til
Reykjavkur, þar sem afi stundaði
sjómennsku, en síðari árin eftir að
hann hætti að stunda sjóinn vann
hann lengst af hjá Reykjavíkurhöfn,
þó síðast hjá málningaiverkmsiðj-
unni Hörpu, þar til hann varð fyrir
slysi 19. júní 1949 og lést af afleið-
ingum þess viku seinna. Á þeim
árum var það talið i'ullt verk fyrir
sjómannskonu að vera heima og í
landi til að hugsa um bú og börn,
því sjómenn þeirra tíma voru mest
í burtu frá heimili sínu allt árið og
gátu lítið hugsað um börn sín og
þá snúninga sem heyra til heimilis-
haldi. Afi og amma eignuðust fjórar
dætur sem allar eru á lífi en þeir
eru: Laufey, húsmóðir, gift Berent
Th. Sveinssyni, loftskeytamanni,
þau eru barnlaus, Inga Þuríður,
húsmóðir, gift Jóni Ó. Hjörleifs-
syni, viðskiptafræðingi, þau eiga
fjögur börn, Auðbjörg Lilja, full-
trúi, var gift Guðmundi Steinbach,
verkfræðingi, þau eiga tvær dætur,
þau skildu og Jóhanna Guðbjörg,
skrifstofumaður, gift Sigurði Þor-
kelssyni, viðskiptafræðingi, þau
eiga þijá syni. Barnabörnin eru níu
og langömmubörnin eru fimmtán.
Eftir lát afa varð amma að fara
að vinna í fyrsta sinn utan heimilis,
þá komin á sextugsaldur, fyrst á
saumastofu hjá Föt hf. og síðan á
Landakotsspítala, vakti þar yfir
sjúklingum, og vann síðar við síma-
vörslu. Átti hún þá eftir að koma
sér upp íbúð á eigin spýtur í Stiga-
hlíð 8 og búa þar á fjórðu hæð og
annast um sig sjálf, þar til hún fór
þrotin að kröftum fyrir 10 mán-
uðum á elli- og hjúkrunarheimilið
Grund þar sem hún lést.
Amma var ákaflega vel gerð og
heilsteypt kona bæði til orðs og
æðis. Á sinni löngu ævi kynntist
hún ógrynni af fólki og lagði alltaf
allt út á besta veg, ég heyrði hana
aldrei tala styggðaryrði um nokk-
urn manna þau átta ár sem ég bjó
hjá henni. Ommu féll aldrei verk
úr hendi, hún var alltaf að og það
eru margir, bæði börn og fullorðn-
ir, sein hafa yljað sér í sokkum frá
henni.
Amma tilheyrði þeirri kynslóð
íslendinga, sem upplifað hefur hvað
örastar breytingar á íslensku þjóð-
félagi frá upphafi byggðar í landinu,
þeirri kynslóð, sem m.a. hefur lagt
grunninn að því allsnægtaþjóðfélagi
sem við búum í nú. Með þessari
kynslóð hverfur mikill fróðleikur
um lifnaðarhætti fyrr á öldinni og
ég sakna þess stundum að hafa
ekki haft tækifæri til að ræða meira
við ömmu um bernsku hennar og
uppvaxtarár í Flóanum.
Að leiðarlokum þakka ég ömmu
samfylgdina og allt sem hún hefur
kennt mér. Guð blessi minningu
Þuríðar Ingibjargar Ámundadóttur.
Þuríður I. Jónsdóttir.
lísadagar
Fallegar flísar prýða
hvert heimili.
Þær eru ekki bara fallegar,
heldur hka sterkasta efni á
gólf og veggi, sem völ er á.
Vi5 seljum næstu daga mikið
af gólf- og veggfhsum
á heimsþekktum
öendum, með 10-50%
afslætti.
>1 iiniö Hvggingavell uiiíi.
25% úl og eiíirstöA\ ar
í allí að 3 ár.
%
málninnar^ UJ
pjúnDstan hf
aki
ranesi
£
arma
HAFNARFJRÐl
M.
METRO
(MJÓDD
Járn & Skip
KEFLAVlK
G.Á. Böðvarsson hf. li il*í 1*111ii11
SELFOSSI
Grensásvegi 11 • Reykjavlk • Slmi 83500