Morgunblaðið - 24.09.1991, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
55
Moto cross:
Meistarinn vann örugglega
ISLANDSMEISTARINN í moto
cross, Ragnar Ingi Stefánsson,
vann örugglega í moto cross
keppni Úðafoss, sem fram fór
við Sandskeið á sunnudaginn.
Ragnar ók Yamaha mótorhjóli
og sigraði í öllum þremur moto
keppnunum og þykir nú líkleg-
astur til að veija titilinn, þegar
ein keppni er eftir. Hún fer
fram í Vestmannaeyjum um
næstu helgi.
Ragnar hlaut 60 stig til íslands-
meistara með því að vinna í keppn-
inni og hefur 120 stig samtals.
Páll Melsteð hefur 132 stig, en
hann varð annar á sunnudaginn
og hlaut 49 stig. Hann hefur hins-
vegar ekið í fleiri mótum en Ragn-
ar, en þrjú mót af fjórum telja til
meistarakeppninnar. Jón Bjöm
Björnsson á Suzuki varð þriðji á
eftir Ragnari og Páli og Magnús
Þ. Sveinsson á Honda fjórði. Flokk
fjórhjóla vann Guðmundur Sig-
urðsson á Suzuki, hlaut 37 stig
og Ámi Böðvarsson á Suzuki varð
annar.
Leiðrétting
í samtalinu við Oddfríði Sæ-
mundsdóttur, sem birtist í blaðinu
sl. sunnudag, urðu mistök er getið
var um fyrsta ljóð hennar, sem
birtist á prenti. Þar átti að standa:
„Kvæðið Við dagsetur var fyrsta
ljóðið sem birtist á prenti eftir
mig. Frú Guðrún ekkja Þorsteins
Erlingssonar birti það í bók sem
heitir Dropar og kom út 1927“.
Þá stendur í viðtalinu Hvalhreppur
en á að vera Hvolhreppur. Blaðið
biðst velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Stykkishólmur:
Eitt besta sumarið á enda
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Islandsmeistarinn Ragnar Ingi Stefánsson gefur sigurmerki um leið
og hann svífur framhjá flaggaranum í endamarkinu.
Spástefna um stöðu
aldraðra árið 2000
Stykkishólmi.
Einu allra besta sumri í Stykkis-
hólmi er nú að ljúka. Hefur þar
margt átt sinn þátt í að auka hing-
að ferðamannastrauminn og þá
ekki síst veður og sú náttúrufeg-
urð sem Breiðaljörður hefur upp
á að bjóða. Oft hrökk plássið á
tjaldstæðunum ekki til og varð þá
að tjalda í nágrenni þess. Þessi
mynd er frá hluta tjaldanna um
eina helgi á tjaldstæðunum í
Hólminum. Árni
ÖLDRUNARRÁÐ íslands gengst
fyrir spástefnu um stöðu aldraðra
árið 2000 föstudaginn 27. septem-
ber nk.
Spástefnan verður haldin í Borg-
artúni 6 og hefst kl. 13.15. Meðal
fyrirlesara verður Sighvatur Björg-
vinsson heilbrigðisráðherra, sem
gerir grein fyrir stefnu stjórnvalda
í þjónustu við aldraða um aldamótin
2000. Önnur framsöguerindi verða:
Mannfjöldi árið 2000, Guðni Bald-
ursson, viðskiptafræðingur á Hag-
stofu íslands. Heilsufarsleg staða
aldraðra um aldamótin: Ársæll Jóns-
son, læknir. Siðfræðileg ábyrgð í
öldrunarþjónustu, Björn Björnsson
prófessor.
I lok spástefnunnar verða pall-
borðsumræður. Spástefnustjóri
verður Jón Eyjólfur Jónsson, læknir.
Spástefnan er öllum opin, spástefnu-
gjald er kr. 1.500 en kr. 500 fyrir
ellilífeyrisþega.
SPÆNSKUNAMSKHD
10 vikna hagnýt spænskunámskeið hefjast 30. sept-
ember, fyrir byrjendur og lengra komna, hentar fólki
á öllum aldri. Kennt í fámennum hópum.
Upplýsingar og innritun í síma 91-685824 milli kl.
15:00-19:00, laugard. kl. 10:00-14:00.
FJARNÁM; einnig er boðið upp á fjarnám í spænsku.
Málaskólinn HOLA - lifandi tunga -
Ármúla 36, sími 91-685824.
Selfosskirkja:
Síðustu þriðjudags-
tónleikamir í kvöld
Seifossi.
OFNHITASTILLIR
Á INNRENNSU EÐA ÚTRENNSU OFNS
DANFOSS ofnhitastillar eru tvenns konar og ætlaðir til notkunar við mismunandi skilyrði:
DANFOSS RA 2000 er ætlaður á innrennsli ofna en DANFOSS FJVR á útrennsli þeirra.
Meginregla framleiðandans er að nota skuli RA 2000: Hann nemur herbergishita og heldur þeim
kjörhita, sem valinn er, á hagkvæman hátt.
Þar sem hitasveiflur eru miklar, t.d. í forstofum eða bílageymslum, hentar FJVR hins vegar betur:
Hcmn stjómar hitastigi á útrennslisvatni frá ofninum óháð herbergishita.
Veldu réttan ofnhitastilli.
Veldu DANFOSS! Það borgar sig.
FIMMTU og síðustu orgeltónleikarnir sem efnt er til í Selfoss-
kirlgu í tilefni verkloka við húsakynni safnaðarins og endurnýjun-
ar og stækkunar orgeisins verða í kvöld, þriðjudag 24. septem-
ber, klukkan 20.30.
Orgeltónleikar hafa verið haldn-
ir í Selfosskirkju á hvetjum þriðju-
degi í september og hafa flestir
verið með eindæmum vel sóttir.
Á fyrstu tónleikunum var flutt
blönduð efnisskrá með verkum
helstu höfunda. Á næstu tveimur
var ári Mozarts gerð skil með
flutningi á verkum hans og ann-
arra samtímamanna undrabams-
ins. í síðustu viku heyrðust ein-
ungis stórverk og var þeim ætlað
að reyna á þorrif hljóðfærisins.
Hafi þau líka reynt á þolrif ein-
hverra áheyrenda, þá er efnisskrá-
in S kvöld sérstaklega sniðin að
óskum sem fram hafa komið um
að gefa fólki kost á að heyra vel
þekkta tónlist. Einkum er hyllst
til að taka til flutnings tónlist sem
höfundar hafa sjálfir umskrifað
fyrir orgel. Þar sem á meðal pípna
sem bættust í hópinn þegar orge-
lið var stækkað um tíu raddir voru
nokkrar einleiksraddir ætti að gef-
ast gott tækifæii til að ná eyrum
áheyrenda í tónlist.
Þessir eiga verk á vinsældalist-
anum: Beethoven, Gounod, Mend-
TJöfóar til
XAfólks í öllum
starfsgreinum!
elssohn og Páll ísólfsson. Verk
sem leikin verða í kvöld og samin
eru fyrir orgel eru eftir Buxetude,
Marcello, J.S. Bach og Franck.
Við orgelið er Friðrik Vignir Stef-
ánsson.
Tónleikarnir eru kostaðir af
Héraðssjóði Árnesprófastdæmis
og Flugleiðum en aðgangur
ókeypis.
Sig. Jóns
er
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2, SlMI 624260
VERSLUN - RÁÐGJÖF
STIGAHUSATEPPI
STIGAGANGAR
SKRIFSTOFUR
VERSLANIR
Á ALLA ÞÁ STAÐI
SEM MIKIÐ
MÆÐIR Á
67 NÝIR
TÍSKULITIR
, 5 ARA
ABYRGÐ
10 ÁRA MJÖG GÓÐ
REYNSLA HÉR Á LANDI
VIÐURKENND AF
BRUNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS
EHUKS BERTEIi
FÁKAFENI 9 - SÍMI 686266