Morgunblaðið - 16.10.1991, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991
Borgarráð og Bridssamband íslands:
Samþykkt að fella
niður skuldirnar
Fulltrúar minnihlutans gerðu athuga-
semdir við hvernig málið bar að
BORGARRÁÐ samþykkti samhljóða í gær tillögu borgarsljóra
um að fella niður skuldir Bridssambands íslands, kr. 10.147.419,
við borgarsjóð. Fulltrúar minnihlutans gerðu athugasemdir við
hvernig málið bar að og töldu að fulltrúi borgarinnar hefði átt
að tilkynna um væntanlegan styrk er heimsmeistararnir komu
heim, en ekki forsætisráðherra.
„Mér finnst furðulegt innræti
hjá þessu fólki í minnihluta borgar-
ráðs að geta ekki glaðst af þessu
tilefni og þurfa að láta þetta ólund-
argeð gjósa svona upp,” sagði
Markús Örn Antonsson borgar-
stjóri í samtali við Morgunbiaðið
að loknum borgarráðsfundi í gær.
„Minnihlutinn fann að því að
forsætisráðherra hefði tilkynnt
þetta en ekki fulltrúi borgarinnar.
Ég taldi afar eðlilegt að forsætis-
ráðherra gerði þetta því ég var
utanbæjar með borgarstjóranum í
Winnipeg og komst því ekki á
móttökuathöfnina á sunnudags-
kvöld. Við Davíð ræddum þessi
mál og hann er auðvitað þaulkunn-
ugur máiinu enda ekki nema
nokkrir mánuðir síðan hann hætti
sem borgarstjóri.
Reykjavíkurborg mun að sjálf-
sögðu heiðra heimsmeistarana sér-
taklega og taka á móti þeim í
Höfða þegar allir verða komnir
heim, en forseti Bridssambandsins
er enn erlendis.
Ennfremur var fundið að því að
opinberlega væri tilkynnt að þetta
stæði til áður en málið væri rætt
í borgarráði. Það var alltaf talað
um að borgarstjóri ætlaði að hlut-
ast til um að málið yrði afgreitt
með þessum hætti, en að sjálf-
sögðu var þetta háð staðfestingu
borgarráðs.
Einnig var rætt um að þetta
væru bein fjárútlát úr borgarsjóði,
en það er misskilningur. Það er
ekki verið að skrifa tíu milljóna
króna ávísun heldur er felld niður
skuld sem greiða átti niður á löng-
um tíma,” sagði Markús Öm.
Manu Dibango íPerlunni
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Fransk-kamerúnski tónlistarmaðurinn Manu Di-
bango kom hingað til lands í gær og heldur tónleika
með tólf manna sveit sinni í Hótel íslandi í kvöld.
Manu Dibango er jafnan talinn frægasti tónlistar-
maður Afríku og með þeim framsæknustu, en hann
hefur sent frá sér fjölmargar breiðskífur sem selst
hafa í milljónum eintaka um heim allan. Manu lét
vel af móttökum hér á landi, en sendiherra Frakk-
lands, Jaques Mer, og Smekkleysa hf. sem stendur
að tónleikunum, hélt hóf Manu til heiðurs í Perl-
unni. Var þar margt fyrirmanna og lék Manu fyrir
gesti Take Five eftir Paul Desmond. Á myndinni
má sjá Björk Guðmundsdóttir frá Smekkleysu, Manu
Dibango og Jaques Mer.
Tilboð Norðurtanga hf. og Frosta hf. í Fiskiðjuna Freyju:
Hlutafé aukíð um 50 millj óiiir
og tögarinn seldur kvótalaus
TILBOÐ, sem hraðfrystihúsið Frosti hf. á Súðavík hafa gert í
Norðurtanginn hf. á ísafirði og hlutabréf í fiskiðjunni Freyju á
Byggðastofnun:
Byggðasjónarmið ráða
samþykki tilboðsins
Stofnunin fær 12,5 milljónir fyrir 97 milljóna hlut sinn
STJÓRN Byggðastofnunar sam-
þykkti í gær að taka tilboði Norð-
urtangans á Isafirði og Frosta á
Súðavík í Fiskiðjuna Freyju á Suð-
ureyri. Guðmundur Malmquist,
fofstjóri Byggðastofnunar, sagði
á blaðamannafundi í gær, að
stjómin hefði tekið tillit til byggð-
asjónarmiða, þar sem tilboðið
tryggði áframhaldandi atvinnu á
Suðureyri.
Á blaðamannafundi Byggðastofn-
unar í gær kom fram, að hlutafjár-
deild stofnunarinnar, sem stærsti
eigandi Fiskiðjunnar, hefði um all-
langt skeið leitað lausna á fjárhags-
Fiskihagfræði Gylfa
Þ. Gíslasonar gefin út
BÓKAÚTGÁFAN Iðunn hefur nú
gefið út á bók Fiskihagfræði eftir
Gylfa Þ. Gíslason, prófessor í hag-
fráði og fyrrverandi ráðherra.
Höfundur hefur áður ritað fjölda
bóka og greina í fjölmiðla um fisk-
hagfræði, einkum mögulegt veiði-
leyfagjald hin síðari misseri.
Bókin skiptist í 7 meginkafla;
Náttúruíjkilyrði til fiskveiða; Fijó-
semi og fisktegundir í Atlantshafi;
Hagfræði sjávarútvegs; Stjórn fisk-
veiða; Alþjóðasamningar um fisk-
veiðar; Fiskveiðilögsagan og þróun
hennar og Stjóm fiskveiða við fs-
land. Efnismesti kaflinn er um hag-
fræði sjávarútvegs, en hann skiptist
í fjórar undirdeildir, um grundvallar-
hugtök, undirstöðuatriði fiskihag-
fræði, þróun fiskihagfræðinnar og
áhrif breyttra forsenda.
í bókinni er þannig farið í gegn
um helztu þætti fiskihagfræðinnar
og þeir raktir í tímaröð og þróun
þeirra skýrð. í lokakafla bókarinnar
fjallar höfundur um ítarlega um
stjórn fískveiða við ísland, upphaf
fiskveiðistjómunarinnar og gildandi
reglur þar að lútandi. Hann kynnir
kvótakerfið hér og á Nýja Sjálandi
Gylfi Þ. Gíslason
og ritar um hugmyndir um endur-
bætur, einkum veiðileyfagjaldið.
Fiskihagfræði er 152 blaðsíður að
stærð og unnin í Prentsmiðjunni
Odda. í bókinni er fyöldi línurita og
grafískra skýringamynda.
vanda fyrirtækisins. Kannaðir hafi
verið möguleikar á sölu Hlaðsvíkur
hf., sem á togarann, og sölu hluta-
bréfa í Freyju. Þar sem nú væri ljóst,
að ekki yrði um neina eftirgjöf að
ræða á lánum úr Atvinnutryggingar-
sjóði útflutningsgreina væru mögu-
leikar á sameiningu við Fáfni hf. á
Þingeyri úr sögunni. Til greina hafi
komið að selja Hlaðsvík hf. til Hrann-
ar hf. á ísafirði og gera jafnframt
löndunarsamning um hluta aflans til
einhverra ára. Þessi kostur hefði
óhjákvæmilega haft í för með sér
verulegan samdrátt í fiskvinnslu hjá
Fiskiðjunni Freyju.
Fram kom, að tilboð Norðurtang-
ans og Frosta miðast við að greiða
230 þúsund krónur fyrir hvert 1%
hlutabréfa í fyrirtækinu. Hlutafjár-
deild á samtals 97 milljónir í hlutafé
í fyrirtækinu, sem er 54,2% hlutafjár
og fær því 12,466 milljónir fyrir sinn
hlut. Það greiðist fyrir áramót.
Stjóm Byggðastofnunar tók tilboð-
inu með þeim fyrirvörum, að gengið
verði frá loforði um 50 milljón króna
hlutafjáraukningu í Fiskiðjunni
Freyju, enda verði eldra hlutafé fært
niður í samkomulagi við aðra hlut-
hafa. Þá er sá fyrirvari, að forkaups-
réttarhafar hafni forkaupsrétti og
loks að umfang fiskvinnslu hjá Freyju
verði svipað og nú er, eða sem sam-
svari um 2500 tonnum af hráefni.
Guðmund Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, sagði að tilboðið
væri ekki hátt, en það væri álit
stjómar Byggðastofnunar að hluta-
fjárdeild gæti í þessu tilfelli leyft sér
að taka tillit til byggðasjónarmiða.
Með þessu yrði tryggð atvinna á
Suðureyri. Guðmundur sagði að í
gangi væru samningaviðræður við
aðra hluthafa um að falla frá for-
kaupsrétti.
Suðureyri, gerir ráð fyrir að
hlutafé fyrirtækisins verði aukið
um 50 milljónir. Reiknað er með
að togarinn Elín Þorbjarnardóttir
verði seldur, en kvóti hans fluttur
á skip Norðurtangans og Frosta.
í tilboðinu kemur meðal annars
fram að það sé ásetningur Norður-
tangans og Frosta að umfang fisk-
vinnslu á Suðureyri verði með svip-
uðum hætti og verið hefur. Stefnt
sé að því að vinna um 2500 tonna
hráefni þar, en jafnframt reynt að
byggja upp hagkvæma og arðbæra
rekstrareiningu með því að tryggja
sem jafnast hráefni og auka hag-
ræðingu í rekstrinum. Frosti og
Norðurtangi munu sjá um hráefnis-
öflun fyrir vinnsluna á Suðureyri
og nýta til þess hagkvæmasta skip-
astól á hveijum tíma. Elín Þorbjam-
ardóttir verður seld og aflakvóti
hennar fluttur á önnur skip fyrir-
tækjanna. Þá verður aflakvóti fyrir-
tækjanna allra samtals 10.880
tonn, eða 9.511 tonn í þorskígildum.
Fyrirtækin hafa yfir að ráða sjö
skipum eftir þessar aðgerðir.
I tilboðinu kemur fram að nettó-
skuldir Freyju og Hlaðsvíkur, sem
er eigandi togarans Elínar Þor-
bjamardóttur, eru liðlega 500 millj-
ónir króna og er gjaldfallið og í
vanskilum lausaskuldir upp á 70
milljónir og 100 milljóna langtíma-
lán. Félögin skuldbinda sig til að
auka hlutafé í Freyju um 50 milljón-
ir og yfirtaka lán og skuldbindingar
hvort um sig að upphæð 150 millj-
ónir króna við sölu togarans og
útvega ný veð fyrir sömu fjárhæð.
Þá skuldbinda félögin sig til að
semja um útvegum nýrra lána og
skuldbreytingu eldri lána, en til
þess þurfa þau að útvega veð í
öðmm eignum sínum.
Kvóti Elínar Þorbjarnardóttur er
2000 tonn, eða 1636 tonn í þorsk-
ígildum. Þá er kvóti Sigurvonar 441
tonn, eða 414 tonn í þorskígildum.
Tilboðið gerir ráð fyrir að Sigurvon
verði gerð út áfram frá Suðureyri
og gæti fiskað á annað þúsund tonn,
en á annað þúsund tonn skuldbinda
Norðurtangi og Frosti sig til að
útvega. Fyrirtækin verða með sjö
skip, þijú skip Norðurtanga og þijú
skip Frosta, auk Sigurvonar.
Ráðinn aðstoðar-
maður sjávar-
útvegsráðherra
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra hefur ráðið Halldór
Áraason, starfsmann Samstarfs-
nefndar atvinnurekenda í sjávar-
útvegi, aðstoðarmann sinn í sjáv-
arútvegsráðuneytinu. Halldór
hefur störf í ráðuneytinu um
næstu mánaðamót.
Halldór er
fæddur á Eski-
firði árið 1958.
Að loknu námi í
stjómmálafræði
við Háskóla ís-
lands stundaði
Halldór nám í út-
flutnings- og
markaðsfræðum í Halldór Árnason
Danmörku en hann hefur starfað
hjá Samstarfsnefnd atvinnurekenda
í sjávarútvegi undanfarin þijú ár.
Feginn að skriður
er kominn á málið
- segir sveitarstjórinn á Suðureyri
„ÉG er feginn að það er kominn
einhver skriður á málin,” sagði
Snorri Sturluson sveitarstjóri á
Suðureyri í samtali við Morgun-
blaðið.
„Ég er svo nýbúinn að frétta
af þessu og því er eiginlega ekkert
hægt að segja strax. Við munum
funda með þessum aðilum fljótlega
og forvitnast um hvað fellst í til-
boðinu. Það hangir ýmsilegt fleira
á spýtunni fyrir okkur í þessu sam-
bandi, bæði hafnargjöld og annað
og við þurfum að fá nánari upplýs-
ingar um það áður en hægt er að
tjá.sig um tilþoðiðj’ sagði. Snorri.