Morgunblaðið - 16.10.1991, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991
1
Miklilax og Silfursljarnan fá styrki:
Skulda Byggðastofnun
tæpan milljarð króna
BYGGÐASTOFNUN hefur ákveðið að veita Miklalaxi hf. styrk að
upphæð samtals 113 miHjónir króna og Silfurstjörnunni styrk að
upphæð 25 milljónir króna. Samtals skulda þessi fyrirtæki Byggða-
stofnun tæpan milljarð króna, þar af er skuld Miklalax 582 milljón-
ir og Silfurstjörnunnar 341 milljón.
Guðmundur Malmquist forstjóri
Byggðastofnunar segir að styrkur-
inn til Miklalax hafi verið ákveðinn
til að reyna að forða fyrirtækinu
11
Kúnni ekki
greiði gerður
með lífgjöf”
„ÉG HELD að hún hefði
aldrei náð sér eftir þetta
allt saman, og það hefði því
verið vonlaust mál að gefa
henni líf. Þegar gripir verða
svona vitlausir er eins og
þeir nái sér aldrei aftur,”
segir Valgarður Hilmars-
son, bóndi á Fremstagili í
Langadal, eigandi kýrinnar
Vonar, sem skotin var á
færi eftir sólarhrings elting-
arleik í síðustu viku.
Að sögn Valgarðs var
ákveðið að slátra kúnni þar
sem hún reyndist kálflaus, en
hún átti að bera í vetur.
„Okkur tókst alls ekki að
stoppa hana og því vildum við
frekar skjóta hana þama held-
ur en að trylla hana enn frek-
ar. Ég held henni hefði ekki
verið neinn greiði gerður með
því að lofa henni að lifa því
hún hefði að öllum líkindum
aldrei náð sér eftir þetta. Hún
var fímm vetra gömul og búin
að eiga tvo kálfa, en af því
hún var ekki með kálfi núna
ákvað ég að farga henni,”
sagði Valgarður.
frá gjaldþroti. „Við vildum með
þessu reyna hvort ekki væri hægt
að halda starfseminni gangandi,”
segir Guðmundur.
Á blaðamannafundi sem Byggða-
stofnun efndi til í gær kom fram
að sökum þess hversu takmörkuð
framlög eru til Byggðastofnunar í
fjárlögum verður að taka styrkveit-
ingamar af eigin fé stofnunarinnar.
Styrkurinn til Miklalax felst í 31
milljón til framkvæmda, 17 milljón-
um til fóðurs- og launakostnaðar
og eftirgjöf á skuld á viðskipta-
reikningi uppá 65 milljónir króna.
Styrkurinn tii Silfurstjömunnar er
til að koma upp mjúkfóðurgerð og
dreifikerfi fyrir fóður.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Viðbúnaður vegna auglýsinga-
belgs
Slysavamafélagi íslands barst í gærmorgun tilkynning frá vegfarend-
um við Eiðisgranda um að torkennilegur hlutur hefði fallið í sjóinn
skammt út af Ánanaustum. Hölluðust menn helst að því að um
gúmmíbjörgunarbát úr flugvél væri að ræða og fóru björgunarsveitar-
menn þegar út á bát að leita að hlutnum. Eftir töluverða leit fundu
kafarar Slysavamafélagsins hlutinn á sjávarbotni skammt út af Eiðis-
granda. Var þar um að ræða uppblásna kakómaltdós, auglýsinga-
belg sem hafði slitnað upp frá Miklagarði.
Jón Baldvin Haimibalsson um fund ráðherra EFTA-ríkjanna og EB:
Til beggja vona getur
brugðið með samninga
FUNDUR ráðherra EFTA-ríkjanna og Evrópubandalagsríkjanna hefst
í Lúxemborg næstkomandi mánudag þar sem væntanlega ræðst hvort
samningar um evrópskt efnahagssvæði takast. Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra kynnti undirbúning málsins og stöðu þess á ríkis-
stjómarfundi í gærmorgun. Hann og Davíð Oddsson forsætisráðherra
sögðust í gær meta stöðuna þannig að það gæti brugðið til beggja
vona hvort samningar tækjust eða ekki.
„Ég met það svo á þessari stundu
að ráðherrar EB komi með eitt sam-
eigjnlegt tilboð til EFTA-ríkjanna,
sem þeir miði við tillögur Norð-
manna. Síðan verði gengið eftir því
að tekist verði á um þau sérmál sem
varða þjóðarhagsmuni íslendinga
fram á síðustu stundu,” sagði utan-
ríkisráðherra í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Jón Baldvin sagði að
EFTA-ríkin fyrir sitt leyti hefðu sam-
þykkt slíkan möguleika hvað Island
varðar. „Það er einnig gefið í skyn
af hálfu Evrópubandalagsins, en það
liggur ekkert fyrir þar um,” sagði
utanríkisráðherra.
• •
Kettlingnrinn Ormur í Onundarfirði:
Ferðaðist rúma 300
km osrtýndi siö lífum
Flateyri. I/ Qj
HANN átti einskis ills von kettl-
ingurinn Ormur, sem komið var
í fóstur úr kaupstað í sveit er
hann eftir tveggja daga dvöl í
sveitinni fór út að kanna nýju
heimkynnin með húsbónda sín-
um Árna Brynjólfssyni bónda á
Vöðlum í Önundarflrði. Snemma
morguns skildu þeir á tröppun-
um, Ámi fór að gegna kúnum
og kisi í könnunarleiðangur sem
endaði með liðlega 300 km ferða-
lagi í sex og hálfan tíma í vélar-
rúmi heimilisbílsins. Meðan
Ormur týndi hverju Iífinu á fæt-
ur öðru á ferðalaginu var hans
sárt saknað heima fyrir.
„Þetta vildi nú þannig til”, sagði
Árni, „að eftir gegningar í fjósinu
þurfti ég að bruna vestur á Bijáns-
læk að sækja farþega í flóabátinn
Baldur sem hugðist kaupa sér bíl
á Þingeyri. Eftir að hafa heimt
farþegann er haldið til Þingeyrar,
þar verslar félagi minn bílinn á
meðan þurfti ég ýmislegt að sýsla.
Á öllu þessu ferðalagi marg stopp-
aði ég bílinn og varð einskis var.
Ferðin heim gekk heldur brösu-
lega, bíllinn bilaði í tvígang hjá
félaga mínum í Dýrafirði, þurftum
við því að þeytast til Þingeyrar í
annað skiptið og heim í hitt með
varahluti. Það er svo ekki fyrr en
um fimmleytið að við erum að
bagsa við bílinn í Dýrafirði að við
förum að heyra einhver einkennileg
hljóð, mér fannst þetta líkjast helst
mávagargi og leit til himins en
Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir
Árni Brynjólfsson kúa- og rokkbóndi ásamt sonum sínum Jakobi
Einari t.v. og Brynjólfi Ólafi ásamt kettlingnum Ormi. Ekki tókst
að mynda kisa við bílinn sem hann ferðaðist með, hann sleit sig
lausan úr fangi Árna hvað eftir annað en var tilbúin að sitja
fyrir innandyra.
félagi minn segir þetta líkist nú
frekar veinum í ketti, nú ég gekk
á hljóðið opnaði húddið á bílnum,
þar situr kettlingurinn fastur bak
við geymirúm með andlitið framan
í grillið eins og moldarköggull með
hárin úfín og sprungnar flugur og
fiðrildi framan í honum, hann var
frelsinu feginn.
Hann fer nú helst ekki út fyrir
dyr og þá helst mjög stutt, og held-
ur sig langt frá vélknúnum öku-
tækjum." Ámi sagði að nú væri
kisi búinn með sjö líf eftir þetta
ferðalag og ætti einungis eftir tvö.
Magnea
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagðist halda í samtali við Morgun-
blaðið í gær að góðar vonir væru til
þess að dæmið gæti gengið upp, en
þó gæti allt eins farið svo að viðræð-
umar sigldu í strand. „Ég held að
við sjáum það eftir fimm til sex daga,
hvort þarna nást samningar sem við
getum unað við, eða ekki. Við höfum
átt mjög gott samstarf við Norðmenn
í þessum viðræðum og samstaða með
þeim hefur verið okkur nauðsynleg.
En núna á lokasprettinum er ljóst
að okkar hagsmunir skarast svolítið.
Það er ekki ágreiningur, hvorki við
Norðmenn né EFTA-ríkin, um að
jafnhliða heildarsamningunum sé
ekki óeðlilegt að vissir þættir séu
teknir upp í tvíhliða viðræðum,”
sagði forsætisráðherra. Hann kvaðst
telja að það væri íslendingum hag-
felldara, þar sem þeir hefðu annarra
hagsmuna að gæta en Norðmenn,
sem hefðu betri stöðu, t.d. hvað varð-
ar markaðsaðgang fyrir saltfísk.
Jón Baldvin Hannibalssón utanrík-
isráðherra sagði í samtali í fréttum
Stöðvar 2 í gærkvöldi að með öllum
eðlilegum fyrirvörum lægi ljóst fyrir
að EB myndi ekki gera frekari kröf-
ur varðandi veiðiheimildir gagnvart
íslendingum. Tlann sagði það einnig
sinn skilning að EB muni staðfesta
fyrirvara íslands að því er varðar
heimildir til fjárfestingar í útgerð og
frumvinnslu.
Atvinnutekjur
1989 og 1990:
Sjómenn
hækkuðu
um 19,5%
ATVINNUTEKJUR sjómanna
hækkuðu um 19,5% að meðaltali
milli áranna 1989 og 1990 á sama
tíma og atvinnutekjur annarra
landsmanna hækkuðu um 11,5%
að meðaltali. Þetta kemur meðal
annars fram í athugun Þjóðhags-
stofnunar á tekjum og dreifingn
þeirra samkvæmt skattafram-
tölum.
Meðaltekjur fullvinnandi sjó-
manna, það er þeirra sem skiluðu
að minnsta kosti 274 lögskráðum
dögum, voru tæpar 2,9 milljónir
árið 1990 eða 242 þúsund krónur
til jafnaðar á mánuði. Meðallaun
allra þeirra sem fengu sjómanna-
afslátt einhvem hluta ársins voru
1.800 þúsund krónur að meðaltali.
Ef miðað er við tekjur karla að
meðaltali voru þær 1.418 þúsund
krónur, en atvinnutekjur giftra
karla sérstaklega voru 1.830 þús-
und og hækkuðu um 12,7% frá ár-
inu á undan. Tekjur giftra kvenna
voru 722 þúsund eða 39,5% af tekj-
um eiginmannanna. Samanlagðar
atvinnutekjur hjóna voru 2.375 þús-
und og höfðu hækkað um 12,6%
milli ára.
♦ ♦ ♦
Samkomu-
lagum
lausagöngu
í Múlasveit
SAMKOMULAG hefur tekist
milli manna í Reykhólasveit og
á Bi'jánslæk um að ekki verði
um frekari lausagöngu hesta í
Múlasveit að ræða. Girðingar á
beitarhólfi nálægt hreppsmörk-
um verða lagfærðar í því skyni.
Stóð 60 hesta sem Reykhóla-
menn voru komnir með í Djúpadal
meira en hálfa leiðina til Reyk-
hóla, yfír 100 kílómetra leið, verð-
ur rekið til baka af eigendunum.
Um tugur manna frá Reykhólum
sótti hestana á mánudag og rak
þá áleiðis til Reykhóla. í gær kom
maður frá Bijánslæk og reyndi
að trufla reksturinn og var stað-
næmst í Djúpadal. Sýslumaður
Barðstrendinga kom frá Patreks-
fírði ásamt lögreglu þangað um
miðjan dag í gær og tókst fyrr-
greint samkomulag í gærkveldi.
Hraðfrystihús Stokkseyrar og Glettingur:
Drög að samkomulagi
og nafn liggja fyrir
STJÓRN Byggðastofnunar hefur samþykkt þá stefnumörkun að sam-
eina Hraðfrystihús Stokkseyrar og Gletting í Þorlákshöfn. Guðmund-
ur Malmquist segir að reikna megi með að þessi tvö fyrirtæki verði
sameinuð frá og með næstu áramótum. Sameining þessara fyrir-
tækja er nú svo langt komin að drög að samkomulagi liggja fyrir
og nýtt nafn á fyrirtækið sem verður Arnes hf. Til að tryggja rekstr-
argrundvöll hins sameinaða fyrirtækis er talið að um 200 milljóna
kr. nýtt hlutafé þurfi að koma til.
Hið sameinaða fyrirtæki mun
hafa yfir að ráða kvóta sem nemur
5.500 tonnum af þorskígildum.
Skipakostur þess verður sjö bátar
og einn togari. Togarinn, Jóhann
Gíslason ÁR-42, er í eigu Glettings
og sem stendur kvótalaus. Hann
hefur að undanförnu verið á kaup-
leigusamning í Kanada og stundað
veiðar út af Nýfundnalandi.
Stefán Runólfsson framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Stokkseyrar
segir að hægt sé að sjá margskonar
hagræði af því að sameina fyrirtæk-
in tvö. „Það eru margir jákvæðir
þættir í þessu dæmi og það er langt
á veg komið,” segir Stefán. „Hins-
vegar liggur fyrir að til að styrkja
rekstrargrundvöll hins nýja fyrir-
tækis þarf um 200 milljónir króna
í nýju hlutafé og spuming hvemig
gengur að ná því inn.”