Morgunblaðið - 24.10.1991, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991
5
Buxnalaus á
rauðum bíl
UNDANFARNA daga hefur
maður nokkur að minnsta
kosti tvisvar áreitt 13 og 14
ára telpur við Sundlaug Vest-
urbæjar með því glenna kyn-
færi sín framan í þær.
Manninum er lýst svo að
hann sé um þrítugt með yfir-
skegg og ferðist buxnalaus á
rauðum amerískum bíl. Hann
hefur setið fyrir stúlkunum
þegar þær koma úr sundlaug-
inni. Síðan ekur hann nokkurn
spöl við hlið þeirra á hægri ferð
og strýkur sér.
Lögregla leitar mannsins.
Davíð Þorsteinn
SUS og Vörður:
Opinn fund-
ur um EES
SAMBAND ungra sjálfstæðis-
manna og Lándsmálafélagið
Vörður gangast í dag, fimmtu-
dag, fyrir opnum fundi um Evr-
ópska efnahagssvæðið. Fundur-
inn verður haldinn á Hótel Borg
og hefst kl. 17.15.
Frummælendur á fundinum
verða Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra. Fundurinn er öllum
opinn. Frummælendur munu svara
fyrirspurnum að erindum sínum
loknum.
Iðnþing sett í dag:
„Islenskt
atvinnulíf -
framfarir
eða fátækt?”
44. Iðnþing íslendinga verður
sett í Súlnasal Hótel Sögu í dag
klukkan 11. Þingið stendur að
þessu sinni í tvo daga. Kjörorð
þess er: „íslenskt atvinnulíf -
framfarir eða fátækt?”
Við setninguna flytja forseti
Landssambands iðnaðarmanna,
Haraldur Sumarliðason, og Jón Sig-
urðsson iðnaðarráðherra ræður.
Eftir hádegið verður umljöllun um
kjörorð þingsins. Erindi flytja Þó-
rólfur Matthíasson lektor, Jón Sig-
urðsson forstjóri, Styrmir Gunnars-
son ritstjóri og Kristján Guðmunds-
son viðskiptafræðingur. Síðdegis
taka framsögumenn og fulltrúar
stjórnmálaflokka þátt í panelum-
ræðum.
Á föstudag verða almenn þing-
störf og lokahóf um kvöldið. .
Iðnþing er stefnumarkandi ráð-
stefna um málefni fyrirtækja og
einstaklinga sem reka starfsemi í
löggiltum iðngreinurri og er það
haldið annað hvert ár.
7 f'T f
' |f 9
'//
JCB4CX
4x4x4 BYLTINGARKENNDA
FRAMTÍÐARVÉLIN FRA JCB
m
^ Innni
Laugardaginn 25. október n.k. fró kl. 10.00 til 17.00
ó sýningarsvæói GLOBUS aö Lógmúla 5
Sýnum einnig:
JCB 3CX - Sú vel þekkta í nýjum búningi
JCB 2CX • Minni útgáfa af 4CX
JCB 801 • Mini Beltavélin
JCB 530 - 95 Fjölnotalyftara
Auk þess sýnum viö úrval vökvaknúinna fylgihluta fyrir
vinnuvélar, pail- og sendibíla frá FORD og
dráttarvélar frá FIATAGRI og ZETOR
- okkar heimur snýst um gœbi
■ 11 1